Morgunblaðið - 26.03.2014, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. MARS 2014
Nýherji hefur selt starfsemi félag-
anna Applicon A/S og Applicon Sol-
utions A/S í Danmörku. Kaupandinn
er Ciber A/S í Danmörku, sem er
hluti af Ciber Inc., og er samstæða
fyrirtækja á sviði upplýsingatækni.
Söluverð er trúnaðarmál, að því er
segir í tilkynningu frá Nýherja.
Greint var frá því í frétt hér á við-
skiptasíðu Morgunblaðsins fyrr í
þessum mánuði, að Nýherji hefði sett
Applicon í Danmörku í söluferli.
Í tilkynningu kemur fram að salan
muni hafa óveruleg áhrif á niður-
stöðu rekstrarreiknings Nýherja fyr-
ir fyrsta ársfjórðung 2014 en muni
treysta lausafjárstöðu félagsins og
skerpa áherslur í starfsemi þess.
Ciber í Danmörku mun taka yfir
rekstur Applicon frá og með 1. apríl
næstkomandi. Applicon félögin í
Danmörku eru sérhæfð í sölu og ráð-
gjöf sem tengist SAP viðskiptahug-
búnaði og þróun tengdra hugbúnað-
arlausna, en í tilkynningunni segir að
tæplega fjörutíu manns starfi hjá fé-
lögunum.
Finnur Oddsson forstjóri Nýherja,
segir í tilkynningu að salan á Appli-
con félögunum í Danmörku tákni
tímamót fyrir Nýherjasamstæðuna.
„Við höfum nú dregið okkur út úr öll-
um rekstri í Danmörku, en hann hef-
ur ekki gengið sem skyldi síðustu ár.
Ein meginskýringin er sú að lítil sem
engin samlegðaráhrif voru á milli
dönsku félaganna annars vegar og fé-
laga Nýherja á Íslandi og í Svíþjóð
hins vegar,“ er haft eftir Finni í
fréttatilkynningu.
Einbeita sér að rekstri Nýherja
og TM Software
„Við erum afar ánægð með kaup
Ciber á starfsemi Applicon félaganna
og teljum að í þeim felist margþættur
ávinningur. Þjónustu- og lausna-
framboð Applicon fellur vel að starf-
semi Ciber og verður sameinað félag
enn betur í stakk búið til að sinna
þörfum kröfuharðra viðskiptavina.
Við sjáum einnig tækifæri til sam-
starfs milli Ciber og fyrirtækja Ný-
herja þegar fram líða stundir, er jafn-
framt haft eftir honum.
Nú liggi fyrir að fyrirtækið geti
betur einbeitt sér að rekstri Nýherja
og TM Software á Íslandi og árang-
ursríku samstarfi Applicon félaganna
á Íslandi og í Svíþjóð. „Við væntum
þess að það muni efla enn frekar
þjónustu til viðskiptavina okkar og
bæta afkomu samstæðunnar,“ er
jafnframt haft eftir Finni í tilkynn-
ingu.
Nýherji selur Appli-
con í Danmörku
Fyrirtækið dregur sig út úr öllum rekstri í Danmörku
Morgunblaðið/Eggert
Forstjórinn Finnur Oddsson segir að þau hjá Nýherja séu ánægð með kaup
Ciber á starfsemi Applicon og að í þeim felist margþættur ávinningur.
Trönuhrauni 8 | 220 Hafnarfirði | Sími 565 2885 stod@stod.is | www.stod.is | Opið kl. 8 - 17 virka daga
• Ferðasokkarnir frá MEDI eru
eingöngu seldir eftir ökklamáli
EKKI skóstærð
• Ferðasokkarnir frá MEDI
henta vel fólki á ferð
• Verð aðeins 3.980 kr. parið
Ertu á leið í ferðalag?
Ferðasokkarnir frá MEDI gefa réttan þrýsting við
ökkla sem minnkar jafnt og þétt upp að hnjám.
Þannig veita sokkarnir góðan og þægilegan
stuðning, auka blóðflæði og minnka bjúgmyndun.
Á HönnunarMars, fimmtudaginn 27. mars, gefur Íslands-
póstur út fjögur frímerki tileinkuð íslenskum arkitektúr.
Einnig koma út Evrópufrímerkin 2014, en þema þeirra er
hljóðfæri og Norðurlandafrímerki þar semmyndefnið er
siglingar.
Fyrstadagsumslög fást stimpluð á
pósthúsum um land allt. Einnig er hægt
að panta þau hjá Frímerkjasölunni.
Sími: 580 1050. Netfang: stamps@stamps.is
Heimasíða: www.stamps.is
facebook.com/icelandicstamps
Safnaðu litlum listaverkum