Morgunblaðið - 11.11.2013, Qupperneq 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. NÓVEMBER 2013
Svanhildur Eiríksdóttir
svei@simnet.is
Ýmsir hafa lagt starfsem-inni lið frá upphafi en þeirsem koma að henni í dageru Samband sveitarfé-
laga á Suðurnesjum, Verkalýðs- og
sjómannafélag Keflavíkur og ná-
grennis, Vinnumálastofnun, Systra-
félag Innri-Njarðvíkur og KA-
DECO, Þróunarfélag Keflavíkur-
flugvallar. Þar sem áður voru ráðnir
verkefnastjórar eru nú sjálfboða-
liðar sem stýra starfseminni, þeir
Olav Olsen og Páll Árnason, með
dyggri aðstoð Hörpu Jóhannsdóttur,
eiginkonu Páls. Hvorki Olav né Páll
eru starfandi á vinnumarkaði og
leggja mikinn metnað og alúð í starf-
semina. Daginn sem blaðmann bar
að garði ætlaði Olav að standa vakt-
ina frá átta um morguninn til tíu um
kvöldið. Viðmótið var bæði hlýtt og
ilmandi, enda jólakökubakstur í full-
um gangi í eldhúsinu, en því stýrir
Olav.
Allir velkomnir
og margt í boði
„Aðsókn að staðnum hefur auk-
ist mikið að undanförnu, sem skýrist
m.a. af því að við breyttum áherslum
í starfi,“ sagði Olav í samtali við
blaðamann. „Við fórum frá því að
auglýsa starfsemina fyrir eingöngu
atvinnulausa, aldraða og öryrkja í að
bjóða alla velkomna. Það getur verið
erfitt hjá fólki þótt það hafi atvinnu
og markmið okkar er að fá fólk til
okkar svo ekki sé hætta á að það ein-
angrist.“
Olav sagði að þessar áherslu-
breytingar, sem farið var í um síð-
ustu áramót, hefðu ekki síst verið að
Áherslubreytingar
og margföld aðsókn
Virkjun mannauðs á Reykjanesi var opnuð í ársbyrjun 2009 í byggingu 740 á
Ásbrú, þar sem bókhald Varnarliðsins eða Comptroller var áður til húsa. Mark-
miðið var að skapa tækifæri fyrir almenning í atvinnu og námi í kjölfar efnahags-
hrunsins sem setti líf margra úr skorðum.
Hannyrðir Magga Hrönn Kjartansdóttir og Marta Markúsdóttir sjá um
föndrið í Virkjun. Þær sögðu engin takmörk fyrir því sem hægt væri að
gera og boðið væri upp á. Reyndin væri sú að þegar hafist væri handa yrði
fólk mjög skapandi. Þær hafa leiðbeint í skartgripagerð, breytingu á fatn-
aði, saumaskap og kortagerð svo fátt eitt sé nefnt.
Stjórinn Olav Olsen stýrir starfseminni í Virkjun í félagi við Pál Arason.
Hér er hann í jólakökubakstri fyrir miðvikudaginn.
Hátt í 130 íslensk bókasöfn og stofn-
anir taka þátt í stærsta upplestr-
arviðburði á Norðurlöndunum í þess-
ari viku. Í dag hefst Norræna
bókasafnavikan með sameiginlegum
upplestri á sama texta á öllum Norð-
urlöndunum og í Eystrasaltsríkj-
unum.
Á vefsíðunni www.norden.org er
dagskrá að finna fyrir öll löndin og er
ýmislegt á dagskrá hér á landi. Til
dæmis verður hraðstefnumót við
norræn tungumál á Borgarbókasafn-
inu og upplestur fyrir þúsundir barna
í skólum landsins.
Þema ársins er „Vetur á Norð-
urlöndum.“ og verður sjónum beint
að ólíkum birtingarmyndum vetrarins
og merkingu hans eftir landssvæðum
á Norðurlöndum. Hver og einn getur
tekið þátt og ekki úr vegi að líta inn í
bókasöfn landsins þessa vikuna.
Vefsíðan www..bibliotek.org/
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Lestur Þema Norrænu bókasafnavikunnar er „Vetur á Norðurlöndum“.
Norræna bókasafnavikan hafin
Á vetrarmánuðunum er um að gera
að klæða sig í eitthvað litskrúðugt til
að vega upp á móti myrkrinu sem
alltaf virðist koma of snemma á dag-
inn. Þá er ekki úr vegi fyrir prjónafólk
að prjóna skrautlega trefla, sokka og
vettlinga sem öllum þykir gaman að
fá í jólapakkann.
Í skammdeginu gera litrík föt þó
ekki mikið gagn sé fólk á gangi í
myrkrinu og seint þreytist maður á
að minna á að endurskinsmerki eru
alls ekki bara fyrir börn. Endurskins-
merkin geta, eins og litskrúðugu föt-
in, bara verið dálítið smart þegar bet-
ur er að gáð og lýsa upp skammdegið.
Endilega ...
... lífgið upp á
hversdaginn
Morgunblaðið/Sverrir
Litríkt Röndóttir prjónatreflar vekja
yfirleitt lukku, t.d. í jólapökkum.
Eitt og annað er um að vera vegna
Norrænu bókasafnavikunnar sem
hefst í dag. Þetta er í sautjánda skipti
sem bókasafnavikan er haldin og þá
vikuna eru Norðurlandabúar hvattir
til að lesa upphátt fyrir aðra.
Rithöfundurinn Gerður Kristný
lætur ekki sitt eftir liggja í þeim efn-
um og flytur í kvöld erindi um Íslend-
ingasögurnar. Erindið flytur hún í
Bókhlöðu Snorrastofu í Reykholti
klukkan 20:30. Inn í erindið fléttast
nútíma Íslendingasögur, eins og
Gerður Kristný kallar þær, sögurnar
sem rithöfundar þjóðarinnar rita af
kappi. Hún ræðir um hvað það sé sem
valdi þessari þörf til að skrifa.
Gerður Kristný hefur ort fjölda
ljóða upp úr Íslendingasögunum og
sótt þangað innblástur. Hún mun lesa
upp úr ljóðunum í kvöld. Á miðviku-
daginn heimsækir hún börnin í
grunnskólum Borgarfjarðar, Hvann-
eyri, Kleppjárnsreykjum og Varma-
landi. Ferðinni lýkur með heimsókn til
Félags aldraðra í Borgarfjarðardölum.
Nánar um bókasafnavikuna á
www.bibliotek.org/is.
Sækir innblástur í Íslendingasögurnar
Bókasafnavikunni fagnað í
Reykholti að vanda
Morgunblaðið/Golli
Upplestur Gerður Kristný verður í nágrenni Borgarness í vikunni.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.