Morgunblaðið - 03.12.2013, Blaðsíða 8
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER 2013
8 BÍLAR
C
itroën C3 Picasso fékk
dálitla andlitslyftingu
snemma á árinu og ætli
ekki megi segja að út-
koman sé nokkuð góð. Hann er
nokkuð listrænn að framan og vel
getur verið að Picasso-áletrunin
hafi þar sitt að segja.
Bíllinn sem prófaður var er
beinskiptur 1,6 HDi, sem er 92
hestafla dísilbíll. Hann mengar í
samræmi við lága eyðsluna en í
blönduðum akstri má hæglega
fara niður í 4,5 lítra á hundraðið.
Uppgefið CO2 gildi er 107g á
hverja hundrað kílómetra. Þessi
92 hestöfl gera sitt í léttum bíl og
kemur hreint út sagt á óvart
hversu sprækur bíllinn er.
Gott aðgengi og hagkvæm
hönnun
Rýmið í C3 virðist hugsað til
þrautar, enda nýtist það ákaflega
vel og fer vel um mann þó svo að
seint verði hægt að tala um sér-
stök þægindi eða lúxus. Aðrir sjá
um það enda alls ekki allir sem
sækjast eftir einhverjum munaði í
bílum.
Maður sest beint inn í bílinn
sem er ótvíræður kostur fyrir þá
sem þjakaðir eru af bakverkjum
eða öðrum óþægindum. Auk þess
er bíllinn rúmgóður bæði fram í
og aftur í. Farangursrýmið er það
sem unga fólkið myndi sennilega
kalla „snilld“ því það er snilld-
arlega mikið og hægt að fella aft-
ursætin niður eftir hentugleik þar
sem hvert þeirra er á eigin braut.
Í farangursrýminu er plata til að
setja upp þegar sætin hafa verið
felld niður svo úr verður slétt og
samfellt rými og það nýtist býsna
vel ef vandlega er raðað.
Of einfaldur?
Í hraða og hönnunarsirkus nú-
tímans má ef til vill spyrja sig
hvort eitthvað geti mögulega ver-
ið of einfalt. Fólk sem vant er að
geta „sync-að“ tónlistarsafnið úr
síma í tölvu og úr tölvu í spjald-
tölvu, talað við aðra nánast með
hugsanaflutningi og ekið bílum
sem skynja þreytumynstur öku-
mannsins, gæti látið það trufla
sig að Citroën C3 Picasso er
býsna einfaldur bíll.
Í augum margra er það sem er
einfalt jafnframt gott. Í augum
annarra er afleitt að geta ekki
leyft sér munað á borð við að
hækka í útvarpinu með vinstri
hendi á stýrishjólinu. Það er til
dæmis eitt af því sem ekki tókst í
C3. Í þægindalýsingu bílsins er
sérstaklega tekið fram að hægt
sé að tengja iPod og MP3 spilara
auk þess sem fjarstýring sé í stýri
fyrir hljómtækin. Það fór einhvern
veginn framhjá undirritaðri. En
vissulega er í bílnum útvarp og
geislaspilari. Rafdrifnar rúður eru
bæði hjá ökumanni og farþega
fram í en ekki aftur í. Helsti mun-
aðurinn virðist vera sætahitari í
framsætum en býsna erfitt er að
lesa á hann því tölurnar eru agn-
arsmáar og ekki fyrir nærsýna.
Gott útsýni og slappt verk-
færasett
Í reynsluakstrinum var ekið eft-
ir stuttum malarvegarspotta.
Vildi ekki betur en svo til að
sprakk á framdekki. Slíkt getur
alltaf gerst en verst er að ekki
komi neitt ljós í mælaborð sem
gefur til kynna að ekki sé allt með
felldu. Hér skal tekið fram að
græjurnar voru ekki í botni og
vonandi leið ekki langur tími frá
því dekkið sprakk og þar til það
uppgötvaðist.
Í Evrópureglugerð sem tekur
gildi þann 1. nóvember 2014 er
gert ráð fyrir að þrýstingsskynjari
(TPMS) sé í öllum nýjum bílum.
Það er fyrst og fremst af öryggis-
ástæðum en auk þess hefur það
mikið að segja um eyðsluna hvort
jafnt er í dekkjum eður ei.
Það er ákaflega sjaldan sem
færi gefst til að tjakka bíla upp í
reynsluakstri en hér gafst ein-
stakt tækifæri til að lyfta C3 upp í
miklu roki og dálítilli rigningu.
Það er alltaf gaman að skipta um
dekk, það er nú bara staðreynd.
En mikið skelfing þótti mér aumt
að sjá tjakkinn og það sem hon-
um fylgdi. Þetta var eins og eitt-
hvert pjátur sem helst ætti að fá
að vera á sínum stað, undir far-
þegarýminu aftur í. Verðið á bíln-
um er nokkuð lágt, eða um þrjár
milljónir. Ég stórefa að það myndi
hækka verð bílsins til muna að
láta honum fylgja tjakk sem ekki
er eins og dósaopnari.
Svo endað sé á jákvæðum nót-
um skal dreginn fram hér einn
helsti kostur C3 Picasso og hann
er ekki lítill: Útsýnið úr bílnum er
alveg frábært og þar spila stórt
hlutverk vel heppnaðar hlið-
arrúður sem sjást á meðfylgjandi
mynd. Bílstjórinn getur stillt sæti
sitt þannig að hann sjái afar vel
yfir allt og þaðan er útsýnið eins
og úr jepplingi og er það ótvíræð-
ur kostur. Börnin sitja einnig hátt
aftur í, gluggarnir liggja lágt og
útsýni þaðan því framúrskarandi.
malin@mbl.is
Gott aðgengi í praktískum bíl
Aðgengi er gott í C3 Picasso og bíllinn rúmgóður fram í sem og aftur í. Tekið skal fram að myndin er tekin við bílakirkjugarð skammt frá Selvogum.
Umgjörð hraðamælis er einföld og viðmótið skýrt aflestrar. Ekki blasti við hvar tengja ætti iPod og aðra mp3 spilara.
Farangursrýmið rúmar heil ósköp, ekki síst ef sætin eru felld niður.
C3 er býsna einfaldur að allri gerð, sem kann að þykja ókostur.
C3 Picasso stendur undir nafni enda framendinn býsna listrænn að sjá.
Malín Brand reynsluekur Citroën C3 Picasso
Ljósmynd/Óðinn Kári Stefánsson
Tjakkurinn kom að býsna góðum notum þótt aumingjalegur væri.
Morgunblaðið/Malín Brand