Morgunblaðið - 24.01.2014, Blaðsíða 30
30 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. JANÚAR 2014
✝ Guðni Guðna-son fæddist á
Eyjum í Kjós 2.
ágúst 1915. Hann
lést á Hjúkrunar-
heimilinu Grund í
Reykjavík mið-
vikudaginn 15.
janúar 2014.
Foreldrar hans
voru Guðrún
Hansdóttir Steph-
ensen húsfreyja,
fædd 8. ágúst 1877, dáin 15.
apríl 1956, og Guðni Guðna-
son, bóndi í Eyjum, fæddur 28.
maí 1877, dáinn 2. nóvember
1964. Systkini Guðna voru. 1)
Hans, fæddur 27. ágúst 1911,
dáinn 22. september 1983. 2)
Lilja, fædd 4. apríl 1913, dáin
25. febrúar 1961. 3) Rósa,
fædd 4. apríl 1913, dáin 8. des-
ember 2003, 4) Guðrún, fædd
30. maí 1917, dáin 4. desember
1987. 5) Ingólfur, fæddur 27.
október 1919, dáinn 28. nóv-
ember 2011.
Guðni giftist 6. desember
1961, Guðrúnu Antonsdóttur
húsfreyju, fæddri 2. maí 1902,
dáinni 29. ágúst 1985. Fyrri
merkur að kynna sér trygg-
ingamál. Héraðsdómslögmaður
27. apríl 1946. Rak málflutn-
ingsstofu í Reykjavík 1950-
1953. Stundaði sjómennsku og
byggingarvinnu frá júní 1953
til október 1955. Fulltrúi hjá
Steini Jónssyni hdl. í Reykja-
vík frá október 1955 til októ-
ber 1957. Fulltrúi hjá Sam-
bandi íslenskra sveitarfélaga
og ritstjóri tímaritsins Sveitar-
stjórnarmála frá október 1957
til ársloka 1959. Bygginga-
verkamaður í Reykjavík 1960
– 1963. Fulltrúi hjá bæjarfóg-
etanum í Hafnarfirði og sýslu-
manninum í Gullbringu- og
Kjósarsýslu frá mars 1964 –
mars 1966. Fulltrúi hjá Árna
Gunnlaugssyni hrl. í Hafnar-
firði frá mars 1966 til júní
1978. Rak eigin málflutnings-
skrifstofu í Reykjavík frá júní
1978 til júní 1988. Félags- og
trúnaðarstörf: Í stjórn Félags
róttækra stúdenta 1939-1940. Í
stjórn Sósíalistafélags Reykja-
víkur 1964-73, formaður 1970-
1973. Í stjórn Tónskóla Sigur-
sveins D. Kristinssonar frá
1964-1984.
Útför Guðna verður gerð
frá Fossvogskirkju í dag, 24.
janúar 2014, og hefst athöfnin
kl. 15.
eiginmaður Guð-
rúnar var Gestur
Ámundason, fædd-
ur 29. júní 1878,
dáinn 4. mars
1937. Börn Guð-
rúnar og Gests. 1)
Sigríður, fædd 10.
júní 1924, dáin 30.
september 2003. 2)
Guðmundur Ing-
ólfur, fæddur 11.
desember 1925, dá-
inn 28. desember 2001. 3)
Magnea Gestrún, fædd 18.
ágúst 1928. 4) Andrea Guðrún
Erla, fædd 11. janúar 1934.
Guðni lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum í Reykjavík
1937 og varð cand. juris. frá
Háskóla Íslands 27. janúar
1944. Starfaði að afloknu prófi
á Ísafirði sem trúnaðarmaður
verðlagsstjóra til ársloka 1944;
var síðan ritari húsaleigu-
nefndar Reykjavíkur til októ-
ber 1946, en réðst þá sem
fulltrúi á málflutnings-
skrifstofu Einars B. Guð-
mundssonar og Guðlaugs Þor-
lákssonar og starfaði þar til
mars 1949 er hann fór til Dan-
Ég sé fyrir mér mann á besta
aldri koma með áætlunarbílnum
frá Reykjavík og ganga götuna
heim að Eyjum í Kjós. Hann er
snyrtilega klæddur í blágráum
jakkafötum, hvítri skyrtu með
hálsbindi. Yst fata er hann í ljós-
um rykfrakka. Þannig man ég,
sem barn, Guðna föðurbróður
minn koma í heimsókn til for-
eldra sinna og annarra ættingja í
Kjósinni þegar ég var þar að
alast upp í stórum systkinahópi.
Lögfræðingurinn Guðni kom
ekki einungis í heimsókn til að
hitta ættingja. Hann kom líka í
sumarleyfum sínum og gekk að
hefðbundnum sveitastörfum við
heyskap. Slátt með orfi og ljá,
heyþurrkun og hirðingu. Það er
eftirminnilegt hve kappsamur
hann var og lét ekki sitt eftir
liggja þótt svitinn bogaði af hon-
um.
Fyrir utan snyrtimennskuna
og kappið við þau verk sem hann
tók að sér er ekki síður eftir-
minnilegt hve fróður hann var
um marga hluti. Þeim fróðleik
miðlaði hann til okkar sem hlusta
vildum með mildri og fremur
lágværri rödd sinni og brosti
kannski góðlátlega um leið og
hann sagði frá. Það átti við hann
alla tíð og þegar ég heimsótti
hann á Hjúkrunarheimilið
Grund eftir að hann var orðinn
dvalargestur þar var hann enn
óþreytandi að fræða og rifja upp
margvíslega hluti frá fyrri árum,
sem ánægjulegt var að fá að
heyra. Í endurminningabók sinni
„Ljósmyndir“ segir séra Halldór
Jónsson á Reynivöllum í Kjós
svo frá; „Það var af mínum hvöt-
um, að þessum unga pilti var
komið til mín til náms. Hann var
góður námsmaður og mjög
minnugur eins og hann á ætt til.“
Eftir undirbúningsnám hjá séra
Halldóri fór Guðni í Menntaskól-
ann í Reykjavík og lauk þaðan
stúdentsprófi 1937 og lögfræði-
prófi frá Háskóla Íslands 1944.
Lengst af sinni starfsævi vann
hann sem lögfræðingur, en lagði
þó einnig fyrir sig verkamanna-
vinnu og sjómennsku um tíma.
Guðni var kominn nokkuð á
fimmtugsaldur þegar hann hóf
sambúð með Guðrúnu Antons-
dóttur. Guðrún hafði orðið ekkja
35 ára gömul með fjögur börn á
aldrinum þriggja til þrettán ára.
Hún sá sér og börnum sínum far-
borða með því að taka kostgang-
ara og starfa sem matselja á
heimili sínu á Ásvallagötu 16 í
Reykjavík um langt árabil.
Guðni var einn af kostgöngurum
hennar um tíma áður en þau
hófu sambúð. Eftir að Guðrún
féll frá árið 1985 bjó Guðni í
skjóli fjölskyldu hennar. Ástæða
er til að þakka sérstaklega þá
umhyggju og umönnun sem
hann naut þar alla tíð. Á síðari
árum háði sjóndepra honum og
síðustu ár má segja að hann hafi
verið orðinn alblindur. Hann
fékk dvalarrými á Grund fyrir
um það bil þremur árum. Þar
leið Guðna vel og sagði aðspurð-
ur að þar væri gott að vera. Ég
hygg að hann hafi þar verið
hvers manns hugljúfi og eftir-
minnilegt er viðtal við hann sem
birtist í Kastljósi Sjónvarpsins í
febrúar 2012. Þar lýsti hann lífs-
viðhorfum sínum eins og honum
einum var lagið. Hann var alla
tíð mjög róttækur í stjórnmála-
skoðunum og í því efni fékk ekk-
ert haggað honum. Ég minnist
frænda míns með þakklæti og
virðingu nú þegar hann hefur
lokið þessari jarðvist rúmlega 98
ára að aldri.
Hermann Hansson.
Guðni Guðnason frá Eyjum í
Kjós var dýrmætur hluti af fjöl-
skyldunni okkar og við nutum
þess svo sannarlega að eiga hann
að. Á heimili Guðna á Ásvallagöt-
unni þar sem hann bjó lengst af
með Guðrúnu Antonsdóttur hag-
aði svo til að tvær íbúðir voru í
húsinu auk þeirrar sem Guðni
bjó í. Algengast var að börn eða
barnabörn Guðrúnar byggju í
annarri eða báðum af þessum
aukaíbúðum og við vorum svo
lánsöm að vera hluti þess fólks
og bjuggum þar með Guðna í
átta ár.
Þegar við byrjum okkar bú-
skap á Ásvallagötunni 1986 er
Guðni rétt í þann mund að hætta
störfum, rúmlega sjötugur.
Hann var því meira minna heima
við og þess nutum við. Sérstak-
lega er minnisstætt hve góður og
tillitssamur hann var við krakk-
ana sem hann lék við og lét allt
eftir. Þó svo að við flyttum burtu
héldum við áfram nánu sam-
bandi við Guðna og fengum
þannig áfram notið þess að eiga
samskipti við þennan einstak-
lega skemmtilega, góða og hjálp-
sama mann.
Ef lýsa ætti Guðna með hlið-
sjón af almennari viðmiðum væri
sannarlega rétt að segja að hann
hafi verið félagshyggjumaður
sem lifði alla tíð samkvæmt
þeirri sannfæringu sinni að jöfn-
uður ætti að ríkja á milli manna.
Þetta endurspeglaðist meðal
annars í líferni Guðna sem fór
mjög vel með og fjárfesti ekki í
öðru en bættum hag annarra,
bæði með því að styrkja góð mál-
efni og fólk sem á þurfti að halda.
Þátttaka Guðna í félögum sem
höfðu sósíalisma að leiðarljósi
var töluverð enda stefna sem
samrýmdist hans gildum sem
jafnaðarmanns.
Annað sem nefna verður um
Guðna er hve fróður og víðlesinn
hann var og svo minnugur að af
bar. Hann var mikill bókamaður
sem hafði þann sið að gefa bæk-
urnar sínar öðrum svo þeir
mættu líka hafa gagn af. Ljóð-
elskur var Guðni með afbrigðum
sem meðal annars kom fram í því
að hann kunni óteljandi kvæði og
heilu kvæðabálkana utan að.
Þessi áhugi Guðna á ljóðum og
náttúruleg innsýn hans í þau mál
náði allt aftur til bernsku hans
því í uppvexti sínum naut Guðni
þess að amma hans kenndi hon-
um að njóta þeirrar listar með
daglegri uppfræðslu.
Ættfræði var mikið áhugamál
Guðna. Sem dæmi um það er að
ef í tal barst við Guðna einhver
persóna á landnámsöld þá vissu
menn að öll líkindi voru á því að
samtalinu lyki ekki fyrr en ætt-
leggur viðkomandi hefði verið
rakinn allt til samtímans. Annað
áhugamál Guðna voru örnefni og
uppruni þeirra en íslensk fræði
og sagnfræði voru Guðna líka
hugleikin.
Á ævi sinni upplifði Guðni þær
gríðarlegu þjóðfélagsbreytingar
sem átt hafa sér stað á Íslandi
þessa síðustu öld. Allt frá æsku-
árunum þegar Guðni sat yfir án-
um að gömlum sið og fram til
tæknisamfélags 21. aldar. Hvað
sem þeim umskiptum líður þá
var Guðni Guðnason frá Eyjum í
Kjós alltaf samur við sig og þess
nutum við og aðrir sem voru svo
lánsamir að umgangast þennan
sómamann.
Jóhannes Sturlaugsson,
Eygerður Guðbrandsdóttir,
Guðbrandur Jóhannesson og
Snæfríður Jóhannesdóttir.
Ég á eftir að sakna elsku
Guðna míns. Hans sem var svo
hlýr og góður, hans sem ég gat
alltaf leitað til. Guðni var gædd-
ur einstakri frásagnargáfu. Ann-
ar dýrmætur eiginleiki hans var
að maður vildi leita til hans með
vandamál því hann sýndi málum
manns einlægan skilning og gaf
manni ráð ef eftir var leitað.
Mér er minnisstætt á mínum
menntaskólaárum þegar ég
heimsótti Guðna reglulega og
vildi fá innsýn inn í líf hans
snemma á 20. öldinni. Þá var
sjálfsagt mál að gefa ítarlega lýs-
ingu á því öllu saman, en í stað
þeirra krassandi lýsinga sem ég
var að fiska eftir þá sat ég uppi
með upptalningu á ættar-
tengslum sem vörðuðu frásögn-
ina svo klukkustundum skipti.
Það flæði varð nefnilega ekki
stöðvað með neinu hefðbundnu
móti, frammíköll og annað slíkt
stoðuðu ekki, Guðni var kominn
á flug.
Guðni hafði alltaf mikinn
áhuga á fólki og leitaði alltaf eftir
fréttum af fjölskyldunni þegar
ég hitti hann. Þegar fréttaflutn-
ingurinn hófst af minni hálfu þá
ljómaði Guðni alltaf eins og sól í
heiði því hann hafði svo einlægan
áhuga á fólkinu sem honum þótti
vænt um. Þegar honum fannst
eitthvað kímið í fréttaflutningn-
um var stutt í flissið og glottið og
hláturinn skammt undan.
Eitt af því sem mér þótti mjög
vænt um í háttum Guðna var
þegar að hann sönglaði fallega
einn með sjálfum sér. Það kom
manni fyrir sjónir eins og að
hann væri í sínum hugarheimi
með söng- og ljóðelskri ömmu
sinni upp í Kjós. Minningin um
fallega Guðna sönglandi og hans
hlýju snertingu mun ég varð-
veita alla tíð.
Sólrún Jóhannesdóttir.
Látinn er í hárri elli Guðni
Guðnason lögfræðingur, síðasti
alvöru-kommúnistinn á Íslandi.
Guðni lifði í góðu samræmi við
lífsskoðun sína, gerði litlar kröf-
ur til lífsgæða, þurfti lítið, gaf
ríkulega, eignaðist ekkert.
Guðni var góður námsmaður
en efnalítill og kostaði sína skóla-
göngu sjálfur með verkamanna-
vinnu, m.a. við höfnina í Reykja-
vík og las gjarnan utanskóla.
Hann lauk stúdentsprófi frá MR
1937 og hóf síðan nám í lögfræði
við Háskóla Íslands, sem hann
lauk í janúar 1942.
Þegar ég kynntist Guðna var
hann ríflega hálf-áttræður. Við
hittumst alloft enda bjó hann þá
lengstum í skjóli dóttur minnar
Sigríðar Elfu. Áttum við gjarnan
langar samræður um pólitísk
átök fyrri áratuga, um heims-
málin og böl hins alþjóðlega kap-
ítalisma. Guðni var skarpgreind-
ur, vel lesinn og fróður,
minnugur, rökfastur og óhvikull
í pólitískri afstöðu sinni. Hann
var lengi virkur í stéttabarátt-
unni í Reykjavík og hafði skýra
sýn í þeim efnum. Aldrei lét
hann sig vanta þegar mikið lá við
og hann mun líklega hafa tekið
þátt í fleiri 1. maí-göngum í
Reykjavík en nokkur annar, frá
þeirri fyrstu á fjórða áratugnum
til hinnar síðustu á liðnu ári.
Með Guðna Guðnasyni er
genginn heilsteyptur og hógvær
hugsjónamaður, baráttumaður í
þágu alþýðu, alþjóðasinni með
skarpa heimssýn og einstakt
ljúfmenni. Kynnin af fágætum
öðlingsmanni voru lærdómsrík
og dýrmæt.
Sigurður Hjartarson og
Jóna Kristín Sigurðardóttir.
Minningabrot.
Guðni var sambýlismaður
Guðrúnar langömmu minnar, en
hún lést áður en ég kom til sög-
unnar og því fékk ég því miður
ekki að kynnast henni. Ég er
hins vegar ótrúlega lánsöm að
hafa haft Guðna í mínu lífi. Guðni
var ekki skyldur mér blóðbönd-
um en alla tíð leit ég á hann sem
afa. Þegar ég var fjögurra mán-
aða gömul fluttum við, ég og for-
eldrar mínir, á miðhæðina á Ás-
vallagötu 16. Guðni bjó í
kjallaraíbúðinni og á efstu hæð-
inni bjó frændfólk okkar. Árin á
Ásvallagötu voru yndisleg. Ég,
Loki bróðir minn og Magnea og
Ólafía frænkur okkar af efstu
hæðinni eyddum oft heilu dög-
unum niðri hjá Guðna. Þar klifr-
uðum við upp á allt og útum allt,
á meðan sat Guðni hinn rólegasti
og hló. Við Magnea tókum okkur
stundum til og földum hlutina
hans Guðna og létum hann svo
leita. Guðni var þá áttræður og
lögblindur. Hann kippti sér þó
ekkert upp við þetta því þegar
við vorum glöð var Guðni glaður.
Þegar ég var fjögurra ára flutt-
um við fjölskyldan til Englands.
Þrátt fyrir blindu Guðna skrifaði
hann okkur löng, skemmtileg
bréf. Þessi dásamlegu bréf á ég
enn, og mun geyma um aldur og
ævi. Þegar við fluttum heim,
fluttum við á Kárastíg og Guðni
kom að sjálfsögðu með og bjó í
kjallaraíbúðinni. Stöku sinnum
þegar mamma og pabbi fóru út á
kvöldin, kom Guðni upp og pass-
aði okkur systkinin. Ég átti oft
erfitt með að sofna sem barn og
þótti vont að vera ein. Svefnher-
bergin voru öll á efri hæð húss-
ins en stigarnir voru ekki greið-
færir. Tröppurnar voru brattar
og gangurinn þröngur. Guðni, þá
84 ára staulaðist í hvert sinn upp
á eftir mér og þar sat hann á
hörðum kolli þar til ég sofnaði.
Nú, 14 árum síðar sé ég mikið
eftir því að hafa látið Guðna hafa
svona mikið fyrir mér en er á
sama tíma alveg óendanlega
þakklát fyrir góðmennsku hans.
Eftir nokkur ár á Kárastíg flutt-
um við á Grettisgötuna. Eins og
áður kom Guðni með, enda löngu
orðinn einn af fjölskyldunni.
Þegar ég var komin í mennta-
skóla átti ég að skrifa ritgerð um
námsár eldri borgara. Ég hugs-
aði að sjálfsögðu til Guðna og fór
heim og ræddi við hann. Guðni
var minnugasti maður sem ég
hef kynnst. Þennan dag rakti
hann alla ævi sína, allt frá fæð-
ingu. Hann mundi hin minnstu
smáatriði og mér þótti dásam-
legt að hlusta á hann. Fyrir rit-
gerðina fékk ég hæstu einkunn.
Ég sagði Guðna fréttirnar og
þakkaði fyrir alla aðstoðina.
Guðni var glaður og þakkaði mér
fyrir að hafa skrifað brot af ævi-
sögu sinni og vildi borga mér
fyrir, ég afþakkaði, enda var það
mitt að þakka. Guðni var góður
maður sem hugsaði alltaf vel um
fólkið í kringum sig. Hann var
afar vel gefinn maður sem þótti
gaman að fræða aðra og segja
sögur. Ég verð einnig að taka
það fram hversu fagur maður
Guðni var. Hann var smágerður,
með mikið, fallegt, snjóhvítt hár.
Guðni elskaði lífið og naut þess,
því var alltaf bjart yfir honum.
Þrátt fyrir mikinn aldursmun
get ég með stolti sagt að Guðni
hafi verið einn af mínum bestu
vinum. Ég mun sakna Guðna
sárt en ég hugsa til hans með
bros á vör.
Gunnlöð Jóna Rúnarsdóttir.
Guðni Guðnason
✝
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
STEFÁN HALLGRÍMSSON
rafeindavirki,
Kringlumýri 2,
Akureyri,
lést á heimili sínu þriðjudaginn 21. janúar.
Útförin verður auglýst síðar.
Guðmundur Stefánsson, Sunna Jaroensuk,
Guðrún Hörn Stefánsdóttir, Sverrir Þór Kristjánsson,
Tómas Bergmann, Halla Pálsdóttir,
Hallgrímur Stefánsson.
✝
Okkar ástkæra móðir, tengdamóðir, amma
og langamma,
MARGRÉT SIGURBJÖRG
SIGURGEIRSDÓTTIR,
Kirkjuvegi 23,
Selfossi,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands
þriðjudaginn 21. janúar.
Jarðsett verður í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Halldór Grétarsson, Halldóra Heiðarsdóttir,
Fanney Grétarsdóttir, Nengah Daníel Darna,
Kolbrún Berglind Grétarsdóttir, Ágúst Valgarð Ólafsson,
Björn Eðvarð Grétarsson, Ni Nyoman Wija Ariyani,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskulegur eiginmaður, faðir, tengdafaðir, afi
og langafi,
ANTON BALDVIN FINNSSON
skipasmíðameistari,
Ránargötu 25,
Akureyri,
lést á dvalarheimilinu Hlíð, Akureyri,
miðvikudaginn 22. janúar.
Steinunn Ragnheiður Árnadóttir,
Jóhanna Maríanna Antonsdóttir,
Ingibjörg Antonsdóttir, Þórarinn Arinbjarnarson,
Ragnheiður Antonsdóttir,
Árni Freyr Antonsson, Dóra Margrét Ólafsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskulegur eiginmaður minn,
JÓHANN KRÖYER
verkfræðingur,
Miðleiti 8,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju
mánudaginn 27. janúar kl. 13.00.
Þeir sem vilja minnast Jóhanns eru beðnir að
láta Krabbameinsfélag Íslands njóta þess.
Arnbjörg Jóhannsdóttir.