Morgunblaðið - 24.01.2014, Blaðsíða 34
34 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. JANÚAR 2014
Ljósmyndarinn Bragi Þór Jósefsson fagnar 53 ára afmæli sínuí dag. Hann á ekki von á því að halda sérstaklega upp á dag-inn en hyggst þó fá sér kaffi með nánustu fjölskyldu eftir að
vinnudegi lýkur. Bragi hefur starfað við ljósmyndun í 25 ár og hefur
að mestu myndað fyrir tímarit Birtings og áður Fróða. Njóta má
ljósmynda Braga á vefsíðunni bragi.is. „Ég fékk ljósmyndadellu á
menntaskólaárunum og hef ekki losnað við hana síðan,“ segir Bragi
sem hefur nóg fyrir stafni í hinum ýmsu verkefnum. Meðal annars
myndar hann erlend brúðhjón sem koma til landsins í þeim tilgangi
að gifta sig. „Margar af mínum bestu myndum hafa verið í slæmu
veðri,“ segir Bragi sem lærði ljósmyndun í Rochester Institude of
Technology í New York-ríki.
Bragi er Reykvíkingur að upplagi en býr nú í Kópavogi. Í æsku
dvaldi hann gjarnan í sveit í Dölunum. Hann er kvæntur Regínu
Berndsen. Börn þeirra eru: stjúpdóttir Braga, Vigdís Björk Zegatta,
sem er 27 ára, Elísabet Ósk sem er 16 ára og Ingvi Freyr sem er 13
ára. Helstu áhugamál Braga eru listir og nefnir hann tónlist sér-
staklega. „Ætli ég kallist ekki rokkari,“ segir Bragi sem er aðdá-
andi Led Zeppelin, Nick Cave, U2 og Radiohead svo einhverjar
hljómsveitir séu nefndar. Bragi segir að hann sé nú ekki mikið fyrir
að halda upp á afmæli og kveðst una sér betur í afmælum annarra
en síns eigin. vidar@mbl.is
Bragi Þór Jósefsson er 53 ára í dag
53 ára Ljósmyndarinn Bragi Þór Jósefsson er 53 ára gamall í dag.
Hann hyggst fá sér kaffi með nánustu fjölskyldumeðlimum í kvöld.
Góðar myndir í
slæmum veðrum
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Reykjavík Jón Sverrir fæddist 7. maí
kl. 16.55. Hann vó 3.418 g og var 49
cm langur. Foreldrar hans eru Þórdís
Anna Aradóttir og Ísleifur Unnar
Jónsson.
Nýir borgarar
Reykjavík Eyrún Sif fæddist 1. apríl
kl. 20.29. Hún vó 2.860 g og var 49
cm löng. Foreldrar hennar eru Krist-
rún Jenný Alfonsdóttir og Sverrir Már
Sverrisson.
I
nger Anna fæddist í Reykja-
vík 24.1. 1964 og ólst þar
upp. Hún gekk í Laugarnes-
og Laugalækjarskóla og
lauk stúdentsprófum frá
Verzlunarskóla Íslands 1983.
Inger las sálfræði við HÍ 1991-94,
en: „Ég er einn þeirra fjölmörgu Ís-
lendinga sem er „eiginlega búinn
með allt nema ritgerðina“.“
Inger sótti um starf sem dag-
skrárgerðarmaður á Rás 2, skömmu
eftir að rásin hafði verið stofnuð og
vann þar við dagskrárgerð 1984-87.
Hún var síðan útvarpsmaður á
Stjörnunni 1987-89, á Aðalstöðinni
1989-93 og vann einnig í afleysingum
á Bylgjunni. Þá var hún blaðamaður
við Morgunblaðið um árabil frá 1985,
fyrst í sumarafleysingum en vann
síðan við ýmis sérblöð blaðsins.
Árið 2000 stofnuðu Inger og vin-
kona hennar, Margrét Blöndal, hug-
Inger Anna Aikman hugmyndasmiður – 50 ára
Rás 2 1984 Frá vinstri: Ragnheiður Davíðsdóttir, Jónatan Garðarsson, Inger, Ásgeir Tómasson, Jón Axel Ólafsson,
Jón Ólafsson, Leópold Sveinsson, Þorgeir Ástvaldsson, Páll Þorsteinsson, Valdís Gunnarsdóttir og Júlíus Einarsson.
Full skúffa verðmæta
og kistill með bréfum
Brúðkaup Inger og Andri Þór, ásamt Þórdísi Þuríði og Kristínu Andreu.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
Handverksbakarí
fyrir sælkera
LLSBAKARÍ
Daglega er bakað bakkelsi
sem fá bragðlaukana til að
kætast.
Hjá okkur er hægt að fá þetta
gamla og góða og einnig
eitthvað nýtt og spennandi.
Háholti 13-15 Mosfellsbæ | Háaleitisbraut 58-60 Reykjavík
s. 566 6145 | mosfellsbakari.is
MOSFE