Morgunblaðið - 28.03.2014, Síða 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. MARS 2014
SVIÐSLJÓS
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Hundrað ár eru liðin í dag frá fæð-
ingu Jóns Jónssonar frá Ljár-
skógum, skálds og bassasöngvara
með MA-kvartettinum. Jón fæddist
hinn 28. mars 1914 að Ljárskógum,
sonur Jóns Guðmundssonar bónda
og Önnu Hallgrímsdóttur. Á heimili
Jóns var mikið um að vera í æsku,
en faðir hans sinnti einnig meðfram
bústörfum ljósmyndun og silfur-
smíði, auk þess sem hann bæði
skaut refi og reyndi fyrir sér í
refaræktun, einna fyrstur manna á
Íslandi. Jón var yngstur í stórum
systkinahópi en var mjög bráðger
andlega.
Samkvæmt frásögn Ragnars Jó-
hannessonar, æskuvinar Jóns, í
kveðjuorðum var hann barn að
aldri þegar Jón fór að yrkja, og
voru „mörg æskuljós hans líkari
því, að höfundurinn væri fullþroska
maður en ekki barn“.
MA-kvartettinn stofnaður
Jón fór árið 1929 í Mennta-
skólann á Akureyri. Þar kynntist
hann þeim bræðrum Þorgeiri og
Steinþóri Gestssonum á Hæli og
Jakobi Hafstein. Árið 1932 mynd-
uðu þeir fjórmenningar MA-
kvartettinn og nefndu eftir skól-
anum sínum. Kvartettinn starfaði
saman næstu tíu árin og naut
feiknamikilla vinsælda hér á landi.
Sagði Baldur Andrésson, tónlistar-
gagnrýnandi Vísis, að galdurinn á
bak við vinsældir þeirra væri að
þeir væru allir „mjög músíkalskir
menn, sem syngja lögin eftir efni
ljóðanna, þannig að ljóðin leysast
úr læðingi og verða að lifandi við-
burðum“. Jón söng þar 2. bassa, og
var eftir því tekið hvað hann hafði
fagra söngrödd. Varð kvartettinn
allmerkur liður í tónlistarlífi lands-
ins samkvæmt Morgunblaðinu í
marsmánuði 1942.
Jón fluttist til Reykjavíkur 1934
og innritaðist í guðfræðideild Há-
skólans, þar sem hann nam næstu
fimm árin. Jóni þótti námið þó
verra en vonir hans höfðu staðið til
og lauk því aldrei prófi. Hamingjan
brosti þó við honum, því að á þess-
um tíma kynntist hann verðandi
eiginkonu sinni, Jónínu Kristjáns-
dóttur, frá Ísafirði. „Við kynntumst
á skemmtun þar sem hann var að
syngja, og eftir það vorum við allt-
af í sambandi,“ segir Jónína. Fyrst
um sinn í sambandi þeirra var hún
í vist í Reykjavík, en MA-
kvartettinn fór þá hringferð um
landið, og varð kvartettinn fyrsta
hljómsveitin til þess að leggja í
slíka för.
Þegar heim var komið ákváðu
þau Jón og Jónína að flytjast vest-
ur á Ísafjörð. Jónína minnist þess
að hann hafi varla verið búinn að
vera á Ísafirði í þrjá daga þegar
Guðmundur Hagalín kom og réð
hann til grunnskólans. Jón kenndi
ýmsar greinar við skólann, meðal
annars ensku, en Jón var mikill
málamaður. Jónína segir að hann
hafi nýtt sér þá kunnáttu mikið, og
meðal annars þýtt margar bækur.
Þrjátíu ljóð og öll jafnfalleg
„Við vorum á Ljárskógum eitt
sumar, og þá gat hann setið heilu
dagana og þýtt,“ segir Jónína. Á
kvöldin sungu þau síðan saman og
spiluðu, en tónlistin var þeim báð-
um í blóð borin. Ein af bókunum
sem Jón þýddi var Frú Roosevelt
segir frá, sjálfsævisaga Eleanor
Roosevelt, forsetafrúr í Bandaríkj-
unum, sem kom út árið 1942.
Örlögin tóku hins vegar í taum-
ana, því að Jón veiktist þá um
haustið. „Hann fékk heiftarlegt
kvef og fór í rúmið,“ segir Jónína.
Sonur þeirra, Hilmar Bragi Jóns-
son, matreiðslumaður, var þá hálfs-
mánaðargamall. Kom fljótlega í ljós
að Jón var kominn með berkla og
var ekki um annað að ræða en að
fara með hann á Vífilsstaðaspítala.
„Ég vann þarna í rúm þrjú ár við
að smyrja brauð svo ég fengi að
vera hjá honum,“ segir Jónína, en
henni fannst erfitt á Vífilsstöðum.
„En svona er lífið og við verðum að
taka því eins og það er,“ segir Jón-
ína.
Jón lést 7. október 1945 á Vífils-
stöðum, 31 árs að aldri.
Þrátt fyrir stutta ævi var Jón
vinnusamur alla tíð, þó að undir
það síðasta hefði verið orðið erfitt
fyrir hann að halda á bók. „Hann
var alltaf að yrkja, og á Vífils-
stöðum orti hann þrjátíu ljóð til
mín og öll jafnfalleg,“ segir Jónína
og hlær. En þó að tími þeirra sam-
an hafi verið stuttur minnist Jónína
hans með miklum hlýhug. „Við átt-
um bara saman yndislega góðan
tíma.“
Hann hreyfði
hjartans
innsta streng
100 ár liðin frá fæðingardegi Jóns
Jónssonar frá Ljárskógum
MA-kvartettinn Þeir Þorgeir Gestsson (til vinstri), Jakob Hafstein (fyrir miðju, efri röð), Steinþór Gestsson (fyrir
miðju, neðri röð) og Jón frá Ljárskógum (til hægri) mynduðu saman MA-kvartettinn 1932 og voru ein vinsælasta
hljómsveit landsins næsta áratuginn.
Vinnusamur Eftir Jón liggur fjöld-
inn allur af lögum og ljóðum.
Myndarleg Jónína Kristjánsdóttir,
eiginkona og ekkja Jóns.
Aldarafmælis Jóns Jónssonar frá
Ljárskógum verður minnst með
ýmsum hætti. Á laugardaginn
verður hátíð í Dalabúð með fjöl-
breyttri dagskrá á milli klukkan 15
og 18. „Ég er ættaður úr Dölunum
í báðar ættir, og eins og aðrir
Dalamenn varð ég fljótt var við
dálæti fólks á Jóni,“ segir Þorgeir
Ástvaldsson, tónlistar- og útvarps-
maður, en hann er einn af aðstand-
endum afmælishátíðarinnar ásamt
Sigurði Sigurbjörnssyni frá Víg-
hólsstöðum í Laxárdal og Hilmari
Braga Jónssyni, matreiðslumanni
og einkasyni Jóns frá Ljárskógum,
auk þess sem sveitarstjórn hefur
veitt þeim fulltingi sitt.
Þorgeir segir að MA-kvartettinn
hafi verið upphafið að merkilegri
tónlistarhefð kvartetta hérlendis.
„Nafni Jóns hefur verið haldið á
lofti hér í tónlistarhefðinni í Búð-
ardal,“ segir Þorgeir, „og eldri
kynslóðin oft tileinkað sér lög hans
og ljóð sem lifa og hafa verið gefin
út af velunnurum hans.“ Það hafi
því legið beint við að halda veglega
upp á aldarafmæli Jóns, sem eigi
sér sess ásamt mönnum eins og
Stefáni frá Hvítadal og Jóhannesi
úr Kötlum sem eitt af hinum
merku skáldum Dalamanna.
Þorgeir mun sjálfur taka virkan
þátt í hátíðinni, en hann verður
með undirspil við söng Dallilju Sæ-
mundsdóttur, en hún er náskyld
Jóni. Halldór Þ. Þórðarson mun
stýra Þorrakórnum, er hann syng-
ur lög og ljóð Jóns, auk þess sem
Björn Guðmundsson skáld mun
lesa ljóð.
Ljósmyndasýning
með 50 myndum
Þá verður einnig ljósmyndasýn-
ing með um 50 myndum úr safni
fjölskyldunnar, og Kvenfélagið
Þorgerður Egilsdóttir mun sjá um
kaffiveitingar gegn vægu gjaldi, en
að öðru leyti er ókeypis á viðburð-
inn. Áður en viðburðurinn hefst
munu ættingjar Jóns koma saman
við minnisvarða Jóns fyrir neðan
Ljárskóga, en hann var settur þar
upp í október árið 1986, og halda
þaðan að leiði Jóns.
Þorgeir segir að enginn verði
Endurnýjuð
kynni og falleg-
ar minningar
Ármúli 32 | 108 Reykjavík | Sími 568 1888 | www.parketoggolf.is
Brooklyn Pine
Stærð: 8x243x2200mm