Morgunblaðið - 03.12.2013, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER 2013
BÍLAR 7
okkur. Í úrslitariðlinum fór
bremsuslanga og var bíllinn
bremsulaus allan riðilinn og fram-
rúðan svo ónýt að ekkert sást út.
Við gerðum okkur lítið fyrir og end-
uðum í þriðja sæti sem var merki-
lega góður árangur,“ sagði Borgar.
Næsta keppni var á Knockhill í
Skotlandi sem er braut þar sem
mikill hraði er og hentaði íslenska
liðinu ágætlega. Þar gekk keppnin
vel þrátt fyrir erfiðar aðstæður og
eftir hana var liðið komið upp í
fjórða sæti í mótaröðinni. „Við
mættum til leiks í annað sinn í
fjórðu keppnina á Mallory 2. júní.
Þarna gekk okkur svakalega vel í
æfingum og tímatökum og unnum
einn riðilinn þar sem öll stóru
nöfnin voru með. Þessu hafði eng-
inn átt von á og eftir þetta komu
menn til okkar að skoða hvað
þarna væri í gangi. Þetta gat bara
ekki staðist að eldgamall Subaru
væri að vinna þessi stóru nöfn,“
sagði Borgar ennfremur. Eftir frá-
bært gengi yfir daginn brotnaði öx-
ull í úrslitunum en þrátt fyrir það
var liðið komið upp í þriðja sæti í
mótinu.
Í þriðja sæti fram í lokamótið
Fimmta keppnin fór fram í Ma-
asmechelen í Belgíu 21. júlí og
upphaflega átti að sleppa þessari
keppni. „Þar sem við vorum í þriðja
sæti í mótinu og áttum möguleika
á að halda því þá var því breytt og
haldið til Belgíu,“ sagði Borgar. „Á
þessari braut er farið frekar hægt,
hún er með kröppum beygjum
sem hentaði okkur ekki eins vel og
bresku brautirnar en aftur unnum
við þá sem við höfum verið í mestri
keppni við og styrktum stöðu okk-
ar enn betur í þriðja sætinu í
mótinu.“ Í keppninni á Lydden Hill
25.-26. ágúst átti að leggja allt
undir og stríða ofurbílunum. „Það
gekk ágætlega í æfingum og tíma-
tökum en í þriðja riðli var keyrt aft-
an á okkur og bíllinn snerist og
fengum við annan í hliðina á okkur.
Bíllinn var mjög mikið skemmdur
og var tvísýnt hvort það borgaði
sig að laga hann eftir þetta en sem
betur fer slapp Jónbi ómeiddur,
þökk sé öflugum öryggisbúnaði.“
Sjöunda keppnin fór fram á Pemp-
rey 29. september en þar þurfti
liðið að notast við varafjöðrun sem
var aðlöguð malbiki og hentaði
það illa í löngum malarköflum
brautarinnar. Náðist þó að halda í
við aðra keppendur og halda þriðja
sætinu í mótaröðinni. Í síðustu
keppninni í Croft 19. október síð-
astliðinn hefði liðinu dugað að dóla
með og klára keppnina en þá
dundi ógæfan yfir. „Fyrst gaf sig
hosa í Intercooler og í fyrsta riðli
gaf mótorinn sig og þá var æv-
intýrið búið. Við náðum þó þeim
merkilega árangri að vera eina lið-
ið sem hefur verið boðið að keppa
frítt í bikarmóti GP rallycross. Þeir
voru svo ánægðir með okkur að
koma út fyrir hverja keppni og
leggja allt í sölurnar að þeir buðu
okkur frí keppnisgjöld í bikarmótið
í lok tímabils,“ sagði Borgar. Þessi
góði árangur íslenska liðsins vakti
líka athygli mótorsportspress-
unnar ytra og komu tvær opnur
um liðið í virtasta rallyblaði heims,
Rallycross World.
njall@mbl.is
Subaruinn hafði í fullu tré við mun nýrri og dýrari bíla í einni stærstu
rallý-mótaröð heims, MSA British Rallycross Championship.
ssu hafði enginn átt von á og eftir þetta komu
óru nöfn,“ segir Borgar Ólafsson.
Eftirlíkingar af hjólunum úr Easy Rider er að finna á safn-
inu en upprunalegu eintökin hafa verið eyðilögð.
Á safninu er að finna þá nýbreytni að gestir geta sest á
nokkur hjól sem búið er að stilla upp fyrir myndatöku.
blaðið/Njáll Gunnlaugsson
TÍMAREIMAR
VARAHLUTAVERSLUN
VÉLAVERKSTÆÐIÐ
Sími: 577 1313 | Tangarhöfða 13 | kistufell.com
Gæðavara
á góðu verði
Aukablað um bíla fylgir
Morgunblaðinu alla þriðjudaga