Monitor - 10.10.2013, Blaðsíða 8

Monitor - 10.10.2013, Blaðsíða 8
8 MONITOR FIMMTUDAGUR 10. OKTÓBER 2013 Orðið tvörk (e. twerk) er samblanda af orðunum „twitch“, „work“ og „jerk“. Uppruni tvörksins er ekki fullkomlega ljós en þó virðist mega rekja hann að einhverju leyti til Vestur-Afríku. Á Fílabeinsströndinni hefur dansinn Mapouka verið iðkaður öldum saman en hann beinist einmitt sérstaklega að rassahristingi álíkum þeim sem tíðkast í tvörki nútímans. Þrátt fyrir að tvörkið þyki ekki dannaður dans krefst hann talsverðrar tækni og einbeitingar af hálfu dansarans. Í Vesturheimi þykir dansinn kynferðislegur en svo virðist sem upprunalega og enn í dag sé dansinn fyrst og fremst tákn glettnislegrar gleði í hinum ýmsu afrísku samfélögum. Miley gerur tvörkið að sínu Tvörkið var þegar farið að njóta nokkurra vinsælda þegar Miley Cyrus tók það upp á sína arma í myndbandi sínu við lagið „We can‘t stop“. Tvörkið varð hinsvegar heimsfrægt á einni nóttu eftir að Cyrus tvörkaði á tónlistarmyndbandaverðlaunahátíð (VMA) MTV sjónvarpsstöðvarinnar í ágúst síðastliðnum. Tvörk Miley hefur verið mikið á milli tannanna á fólki undanfarið og þykir eitt besta auglýsinga-stönt frá því Britney Spears og Madonna deildu heitum kossi á sömu hátíð fyrir nokkrum árum. Rassaköst Miley hefðu hugsanlega ekki komist í það hámæli sem raun ber vitni ef ekki hefði verið fyrir söngvarann Robin Thicke en samspil þeirra á sviðinu þótti mörgum ósmekklegt og þá sérstaklega í ljósi þess að þau voru að dansa og syngja við hið umdeilda lag Thicke, „Blurred lines“. Ástralskur upphafsmaður? Ástralski rapparinn Iggy Azalea lét nýlega hafa eftir sér að Cyrus sé einfaldlega hermikráka. „Ég hef verið að gera þetta á sviði í tvö og hálft ár,“ sagði Azalea í viðtali við poppkúltúrblaðið Paper um tvörkið. „Hún (Cyrus) hefur líklega fokking horft á myndböndin mín á netinu og ákveðið að prófa þetta.“ Í ljósi uppruna tvörksins í Afríku þótti Monitor nokkuð ólíklegt að hvít, 23 ára stúlka frá Ástralíu hefði kynnt það fyrir hinum vestræna heimi. Monitor lagðist í rann- sóknarvinnu og fann hentuga tímalínu sem útskýrir hvernig tvörkið hefur hægt og rólega tryggt sér sess í poppmenningu samtímans. Til þess að styggja ekki annars yndislega yfirlesara ákvað Monitor að nota íslenskan rithátt yfir enska orðið „twerk“ í þessari grein. Hvort sem sá ritháttur styggi þig eða ekki ættir þú klárlega að kynna þér sögu tvörksins í þaula. TILURÐ TVÖRKSINS ÞÚ GETUR TVÖRKAÐ HVAR SEM ER EN ÞÚ ÆTTIR KANNSKI EKKI AÐ GERA ÞAÐ HVAR SEM ER MILEY HEFUR KOMIÐ TVÖRKINU Á KORTIÐ ÞAÐ ER MIKILL MISSKILNINGUR AÐ TVÖRK SÉ BARA FYRIR FÁKLÆDDAR KONUR MAPOUKA MUN VERA HIÐ UPPRUNALEGA TVÖRK

x

Monitor

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Monitor
https://timarit.is/publication/791

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.