Morgunblaðið - 22.01.2014, Side 30
30 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. JANÚAR 2014
- örugg bifreiðaskoðun um allt land
Þú gætir eignast
nýjan Citigo ef þú drífur
bílinn í skoðun!
Þeir sem koma með bílinn í skoðun hjá Frumherja eiga
möguleika að eignast stórglæsilegan Skoda Citigo sem
verður dreginn út þ. 1. júlí 2014.
Happdrætti
Aðalvinningur er
splunkunýr Skoda
Citigo árg. 2014
Ítalski hljómsveitarstjórinn Claudio
Abbado er látinn í heimaborg sinni
Bologna, áttræður að aldri. Abbado
var einn áhrifamesti hljómsveitar-
stjóri síðustu hálfrar aldar, dáður
jafnt af áheyrendum sem hljóðfæra-
leikurum, fyrir skýra sýn á tónlist-
ina og einstaka ljúfmennsku í sam-
skiptum við alla.
Abbado var um langt árabil tón-
listarstjóri Scala-óperunnar þar sem
hann hóf störf árið 1960. Árið 1986
tók hann við hljómsveit Vínaróper-
unnar auk þess að vera árið 1989
kjörinn af meðlimum Berlínarfíl-
harmóníunnar til að vera aðalstjórn-
andi hennar og gegndi hann stöð-
unni til 2002. Meðal annarra helstu
starfa Abbado má nefna að hann
stýrði Lundúnasinfóníunni á ár-
unum 1979 til 1988, og vakti þá sér-
staka athygli fyrir flutning verka
Gustavs Mahler, og þá var hann um
tíma gestastjórnandi Sinfóníu-
hljómsveitar Chicago.
Upptökur hljómsveita sem Ab-
bado stjórnaði nutu alla tíð mikillar
hylli en hann hljóðritaði í fyrsta sinn
fyrir Deutsche Grammophone árið
1967. Tónlistarfræðingar og gagn-
rýnendur kepptust í gær við að lofa
framlag hans til klassískrar tónlistar
og höfðu margir á orði að fráfall
hans skildi eftir skarð í tónlistar-
heiminum sem erfitt yrði að fylla.
Í fyrra skipaði ítalska ríkið Ab-
bado fulltrúa í öldungadeildinni til
æviloka. Síðasta áratug glímdi hann
við vanheilsu og þurfti að fresta
nokkrum verkefnum af þeim sökum.
Engu að síður vann hann að síðustu
upptökum sínum fyrir Deutsche
Grammophone seint á liðnu ári.
Hljómsveitarstjór-
inn Abbado látinn
Stýrði mörgum
helstu hljómsveit-
unum síðustu áratugi
EPA
Stjórnandinn Abbado stjórnar Fíl-
harmóníuhljómsveit Berlínar 2001.
Nú er síðasta vikan sem unnt er að
sjá sýningu Önnu Maríu Lindar
Geirsdóttur í SÍM salnum, Hafn-
arstræti 16. Sýninguna kallar hún
Gallabuxur og bolir og eru text-
ílverkin ofin sérstaklega fyrir rým-
ið, úr gallabuxum og bolum. Sýn-
ingin er framhald sýningarinnar
Bómullartuskur sem Anna María
var með í sal Grafíkfélagsins fyrir
tveimur árum. Byggist hún á pæl-
ingum um þennan fatnað verka-
manna sem þróaðist síðan í að
verða föt uppreisnargjarnra ung-
menna með Marlon Brando og
James Dean í fararbroddi. Í fram-
haldinu varð þetta tískufatnaður og
er enn.
Anna María kveðst vera mótmæl-
andi og klæðist ullar- og gore-tex-
fötum í sínum mótmælum en skap-
ar list úr gallabuxum og bolum.
Textílverk Hluti tveggja verka á
sýningu Önnu Maríu í SÍM húsinu.
Úr bolum og
gallabuxum
Eins og fram hef-
ur komið hefjast
síðar í mánuðinum
upptökur á bresk-
um sjónvarpsþátt-
um í Fjarðabyggð.
Meðal leikara er
hin danska Sofie
Gråbøl, sem lands-
menn þekkja
mæta vel af skjánum úr dönsku
þáttaröðinni Glæpnum.
Þegar því verkefni lýkur stígur
Gråbøl á svið í Edinborg og leikur
þar Margréti Danadrottningu, eig-
inkonu James III, í þremur nýjum
leikritum um konunga Skotlands á
16. öld. Verða þau meginefni dag-
skrár Þjóðleikhúss Skota í vor. Með-
al annarra leikara eru Blythe Duff
úr Taggart-þáttunum.
Gråbøl sem
Danadrottning
Sofie Gråbøl
Saxófónninn er seiðandi íupphafslagi disksins Bláttlíf , samnefndu, og hryn-urinn af fönkættinni er
ríkti á gullaldarárum Hammond-
organistanna. Þar er Hammond-
konungur norðursins, Þórir Bald-
ursson, í aðalhlutverk eins og á
diskunum
tveimur sömu
ættar er hljóð-
ritaðir voru
2007: Bláir
skuggar og
Blátt ljós. Þessi
diskur er ekta djassdiskur upp á
gamla mátann. Tekinn upp á fimm
tímum er Jacob Fischer var hér í
heimsókn í fyrra.
Í stað Jóns Páls og Péturs Öst-
lund eru yngri menn á gítar og
trommur: Jacob Fischer, hinn
danski, og Einar Scheving. Þeir
standa fyllilega fyrir sínu; Jacob ei-
lítið klassískari en bíboppmeist-
arinn Jón Páll og Einar kraftmikill
en léttur í sveifunni, sem m.a. ríkir
á sálarsinnuðum ópus tvö „Þegar
dimmir, dagur er í nánd.“ Tvö lög
er Stefán Hilmarsson söng á
skyldri skífu með Sálgæslunni er
hér að finna. Hina tilfinningaríku
ballöðu „Áramót“ sem Sigurður
blæs glæsilega svo og „Þegar neyð-
in er stærst“, sem er af poppaðri
ætt.
Lögin á diskinum eru 11 og loka-
lagið „Einn fyrir alla og allir fyrir
einn“ mollblús undir hræruhryn
einsog Jóhannes Eggertsson kallaði
„shufflerýþmann.“ Þar er Sigurður
dálítið villtari en oftast og minnir
svolítið á Sigga fyrir tuttugu árum.
Það er bara gaman.
Þó að tónn Sigurðar hafi í tím-
ans rás líkst meir og meir Art Pep-
per, Desmond og þeim köppum, er
hann blúsblásari af bestu sort og
óspar að játa Hank Crawford virð-
ingu. Hér í „Hankaður“ en á disk-
inum Bláum skuggum í laginu
„Stígum á stokk.“ Þarna læðist
Earl Bostic einnig inn í spunan, þó
á varfærnari nótum en hjá Rúnari
Georgssyni. „Bankablús“ er dálítið
öðruvísi leikinn en hinir ópusarnir,
því Jacob Fisher bregður fyrir sig
gítarleik í anda gömlu Mississippi-
blúsaranna.
Á Bláum skuggum hét upphafs-
lagið „ Kvíabryggja“ og var byggt
á „Brother can you spare a dime“,
hér er lag sömu ættar: „Þú ert ást-
in mín“ og leitar Sigurður víða
fanga eins og Matt Dennis gerði í
„Angel eyes“, en styrkur beggja
felst í endurómnum af „St. James
Infirmary“. Þetta er feikivel blásið
af Sigurði og sannar enn og aftur
að fyrsta klassa djass byggist ekki
á frumlegri lagasmíði fyrst og
fremst heldur tilfinningu fyrir
innsta eðli djasstónlistarinnar.
Siggi Flosa á fimmtugsafmæli í
dag. Það er gaman að hafa átt þess
kost að hlusta á hann frá því hann
var 17 ára og hóf að spila með Nýja
kompaníinu þar sem Tómas R. Ein-
arsson var á bassanum. Áður hafði
hann leikið með Swing bræðrum og
hóf þar djassferilinn. Hann hefur
gefið út einar 26 skífur, ýmist undir
eigin nafni eða í samvinnu við aðra
og auk þess leikið á fjölmörgum
skífum annarra tónlistarmanna og
stjórnar nú Stórsveit Reykjavíkur
auk þess að halda tónleika víða um
heim, ýmist sem gestasólisti eða
með eigin hljómsveitum.
Tónsmíðar hafa alltaf verið stór
þáttur í tónsköpun hans ekki síður
en spuninn og sérstaklega hefur
honum tekist vel upp í ballöðum. Ís-
lenskir djassleikarar mættu gjarn-
an hafa bestu lög hans oftar á efnis-
skrá sinni. Í tilefni dagsins mun
Sigurður halda tónleika í Norður-
ljósasal Hörpu í kvöld og þar leika
Þórir, Jacob og Einar með honum
og djassdívurnar Andrea, Kristjana
og Ragga Gröndal syngja.
Það er óhætt að óska íslensku
tónlistarlífi til hamingju með Sigga
Flosa fimmtugan!
Morgunblaðið/Einar Falur
Afmælisbarnið „Þó að tónn Sigurðar hafi í tímans rás líkst meir og meir
Art Pepper, Desmond og þeim köppum, er hann blúsblásari af bestu sort,“
skrifar rýnir um leik Sigurðar Flosasonar. Blátt líf kemur út í dag, á fimm-
tugsafmæli hans, og er „ekta djassdiskur upp á gamla mátann“.
Flosason blúsar fimmtugur
Geisladiskur
Blátt líf bbbbn
Sigurður Flosason altósaxófón, Þórir
Baldursson Hammond-orgel, Jacob
Fischer gítar og Einar Scheving tromm-
ur. Tekið upp í Stúdíói Sýrlandi 18. júni
2013.
VERNHARÐUR
LINNET
TÓNLIST