Morgunblaðið - 28.03.2014, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. MARS 2014
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Ekki verða veittar undanþágur frá
verkfalli framhaldsskólakennara.
Var það niðurstaða fundar undan-
þágunefndar sem fundaði í fyrsta
og líklega eina skiptið á þriðjudag-
inn um hvort veita beri undanþágur
frá verkfallinu. Í nefndinni sitja
fulltrúar frá Félagi framhalds-
skólakennara og ríkinu.
Fimm óskir um undanþágur
höfðu borist nefndinni og sneru
þær allar að fötluðum nemendum.
Þeim var öllum hafnað og ekki er
búist við að fleiri óskir um und-
anþágur berist nefndinni.
„Langflestir þessara nemenda
eru með þroskaþjálfa, fæstir með
kennara. Það sem við vorum að
benda á var að þeir gætu haft þetta
í skólanum og fengið aðila til að sjá
um starfið á staðnum, það væri
langeðlilegast,“ segir Sigurður Ingi
Andrésson, fulltrúi Félags fram-
haldsskólakennara í undanþágu-
nefndinni. Hann segir sveitar-
félögin hafa tekið vel í það að taka
málið yfir og finna lausn á vanda
fatlaðra nemenda.
Borgin grípur inn í
Borgarráð Reykjavíkur sam-
þykkti á fundi sínum í gær tillögu
um tímabundna þjónustu við fatl-
aða framhaldsskólanema vegna
verkfallsins. Með samþykktinni er
íþrótta- og tómstundasviði falið að
mæta vanda fatlaðra framhalds-
skólanema með því að bjóða þeim
lengri viðveru í frístundaþjónust-
unni, sem starfrækt er í Hinu hús-
inu, að því er segir í tilkynningu frá
borginni.
Þá var samþykkt að fela velferð-
arsviði að bjóða framhaldsskóla-
nemum, sem dvelja tímabundið í
hverjum mánuði í skammtíma-
vistunum í Árlandi, Eikjuvogi,
Hólabergi og Holtavegi, þjónustu á
skólatíma meðan á verkfalli fram-
haldsskólakennara stendur.
Veita engar
undanþágur
Sneru allar að fötl-
uðum nemendum
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Fjölbrautaskólinn Enginn fær
undanþágu frá verkfalli.
Bjarni Jónasson sigraði í tölti á Ran-
dalín frá Efri-Rauðalæk með 8,56 í
KS-deildinni sem er meistaradeild
Norðurlands í hestaíþróttum. Fyrir
reiðmennsku kvöldsins hlaut Mette
Mannseth FT-Fjöðrina en hún var í
þriðja sæti á Trymbli frá Stóra-Ási
með 7,94. Annar var Ísólfur Líndal á
Kristófer frá Hjaltastaðarhvammi.
Lið Hrímnis var stigahæsta lið
kvöldsins og er alls með 131,5 stig.
Einstaklingskeppnin er orðin jöfn en
Ísólfur er efstur með 55 stig, annar
er Bjarni Jónasson með 54 stig.
Bjarni sigraði töltið
á Randalín
Tölt Bjarni efstur á palli, þá Ísólfur Líndal
og Mette Mannseth.
BIRTING LÝSINGAR
Útgefandi: HB Grandi hf.,
kennitala 541185-0389,
Norðurgarður 1, 101 Reykjavík.
HB Grandi hf. („HB Grandi“) birti lýsingu þann 27. mars 2014, í tengslum við almennt útboð á hlutum í
félaginu og ósk stjórnar félagsins um að öll útgefin hlutabréf í HB Granda verði tekin til viðskipta á
Aðalmarkaði NASDAQ OMX Iceland hf. Lýsingin er dagsett 27. mars 2014, gefin út á íslensku og birt
á vefsíðu félagsins, http://www.hbgrandi.is/Um-HB-Granda/Fjarfestar.
Lýsinguna má nálgast hjá félaginu næstu 12 mánuði, en hún er gefin út rafrænt á vefsíðu félagsins.
Lýsinguna má einnig nálgast á vefsíðu Arion banka hf., umsjónaraðila almenna útboðsins, á
vefsíðunni www.arionbanki.is. Frá 31. mars 2014 má jafnframt nálgast innbundin eintök
lýsingarinnar hjá HB Granda á Norðurgarði 1, 101 Reykjavík og hjá Arion banka hf. í Borgartúni 19,
105 Reykjavík.
Heildarfjöldi útgefinna hluta í HB Granda nemur 1.822.228.000, en þar af á félagið eigin hluti sem
nema 0,47% af heildarfjölda hlutanna. Allir útgefnir hlutir í félaginu eru í sama flokki og jafn réttháir.
Hlutir í félaginu eru gefnir út rafrænt í kerfi Verðbréfaskráningar Íslands hf. og er hver hlutur 1 króna
að nafnverði. Auðkenni hlutanna hjá Verðbréfaskráningu Íslands hf. er GRND og ISIN númer þeirra er
IS0000000297. Óskað er eftir því að GRND verði auðkenni hlutabréfanna í kerfum NASDAQ OMX
Iceland hf.
Almennt útboð 7. - 10. apríl 2014
Arion banki hf., Vogun hf. og Fiskveiðahlutafélagið Venus hf. hyggjast selja þegar útgefna hluti í HB
Granda í almennu útboði sem fyrirtækjaráðgjöf fjárfestingarbankasviðs Arion banka hf. hefur
umsjón með. Stærð útboðsins nemur 27% af útgefnum hlutum, nánar tiltekið 492.001.560 hlutum.
Arion banki hf. áskilur sér rétt til að stækka útboðið í allt að 583.112.960 hluti eða sem samsvarar
32% af áður útgefnu hlutafé. Á vefsíðu umsjónaraðila útboðsins, www.arionbanki.is, verður tekið
við áskriftum frá og með mánudeginum 7. apríl 2014 klukkan 16.00 til og með fimmtudeginum 10.
apríl 2014 klukkan 16.00. Lágmarksáskrift er að andvirði 100 þúsund krónur. Fjárfestum er boðið
upp á tvær áskriftarleiðir, eða svokallaðar tilboðsbækur. Ákvörðun á verði þeirra hluta sem seldir
verða í útboðinu verður ekki með sama hætti í báðum tilboðsbókum útboðsins. Í tilboðsbók A óska
seljendur eftir áskriftum á verðbilinu 26,6-32,5 krónur á hlut. Eftir lok áskriftartímabilsins munu
seljendur ákvarða eitt endanlegt útboðsgengi til allra kaupenda sem þátt tóku í tilboðsbók A, en það
mun verða á framangreindu verðbili. Í tilboðsbók B er tekið við áskriftum sem eru að lágmarki á
verðinu 26,6 krónur á hlut, en öllum hlutum sem seldir verða í tilboðsbók B verður úthlutað á sama
verði, sem verður jafnt eða hærra en endanlegt útboðsgengi í tilboðsbók A. Gert er ráð fyrir að
bjóða samtals 8,50% af útgefnum hlutum í tilboðsbók A og 18,50% í tilboðsbók B. Hyggst Arion
banki hf. selja 20% í útboðinu (6,30% í tilboðsbók A og 13,70% í tilboðsbók B), en áskilur sér rétt til
að auka það í 25%. Hyggst Vogun hf. selja 4,3% (1,35% í tilboðsbók A og 2,95% í tilboðsbók B).
Fiskveiðahlutafélagið Venus hf. hyggst selja 2,7% (0,85% í tilboðsbók A og 1,85% í tilboðsbók B).
Seljendur áskilja sér rétt til að ákvarða hvernig stækkun útboðsins, ef til kemur, verður ráðstafað
milli tilboðsbóka A og B.
Markmið seljenda með útboðinu er annars vegar að það geri HB Granda kleift að uppfylla skilyrði
NASDAQ OMX Iceland hf. um dreifingu hlutabréfa sem tekin eru til viðskipta á Aðalmarkaði
Kauphallarinnar og hins vegar horfa seljendur til þess að selja eign sína á sem hagstæðustu verði.
Seljendur áskilja sér rétt til að falla frá útboðinu ef NASDAQ OMX Iceland hf. hafnar umsókn
útgefanda um að hlutabréf í HB Granda verði tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Kauphallarinnar eða
samþykkir hana ekki í síðasta lagi 30. júní 2014. Seljendur áskilja sér jafnframt rétt til að fresta
útboðinu, framlengja það eða falla frá útboðinu hvenær sem er, fram að tilkynningu NASDAQ OMX
Iceland hf. um að hlutabréf í HB Granda verði tekin til viðskipta, ef upp koma einhverjir þeir
áhrifaþættir sem seljendur telja að gefi tilefni til þess, svo sem sérlega neikvæð þróun á
efnahagsumhverfi og/eða verðbréfamarkaði á Íslandi.
Niðurstöður útboðs verða birtar almenningi á Evrópska efnahagssvæðinu í síðasta lagi mánudaginn
14. apríl 2014. Stjórn HB Granda mun óska eftir að öll útgefin hlutabréf í HB Granda verði tekin til
viðskipta á Aðalmarkaði NASDAQ OMX Iceland hf. Í kjölfar þess að lýsingin hefur verið staðfest af
Fjármálaeftirlitinu á Íslandi mun NASDAQ OMX Iceland hf. fara yfir umsóknina og tilkynna
opinberlega hvort hún verði samþykkt og þá að hlutirnir verði teknir til viðskipta á Aðalmarkaði og
samhliða úr viðskiptum á First North markaðstorgi. Tilkynningin mun einnig greina frá hvenær fyrsti
mögulegi viðskiptadagur verði með hlutina á hinum skipulega verðbréfamarkaði, en NASDAQ OMX
Iceland hf. tilkynnir slíka dagsetningu með að lágmarki eins viðskiptadags fyrirvara.
Nánari upplýsingar
Fyrirtækjaráðgjöf fjárfestingarbankasviðs Arion banka hf. hefur umsjón með almenna útboðinu og
því ferli að fá hluti félagsins tekna til viðskipta á Aðalmarkaði NASDAQ OMX Iceland hf. Nánari
upplýsingar um félagið og skilmála almenna útboðsins má finna í lýsingu HB Granda.
Reykjavík, 27. mars 2014
Stjórn HB Granda hf.