Morgunblaðið - 22.01.2014, Page 22
22 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. JANÚAR 2014
Ég vildi taka
augnablik og fagna
lífi Egils og segja
ykkur frá mínum
uppáhaldsminning-
um. Jafnvel þótt Egill, tengda-
pabbi minn, og ég töluðum ekki
sama tungumálið þá áttum við
skemmtileg tjáskipti yfir árin. Ég
Egill Guðmar
Vigfússon
✝ Egill GuðmarVigfússon
fæddist 18. ágúst
1936. Hann lést 6.
janúar 2014. Útför
Hans fór fram 18.
janúar 2014.
get ennþá séð fyrir
mér svipinn á hon-
um eftir að þeir
Skúli kenndu mér að
spila kana og ég
kallaði hér um bil 13
slagi á hverri hendi!
Egill leit á mig með
þessu ertu-ekki-að-
grínast-augnatilliti
og við hlógum öll. Að
spila spil og dómínó
var frábær aðferð til
að mynda góð tengsl. Ég mun
aldrei gleyma hversu almennileg-
ur og ljúfur maður hann var, sér-
staklega í minni fyrstu heimsókn
til Íslands þegar ég var að hitta
fjölskylduna hans Skúla í fyrsta
skipti. Skúli þýddi hvað hann
sagði og orðin hans voru svo blíð
og góð. Yfir árin, þegar við heim-
sóttum ættingja, hef ég notið þess
að kynnast manninum sem eigin-
maður minn talaði svo vel um,
manninum sem hafði þolinmæði
Jobs (einn af þolinmóðustu spá-
mönnum í Biblíunni), maður sem
eiginmaður minn og mágkona
kölluðu sinn besta vin. Frábær
faðir og trúr eiginmaður. Ég er
glöð að hafa þekkt svona mann og
verð alltaf þakklát fyrir hversu
yndislegur hann var sem faðir.
Hann ól upp son sem ég er svo
blessuð að kalla eiginmann minn.
Skúli er líkur Agli á svo marga
vegu. Hann gefur mikið af sér
með gæsku, góðmennsku, þolin-
mæði, tryggð og ást. Við munum
öll hlakka til þess dags þegar við
hittumst aftur.
Þangað til þá þökkum við Guði
fyrir að blessa okkur með tilveru
Egils, ekki bara í þessu lífi heldur
loforðinu að við munum hittast
aftur. Tími þar sem það verður
enginn sársauki, engin veikindi,
engir sjúkdómar og Egill verður
aftur hraustur og sterkur. Ó, því-
líkur dagur sem það verður.
Ástarkveðja, þín tengdadóttir,
Zina Egilsson.
Kæri Egill,
Fyrstu kynni mín af ykkur
Siggu voru svo góð. Mér var tekið
opnum örmum, það var komið
fram við mig eins og fullorðinn
mann og jafningja allt frá fyrsta
degi. Ég gleymi líka ekki þegar ég
og Harpa komum í heimsókn til
ykkar með Íslandsmeistaratitlana
okkar. Við vorum mynduð í bak
og fyrir, myndirnar stækkaðar og
settar upp á vegg. Veggirnir voru
þaktir af alls konar minningum og
afrekum.
Síðustu ár höfum við aukið
mikið sambandið. Við áttum alltaf
vel saman og þú kunnir vel að
meta að ég segði alltaf mínar
skoðanir þegar við ræddum málin
yfir kaffibolla. Það var orðinn
fastur liður að mæta á hverjum
sunnudegi í kaffi til ykkar Siggu.
Við gátum þá rætt um íþróttir,
heimsmálin, pólitík, trúnaðarmál
og í raun allt, þú hafðir skoðanir á
öllu og hægt var að treysta þér
fyrir öllu. Ég trúi því líka að þú
hafir alltaf verið smá pólitískt blár
inni við beinið.
Eftir að þú greindist með
ólæknanlegan sjúkdóm var það
mitt aðalmarkmið að koma ykkur
Siggu vel fyrir og flytja ykkur um
set. Eftir öll þín framlög til mín
var þetta það minnsta sem ég gat
gert. Ég er líka ánægður að hafa
náð að gera Garðbæing úr þér og
það var okkar sameiginlega
markmið að ná að breyta heim-
ilisfanginu fyrir kosningarnar um
Álftanesið svo þú gætir kosið rétt
þar. Nú hefurðu einnig ákveðið að
láta jarðsetja þig í Garðakirkju-
garði sem segir mér að þér þótti
gott að búa í bænum.
Það er alltaf gaman að gera
gott fyrir fólk sem virkilega er
þakklátt fyrir það. Hvort sem það
var maturinn sem ég bauð þér í,
kökurnar sem ég bakaði eða ann-
að, þú varst einfaldlega góður karl
sem kunnir að meta litlu hlutina,
og sá sem krítiseraðir hlutina á
réttan hátt svo ég tók mark á.
Takk fyrir allt, Egill, bið að
heilsa pabba.
Árni Þorvarðarson.
Nú ertu farinn, elsku afi minn,
og mikið finnst mér það nú skrýt-
ið. Ég hef aldrei kynnst dauðan-
um áður hjá neinum jafn nákomn-
um mér. Þrátt fyrir að maður viti
að sú stund komi að allir þurfi að
kveðja þennan heim þá get ég
ekki sagt að ég hafi verið undir
það búinn að þú færir. Ég mun
aldrei gleyma því þegar ég var
næstsíðustu nótt þína hjá þér á
spítalanum með henni Hörpu
systur fyrr um kvöldið og síðar
um nóttina einn með þér. Þrátt
fyrir að þú værir sofandi nánast
allan tímann þá fann ég fyrir nær-
veru þinni í herberginu. Mér
fannst ég vera bjargarlaus eins og
ég gæti ekki hjálpað þér en á
sama tíma reyndi ég að vera
sterkur svo ég gæti verið þér inn-
an handar.
Þrátt fyrir að ég hefði viljað
hafa þig lengur hjá okkur er ég
þakklátur fyrir þann tíma sem við
áttum saman. Þú hefur séð mig
vaxa úr grasi frá nýfæddum
dreng yfir í fullorðinn mann sem
hefur stofnað sína eigin fjöl-
skyldu. Ekki eru allir það lánsam-
ir að geta sagt það sama. Margar
✝ Gunnar R. Jós-efsson Felz-
mann fæddist í Vín-
arborg 3. febrúar
1941. Hann lést á
líknardeild Land-
spítalans Kópavogi
15. janúar 2014.
Foreldrar hans
voru Jósef Felz-
mann fiðluleikari,
f. 1910, d. 1976, og
Ingibjörg Júl-
íusdóttir húsmóðir, f. 1917, d.
1984. Systir Gunnars er Sigrid
Anna Jósefsdóttir, gift Yngva
Erni Guðmundssyni. Gunnar
giftist 22. desember 1963 Hrafn-
hildi Björk Sigurðardóttur,
fyrrverandi útibússtjóra Lands-
banka Íslands. Foreldrar henn-
ar voru Sigurður Sveinsson sjó-
maður, f. 1913, d. 1994 og Soffía
Steinsdóttir húsmóðir, f. 1913,
d. 1996. Barn Gunnars og
Hrafnhildar er Anna María tal-
meinafræðingur, f.
1964, maki Friðrik
G. Friðriksson hús-
gagnasmiður, f.
1958. Börn þeirra
eru Styrmir, f.
1990, og Hilda
Björk, f. 1997.
Fyrstu ár ævi
sinnar bjó hann
ásamt foreldrum og
systur í Vínarborg,
Austurríki. Hann
fluttist til Íslands á sjöunda ald-
ursári og bjó lengst af í Vest-
urbænum. Eftir að hann hóf bú-
skap bjó hann ásamt fjölskyldu
sinni í Kópavogi og síðan á Sel-
tjarnarnesi í 38 ár. Hann vann
sem bifvélavirki og stofnaði
ásamt öðrum Kranaafgreiðsl-
una hf. þar sem hann vann þar
til hann fór á eftirlaun.
Útför Gunnars fer fram frá
Seltjarnarneskirkju í dag, 22.
janúar 2014, kl. 13.
Elskulegur tengdafaðir minn
er fallinn frá eftir erfið veikindi.
Ég vil þakka honum samfylgdina
og tryggðina við okkur. Blessuð sé
minning hans.
Ég kveð þig, hugann heillar minning
blíð,
hjartans þakkir fyrir liðna tíð,
lifðu sæl á ljóssins friðar strönd,
leiði sjálfur Drottinn þig við hönd.
(Guðrún Jóhannsdóttir.)
Tengdamóður minni vil ég
votta innilegustu samúð. Starfs-
fólki líknardeildar Landspítalans í
Kópavogi vil ég þakka fyrir ein-
staka alúð og umönnun í hans
garð.
Friðrik G. Friðriksson.
Elsku afi okkar er látinn eftir
erfiða sjúkdómslegu. Nú þegar
við kveðjum afa hugsum við til
baka og rifjum upp ýmsar minn-
ingar. Þar sem afi og amma búa í
nágrenni við okkur þá var mikill
samgangur á milli heimilanna. Afi
var alltaf tilbúinn að keyra okkur í
og úr skóla og í þær tómstundir
sem við stunduðum. Oftast söng
hann með lögunum sem spiluð
voru á Gullbylgjunni.
Hann var í hestamennsku til
margra ára, en þegar við stigum
okkar fyrstu skref í hestamennsku
þá var hann hættur. Hann hafði
samt sem áður alltaf gaman af því
að fylgjast með okkur og hestun-
um. Afi hafði mjög gaman af því að
ferðast og fór hann og amma víðs
vegar um heiminn. Við fengum iðu-
lega kort og gjafir frá þessum fjar-
lægum löndum. Okkur eru minn-
isstæðar ferðirnar sem við fórum í
með honum og ömmu til Spánar,
þar sem þau áttu hús. Þar var ým-
islegt brallað; hjólað, siglt, farið á
ströndina, í tívolí, á go kart bíla og
margt fleira.
Afi hafði mjög gaman af því að
horfa á teiknimyndir og þegar við
vorum yngri þá eyddum við mörg-
um skemmtilegum stundum í að
horfa á teiknimyndir eða spila ol-
sen olsen um leið og við borðuðum
ristað brauð með steiktu eggi og
skinku.
Síðustu ár voru afa erfið og þá
fengum við tækifæri til að keyra
hann þegar á þurfti að halda. Við
viljum kveðja elsku afa okkar með
þessu ljóði:
Ég sendi þér kæra kveðju
nú komin er lífsins nótt,
þig umvefji blessun og bænir
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum
þín veröld er björt á ný.
(Þórunn Sigurðardóttir.)
Þín afabörn.
Styrmir og Hilda Björk.
Hvað vitum við um þá sem við
göngum með í lífinu? Við teljum
okkur þekkja okkar nánustu fjöl-
skyldumeðlimi, vini og vinnu-
félaga. En er það svo?
Gunnar mágur okkar og svili
sem við kveðjum í dag átti eigin-
leika sem fáir vissu um. Auðséð var
að þar fór einstakt snyrtimenni, því
þrátt fyrir að vinnuumhverfi hans
krefðist ekki jakkafata í hlýlegu
umhverfi var hann alltaf hreinn og
snyrtilegur til fara. Við þekktum
líka vandvirkni hans og nákvæmni
í öllu því sem hann tók sér fyrir
hendur. Gunnar var ekki heldur
það sem kallað er opinn, um þá hlið
sá systir okkar og mágkona.
Gunnar hafði til að bera næmni
listamannsins eins og hann ber
kyn til. Hann hafði næmt tóneyra
og hafði ánægju af ólíkum tónlist-
arstefnum svo sem klassískri,
stríðsáratónlist, djassi eða gítar-
tónlist sjötta áratugarins. Það var
bæði fróðlegt og skemmtilegt að
ræða við hann um tónlist. Hann
gat til að mynda hæglega greint á
hvaða tegund gítars var spilað í
hinum mismunandi lögum. Hann
hefði eflaust geta orðið mjög fær
tónlistamaður og jafnvel listmál-
ari, hefði umhverfi og aðstæður
verið á annan veg.
Við höfðum það oft á tilfinning-
unni að Gunnar passaði ekki inn í
íslenskt veðurfar og matarmenn-
ingu. Hann naut þess að vera sólar-
megin í lífinu í þess orðs fyllstu
Gunnar R. Jósefs-
son Felzmann
✝
Ástkær faðir okkar, afi, sonur og bróðir,
MAGNÚS ÞÓRÐARSON,
lést miðvikudaginn 15. janúar.
Útför hans fer fram frá Grindavíkurkirkju
föstudaginn 24. janúar kl. 14.00.
Helga Sjöfn Magnúsdóttir, Jakob Sigurðsson,
Þórður Ingi Magnússon, Ásdís Halldórsdóttir,
Alma Dögg Magnúsdóttir,
Sjöfn Ísaksdóttir, Þórður Magnússon,
Haukur V. Gunnarsson, Ísak Þórðarson,
Harpa Þórðardóttir, Ingibjörg R. Þórðardóttir
og barnabörn.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
ÓLAFÍA SIGURÐARDÓTTIR,
Sólheimum 22,
Reykjavík,
lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund
laugardaginn 11. janúar.
Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki deildar A-3 á Grund fyrir
frábæra hjúkrun og umönnun.
Þökkum sýnda samúð og hlýhug.
Eyjólfur Bergþórsson,
Nanna Bergþórsdóttir, Ólafur Kjartansson,
Andrés Andrésson,
Andrés Andrésson,
Íris Andrésdóttir, Anna Rut Guðmundsdóttir,
Bergþór Andrésson, Erla Björk Tryggvadóttir,
Kjartan Ólafsson, Alicia-Rae Ólafsson,
Berglind Ólafsdóttir, Björgólfur G. Guðbjörnsson,
Jóhanna Lóa Ólafsdóttir
og barnabarnabörn.
✝
Ástkær eiginkona mín, mamma, tengda-
mamma, amma, langamma, systir og
mágkona,
GUÐRÚN HALL,
Fögrubrekku 3,
Kópavogi,
lést laugardaginn 18. janúar á
Landspítalanum.
Jarðarförin fer fram frá Kópavogskirkju mánudaginn 27. janúar
kl. 13.00.
Agnar Einarsson,
Brynhildur Agnarsdóttir, Sveinn Þorsteinsson,
Erna Guðrún Agnarsdóttir, Þorlákur Björnsson,
Garðar Agnarsson, Sigríður Pétursdóttir,
Hjördís Hall, Sigurjón Stefánsson,
Jónas Hall, Ólafía Jónsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
EVA BENEDIKTSDÓTTIR,
frá Þverá, Öxarfirði,
Aflagranda 40,
lést á Landakotsspítala sunnudaginn
19. janúar.
Jarðsungið verður frá Fossvogskirkju
þriðjudaginn 28. janúar kl. 13.00.
Rósa Valtýsdóttir,
Bára Valtýsdóttir, Ragnar Jónsson,
Björg Valtýsdóttir, Kristinn Pálsson,
Óskar Valtýsson, Guðbjörg Rannveig Jónsdóttir,
Valdís Axfjörð, Már Árnason,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
VALNÝ BÁRÐARDÓTTIR,
lést á Hrafnistu í Reykjavík föstudaginn
17. janúar.
Útför hennar fer fram frá Áskirkju í Reykjavík
miðvikudaginn 29. janúar kl. 13.00.
Helgi E. Helgason, Ásdís Ásmundsdóttir,
Gísli Már Helgason,
Gunnar Hans Helgason, Sigrún Þórðardóttir,
Ásdís Stefánsdóttir,
Sigurður Helgason, Anna Ólafsdóttir,
Bárður Helgason, Svanhildur Jónsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, afi
og langafi,
SIGMUNDUR EIRÍKSSON
pípulagningameistari,
Sléttahrauni 15,
Hafnarfirði,
lést á bráðadeild Landspítalans, Fossvogi,
fimmtudaginn 16. janúar.
Útför hans fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði
27. janúar kl. 15.00.
Margrét Sigurðardóttir,
Sigríður Lilja Sigmundsdóttir,
Sigurður Sigmundsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
GÍSLI JÓN HERMANNSSON
framkvæmdastjóri,
Sóltúni 2,
áður til heimilis að Haðalandi 8,
Reykjavík,
lést mánudaginn 13. janúar.
Útförin fer fram frá Bústaðakirkju fimmtudaginn 23. janúar
kl. 13.00.
Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem
vilja minnast hans er bent á Slysavarnarfélagið Landsbjörg.
Hjörtur Gíslason, María Bjarnadóttir,
Margrét Gísladóttir, Sigurður Þorsteinsson,
Hermann Gíslason, Ásta Finnbogadóttir,
barnabörn og barnabarnabarn.