Monitor - 12.12.2013, Síða 3
Fyrir bragðlaukana
Á Laugaveginum spretta upp básar
í kringum jólin þar sem seldar eru
ristaðar möndlur og Monitor er
ekki frá því
að sykur-
hjúpaðar
möndlurnar
beri með
sér bragðið
af jólunum.
Allra bestu
möndlurnar
má reyndar
finna í sölu-
vagni á Strikinu í Kaupmannahöfn
allan ársins hring. Ef enginn sölu-
bás verður á vegi þínum er ekki úr
vegi að skella í skammt í eldhúsinu
heima en bestu uppskriftirnar fást
með því að slá „brændte mandler“
upp á dönskuna í leitarvél að eigin
vali. Verði þér að góðu.
Fyrir Framsýna
Hátískuhönnuðir og listamenn
framtíðarinnar, nemendur við
hönnunardeild LHÍ, standa fyrir
jólamarkaði 14. og 15. desember á
Loft Hostel
við Banka-
stræti 7.
Þar mun
kenna
ýmissa grasa
enda eru
hönnuðirnir
jafn margir
og þeir eru
mismun-
andi. Monitor mælir með að þú kíkir
við og kaupir eitthvað fallegt undir
jólatréð eða bara sem fjárfestingu
til framtíðar enda er aldrei að vita
nema nemendurnir eigi eftir að
verða meðal stærstu nafna hönnun-
arheimsins í framtíðinni.
Vissir þú að Stekkjastaur kom í nótt? Stekkur var sérstök gerð fjárréttar en Stekkjastaur
átti það til að sjúga mjólk úr sauðkindum og þaðan er fyrri hluti nafs hans kominn.
fyrst&fremst 3fimmtudagur 12. desember 2013 Monitor
b
la
ð
ið
í
t
ö
lu
M jólauppskriftir frá
Evu Laufeyju má
finna á síðu 20.
4
gjafir handa þeim
sem ekkert skortir
má finna á síðu 16.
höfundar eru að
bókinni STRÁKAR.2
Þegar við erum ósammála fólki er oft freist-andi að kalla það öllum illum nöfnum.
Við tökum til vopna og skjótum föstum
skotum að persónu viðkomandi sem okkur
finnst óþolandi, viðurstyggileg eða
heimsk sökum skoðana þeirra.
Gætir þú setið undir þeirri
skothríð sem samfélagsum-
ræðan er?
Fólk er ekki skoðanir þess.Skoðanir má hrekja og
tortryggja með málefnalegum
rökum en það að við séum
ósammála einhverjum þýðir ekki
að viðkomandi sé verri manneskja
en hver annar.
Sumir ganga svo langt að halda því framað einhver eigi skilið líkamlegar refsingar
fyrir skoðun sína. Slíkar staðhæfingar, um
nauðganir, morð eða barsmíðar, eru líklega
það ógeðfelldasta og hættulegasta sem fólk
lætur út úr sér.
Til dæmis hef ég undanfarið orðið vör viðósvífnar og andstyggilegar persónuárásir
á Vigdísi Hauksdóttur. Ég er ósammála Vigdísi
um svo gott sem allt og mér finnst flestar
skoðanir hennar vanhugsaðar og
hættulegar því samfélagi sem ég vil
búa í. En ég hef engan rétt á að
úthúða henni sem persónu,
hversu mikið sem það
sem hún segir pirrar
mig. Það kemur líka
engu til leiðar. Lík-
lega hugsar hún bara:
„Haters gonna hate,“ og
hristir af sér hrímið.
Ef við, ungt fólk sem eldra,tölum um annað fólk sem
hálfvita eða tussur kennir það
yngstu kynslóðinni að slík ummæli
séu réttlætanleg.Við verðum að líta
í eigin barm og gera okkar besta til
að vinna að uppbyggilegri umræðu.
Skjótum á skoðanir, ekki á fólk.
Anna Marsý
mOniTOr@mOniTOr.is ritstjórar:
Anna Marsibil Clausen (annamarsy@
monitor.is), Jón Ragnar Jónsson (jon-
ragnar@monitor.is) (Í fæðingarorlofi)
Framleiðslustjóri: Hilmar Gunnarsson
(hilmar@monitor.is) blaðamenn: Rósa
María Árnadóttir (rosamaria@monitor.
is) Hersir Aron Ólafsson (hersir@
monitor.is), Lísa Hafliðadóttir (lisa@
monitor.is) Forsíða: Golli (golli@mbl.is)
umbrot: Monitorstaðir auglýsingar:
Auglýsingadeild Árvakurs (augl@mbl.
is) Forsíða: AFP myndvinnsla: Ingólfur
Guðmundsson Útgefandi: Árvakur
Prentun: Landsprent sími: 569 1136
ga Monitor EfSt í huga Monitor EfSt í huga Monitor EfS
Ert þú með skotleyfi?
mælir með...
www.facebook.com/monitorbladid
Vikan
á facebook
Gunnar Dofri
Ólafsson
Tvö snöpp í röð
af ungabörnum
vina minna. Eru
þetta örlögin?
10. desember kl. 19:40
15
Blaz Roca
Ég sá einn LÍÚ
náunga veiða
gamalt snickers
upp úr ruslafötu
á hlemmi í dag.
þessir halar eru hungraðir!
10. desember kl. 17:50
Ásgeir
Jónasson
Að versla allar
mögulegar raðir
fyrir 85 milljóna
pott Lottó
kostar 85.541.040. Þar fór besta
viðskiptahugmynd sem ég hef
fengið. 7. desember kl. 15:48
ára stýrði Gísli
Marteinn fyrst
sjónvarpsþætti.
20
Tobba
Marinósdóttir
Ég ætla að lýsa
mig vinalausa!
Vinkonur mínar
(EIGINLEGA
BARA EIN SAMT) eru svikarar
- lygasjúkar, hryðjuverkamenn
og lausar við siðferðiskennd!
Ein þeirra raðaði handerðu
konfektmolunum mínum á disk
og bauð Völu Matt með orðunum
“ég geri allt mitt konfekt sjálf!”
LYGARI!!!!!!!!!!!!!! Vala ekki láta
ljúga að þér !
11. nóvember kl. 15:34
Hinn 12.12.12 tóku fjölmargir rekstraraðilar
í miðbænum, tónlistarmenn og hönnuðir
höndum saman og söfnuðu fyrir jólaúthlutun
Rauða krossins í 12 tíma tónlistarmaraþoni og
fatauppboði þar sem seld var íslensk hönnun í
bland við flíkur úr Rauðakrossbúðinni. Það var
Árný Björk Sigurðardóttir sem átti frumkvæðið
að viðburðinum en hugmyndin að honum
spratt upp í námi hennar í umhverfis- og
auðlindafræði. Árný fékk þær Þuríði Rögnu
Jóhannesdóttur og Matthildi Þorláksdóttur í
lið með sér og nú er leikurinn endurtekinn, en
þó með öðru sniði en í fyrra. „Í fyrra var þetta
unnið með mjög stuttum fyrirvara,þá höfðum
við bara mánuð. Þá var þetta miklu minna í
sniðum og í raun er þetta orðinn allt öðruvísi
viðburður,“ segir Þuríður og Árný tekur undir.
„Það er stórt skref að fara úr litlum sal á Gallerý
bar 46 í svona stórt og merkilegt húsnæði sem
Gamla bíó er. En á sama tíma er þetta spenn-
andi og mjög skemmtilegt að hafa svona mikið
pláss því það gefur manni frjálsari hendur til
að skapa eitthvað áhugavert.“
Það kennir ýmissa grasa á viðburðinum en
auk fata- og hönnunarmarkaðar, tískusýningar
og uppboðs verður house-tónlist í aðalhlut-
verki. Árný segist líta á house-tónlist sem hluta
af hippamenningu samtímans og að umburð-
arlyndi, friður og ást gagnvart náunganum ríki
á house-samkomum og því sé tónlistarstefnan
afar viðeigandi fyrir viðburðinn. „Ég hlakka
til að sjá hvernig fólk tekur í dansmaraþonið,
Lunch Beat, jógadansinn og danshugleiðsluna,“
segir Matthildur sem hefur tröllatrú á stemmn-
ingsgildi tónlistarinnar og vill sjá sem flesta á
dansgólfinu.
Rauði krossinn á Íslandi sinnir jólaaðstoð
fyrir fjölskyldur og einstaklinga um allt land
en um 3000 fjölskyldur og einstaklingar nutu
aðstoðar Rauða krossins fyrir síðustu jól. Stúlk-
urnar segja afar gefandi að geta nýtt áhuga-
málin sín, tísku, föt og tónlist, til að hjálpa
öðrum en þær hafa sjálfar kafað í gáma Rauða
krossins eftir gersemum fyrir fatamarkaðinn.
„Rauða kross-búðirnar hafa verið starfræktar
um árabil og þær eru lifandi sönnun þess
að það eru svo sannarlega ekki bara gamlir
íþróttaskór og stuttermabolir í fatagámunum,“
segir Árný og bætir við að það skipti mestu
máli hvernig hlutirnir eru settir saman. Þuríður
tekur undir og segir ólíkan smekk vinkvenn-
anna hafa komið sér vel enda hafi þær dregið
fram ýmsar gersemar í sameiningu. Meðal
þeirra er forláta Karl Lagerfield-jakki og treyja
árituð af Christiano Ronaldo en flíkurnar verða
boðnar upp ásamt fjöldanum öllum af íslenskri
hönnun.
„Fólk á að koma til að njóta þess að gefa og
þiggja,“ segir Árný. Hún segir tilvalið að kaupa
jólagjafirnar á viðburðinum enda fái allir þeir
sem kaupa jólagjafir á fatamarkaðinum eða
uppboðinu miða sem á stendur „Allur ágóði af
jólagjöfinni þinni rennur til Rauða krossins á
Íslandi“. „Þetta er tilvalið tækifæri til að koma
sér í jólaskap,“ segir Matthildur glöð í bragði og
þær Árný og Þuríður taka undir og hvetja fólk
til að koma og upplifa rómantíkina í loftinu á
fallegum desemberdegi í fallegu húsi.
Þær stöllur Árný, Þuríður og Matthildur standa fyrir hönnunar- og house-
maraþoni í dag í Gamla bíói til styrktar jólaúthlutun rauða krossins.
gersemar úr gámum
rauða krossins
Árný
Fyrstu sex: 051282
lag á heilanum: Vogue,
fæ aldrei nóg af því.
Jólalegasta smákakan:
Má það vera konfekt?
Þá er það kókoskonfekt-
ið hennar mömmu
uppáhalds ofurhetja:
Allar skjaldbökurnar
Þuríður
Fyrstu sex: 300777
lag á heilanum: Jingle Bells
Jólalegasta smákakan: Spesíur
uppáhalds ofurhetja: Heman
maTThildur
Fyrstu sex: 010384
lag á heilanum: Shoulda,
með Jamie Woon.
Jólalegasta smákakan:
Kryddkökurnar hennar
mömmu
uppáhalds ofurhetja:
Hulk, mér finnst hann svo
fallega grænn á litinn.
M
yn
d/
Ó
m
ar