Morgunblaðið - 24.02.2014, Page 1
MÁNUDAGUR 24. FEBRÚAR 2014
ÍÞRÓTTIR
Handknattleikur Bikarmeistarar Vals halda spennu í toppbaráttu Olís-deildar kvenna. Valur kom í veg fyrir
að Stjarnan tryggði sér deildarmeistaratitilinn um helgina með sigri í Mýrinni 8
Íþróttir
mbl.is
FÓTBOLTI
Sindri Sverrisson
sindris@mbl.is
Ísland hafði ekki heppnina með sér
þegar dregið var í undanriðla Evr-
ópumóts karla í knattspyrnu í Nice í
gær. „Það byrjaði enginn að fagna,“
eins og Heimir Hallgrímsson lands-
liðsþjálfari orðaði það við mbl.is. Ís-
land fékk Holland úr efsta styrk-
leikaflokki og var sömuleiðis afar
óheppið með lið úr 3. flokki (Tyrk-
landi) og 6. flokki (Kasakstan).
Þá eru einnig í riðlinum Tékkland,
með menn á borð við Petr Cech og
Tomás Rosický í sínum röðum, og
Lettland sem kom úr 4. styrk-
leikaflokki en Lettar hafa einu sinni
komist í lokakeppni EM, árið 2004.
„Við drógumst í einn af erfiðu riðl-
unum,“ sagði Fatih Terim, þjálfari
Tyrkja, og bætti því reyndar við að
andstæðingar sínir byggju allir í
köldu loftslagi. Undir orð hans má
taka og það er alveg ljóst að Ísland
var ekki sú þjóð sem menn óskuðu
sér úr 5. styrkleikaflokknum.
„Holland á heima í hópi bestu liða
Evrópu. Svo erum við með sterka
andstæðinga í Tyrklandi og einnig
Íslandi sem var nærri því að komast
á HM síðast. Ég sá Ísland gera 1:1-
jafntefli við Noreg og fannst liðið
eiga skilið að komast í umspilið. Ís-
lendingar gætu komið á óvart í þess-
um riðli,“ sagði Pavel Vrba, þjálfari
Tékklands, strax eftir dráttinn í
gær.
Til að undirstrika að Íslendingar
hefðu hæglega getað verið heppnari
með riðil er hægt að skoða F-riðil.
Þar hefði Ísland mætt Grikklandi,
Ungverjalandi, Rúmeníu, Finnlandi
og Færeyjum, sem verður að teljast
talsvert viðráðanlegra verkefni en
það sem blasir við nú. Heimir vildi
þó ekki láta neinn bilbug á sér finna:
„Það verður alltaf markmiðið að
komast á EM. Við vissum að það
yrði ekkert auðvelt í þessu og það
verður aldrei auðvelt fyrir Ísland að
komast í lokakeppni stórmóts.“
Tvö efstu lið riðilsins komast í
lokakeppnina í Frakklandi 2016, og
3. sætið dugar til að komast í umspil.
Í einum riðlanna níu mun 3. sætið
reyndar duga til að komast beint í
lokakeppnina. Ísland þarf því vænt-
anlega að slá Tékkum eða Tyrkjum
við til að komast í lokakeppnina en
fyrsti leikurinn í undankeppninni
verður gegn Tyrkjum á Laugardals-
velli í september.
Fljúga 10.400 km
fyrir einn leik
Ekki er nóg með að riðillinn sé
erfiður því honum fylgja einnig löng
ferðalög, m.a. það lengsta sem hugs-
anlegt er í umdæmi Knattspyrnu-
sambands Evrópu; frá Íslandi til Ka-
sakstan. Frá Keflavíkurflugvelli eru
5.200 kílómetrar til Astana, höfuð-
borgar Kasakstan. Heimi varð að
ósk sinni hvað það varðar að leik-
urinn við Kasakstan verður stakur
leikur hjá Íslandi þá vikuna, þ.e.
ekki fylgir annar leikur strax í kjöl-
farið. Hins vegar fer íslenska liðið
4.100 kílómetra til Tyrklands og
spilar þremur dögum eftir heimaleik
við Letta, í lok undankeppninnar.
Komust verðskuldað í umspil
HM og gætu komið á óvart
Leikir Íslands í
undankeppni EM:
2014:
9. sept. Ísland – Tyrkland
10. okt. Lettland – Ísland
13. okt. Ísland – Holland
16. nóv. Tékkland – Ísland
2015:
28. mars Kasakstan – Ísland
12. júní Ísland – Tékkland
3. sept. Holland – Ísland
6. sept. Ísland – Kasakstan
10. okt. Ísland – Lettland
13. okt. Tyrkland – Ísland
Enginn heppni með Íslandi í drætti fyrir undankeppni EM Erfið leið til Frakklands enn torsóttari
24. febrúar 1987
Ísland sigrar heims- og ólympíu-
meistara Júgóslavíu, 24:20, í
vináttulandsleik í
Laugardalshöll-
inni, eftir að hafa
tapað naumlega,
19:20, fyrir sama
liði kvöldið áður.
Annar sigur Ís-
lands á Júgóslavíu
frá upphafi og markahæstir eru
Alfreð Gíslason með 7 mörk og
Páll Ólafsson með 6. Þorgils
Óttar Mathiesen kom næstur
með 5 mörk Guðmundur Þórður
Guðmundsson skoraði 3 mörk.
24. febrúar 1990
Ísland sigrar Holland, 20:18, í
Laugardalshöllinni, í síðasta
undirbúningsleiknum fyrir
heimsmeistaramót karla í
Tékkóslóvakíu. Alfreð Gíslason
skorar 6 mörk, Bjarki Sigurðs-
son og Þorgils Óttar Mathiesen
4 hvor. Jakob Sigurðsson og
Júlíus Jónasson skoruðu 2 mörk
hvor. Flautað er til leiks á
heimsmeistaramótinu fjórum
dögum síðar.
24. febrúar 2012
Svíinn Lars Lag-
erbäck stýrir
karlalandsliði Ís-
lands í knatt-
spyrnu í fyrsta
skipti. Liðið tapar 3:1 fyrir Jap-
an í Osaka en sterka menn vant-
ar í bæði liðin. Arnór Smárason
skorar mark Íslands úr víta-
spyrnu.
Á ÞESSUM DEGI
Einar Daði Lárusson úr ÍR og Hafdís Sigurð-
ardóttir, UFA, urðu í gær Íslandsmeistarar í fjöl-
þraut frjálsíþrótta. Einar Daði vann keppni í sjö-
þraut en Hafdís fór með sigur af hólmi í
fimmtarþraut.
Einar hlaut samtals 5.494 stig. Þetta er næst-
besti árangur Einars Daða í sjöþraut á ferlinum.
Ingi Rúnar Kristinsson, Breiðabliki, varð ann-
ar með 4.995 stig, en það er bæði persónulegt
met hjá honum og 8. besti árangur í sjöþraut frá
upphafi hér á landi. Stefán Þór Jósefsson, UFA,
varð síðan í 3. sæti með 4.249 stig sem er einnig
talsverð framför hjá honum.
Hafdís fékk 3.805 stig í fimmtarþrautinni. Í
öðru sæti var Ásgerður Jana Ágústsdóttir, einn-
ig úr UFA, með 3.512 stig, en hún er aðeins 18
ára gömul.
Hafdís lét ekki þar við sitja heldur bætti einn-
ig þriggja vikna gamalt Íslandsmet sitt í lang-
stökki en langstökk var ein grein fimmtarþraut-
arinnar. Hún stökk 6,45 metra og bætti fyrra
met um fimm sentimetra. Hafdís stökk einnig
6,35 metra og 6,21 metra og er greinilega í frá-
bærri æfingu um þessar mundir.
Þess má til gamans geta að Íslandsmet Hafdís-
ar í langstökki utanhúss frá síðasta sumri er 6,36
metrar. iben@mbl.is
Morgunblaðið/Ómar
Íslandsmeistarar Hafdís Sigurðardóttir, UFA, og Einar Daði Lárusson, úr ÍR, unnu fimmtarþraut og sjöþraut af öruggi á Meistaramótinu í gær.
Fjölþrautarmeistarar og met hjá Hafdísi