Morgunblaðið - 11.11.2013, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. NÓVEMBER 2013
Ekki varð komið tölu á þærkampavínsflöskur sem tappar
fuku úr á 10 ára afmæli evrunnar.
Leiðtogar ESBlétu eins og
skjallbandalag þeirra
sjálfra hefði tekið við
af bandalagi ESB-
þjóða með því að
myntin hefði staðist í
áratug, án þess að
spár manna eins og
Miltons Friedmans
hefðu ræst.
Friedman hafðilýst þeirri skoðun sinni að for-
sendur sameiginlegrar myntar í álf-
unni væru ekki fyrir hendi.
Hún myndi ekki standast þegarhressilega færi að blása gegn
henni.
Fáum árum síðar logaði evru-svæðið stafnanna á milli.
Áköfum Evrópusambandssinnumvar það ekki eins leitt og þeir
létu, því þeir töldu að ógöngurnar
mætti nota til að sverfa að fullveldi
aðildarríkjanna og flýta för þeirra
inn í stórríki Evrópu.
Nú hefur Alan Greenspan, áðurdáðasti seðlabankastjóri í sögu
Bandaríkjanna, bæst í sístækkandi
hóp þeirra sem segja, að Evrópa í
einu ríki sé algjör forsenda þess að
evran eigi lífsvon.
Vandinn er þó sá fyrir kommiser-ana í Brussel að aðildarþjóð-
irnar eru teknar að átta sig á hinni
andlýðræðislegu þróun ESB og
munu ekki láta svindla sér bakdyra-
megin inn í stórríkið í þágu skaðlegs
gervifyrirbæris eins og sameig-
inlega myntin hefur reynst.
Milton Friedman
Friedman og
Greenspan
STAKSTEINAR
Alan Greenspan
Veður víða um heim 10.11., kl. 18.00
Reykjavík 4 rigning
Bolungarvík 3 slydda
Akureyri 3 rigning
Nuuk -6 léttskýjað
Þórshöfn 5 skýjað
Ósló 1 heiðskírt
Kaupmannahöfn 7 skýjað
Stokkhólmur 5 skýjað
Helsinki 6 léttskýjað
Lúxemborg 5 skúrir
Brussel 7 léttskýjað
Dublin 6 skýjað
Glasgow 7 heiðskírt
London 10 heiðskírt
París 8 léttskýjað
Amsterdam 7 léttskýjað
Hamborg 7 léttskýjað
Berlín 7 skýjað
Vín 10 skýjað
Moskva 8 heiðskírt
Algarve 21 heiðskírt
Madríd 17 léttskýjað
Barcelona 21 léttskýjað
Mallorca 21 léttskýjað
Róm 17 skúrir
Aþena 17 skýjað
Winnipeg -2 alskýjað
Montreal 5 skúrir
New York 14 heiðskírt
Chicago 5 léttskýjað
Orlando 26 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
11. nóvember Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 9:45 16:40
ÍSAFJÖRÐUR 10:07 16:27
SIGLUFJÖRÐUR 9:51 16:10
DJÚPIVOGUR 9:18 16:05
Bifreiðastöðin Hreyfill fagnar nú
70 ára afmæli.
Samvinnufélagið Hreyfill var
stofnað í Baðstofu iðnaðarmanna
við Vonarstræti í Reykjavík þann
11. nóvember 1943.
Félagið hefur frá upphafi leitast
við að þjónusta íbúa höfuðborg-
arsvæðisins og nágranna þess.
Á þessum langa tíma hefur rekst-
ur stöðvarinnar tekið miklum
breytingum. Helst má hér minnast
talstöðvavæðingar á sjötta áratug
síðustu aldar og tölvuvæðingar bif-
reiða 1998, auk sameiningarinnar
við Bæjarleiðir um áramótin 2000/
2001. Í dag eru bifreiðar stöðv-
arinnar 365 talsins. 20 manns starfa
við símaafgreiðslu og á skrifstofu.
Þá var Eitt fullkomnasta GPS leiða-
kerfi á Norðurlöndum fyrir leigu-
bílaakstur tekið í notkun í bílum
Hreyfils árið 2011.
Tækniframfarir hafa samkvæmt
tilkynningu stytt verulega útkalls-
tíma bifreiða og aukið öryggi far-
þega sem og ökumanna.
Hreyfill
sjötugur
Svavar Steingrímsson hafði í gær
gengið 154 sinnum á Heimaklett frá
síðustu áramótum. „Ég rata þarna
nokkurn veginn,“ sagði Svavar. „Ég
fer eiginlega aldrei brauðlaus og
helst með kerti líka.“
Svavar, Halla dóttir hans og Pétur
Steingrímsson eiga hvert sinn kerta-
stjakann ofan við Löngu þar sem
þau kveikja á Heimaeyjarkertum.
Svavar sagðist vera orðinn svolítið
hægfara en hann er 77 ára. Hann
segist hafa gott af göngunum á
Heimaklett. Auk þess hefur hann
smalað í haust í Elliðaey, Bjarnarey,
Suðurey og Hana. Svavar færir
kindunum í Heimakletti brauð en
þar ganga 40 kindur.
„Ég flauta á þær og þá koma upp í
17 kindur,“ sagði Svavar. „Þær eru
mjög gæfar sumar og klifra alveg
upp á haus á mér.“ Ljósmynd/Pétur Steingrímsson
Aufúsugestur kind-
anna á Heimakletti