Akureyri


Akureyri - 01.11.2012, Síða 2

Akureyri - 01.11.2012, Síða 2
2 1. NÓVEMBER 2012 Stefán Haukur Jóhannesson, aðalsamningamaður Íslands, ræðir stöðu mála og næstu skref í aðildarviðræðum Íslands og ESB á hádegisfundi á RUB23 Akureyri í Kaupvangsstræti 6, fimmtudaginn 1. nóvember kl. 12. Allir velkomnir - súpa og brauð í boði! Suðurgata 10, 101 Reykjavík | Kaupvangsstræti 23, 600 Akureyri Sími 527 5700 – evropustofa@evropustofa.is www.evropustofa.is Hvað er að gerast í þessum ESB samningaviðræðum? BREYTING Á ÚTGÁFUDEGI Akureyri vikublað kemur frá og með næstu viku alltaf út á föstudögum en ekki fimmtudagsmorgnum eins og verið hefur til þessa. Með breytingunni mun blaðið skerpa á sérstöðu sinni sem upplýsinga-, mannlífs- og frétta- miðill fyrir Norðlendinga og verða helgarfréttablað í máli og myndum. Ritstjóri Ómetanlegt tjón á hverastrýtu Líklegast að sportveiðimenn hafi slysast með handfæri sín á friðuðu svæði – unnið að betri merkingum Ómetanlegt tjón hefur orðið á hverastrýtu í Eyjafirði en bútur, u.þ.b. 1,5 metrar að lengd, hefur brotnað af og liggur nú á hafsbotni. Erlend- ur Bogason kafari telur að strýtan hafi brotnað við handfæraveiðar sportveiðimanna. Tjónið upplýstist þegar Erlendur var við köfun fyrir nokkrum vikum. Hann segir tjónið ómetanlegt og hafnar því að öldurót sé skýringin. Sportveiðimenn sjáist stundum á hverastrýtusvæðinu við handfæra- veiðar en atvinnusjómenn séu svo vel tækjum og tólum búnir að þeir viti vel hvar megi ekki veiða. „Ég hlýt að áætla að tjónið sé af manna- völdum,“ segir Erlendur en töluvert hefur verið um sjósókn ekki síst sportveiðimanna út af Arnarnesvík undanfarið. Erlendur segir lærdóminn e.t.v. þann að merkja svæðið betur. Hann sé nú í sambandi við Umhverfisstofn- un um að svæðið verði merkt með fánum þannig að friðaða svæðið fari ekki fram hjá mönnum. En hvað með brotið sem liggur nú á hafsbotni, þarf ekki að reyna að ná því upp? „Jú, það er næsta verkefni, að smíða pall svo hægt sé að ná því upp og þurrka það. Þetta er halfgerður kísill þannig að strýtan getur molnað og ég hef velt fyrir mér hvort kannski sé hægt að verja strýtuna með lakki. En þetta kallar á mikla varfærni.“ Hverastrýturnar í Eyjafirði eru einstakar á heimsvísu. Þær njóta friðunar sem náttúruminjar á hafs- botni og er friðunarsvæðið 400 x 1000 metrar. Kafarar frá sumum af stærstu sjónvarpsstöðvum heims hafa tekið myndir af fyrirbærun- um, þ.á.m. National Geographic. Bob Ballard sem fann Titanic hef- ur komið hingað til lands vegna hverastrýtanna svo dæmi sé tekið. „Strýturnar verða alltaf þekktari og þekktari innan vísindasamfélagsins á heimsvísu, okkar strýtur virðast allt að 40 metrar á hæð sem er með hærri strýtum sem hafa fundist á hafsbotni,“ segir Erlendur. a Komnir á beinu brautina Norðlenskt metangas til áfyllingar næsta sumar. Hindranir verið yfirstígnar og þverpólitísk samstaða um 300 milljóna umhverfisvænt samfélagsverkefni Stjórn Norðurorku samþykkti á fundi sl. mánudag fjárhagsáætl- un ársins 2013, þar sem staðfest er endanlega að verja skuli allt að 300 milljónum króna til framleiðslu á metangasi sem unnið verður úr gömlu sorphaugunum á Glerárdal. „Næsta skref eru kaup á sænskri framleiðslustöð, búnaði sem er rót- gróin lausn til vinnslu úr sorphaug- um. Þetta lítur allt vel út og verk- efnið er mjög spennandi,“ segir Helgi Jóhannesson, forstjóri Norðurorku. Tafir urðu í sumar á framgangi þegar í ljós kom að vinnanlegt magn af metangasi á Glerárdal er töluvert minna en fyrstu rannsóknir gerðu ráð fyrir. Það breytir því ekki þó að gasið er vinnanlegt og er stefnt að því að næsta sumar geti notendur keypt sér metangas til áfyllingar á stöð sem vænst er að fáist sam- þykkt rétt við Möl og sand. „Það er þverpólitísk sátt um þetta verkefni. Fram til þessa hefur Norðurorka verið mest í orkunotkun til heim- ila en kannski er þetta nýja skref ekki langt frá okkar grunnstarfsemi. Við teljum okkur bera samfélagslega ábyrgð og erum nú komnir á beinu brautina eftir nokkra kollhnísa,“ segir Helgi. Ekki liggur fyrir hvaða samstarfs- og söluaðila fyrirtækið mun fá að borðinu áður en sala á norðlensku metangasi hefst. a Púlstofan lokar Billjardstaðnum Púlstofunni við Strandgötu var lokað um miðjan október. Nýir eigendur, samkvæmt heimildum blaðsins, eru ótengdir fyrri rekstraraðilum og hyggjast opna á ný eftir breytingar eftir ára- mót. Akureyri vikublað hefur ítrekað fjallað um Púlstofuna, bæði vegna sakasögu mannsins sem staðið hefur á bak við rekstur Púlstofunnar og einnig vegna harðra átaka um versl- unarmannahelgina þar sem lögreglu og gestum laust saman. a METANIÐ FER EKKI í bensíntakinn heldur í sérstaka þrýstikúta. HÉR SÉST BROTIÐ. Erlendur Bogason Í ÞESSU SKARÐI var strýtan. Erlendur Bogason ÁRÉTTING Að gefnu tilefni skal áréttað að verktakinn Blikk- og tækniþjónustan sem unnið hefur að viðgerðum vegna hljóðleka í Hofi og getið var um í síðasta tölublaði, ber enga sök á þeim göllum sem komið hafa fram á húsinu. Skilja mátti það af frétt blaðsins í síðustu viku og biður blaðið hlutaðeigandi afsökunar. Annir í sjúkraflugi Miklar annir voru í sjúkraflugi mánu- daginn. 29 október. Eftir því sem fram kemur hjá Slökkviliði Akureyrar hófst fyrsta sjúkraflugið kl. 08:45 um morguninn og var flugvélin stöðugt að til kl 03:30. Flogið var með alls 8 sjúklinga í 6 flugum, en tvisvar sinn- um voru fluttir tveir sjúklingar í einu. Það sem af er þessu ári hafa verið fluttir 417 sjúklingar í 393 flugum. a

x

Akureyri

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Akureyri
https://timarit.is/publication/1079

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.