Hafnarfjörður - Garðabær - 14.10.2011, Side 10
14. OKTÓBER 201110
Fullt nafn og starf: Þórhallur
Heimis son, sóknarprestur í Hafnar-
fjarðarkirkju.
Fæðingardagur og ár: 30. 07.61.
Fæðingarstaður: Reykjavík.
Hvar ólstu upp: Fyrstu fjögur árin
í Reykjavík, 2 ár á Seyðisfirði, 5 ár
eftir það í Danmörku og síðan til
tvítugs í Skálholti í Biskupstungum
og á Þingvöllum.
Maki: Ingileif Malmberg, sjúkrahús-
prestur.
Börn: Dóra Erla (24) Rakel (20) Hlín
(18) Heimir (5).
Foreldrar: Heimir Steinsson sóknar-
prestur, Dóra Erla Þórhallsdóttir
móttökuritari hjá Ríkisútvarpinu.
Afhverju prestur? Þetta starf er
einfaldlega mitt líf og yndi. Ég
hef alltaf haft mikla ánægju af því
að vinna með fólki, fagið sjálft
er spennandi og fjölbreytilegt og
kirkjan hluti af lífi mínu frá því er
ég man eftir mér. Ég hef oft reynt
að vinna við annað en aldrei verið
ánægður nema sem prestur.
Er hægt að vera trúlaus en starfa
sem prestur? Nei.
Var Jesú eingetinn? Þessi spurning
kallar á smá skýringu. Orðið „ein-
getinn“ er í raun og veru hvergi
til í gríska Nýja Testamentinu,
en það var upphaflega skrifað
á grísku. Hugtakið „eingetinn“
var notað í gömlum íslenskum
Biblíu þýðingum til að þýða gríska
orðið „monogenes“. Rétt þýðing
á „monogenes“ er aftur á móti
„Einkasonur“ eða „Hinn eini sonur“.
Þannig að spurningin ætti að vera :
„Var Jesús einkasonur eða hinn eini
sonur Guðs“? Við þeirri spurningu
myndi ég svara : Já. Sem aftur kallar
á nánari skýringu á því hvað það
merkir að Jesús sé hinn einstaki, eini
sonur Guðs. En það er einmitt það
sem er svo gaman við guðfræðina.
Hvaða eiginleika þarf góður
prestur að hafa? Hann þarf að vera
þolinmóður, góður hlustandi, þag-
mælskur, umhyggjusamur um hag
náungans, fordómalaus og auð-
mjúk ur. Svo þarf hann á trú, von
og kærleika að halda. Trú – til að
eiga styrk á erfiðum stundum bæði
fyrir sig og þá sem hann þarf að
að stoða. Von – til að gefast ekki upp
í baráttunni og til að geta leitt aðra
til vonar. Kærleika – sem auðvitað
skiptir mestu máli í öllu hans fari því
án kærleika getur hann ekkert.
Hefur þú þessa eiginleika? Nú þurfa
aðrir að dæma.
Áætlaðu hversu stórt hlutfall af
starfi þínu er sálgæsla og viðtöl:
Ég myndi skjóta á 75%
Er kirkjan of þunglamaleg og íhald
söm stofnun? Já, því miður er hún
það á margan hátt, eins og stórt
flutn ingaskip sem erfitt er að snúa
við. En þá á ég við kirkjuna sem
stofnun en ekki söfnuðina sjálfa sem
margir eru framsæknir, frjálslyndir
og skapandi.
Hvað þýðir að Guð sé almáttugur?
Það þýðir að þó oft sé útlitið svart
og óréttlætið og myrkrið virðist
valdamikið í heiminum, þá getum
við verið vongóð og bjartsýn og
staðföst, því Guð mun að lokum
leiða allt til góðs samkvæmt sínum
góða vilja. Meira að segja dauðinn
er valdalaus gangvart honum, sem
gefur okkur eilíft líf.
Hver er þinn helsti kostur? Ég held
að það sé þolinmæði og lang lundar-
geð – og ég er ekki alveg laus við
húmor.
En galli? Ég hef enga þolinmæði
gagn vart óréttlæti og fólki sem lítur
niður á aðra – og það getur stundum
komið mér í klípu.
Hvað gerir þú þegar þú vilt vera
rómantískur við konuna þína? Þá
býð ég henni óvænt út í hádeginu
þegar hún býst alls ekki við slíku.
Áttu þér sérstök áhugamál utan
við kirkjustörfin og hver þá helst?
Ég stunda langhlaup með konunni
minni. Við hlupum t.d. hálft mara-
þon í sumar á Reykja víkur mara-
þoninu og erum að hlaupa um 40
km á viku núna. Ég les líka mikið.
Svo dunda ég mér við rit störf, er
einmitt að gefa út bók eftir áramót
um kristna trú eins og ég sé hana.
Og svo er skáldsaga á teikni borð inu
sem vonandi kemur út jólin 2012.
Hún heitir „Hvelfing sáttmála arkar-
innar“. Síðast en ekki síst er fjöl-
skyld an mitt stóra áhugamál, að elda
góðan mat með ástvinum mínum og
njóta þess að vera til.
Hvað gerir þú þegar þú er argur eða
ekki í góðu skapi? Fer út að hlaupa
eða ganga með hundinn minn. Úti-
vist er besta leiðin til að koma sér í
gott skap.
Hvenær/hvernig líður þér best?
Þegar ég er einn með konunni minni
í fríi í Biskupstungunum.
Þú hefur verið með mjög vinsæl
hjónanámskeið. Hvernig er best að
viðhalda hamingjunni í hjóna
bandinu? Með því að halda áfram
að vera kærustupar alla tíð. Allt
of mörg pör gleyma því í annríki
daganna. Það þarf að rækta ástina
og setja sambandið í forgang í
lífinu. Og muna svo eftir að sýna
hvort öðru virðingu. Þá dýpkar
ástin með árunum og stenst allar
ágjafir lífsins.
Ætti að taka upp skriftir og skrifta
stóla í lútersku trúnni og veita
form lega syndaaflausn? Fólk kemur
til mín alla daga til að skrifta, eða til
að létta af sér því sem hvílir á sálinni.
Við prestar fáum að heyra það
sem engir aðrir fá að heyra. Sófinn
á skrifstofunni minni er þannig
ágætis skriftarstóll. Svo reyni ég
að leiðbeina fólki með framhaldið,
biðja fyrir því og með því. Ég trúi
ekki á formlega syndaaflausn presta.
Guð fyrirgefur þeim sem iðrast í
raun og sýnir það í bæn og í verki
með því að bæta fyrir brot sín.
Hvert er viðhorf þitt til hjónavígslu
samkynhneigðara í vígðum Guðs
húsum? Ég er einn af þeim sem
barðist innan kirkjunn ar allt frá árinu
1996 fyrir einum hjúskapar lög um og
rétti samkyn hneigðra til kirkjulegrar
hjónavígslu. Ég hef vígt fjölmörg
samkynhneigð pör í gegn um árin í
þeim kirkjum sem ég hef starfað við.
Sú afstaða mín hefur ekki breyst.
Finnur þú fyrir Guðhræðslu hjá
fólki? Já, trúin á mjög sterk ítök í
Íslendingum. Það kemur sér stak-
lega í ljós á stórum stundum lífsins,
þegar barn fæðist, þegar ung menni
fermast, þegar pör ganga í hjóna -
band eða þegar við kveðjum látna
ástvini og fylgjum þeim til grafar.
Foreldrar biðja morgun- og kvöld-
bænir með börnunum sínum.
Íslending ar leita í bænina í gleði
og sorg og biðja fyrir sjúkum og
deyjandi. Fjölmargir sækja auk þess
kirkju og taka þátt í safnaðarstarfi
árið um kring sér til uppbyggingar.
Við skulum ekki trúa þeim sem segja
að kirkjurnar standi tómar. Það segir
fólk sem aldrei kemur í kirkju.
Ef þú yrðir kjörinn forsætis ráð
herra. Hver yrðu þín fyrstu verk?
Fyrsta daginn myndi ég gefa þing-
mönnum frí frá störfum fram að
hádegi og bjóða þeim á námskeið
sem ég hef verið með fyrir fyrirtæki
og stofnanir, námskeið sem ég kalla
AÐ NÁ ÁRANGRI – MEÐ JÁ-
KVÆÐNI. Forsetanum yrði boðið
að taka þátt að sjálfsögðu. Eftir
hádegi myndi ég kalla saman for-
menn allra flokka og mynda með
þeim Þjóðstjórn til tveggja mánaða,
sem hefði þau tvö einföldu mark-
mið að finna raunverulegar og
róttækar lausnir á skuldavanda
heimil anna og atvinnuleysinu,
lausnir sem allir flokkar stæðu að
og bæru samábyrgð á. Þannig gæti
engin skýlt sér á bak við málþóf og
inni haldslaust flokkakarp. Til að ná
þessum markmiðum yrði beitt öllum
úrræðum sem Alþingi hefur af fullri
einurð. Að tveimur mánuðum liðn-
um yrði svo boðað til kosninga þar
sem þjóðin fengi tækifæri til að kjósa
nýtt þing.
____________
HAFNARFJÖRÐUR bað Sr. Þórhall
að gefa okkur uppskrift af mat sem
fjöskyldan er hrifnir af. Hann ákvað
að gefa okkur upp afar vinsæla
Föstudagspitsu. Um hana segir hann:
„Við hjónin höfum verið gift í
bráðum 26 ár og lengstan þann tíma
hefur þessi pizza verið á borðum hjá
okkur á föstudögum, með ólíkum
áherslum auðvitað. Pizzuna baka
ég, og svo safnast öll fjölskyldan
saman, hámar í sig pizzu og hefur
það gott. Afi og amma mæta líka –
og stundum fleiri“ segir Þórhallur.
HAFNARFJÖRÐUR þakkar Þórhalli
fyrir greinargóð svör og uppskriftina
af þessari ljúffengu pizzu.
Uppskriftin er fyrir tvær ofnplötur.
Deig:
›› 500 g hveiti + 100 g hveiti til að
hnoða
›› 500 dl vatn
›› 50 g pressuger
›› 1 msk sykur
›› 1 tsk salt
Vatnið hitað að líkamshita. Þurrefn-
um blandað saman, vatni hellt út í
og hnoðað. Hveiti bætt við varlega
ca 100 gr í senn þangað til deigið
sleppir skálinni. Rakt viskustykki
sett yfir skálina og deigið látið hefast
í ca 1/2 tíma.
Sósa:
›› 2 tómatar
›› 1 dós tómatar
›› 1 lítil dós tómatpasta
›› 2 msk ólífuolía
›› 1 tsk sjávarsalt
›› Pipar eftir smekk
›› 1 dl basilika
Öllu hrært vel saman í blandara.
Deigið hnoðað á ný og skipt í
tvo jafna hluta. Tvær ofnskúffur
smurðar og deigið flatt út. Sósu skipt
jafnt á deigið.
Álegg:
›› Rifinn ostur – ca 500 g
›› Mosarellaostur – ein kúla
›› Skinka – eitt bréf
›› Sveppir – 1/2 box
›› Hráskinka – eitt bréf
›› Gráðostur
›› Rúkólasalat.
Magn fer auðvitað eftir smekk.
bÆjarbúinn – yFirheyrsla: sr. þórhallur heimisson sóknarprestur er bÆjarbúinn að þessu sinni
„orðið eingetinn er í raun og veru
hvergi til í gríska nýja testamentinu“
Þórhallur Heimis son býr rétt við vinnustaðinn.