Morgunblaðið - 07.02.2014, Qupperneq 3
Stefánsson fékk þungt högg á höfuðið.
Starfsmenn beggja liða hlúðu að hon-
um í langan tíma á vellinum áður en
hann var borinn alblóðugur til bakher-
bergja. Í samtali við Morgunblaðið
sagði Gunnar Magnússon, þjálfari
ÍBV, að svo virtist sem hann hefði van-
kast illa og gat staðfest það að Magn-
úsar nyti ekki við í næstu leikjum.
„Blóðið spýttist alveg úr hausnum á
honum og hann titraði allur, það var
svakalegt að sjá þetta. Það liggur við
að hann hafi farið að muldra eitthvað á
spænsku, ég vissi ekkert hvað var í
gangi,“ sagði Róbert Aron Hostert um
meiðsli liðsfélaga síns, en Róbert sneri
aftur á sinn gamla heimavöll og virtist
líka vel, en hann skoraði fimm mörk.
Morgunblaðið/Ómar
ærkvöld. Hann var borinn af velli og útlit er fyrir að hann verði frá keppni um sinn.
neinir risar á hæð í handboltanum
en virka hávaxnir við hlið margra
leikmanna sinna. Báðir voru þeir
ógnandi í gær og Kristján Orri Jó-
hannsson vakti athygli mína í sókn-
inni. Þar virðist vera efni í góðan
hægri hornamann á ferðinni en
hann nýtti færin sín mjög vel á
heildina litið.
Árni efni í atvinnumann
Lið Hauka náði að sýna styrk
sinn eftir fremur erfiða byrjun. Þar
var markvarslan mjög fín rétt eins
og hjá Akureyringum en Giedrius
Morkunas varði 19 skot, þar af eitt
víti. Kukobat varði 18 í marki Ak-
ureyrar. Stórskyttan Sigurbergur
Sveinsson lét til sín taka og var
markahæstur en á hægri vængnum
var Árni Steinn Steinþórsson einnig
drjúgur. Hann hefur vaxið sem leik-
maður síðasta árið og fer vænt-
anlega að verða efni í atvinnumann
áður en langt um líður en þá líklega
sem hornamaður.
Morgunblaðið/Ómar
st í gegnum vörn Akureyrar.
ÍÞRÓTTIR 3
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2014
Stjórn Frjáls-íþrótta-
sambands Íslands
hefur ákveðið að
senda sjö kepp-
endur á heims-
meistaramótið í
hálfmaraþon-
hlaupi sem fram
fer í Kaupmanna-
höfn þann 29. mars. Þau sem keppa
fyrir Íslands hönd eru: Kári Steinn
Karlsson, Þorbergur Ingi Jónsson,
Ármann Eydal Albertsson, Arnar
Pétursson, Arndís Ýr Hafþórsdóttir,
Helen Ólafsdóttir og Martha Ernsts-
dóttir.
Adam Johnson úr Sunderland, Ya-ya Toure, Manchester City,
Arsenal-maðurinn Santi Cazorla og
Luis Suárez úr Liverpool koma til
greina sem leikmaður janúnarmán-
aðar og þeir Gus Poyet, stjóri Sun-
derland, Manuel Pellgrini, stjóri
Manchester City, Tony Pulis, stjóri
Crystal Palace, og José Mourinho,
stjóri Chelsea, koma til greina sem
knattspyrnustjóri mánaðarins.
Michael Laud-rup sem
rekinn var frá
störfum sem
knattspyrnustjóri
Swansea í vikunni
íhugar að fara í
mál við velska fé-
lagið vegna brott-
vísunarinnar.
Hann segist enn ekki hafa fengið
neinar útskýringar frá forráðamönn-
um félagsins.
Brasilíski knattspyrnumaðurinnAlexandre Pato hefur ákveðið
að yfirgefa brasilíska liðið Cor-
inthians og ganga í raðir Sao Paulo.
Pato tók þá ákvörðun að fara frá Cor-
inthians í kjölfarið á árás stuðnings-
manna liðsins á leikmenn liðsins en
Pato varð fyrir árásinni ásamst tveim-
ur samherjum sínum á æfingasvæði
félagsins um síðustu helgi. Pato, sem
lék áður með AC Milan, fer til Sao
Paulo að láni en Corinthians mun
greiða hluta af launum leikmannsins.
Brendan Rod-gers knatt-
spyrnustjóri
Liverpool stað-
festi í gær að
varnarmennirnir
Daniel Agger,
Glen Johnson og
Mamadou
Sakho verða allir
fjarri góðu gamni þegar liðið fær
topplið Arsenal í heimsókn í hádeginu
á morgun. Það eru einnig meiðsli í
herbúðum Arsenal en ljóst er að Aar-
on Ramsey og Theo Walcott verða
ekki með en þeir Mikel Arteta og
Jack Wilshere eru í kapphlaupi við
klukkuna að verða leikfærir.
Fólk sport@mbl.is
Framhúsið, Olís-deild karla, fimmtu-
dag 6. febrúar 2014.
Gangur leiksins: 0:1, 2:2, 2:5, 5:7,
7:8, 8:10, 11:13, 13:16, 14:19, 16:21,
18:22.
Mörk Fram: Garðar Benedikt Sig-
urjónsson 7/7, Stefán Darri Þórsson
6, Sigfús Páll Sigfússon 1, Ólafur Jó-
hann Magnússon 1, Sigurður Örn Þor-
steinsson 1, Arnar Freyr Ársælsson 1,
Stefán Baldvin Stefánsson 1.
Varin skot: Svavar Már Ólafsson 12
(þar af eitt til mótherja).
Utan vallar: 8 mínútur.
Mörk ÍBV: Theodór Sigurbjörnsson
5/2, Róbert Aron Hostert 5, Magnús
Stefánsson 3, Agnar Smári Jónsson
3, Dagur Arnarsson 3, Sindri Haralds-
son 2, Guðni Ingvarsson 1.
Varin skot: Kolbeinn A. Ingibjarg-
arson 7/1, Henrik Eidsvaag 4/2 (þar
af eitt til mótherja).
Utan vallar: 10 mínútur.
Dómarar: Bjarni Viggósson og Sig-
urður Þrastarson, mjög slakir.
Áhorfendur: 320.
Fram – ÍBV 18:22
Kaplakriki, Olís-deild karla, fimmtu-
dag 6. febrúar 2014.
Gangur leiksins: 0:1, 2:4, 4:7, 5:10,
8:14, 17:18, 18:20, 22:26, 24:28,
28:28, 29:29, 29:30.
Mörk FH: Ísak Rafnsson 10, Einar
Rafn Eiðsson 6, Ásbjörn Friðriksson,
4 / 1, Benedikt Reynir Kristinsson, 3,
Magnús Óli Magnússon 2 , Halldór
Guðjónsson 2, Ragnar Jóhannsson 1,
Atli Rúnar Steinþórsson 1.
Varin skot: Sigurður Örn Arnarson
10, Ágúst Elí Björgvinsson 3/1.
Utan vallar: 6 mínútur.
Mörk ÍR: Sturla Ásgeirsson
8/5,Guðni Már Kristinsson 5 Arnar
Birkir Hálfdánarson 4, Björgvin
Hólmgeirsson 5, Jón Heiðar Gunn-
arsson 4, Sigurjón F. Björnsson 2,
Davíð Georgsson 2, Máni Gestsson 1.
Varin skot: Arnór Freyr Stefánsson
7, Kristófer Fannar Guðmundsson 4.
Utan vallar: 4 mínútur.
Dómarar: Anton Gylfi Pálsson og
Jónas Elíasson.
Áhorfendur: 499
FH – ÍR 29:30
Í KAPLAKRIKA
Guðmundur Hilmarsson
gummih@mbl.is
Sturla Ásgeirsson var ískaldur á
vítalínunni þegar hann tryggði ÍR-
ingum sigur gegn FH-ingum, 30:29,
í Olís-deildinni í handknattleik í
Kaplakrika í gær. ÍR fékk vítakastið
þegar 15 sekúndur voru eftir og
hornamanninum knáa urðu ekki á
nein mistök af sjö metrunum frekar
en fyrr í leiknum. FH-ingar fengu
síðustu sóknina en hún rann út í
sandinn á klaufalegan hátt og ÍR-
ingar fögnuðu afar mikilvægum
sigri og færðust þar með aðeins nær
liðunum sem eru að berjast um að
fylgja Haukunum í úrslitakeppnina.
ÍR-ingar voru skrefinu á undan
heimamönnum nær allan tímann.
FH-ingar misstu ÍR-inga sex mörk-
um fram úr sér í fyrri hálfleik en
með Ísak Rafnsson í broddi fylk-
ingar tókst þeim að minnka forskot
ÍR niður í eitt mark áður en hálfleik-
urinn var allur. Breiðhyltingar
héldu áfram að hafa frumkvæðið í
seinni hálfleik og þegar um tíu mín-
útur voru eftir virtust þeir ætla að
innbyrða öruggan sigur en þeir voru
þá fjórum mörkum yfir. FH-ingar
voru ekki á sama máli og þeim tókst
að jafna metin og spennan var mikil
á lokamínútunum en ÍR-ingum tókst
að halda haus og ná í stigin tvö.
FH-ingar töpuðu þar með sínum
fjórða leik í röð í deildinni og þeir
þurfa svo sannarlega að hafa sig alla
við eigi þeim að takast að enda
deildarkeppnina meðal fjögurra
efstu. Varnarleikur FH-inga var
ekki góður í gær og leikur liðsins í
sókninni var kaflaskiptur. Ísak dró
vagninn í sókninni og var óstöðvandi
á köflum en ljóst er að FH-ingar
sakna mjög markvarðarins Daníels
Freys Andréssonar sem er á sjúkra-
listanum og þá er hinn stóri og
stæðilegi Sigurður Ágústsson frá
vegna meiðsla.
Fleiri þurfa að spila vel
,,Staða okkar er erfið og það var
ljóst að þetta yrði erfitt hjá okkur
eftir áramótin. Það er margt sem við
höfum þurft að breyta hjá okkur eft-
ir að við misstum Danna og Sigga og
þá er Ragnar nýstiginn upp úr
meiðslum. Ljósu punktarnir eru að
sóknin var ágæt og Ísak var flottur
en við þurfum að fá fleiri leikmenn
til að spila vel,“ sagði Einar Andri
Einarsson við Morgunblaðið.
ÍR-ingar börðust vel fyrir stig-
unum og eins og staða þeirra í deild-
inni er þá urðu þeir hreinlega að
vinna og lífga upp á sálartetrið eftir
frekar slakt gengi í deildinni. Gamli
FH-ingurinn Guðni Már Kristinsson
stýrði sóknarleik Breiðhyltinga af
festu og þeir Sturla Ásgeirsson og
Björgvin Hólmgeirsson voru drjúgir
en sem fyrr í vetur bólaði ekkert á
varnarjaxlinum Ingimundi Ingi-
mundarsyni. Hann sat sem fastast á
bekknum.
Sturla öryggið
uppmálað
Skoraði sigurmark ÍR gegn FH úr víti
Morgunblaðið/Ómar
Ógnar Guðni Már Kristinsson leikstjórnandi ÍR reynir skot í leiknum í
Kaplakrika í gærkvöld en Einar Rafn Eiðsson FH-ingur er til varnar.
KÖRFUKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla, Dominos-deildin:
Vodafonehöllin: Valur – ÍR....................... 18
IG-höllin: Þór Þ. – Keflavík ................. 19.15
Grindavík: Grindavík – Snæfell........... 19.15
DHL-höllin: KR – KFÍ ........................ 19.15
1. deild karla:
Dalhús: Fjölnir – Tindastóll ................ 19.15
Hveragerði: Hamar – Höttur.............. 19.15
Jaðarsbakkar: ÍA – Þór Ak ................. 19.15
Rimaskóli: Vængir Júp. – Augnablik . 20.30
HANDKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla, Olís-deildin:
Vodafonehöllin: Valur – HK ..................... 20
1. deild karla:
Hertzhöllin: Grótta – Selfoss.................... 20
KNATTSPYRNA
Fótbolti.net mót, B-deild, úrslitaleikur:
Kórinn: HK – Selfoss ........................... 18.15
BADMINTON
Reykjavíkurmót fullorðinna, sem er hluti af
Dominos-mótaröð BSÍ, hefst í TBR-húsun-
um kl. 18 í kvöld og stendur til sunnudags.
Í KVÖLD!
inni skárri