Hafnarfjörður - Garðabær - 14.10.2011, Blaðsíða 6
14. OKTÓBER 20116
Hann var sífellt á ferðinni, eins og þeytispjald milli staða. Áberandi í pólitísku
starfi. Á kafi í félagsmálum og þær
eru óteljandi nefndirnar og ráðin
sem hann hefur setið í. Og starfævin
snerist um heil-brigðismál.
Við erum að tala um Svein
Guðbjartsson, Svenna heilbrigða,
eins hann er oft kallaður.
Hann var framkvæmdastjóri
heil-brigðiseftirlitsins, fram-
kvæmdastjóri Heilsugæslu
Hafnarfjarðar og forstjóri Sólvangs
í 24 ár.
Hvar er hann nú?
„Ja nú er ég hættur að vinna og
sinni listinni sem ég hef allt tíð haft
dálæti á“ segir Sveinn í samtali við
HAFNARFJÖRÐ. „Ég hef alla tíð
haft gríðarmikinn áhuga á allri kúnst
og nú er ég í hópi sem er að fást við
að skera út allskyns listmuni“ segir
Sveinn.
Það fer ekki milli mála að listin
á hug hans allan. Heimili hans og
eiginkonu, Svanhildar Ingvarsdóttur,
ber þess skýr merki. „Mér leiðist
aldrei þó það sé farið að róast mikið
í kringum mig eftir að ég hætti að
vinna“ segir Sveinn.
Hann er 73 ára, fæddur 28.
janúar 1938. Hann byrjaði í
heilbrigðisgeiranum 1969 og starfaði
á þeim vattvangi til 2005, eða í
þrjátíu og sex ár.
Afskrifaður 2005
„Ég var afskrifaður 2005“ segir hann
kíminn „ég var víst kominn á aldur
og þá fékk ég meiri tíma til að sinna
hugðarefnum mínum“ segir Sveinn.
„Annars eru heilbrigðismál flókin og
ekki laust við að maður þurfi að vera
létt geggjaður til að sinna því starfi“
Þegar ég tók við öldrunarheimilinu
Sólvangi, þá hélt húsið vart vatni
né vindum. Þá voru hurðaropin svo
þröng að það var ekki nokkur leið
að koma sjúkrarúmum í gegnum
þau. Engin var setustofan þar
sem fólk gat sest niður og spjallað
saman eða horft saman á sjónvarp“
segir Sveinn og bætir við: „Það
þurfti því að bretta upp ermar og
gera húsið þannig úr garði að það
hentaði starfseminni. Þetta var mikil
vinna og rask og álag fyrir þá sem
voru í húsinu. Húsið var klætt að
utan, hurðarop söguð og stækkuð,
setustofur útbúnar og margt fleira“
sagði Sveinn.
Engir vaskar
„Sjáðu til, það voru ekki einu sinni
sinni vaskar á herbergjunum á
efstu hæð hússins. Hjúkrunarfólk
og vistmenn þurftu að fara langar
leiðir til að sækja vatn. Það var
því forgangsmál að lagfæra allar
lagnir, vatn, hita og skolplangir.
Þær voru meira eða minna ónýtar“.
segir Sveinn. Hann nefnir einnig
að þegar hann kom að Sólvangi
voru hjúkrunartæki af skornum
skammti. Þannig lét hann kaupa
lyftu, til að létta hjúkrunarfólki
störf sín við að baða þá sem þurftu
aðstoð við það. Þá lét hann kaupa
ný rúm sem hentuðu betur, bæði
fyrir þá sem þar dvöldu og sem léttu
hjúkrunarfólkinu alla aðhlynningu.
„Þannig að þú sérð að okkur hefur
miðað áfram“ segir Sveinn.
Forréttindi að vinna á
Sólvangi
„Það voru forréttindi að vinna á
Sólvangi. Ég hafði það fyrir sið að
setjast niður og spjalla við fólkið sem
þarna dvaldi og fróðleikurinn sem
maður fékk um sögu fyrri tíma var
gríðarmikill. Þá var ég einstaklega
heppinn með starfsfólk, en hjá mér
unnu um 170-180 konur og við
karlarnir vorum aðeins 8-9. Ég átti
ávallt mjög gott samstarf við alla
ekki síst Sigþrúði Ingimundardóttur
hjúkrunarforstjóra og Braga heitinn
Guðmundsson yfirlækni. Allt
öðlingsfólk.
Óttast ekki að verða
gamall
Aðspurður um, í ljósi þekkingar
sinnar á aðstæðum eldri borgara á
öldrunarheimilum, hvort hann óttist
að verða gamall segir Sveinn síður
en svo.
„Öldrunarheimilin eru ólík.
Þegar ég byrjaði á Sólvangi voru 106
vistmenn og sumstaðar fjórir saman
í herbergi. Við lifðum á daggjöldum
en í minni tíð náði ég að fækka
vistmönnum niður undir 80 og
fjölga stofum þar sem aðeins tveir
eða þrír dvöldu saman í. Í dag eru
um 60 vistmenn á Sólvangi“ segir
Sveinn.
„Aðalatriðið hjá fólki er að
undirbúa sig undir það að verða
gamalt. Það verður að hafa eitthvað
fyrir stafni þegar það hættir á
vinnumarkaðnum“ en er góð heilsa
forsenda góðrar elli“. Sveinn hefur
átt við krankleika að stríða síðustu
ár en getur engu að síður vel sinnt
listsköpuninni. „Ég hef fengið
hjartaáfall oftar en einu sinni og
oftar en tvisvar og reyni eftir megni
að fara vel með mig. Þá er ég mikill
gæfumaður í einkalífinu, hef verið
giftur Svanhildi Ingvarsdottur í
53 ár, þannig að ég get ekki verið
annað en sáttur við Guð og menn“
segir Sveinn að lokum í samtali við
HAFNARFJÖRÐ.ÚTFARARSTOFA
HAFNARFJARÐAR
Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur
Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar
Sverrir Einarsson
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is
Vaktsími: 565 5892 & 896 8242
Allan sólarhringinn
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
Íslenskar og vistvænar
líkkistur
Jón G. Bjarnason
Hermann Jónasson
Kristín Ingólfsdóttir
Það sem hafa ber í huga
varðandi andlát og útför
Áratuga reynsla
hvar eru þau nú?
sólvangur var varla Fokheldur
þegar ég tók við sem Forstjóri
– Sveinn Guðbjartsson fyrrum forstjóri Sólvangs
Hjónin Svanhildur Ingvarsdóttir
og Sveinn Guðbjartsson á góðri
stundu.
Sveinn er hér með útskorna pípu sem hann skar út sjálfur. Í skápnum eru fjölmargir listmunir eftir Svein og fleri.
VERÐLISTINN* 10-11 Bónus Fjarðarkaup Krónan Samkaup
MS léttmjólk 1L kr. 169 106 108 106 113
Frosinn kjúklingur kr/kg** Ekki til 759 785 698 698
Diet Coke 2L kr. 399 271 279 272 338
*Ekki er tekið tillit til mögulegra mismunandi gæða Lægsta verðið
**Ódýrasti fáanlegi kjúklingurinn Hæsta verðið
verðlistinn haFnarFirði
– verð á milli verslana á fyrirfram völdum vörum
Í VERÐLISTANUM verða af handahófi valdar vörur og þær bornar saman með tilliti til lægsta og hæsta verðs, en
ógjörningur getur verið í sumum tilvikum að taka tillit til gæða sbr. frosnu kjúklinganna í þessari könnun. Ekki verður
bara skoðaður matur. Könnunin fór fram mánudaginn 10. október.