Morgunblaðið - 28.03.2014, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 28.03.2014, Blaðsíða 25
BAKSVIÐ Helgi Vífill Júlíusson helgivifill@mbl.is Markó Partners, fyrirtækjaráðgjöf sem þjónustar sjávarútvegsfyrir- tæki, var ráðgjafi við ein stærstu kaup á sjávarútvegsfyrirtæki það sem af er ári, að því er Pétur Ein- arsson, meðeigandi í fyrirtækinu, segir við Morgunblaðið. Kanadíska laxeldisfyrirtækið Cooke Aquaculture, sem er eitt af þeim fimm stærstu á sínu sviði og Markó vann fyrir, keypti skoska laxeldið Meridian Salmon Farms af Marine Hartvest í Noregi fyrir um 23 milljarða króna, að sögn Péturs, sem vekur athygli á því hve al- þjóðleg viðskiptin voru. Áður unnið fyrir Cooke Hann segir að þetta varpi ljósi á að íslensk fjármálafyrirtæki geti látið til sín taka á alþjóðlegum vettvangi með þekkingu og sam- bönd að vopni án þess að þau þurfi að ráða yfir stórum efnahagsreikn- ingi og taka mikla áhættu. Markó Partners hefur áður veitt Cooke ráðgjöf við yfirtökur á fyr- irtækjum, þar á meðal á spænska eldisfyrirtækinu Culmarex. Þetta er þó ekki stærsta ráðgjafarverk- efni fyrirtækisins til þessa því Markó Partners kom að kaupum High Liner Foods á starfsemi Ice- landic Group í Bandaríkjunum og Asíu fyrir 27 milljarða króna árið 2011. 85% tekna félagsins að utan Fram kom í Viðskiptablaði Morgunblaðsins í nóvember að yfir 85% tekna félagsins komi frá út- löndum. Pétur segir að Markó Partners hafi einnig komið að áhugaverðum verkefnum innan- lands og bendir á að fyrirtækið hafi veitt eigendum fiskvinnslufyrir- tækisins Ný-Fisk í Sandgerði ráð- gjöf þegar fyrirtækið var selt til Icelandic við upphafi þessa árs. Kjartan Ólafsson stofnaði Markó Partners ásamt eiginkonu sinni Halldóru Kristjánsdóttur sem gegnir starfi fjármálastjóra hjá fyrirtækinu eftir bankahrun. Kjartan hefur lengi starfað á sviði sjávarútvegsmála og fór meðal annars fyrir sjávarútvegsteymi Glitnis í Noregi. Pétur, fyrrverandi forstjóri Straums fjárfestinga- banka, slóst í hópinn í haust. Þeir unnu saman hjá FBA og síðar Ís- landsbanka. Markó veitti ráðgjöf við kaup á 23 milljarða félagi  Kaupandinn var kanadískur, seljandinn norskur og fyrirtækið er í Skotlandi Meðeigandi Pétur Einarsson meðeigandi réð sig til ráðgjafarfyrirtækisins Markó Partners í haust, en það var stofnað eftir bankahrun. Morgunblaðið/Ernir Eyjólfsson Markó Partners » Starfsmenn Markó Part- ners eru sjö og vonast Pétur til þess að þeir verði brátt tíu. » Reksturinn skiptist í tvo þætti: Fyrirtækjaráðgjöf og greiningarvinnu tengda sjáv- arútvegi. » Yfir 85% teknanna koma frá útlöndum og á árunum 2011-2012 nam hagnaðurinn um 300 milljónum króna. » Þóknun ráðgjafa við fyr- irtækjakaup er alla jafna mið- uð við stærð viðskiptanna. FRÉTTIR 25Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. MARS 2014 Nýttu svalirnar allt árið um kring idex.is - sími: 412 1700 - merkt framleiðsla hefur svalaglerin fyrir þig! Skjól Lumon svalagler veitir skjól gegn rigningu og roki. Mjög einfalt er að opna svalaglerið og renna því til og frá. Hljóð- og hitaeinangrun Svalaglerin veita hljóð- og hitaeinangrun sem leiðir til minni hljóðmengunar innan íbúðar og lægri hitakostnaðar. Stækkaðu fasteignina Með Lumon svalaglerjum má segja að þú stækkir fasteignina þína þar sem þú getur nýtt svalirnar allan ársins hring. Óbreytt útsýni Engir póstar eða rammar hindra útsýnið sem helst nánast óbreytt sem og ytra útlit hússins. Auðveld þrif Með því að opna svalaglerið er auðvelt að þrífa glerið að utan sem að innan. STUTTAR FRÉTTIR ● Arion Banki, Vogun hf. og Fisk- veiðahlutafélagið Venus hf. munu selja þegar út- gefna hluti í HB Granda í almennu útboði dagana 7. apríl til 10. apríl, en hluturinn nem- ur á bilinu 27- 32% af heildarbréfum í HB Granda. Verðbil útboðsins verður 26,6 til 32,5 krónur á hlut, en miðað við það er heildarverðmæti félagsins á bilinu 48,5 til 59,2 milljarðar. Heildarfjöldi útgefinna hluta í HB Granda nemur 1.822.228.000 krónum, en þar af á félagið eigin hluti sem nema 0,47% af heildarfjölda hlutanna. Allir útgefnir hlutir í félaginu eru í sama flokki og jafn réttháir. Nánar á mbl.is 27% bréfa á markað ● Gjaldþrot í febrúar voru 22% fleiri en á sama tíma í fyrra. Nýskráningar fyr- irtækja voru einnig fleiri, en þeim fjölg- aði um 9% milli ára. Flest gjaldþrot voru í heild- og smásöluverslun, við- gerðum á vélknúnum ökutækjum og í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð. Þetta kemur fram í tölum Hagstofu Ís- lands. Í febrúar voru nýskráð 162 einka- hlutafélög, til samanburðar við 149 í febrúar 2013. Nýskráningar voru flestar í fjármála- og vátryggingastarfsemi, 29 talsins. Þá voru 96 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta í febrúarmánuði, til samanburðar við 79 í febrúar 2013. Gjaldþrotum fjölgaði um 22% í febrúar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.