Morgunblaðið - 26.03.2014, Side 21
FRÉTTIR 21Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. MARS 2014
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Embættismenn og vísindamenn
Loftslagsnefndar Sameinuðu þjóð-
anna, IPCC, halda nú fund í Japan
þar sem lögð verður síðasta hönd á
orðalag næstu skýrslu um áhrif
hlýnandi loftslags á jörðinni. Breski
prófessorinn Richard Tol, aðalhöf-
undur kafla um efnahagsleg áhrif
hlýnunar, er svo ósáttur við síðustu
drög að skýrslunni að hann hefur
beðið um að nafn sitt verði fjarlægt
úr henni, að sögn BBC.
„Skilaboðin í fyrstu drögunum
voru þau að með aðlögun og skyn-
samlegri þróun væri vel hægt að
bregðast við áhættunni en þá yrðum
við að taka okkur á,“ sagði Tol í sam-
tali við BBC. Nú væri algerlega búið
að fjarlægja þessar niðurstöður úr
drögunum; í þeim væri nú öll áhersl-
an á dómsdagsspár um ægilegar af-
leiðingar hlýnandi loftslags. Tol og
fleiri gagnrýnendur segja að sumt í
skýrslunni beri allt of mikinn keim
af hræðsluáróðri, þeir nefna ummæli
um áhrif á deilur og vopnuð átök.
Tol nefnir sem dæmi að minnt sé á
að fólk á stríðssvæðum sé berskjald-
aðra fyrir loftslagsbreytingum en
annað fólk sem sé vissulega rétt en
sé samt „kjánaleg“ setning. Venju-
legir Sýrlendingar hafi vafalaust
meiri áhyggjur af efnavopnum en
loftslagsbreytingum, segir Tol.
Gagnrýnir hart skýrslu
loftslagsnefndar SÞ
Spá slæmum áhrifum
» Skýrslan á að greina áhrif
hlýrra loftslags á fólk, dýr og
vistkerfi næstu öldina.
» Búið er að leka hluta drag-
anna. Þar er sagt að hlýnun
muni hafa veruleg, neikvæð
áhrif á efnahag, fæðuframboð
og öryggismál.
Mörg hundruð reiðir og grátandi
vinir og ættingjar farþeganna í mal-
asísku þotunni sem hvarf fyrir
skömmu fóru inn í sendiráð Malasíu í
Peking í gærmorgun, slógust við ör-
yggisverði og kröfðust svara. Fólkið
sagðist ekki hafa fengið að heyra all-
an sannleikann um hvarf flugvélar-
innar og örlög farþeganna.
„Sonur minn, sonur minn, skilið
mér syni mínum!“ æpti Wen Wanc-
heng, 63 ára gamall maður í hópnum.
Að baki honum veifuðu sumir ætt-
ingjanna krepptum hnefa, aðrir
drúptu höfði og snöktu. Flugfélagið,
Malaysia Airlines, hefur boðið ætt-
ingjum farþeganna skaðabætur en
margir hafa gagnrýnt að ættingjum
skyldi hafa verið sagt með sms-boð-
um að þotan væri talin af.
Enn er ekki vitað neitt um það
hvað olli því að vélin breytti skyndi-
lega um stefnu en hún var á leið til
Peking frá Kuala Lumpur í Malasíu
með alls 239 manns innanborðs.
Engin boð bárust frá flugmönnunum
um að eitthvað væri að. Leit að flak-
inu hefur verið frestað vegna veðurs
en talið er víst að þotan hafi brotlent
á sunnanverðu Indlandshafi, vestan
við Ástralíu.
Talið er að leit að braki verði ekki
hafin á ný fyrr en í dag. Mikill vindur
var á svæðinu í gær, hellirigning og
lágskýjað og var því talið hættulegt
að halda áfram. Leitarsvæðið er
stórt og afskekkt, þar er mikið haf-
dýpi. Það minnkar vonir um að hægt
verði að finna hinn svonefnda svarta
kassa með upplýsingum sem gætu
varpað ljósi á atburðinn. kjon@mbl.is
Leit að braki
haldið áfram
Ættingjar krefja Malasíumenn svara
AFP
Harmur Mótmæli ættingjanna í
sendiráði Malasíu í Peking í gær.
Öll þau mál sem Bretar hafa greitt
atkvæði gegn í ráðherraráði ESB frá
árinu 1996 hafa þrátt fyrir andstöðu
þeirra verið samþykkt og í kjölfarið
orðið að breskum lögum.
Þetta kemur fram í niðurstöðum
rannsóknar samtakanna Business
for Britain sem birtar voru í gær.
Fram kom á fréttavef breska við-
skiptablaðsins City A.M. að sam-
kvæmt niðurstöðum rannsóknarinn-
ar hafi bresk stjórnvöld greitt
atkvæði gegn 55 málum í ráðherra-
ráðinu síðastliðin 18 ár.
Urðu lög þrátt fyrir andstöðu
Öll hafi þau hins vegar náð fram að
ganga þrátt fyrir þá andstöðu og
orðið að lögum í Bretlandi. Enn-
fremur kemur fram í niðurstöðunum
að atkvæðavægi Breta í ráðherra-
ráðinu hafi farið minnkandi samhliða
stækkun Evrópusambandsins.
Þannig hafi það verið 17,2% árið
1973 þegar Bretland gekk í forvera
sambandsins en 8,2% í fyrra. Árið
1973 hafði Bretland 10 atkvæði af 58
en í fyrra 29 atkvæði af 352.
Samhliða hafi breskum þingsæt-
um á Evrópuþinginu fækkað um
helming undanfarin 35 ár.
„Það er augljóst að áhrif Bret-
lands innan Evrópusambandsins eru
ekki eins mikil og margir vilja telja
okkur trú um,“ er haft eftir Matthew
Elliott, framkvæmdastjóra Business
for Britain, á vefsíðu samtakanna.
Þá kemur fram í niðurstöðum rann-
sóknarinnar að atkvæðavægi Bret-
lands á Evrópuþinginu hafi minnkað
úr 20% 1973 í 9,5%. Árið 1979 var
Bretland með 81 sæti á þinginu af
410 en í ár 73 sæti af 766.
Innan framkvæmdastjórnar ESB
hefur atkvæðavægið farið úr 15% í
4%. Þar hafði Bretland 2 fulltrúa ár-
ið 1973 af alls 13 en í fyrra 1 fulltrúa
af alls 28. Fram kemur í niðurstöð-
unum að fulltrúar Bretlands hafi
2.800 sinnum sagt „já“ við atkvæða-
greiðslu í ráðherraráðinu en 55 sinn-
um „nei“. Voru öll 55 lögin samþykkt
þrátt fyrir andstöðuna.
Sýnir hverfandi áhrif
Breta innan ESB
Ný rannsókn sýnir að andstaða Breta hefur engu skilað
AP
Frá Lundúnum Bretar hafa haft lítil
áhrif á lagasetningu innan ESB.
Áþreifanleg vellíðanEDDAHEILDVERSLUN
Stofnsett 1932
Heildverslun með lín fyrir:
• hótelið
• gistiheimilið
• bændagistinguna
• veitingasalinn
• heilsulindina
• hjúkrunarheimilið
• þvottahúsið
• sérverslunina
Gæði og glæsileiki
Heildverslunin Edda
hefur um áratuga skeið
sérhæft sig sem innflytjandi
á líni. Mörg af stærstu
hótelum landsins jafnt sem
minni nota allt lín frá okkur.
Bjóðum einnig upp á
lífrænt lín.
Höfðabakka 9, 110 Reykjavík • Sími: 525 8210
eddaehf@eddaehf.is • www.eddaehf.is
82
ÁRA
EDDA Heildverslun
Draumur um góða nótt
makes a difference
F A G M E N N S K A A L L A L E I Ð
Skeifan 3 E-F • 108 Reykjavík • Sími 581 2333 • rafver.is
Vatnsdælur
Neysluvatnsdælur, brunndælur, borholudælur
Hentugar á heimilið, í garðinn, sumarhúsið eða bátinn
GP 60
Garðdæla fyrir
aukinn þrýsting
BPP 4500
Dæla með þrýstikút
og þrýstijafnara
SPP 6D Inox
Ryðfrí og öflug
borholu- og
brunndæla
SDP 9500
Dæla -
fyrir óhreint vatn
SCD 12000
Dæla - fyrir ferskvatn.
Stillanlegur vatnshæðarnemi
S
tillanlegur
vatnshæ
ðarnem
i
Skannaðu kóðann
til að lesa skýrslu
samtakanna.