Morgunblaðið - 23.10.2013, Side 2
MEISTARADEILDIN
Sindri Sverrisson
sindris@mbl.is
„Riðillinn er hnífjafn og erfiður fyrir
okkur, en þetta er yfirstíganlegt. Við
þurfum að ná góðum úrslitum á úti-
velli og það getum við alveg gert,“
sagði Arsene Wenger, knatt-
spyrnustjóri Arsenal, eftir 2:1-tapið
gegn Dortmund í Lundúnum í gær-
kvöld. Þó tímabilið hafi hingað til nán-
ast gengið eins og í sögu hjá Arsenal,
sem hafði ekki tapað síðan í fyrsta leik
tímabilsins um miðjan ágúst, er staða
liðsins í F-riðli Meistaradeildar Evr-
ópu orðin ansi strembin eftir tapið í
gær.
Riðlakeppnin er nú hálfnuð og Ars-
enal jafnt Dortmund og lærisveinum
Rafa Benítez í Napoli að stigum. Þessi
þrjú lið keppa um tvö laus sæti í 16-
liða úrslitunum, og þar stendur Ars-
enal verst að vígi því liðið á eftir úti-
leiki sína við Dortmund og Napoli.
Eins og Wenger sagði þá er ljóst að
liðið getur ekki tapað bæði í Þýska-
landi og Ítalíu, annars lýkur Arsenal,
efsta lið ensku úrvalsdeildarinnar,
keppni í Meistaradeildinni fyrir jól.
Eftir að staðan var 1:1 í leikhléi á
Emirates-leikvanginum í gærkvöld
var Arsenal líklegra til að skora sig-
urmarkið í seinni hálfleik. Það er hins
vegar þannig með Dortmund-liðið að
það kann skyndisóknafræðin upp á 10,
eins og sannaði sig þegar Robert Lew-
andowski rak smiðshöggið á eina slíka
skömmu fyrir leikslok og tryggði
þýska liðinu sigur.
„Það var mikil ákefð í mönnum en
mjög lítið um færi. Dortmund var vel
skipulagt og kom í veg fyrir spilið hjá
okkur. Sumir leikmanna okkar voru
ekki eins ferskir og þeir hafa verið,“
sagði Wenger. Þar gæti hann hafa vís-
að til Aarons Ramsey sem farið hefur
á kostum í vetur en hálfpartinn gaf
Dortmund fyrra mark sitt í leiknum.
Jack Wilshere átti auk þess slakan
leik.
„Maður sá alveg að hann [Wilshere]
var ekki með sjálfum sér og þess
vegna tók ég hann af velli. Það var
eins og hann væri ekki heill heilsu eft-
ir fyrstu tæklinguna sem hann fékk.
Hann virtist lenda illa og mér sýndist
hann haltra aðeins. Við sjáum til
hvernig hann verður næstu daga, og
sjáum hvað læknarnir segja,“ sagði
Wenger.
Kolbeinn með Ajax á botninum
Kolbeinn Sigþórsson og félagar í
Ajax eru komnir á botn H-riðils eftir
2:1-tap gegn Celtic í Glasgow. Kol-
beinn fékk eitt dauðafæri í leiknum, í
stöðunni 2:0, en skaut boltanum rétt
framhjá markinu. Það er orðinn fjar-
lægur draumur fyrir Ajax að komast í
16-liða úrslitin en Hollandsmeist-
ararnir geta komið sér í Evrópudeild-
ina með því að ná 3. sæti riðilsins og
eiga næst heimaleik gegn Celtic.
Torres bestur í þrifunum
Í hinum leiknum í H-riðli mættust
AC Milan og Barcelona í stór-
veldaslag á San Siro og gerðu 1:1-
jafntefli. Robinho kom Milan yfir og
hefði hæglega getað skorað annað
mark í leiknum, en Lionel Messi, sem
kominn er á ferðina aftur eftir meiðsli,
jafnaði metin fyrir Börsunga. Barce-
lona er á toppi riðilsins og í góðum
málum þar sem liðið á eftir heimaleiki
við Milan og Celtic.
Fernando Torres var hetja Chelsea
í gær en hann skoraði tvö mörk í frá-
bærum 3:0-útisigri á Schalke í Þýska-
landi. Þar með eru bæði Chelsea og
Schalke með 6 stig í E-riðli en sviss-
neska liðið Basel, sem vann Chelsea á
Brúnni í 1. umferð, er með 4 stig eftir
1:1-jafntefli við Steaua Búkarest í
Rúmeníu.
„Ég sagði við leikmennina eftir leik-
inn við Basel að við værum búnir að
rusla til og þyrftum nú að þrífa,“ sagði
Jose Mourinho, knattspyrnustjóri
Chelsea, í gærkvöld. „Það gerðum við
eins og best verður á kosið, unnum tvo
útileiki og erum á toppi riðilsins. Núna
eigum við tvo heimaleiki eftir. Við er-
um í góðri stöðu til að komast áfram,“
sagði Mourinho.
Atlético eitt liða með níu stig
Atlético Madrid er eina liðið sem
hefur unnið alla þrjá leiki sína í Meist-
aradeildinni til þessa og liðið er komið
langleiðina upp úr G-riðlinum. Atlé-
tico vann Austria Vín 3:0 í Austurríki í
gær og þar sem Zenit St. Petersburg
vann 10 leikmenn Porto í Portúgal er
Atlético komið með góða forystu í riðl-
inum.
Hnífjafnt og
erfitt fyrir
Arsenal
EPA
Svekktur Mesut Özil strýkur sér um höfuðið en Robert Lewandowski fagnar.
Toppliðið á Englandi úr leik fyrir jól?
F-riðill
» Arsenal, Dortmund og Na-
poli eru jöfn að stigum.
» Arsenal á eftir útileiki við
Dortmund og Napoli, og
heimaleik við Marseille.
» Dortmund á eftir heimaleiki
við Arsenal og Napoli, en úti-
leik við Marseille.
» Napoli á eftir heimaleiki við
Marseille og Arsenal, en útileik
við Dortmund.
2 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 23. OKTÓBER 2013
„David [Beckham] var eini leikmað-
urinn sem ég stýrði sem ákvað að
verða frægur. Sá eini sem setti sér
það markmið að verða þekktur utan
fótboltans. Mér leið aldrei vel með
stjörnulíferni hans,“ sagði skoski
knattspyrnustjórinn Sir Alex Fergu-
son í nýútkominni ævisögu sinni.
Ferguson gaf síðast út bók eftir að
hafa landað þrennunni með Man-
chester United árið 1999, en óhætt er
að segja að margt hafi síðan þá drifið
á daga Skotans sem lauk sínum
knattspyrnustjóraferli með 13. Eng-
landsmeistaratitli sínum í vor. Í bók-
inni fer Ferguson um víðan völl og
fjallar til að mynda mikið um fræg-
asta knattspyrnumann heims, Beck-
ham, sem Skotinn segir að hafi verið
sér sem sonur. Hann hafi hins vegar
neyðst til að selja kappann til Real
Madrid árið 2003, í kjölfar atviksins
fræga þegar hann sparkaði takkaskó
í andlit Beckhams, inni í búnings-
klefa eftir tap gegn Arsenal í bik-
arleik. Ferguson þótti Beckham hafa
getað komið í veg fyrir seinna mark
Arsenal í leiknum.
„Ég færði mig nær honum, og á
leiðinni sparkaði ég í takkaskó. Skór-
inn hæfði hann rétt fyrir ofan augað.
Hann stóð strax upp og ætlaði í mig
en leikmennirnir
stoppuðu hann,“
skrifaði Ferguson.
Eftir atvikið birt-
ust myndir í blöð-
um af Beckham
með skurðinn sinn.
Við það vildi Skot-
inn ekki una.
„David taldi sig
orðinn stærri en
Alex Ferguson.
Það þýðir ekki að leikmenn taki yfir
búningsklefann. Margir reyndu það.
Manchester United er stjórnað af
skrifstofu knattspyrnustjórans.
Þetta var banabiti hans,“ skrifaði
Ferguson, og á blaðamannafundi í
gær bætti hann við: „Stóra vanda-
málið hvað mig varðar, og ég hugsa
bara um fótbolta, er að hann varð
ástfanginn af Victoriu [söngkonu úr
Spice Girls] og það breytti öllu.“
Ferguson gagnrýndi einnig að Beck-
ham skyldi fara til LA Galaxy í
Bandaríkjunum.
„Ég ímynda mér að hann hafi ver-
ið farinn að horfa til Hollywood og
næstu skrefa í lífinu. Það voru engar
knattspyrnulegar forsendur fyrir því
að fara til Bandaríkjanna,“ skrifaði
Ferguson. sindris@mbl.is
„David taldi sig stærri en Alex Ferguson“
Sir Alex
Ferguson
Íslenska landsliðið í handknattleik kvenna, skipað leik-
mönnum 20 ára og yngri, dróst með þremur landsliðum
frá Austur-Evrópu þegar dregið var í riðla fyrir und-
ankeppnina í morgun.
Íslenska liðið var í þriðja styrkleikaflokki af fjórum.
Það mætir Rúmenum, Slóvenum og Úkraínu. Leikir rið-
ilsins fara fram í Úkraínu 18. til 20. apríl. Tvö efstu liðin
komast í lokakeppni HM sem fram fer í Króatíu 29. júní
til 13. júlí.
Einnig var dregið í morgun í undankeppni Evr-
ópumóts karlalandsliða, skipað leikmönnum 20 ára og
yngri. Þar hafnaði íslenska landsliðið í sjöunda riðli
ásamt Makedóníu, Grikklandi og Ítalíu. Aðeins efsta þjóðin tryggir sér
keppnisrétt í lokakeppni EM sem fram fer í Austurríki í sumar. Und-
ankeppnin fer fram 4.-6. apríl. Ekki er ljóst í hvaða landi hún fer fram.
iben@mbl.is
Stúlkurnar í A-Evrópu-riðli
Guðmundur
Karlsson
Stella Sigurðardóttir verður fyrirliði íslenska kvenna-
landsliðsins í handknattleik í kvöld þegar það mætir Finn-
um í undankeppni Evrópumótsins í handknattleik. Þetta
verður í fyrsta sinn sem Stella er fyrirliði landsliðsins. Hún
tekur við fyrirliðastöðunni af Hrafnhildi Skúladóttur, sem
verið hefur fyrirliði landsliðsins undanfarin ár. Hrafnhild-
ur, sem er leikjahæsti leikmaður kvennalandsliðsins frá
upphafi með 170 landsleiki, var ekki valin í landsliðið að
þessu sinni.
Stella er 23 ára gömul og leikur með danska úrvalsdeild-
arliðinu SönderjyskE en var þar áður leikmaður Fram og
varð m.a. Íslandsmeistari með liðinu í vor sem leið.
Stella leikur í kvöld sinn 70. landsleik. Hún hefur til þessa skorað 200 mörk
í 69 landsleikjum. Stella hefur átt fast sæti í íslenska landsliðinu undanfarin
ár og m.a. einu sinni tekið þátt í lokakeppni Evrópumóts og lokakeppni
heimsmeistaramóts. iben@mbl.is
Stella nýr fyrirliði landsliðsins
Stella
Sigurðardóttir
Meistaradeild Evrópu
E-riðill:
Schalke – Chelsea.....................................0:3
Fernando Torres 5., 68., Eden Hazard 87.
Steaua Búkarest – Basel..........................1:1
Leandro Tatu 88. – Marcelo Diaz 48.
Staðan:
Chelsea 3 2 0 1 8:2 6
Schalke 3 2 0 1 4:3 6
Basel 3 1 1 1 3:3 4
Steaua Búkarest 3 0 1 2 1:8 1
F-riðill:
Arsenal – Dortmund ................................1:2
Olivier Giroud 41. – Henrik Mkhitaryan
16., Robert Lewandowski 82.
Marseille – Napoli ....................................1:2
Andre Ayew 86. – José Callejón 42., Duvan
Sapata 67.
Staðan:
Dortmund 3 2 0 1 6:3 6
Arsenal 3 2 0 1 5:3 6
Napoli 3 2 0 1 4:4 6
Marseille 3 0 0 3 2:7 0
G-riðill:
Austria Vín – Atletíco Madrid ................0:3
Raúl García 8., Diego Costa 20., 53.
Porto – Zenit Peterburg..........................0:1
Alexander Kerzhakov 85. Rautt spjald:
Héctor Herrera (Porto) 6.
Staðan:
Atlético Madrid 3 3 0 0 8:2 9
Zenit Pétursborg 3 1 1 1 2:3 4
Porto 3 1 0 2 2:3 3
Austria Vín 3 0 1 2 0:4 1
H-riðill:
AC Milan – Barcelona ..............................1:1
Robinho 9. – Lionel Messi 23.
Celtic – Ajax ..............................................2:1
James Forrest 45. (víti), Beram Kayal 54. –
Lasse Schöne 90. Rautt spjald: Nir Biton
(Celtic) 88.
Kolbeinn Sigþórsson lék allan leikinn
fyrir Ajax.
Staðan:
Barcelona 3 2 1 0 6:1 7
AC Milan 3 1 2 0 4:2 5
Celtic 3 1 0 2 2:4 3
Ajax 3 0 1 2 2:7 1
England
C-deild:
Wolves – Oldham ......................................2:0
Björg Bergmann Sigurðarson var á
varamannabekk Wolves.
Rotherham – Tranmere ..........................1:1
Kári Árnason var ekki í leikmannahópi
Rotherham.
Staðan:
Orient 13 10 2 1 32:11 32
Peterborough 13 10 2 1 24:8 32
Wolves 12 9 2 1 23:7 29
Coventry 13 7 3 3 30:22 24
Preston 13 6 5 2 21:15 23
Bradford C. 13 6 4 3 23:12 22
Walsall 13 6 4 3 17:13 22
Swindon 13 6 2 5 23:16 20
Rotherham 13 5 5 3 19:19 20
Brentford 13 6 2 5 18:18 20
MK Dons 13 5 4 4 21:17 19
Crawley 12 5 4 3 18:17 19
Port Vale 13 6 1 6 18:18 19
Carlisle 12 4 3 5 11:20 15
Shrewsbury 13 2 7 4 13:15 13
Colchester 13 2 7 4 12:18 13
Gillingham 13 3 3 7 16:22 12
Crewe 13 3 3 7 11:28 12
Oldham 12 3 2 7 14:18 11
Stevenage 13 3 2 8 13:21 11
Sheffield Utd 13 2 3 8 10:20 9
Tranmere 13 2 3 8 11:26 9
Notts County 12 2 1 9 14:23 7
Bristol City 12 0 6 6 16:24 6
KNATTSPYRNA
Danmörk
Bikarkeppnin
GOG – Holstebro ..................................35:29
Snorri Steinn Guðjónsson skoraði 6
mörk fyrir GOG.
Þýskaland
Bikarkeppnin
Wetzlar – Bergischer ....................................
Björgvin Páll Gústavsson varði mark
Bergischer síðasta korterið en hann glímdi
við meiðsli í brjóstvöðva í aðdraganda leiks-
ins. Arnór Þór Gunnarsson er frá vegna
meiðsla.
HANDBOLTI
Svíþjóð
Örebro – Sundsvall ..............................80:90
Jakob Örn Sigurðarson skoraði 20 stig
fyrir Sundsvall, gaf 4 stoðsendingar og tók
4 fráköst. Hlynur Bæringsson skoraði 10
stig, tók 10 fráköst og átti 3 stoðsendingar,
og Ægir Þór Steinarsson skoraði 8 stig, tók
4 fráköst og gaf 4 stoðsendingar.
KÖRFUBOLTI
HANDKNATTLEIKUR
Undankeppni EM kvenna:
Vodafone-höllin: Ísland – Finnland .... 19.30
Í KVÖLD!