Morgunblaðið - 03.12.2013, Qupperneq 4
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER 2013
4 BÍLAR
Þ
að er ekki langt síðan að
Skoda fyllti upp í gat á
framleiðslulínu sinni með
fernra dyra Rapid. Því er
það rökréttur leikur að koma í kjöl-
farið með hlaðbaksútgáfu í fram-
haldinu og vera ekkert að bíða með
það. Ísland fær þennan bíl nokkuð
snemma því að hann var frum-
sýndur í Frankfurt fyrir tæpum
tveimur mánuðum síðan. Í söluk-
reppu nýrra bíla skiptir máli að
vera með bíla sem sameina marga
kosti í góðu verði. Blaðamaður
Morgunblaðsins hafði hann til
reynslu kynningarhelgina og
komst að hinu sanna í þeim efn-
um.
Gott rými í aftursætum
Útlit Rapid Spaceback er ná-
kvæmlega eins og fernra dyra bíls-
ins aftur að miðjum bíl. Þrátt fyrir
að bera nafn sem felur í sér rými er
hann 179 mm styttri en hinn og
það sést líka í farangursrýminu.
Reyndar er hann með eitt mesta
rýmið í flokknum eða 415 lítra sem
stækka má í 1.380 lítra með því að
fella niður aftursæti. Ókosturinn
við það er hversu mikið pláss fer í
afturfjöðrun og þess vegna er það
frekar þröngt til hliðanna en á móti
kemur að það er aðgengilegt.
Bæði opnast afturhleri vel upp og
gólfið er mjög lágt líka, í aðeins 677
mm hæð frá götu. Það er athygl-
isvert fyrir bíl sem er með full-
vöxnu varadekki. Einnig má skipta
gólfinu þannig að það hækki upp
og búa til hólf sem er ekki sýnilegt
utanaðkomandi. Einn af helstu
kostum bílsins er fótarými í aft-
ursætum sem er vel í lagt fyrir bíl í
þessum flokki. Aftursætin rúma
því ágætlega þrjá fullorðna, jafnvel
nokkuð hávaxna því höfuðrými er
gott líka. Reyndar er efri brún aft-
urhurða í lægri kanti og því þarf að
gæta að höfðinu þegar stigið er út.
Eins hefði frágangur á Isofix-
festingum mátt vera betri en örð-
ugt reyndist að koma Isofix-
barnabílstól fyrir.
Stutt seta í framsætum
Í framsætum er ágætis pláss
líka en þar er líka setan í stysta lagi
sem getur verið óþægilegt á lang-
keyrslu. Greinilegt er að hönnuðir
Skoda hafa sótt fótaplássið fyrir
aftursætin með því að minnka
framsætin. Þegar það er haft í
huga að hér er um sparibíl að ræða
fær maður ekki á tilfinninguna að
hér sé einhver naumhyggjubíll á
ferðinni, sérstaklega þegar horft er
yfir mælaborðið. Efnisval er á pari
við bíla í næsta flokki fyrir ofan.
Búnaður er með ágætum og má
þar til dæmis nefna upplýsingaskjá
í miðju mælaborði og bakkskynj-
ara en gjarnan hefði mátt bæta við
blátannarbúnaði, sem er aðeins fá-
anlegur sem aukabúnaður í Eleg-
ance pakka. Sem betur fer eru bíl-
arnir sem hingað koma ekki með
Stop&Go sparbúnaðinum enda
hefði hann líklega ekki náð niður í
B-flokk vörugjalda með slíkum
búnaði hvort eð er. Það fer ekki á
milli mála að um dísilbíl er að ræða
í akstri því að maður finnur vel fyrir
vélinni inni í farþegarýminu. Samt
er hann tiltölulega hljóðlátur á því
vinnslusviði þar sem hann er að
vinna best, eða upp úr 1.500 snún-
ingum eða þar um bil. Athygli vakti
að reynsluakstursbíllinn var ekki
með hlíf yfir vélinni eins og maður
á að venjast í Skoda bílum og getur
það haft sitt að segja.
Góð vinnsla miðað við afl
Tilfinning fyrir stýri er með
ágætum í Rapid þrátt fyrir að það
sé komið með rafaflsstýri í stað
vökvastýris með rafmagnsaðstoð
eins og í fernra dyra bílnum. Það
sparar líka nokkur kíló í viðbót
enda er Rapid Spaceback til-
tölulega léttur bíll í 1.280 kílóum.
Þyngdin er mest frammi í bílnum
eins og títt er um dísilbíla og fyrir
vikið er hann aðeins undirstýrður.
Það verður þó ekki þannig að mað-
Skoda Rapid Spaceback
Í akstri er Skoda Rapid Spaceback nokkuð skemmtilegur bíll af bíl í sínum flokki. Hefur þar sjálfskiptingin sitt að segja enda hjálpar hún bæði upp á vinnslu og minnkar eyðslu.
Það var eins og tilsýndar vantaði eitthvað á þessa vél enda engin hlíf yfir henni þótt sjá megi festingar fyrir
hana. Vinnslan í henni er samt góð og hún nýtir aflið til hins ýtrasta með góðri sjálfskiptingu.
Skoda Rapid Spaceback Árgerð 2014
• 15 tommustálfelgur
• Eiginþyngdkg: 1280ssk
• Farangursrými: 415 lítrar
• 0-100km/sek: 12,1 ssk
•Hámark: 182km/klst
• Framhjóladrif
•Verð frá: 3.090.000kr
•4,4L/100kmíblakstri
• Umboð:Hekla
•Mengunargildi:
114 gCO2/km
• 1,6 lítradísilvél
• 90hestöfl/230Nm
•7þrepasjálfskipting
Skynsamlegur
kostur
í sölukreppunni
Mælaborð er frekar einfalt í Rapid
og því ekkert sem kemur á óvart
eða er illa staðsett. Það sem
mestu máli skiptir er að efnisval er
eins og í dýrari bíl.