Morgunblaðið - 28.03.2014, Page 22
22 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. MARS 2014
Siðfræðistofnun efnir til vísinda-
kaffis á laugardag um heimspeki-
legar og siðfræðilegar spurningar
tengdar tauga- og heilarann-
sóknum undir yfirskriftinni: Viljum
við ofurheila?
Fjallað verður um gervigreind,
gervilimi, nýjustu rannsóknir á
heilastarfsemi, tauga- og heilaefl-
ingu, tauga- og heilabót og áhrif
tauga- og heilarannsókna á bók-
menntir.
Vísindakaffið verður klukkan 14
til 15.30 nk. laugardag á aðalsafni
Borgarbókasafnsins.
Ofurheilar til
umfjöllunar
Atvinnu- og nýsköpunarhelgi verð-
ur haldin í aðalsal Háskólans á Ak-
ureyri, Sólborg, Norðurslóð 2, dag-
ana 28.-30. mars. Enginn kostnaður
fylgir þátttöku.
Markmiðið er að hjálpa ein-
staklingum og fyrirtækjum að út-
færa snjallar hugmyndir, koma
þeim í framkvæmd og á framfæri
við rétta aðila. Viðburðurinn er op-
inn fyrir alla 18 ára og eldri. Unnið
er í hópum að nánari útfærslu hug-
myndanna og fjöldi frumkvöðla og
annarra sérfræðinga veitir ráðgjöf.
Nánari upplýsingar um hvernig
vinnulagi er háttað er að finna á
www.ana.is. Fyrir bestu hugmynd-
ina sem fram kemur um helgina eru
veitt verðlaun að upphæð ein millj-
ón króna. Einnig eru veitt verðlaun
og viðurkenningar fyrir sex aðrar
hugmyndir sem dómnefnd velur.
Nýsköpun Unnið verður í hópum.
Nýsköpunarhelgi
haldin á Akureyri
STUTT
Grænlenskir dagar hefjast í Mela-
búðinni föstudaginn 28. mars kl.
16.00. Allir eru velkomnir á opn-
unarhátíðina.
Þar verður boðið upp á græn-
lenska kjötrétti, gómsætt sjáv-
arfang,grænlenska tónlist á hljóm-
diskum og fleira.
Jafnframt verður sýning á mynd-
um hins heimskunna ljósmyndara
Ragnars Axelssonar frá Grænlandi,
trommudans verður stiginn og sitt-
hvað skemmtilegt verður í boði fyr-
ir börn jafnt sem fullorðna.
Dagskráin heldur áfram á laug-
ardeginum með tónlist, glensi og
dansi.
Halda grænlenska
daga í Melabúðinni
Jóhann Óli Hilmarsson
Stokkseyri
Orgelsmiðjan á Stokkseyri opnar
fræðslusýningu og verkstæðið
gestum og gangandi um næstu
helgi. Þar verður boðið upp á
fræðslu um allt sem viðkemur org-
elsmíði og sögu tónlistar á Eyrum.
Hefurðu velt því fyrir þér hve
margar pípur eru í pípuorgeli?
Veistu hvað það tekur langan tíma
til að smíða eitt orgel, eða þekk-
irðu orðið vindhlaða og hver mun-
urinn er á orgeli og harmóníum? Í
Orgelsmiðjunni fær fólk svör við
þessu öllu og meira til. Fræðslu-
sýningin er á þremur tungumálum
(íslensku, ensku og þýsku) og geta
hitt orgelsmið og fylgst með störf-
um hans. Stefnt er einnig að því
að vera reglulega með tónleika-
hald á staðnum.
Vagga íslenskrar tónlistar í nú-
tímalegum skilningi er í þorpunum
á Eyrum, Stokkseyri og Eyrar-
bakka. Á sögusýningunni verður
m.a. greint frá Selsbræðrum og
afkomendum þeirra, sem og hinu
blómlega menningarlífi sem
þreifst í Húsinu á Eyrarbakka á
19. öld og fram á þá 20. Fyrsti
organisti Stokkseyrarkirkju var
Bjarni Pálsson, föðurbróðir Páls
Ísólfssonar, sem telja má eitt
helsta tónskáld þjóðarinnar. Páll
fæddist í Símonarhúsum á Stokks-
eyri árið 1893. Hann var um dóm-
organisti í Reykjavík í nærri þrjá
áratugi. Dætur hans er Þuríður
söngkona og Anna Sigríður dóm-
kirkjuprestur. Bróðir Páls, Pálmar
Ísólfsson, lærði hljóðfærasmíði og
stillingar í Danmörku og fengust
synir hans og dóttursonur allir við
hljóðfærastillingar og viðgerðir.
Annar bróðir Páls, Sigurður, var
organisti í Fríkirkjunni í Reykja-
vík í meira en hálfa öld. Hægt
verður að fræðast um þá frændur
og miklu meira á sögusýningunni í
Orgelsmiðjunni. Sögulega séð á
eina orgelsmiðja landsins því
hvergi betur heima en á Stokks-
eyri.
Morgunblaðið/Jóhann Óli
Orgelsmiðjan Björgvin Tómasson orgelsmiður og Jóhann H. Jónsson starfsmaður við pípur af ýmsum stærðum.
Orgelsmiðjan á Stokks-
eyri opnuð almenningi
Orgelsmiðjan
» Opnun Orgelsmiðjunnar
verður um helgina og verður
ókeypis inn á laugardag og
sunnudag, opið kl. 11:00-17:00.
» Laugardaginn 29. mars
verða tónleikar kl. 16:00 með
hljómsveitinni „Var“ (Myrra
Rós, Júlíus og Egill Björgvins-
synir).
» Sýningin verður opin fram-
vegis kl. 10:00-18:00 virka
daga og eftir samkomulagi um
helgar.
» Orgelsmiðjan er í Hafn-
argötu 9, sjávarmegin, í menn-
ingarverstöðinni Hólmaröst.
Boðið upp á fræðslu um orgelsmíði og sögu tónlistar
Laser Blade er enn ein byltingin frá
iGuzzini í framleiðslu LED lampa. Með
nýrri tækni lýsir Laser Blade upp hlutinn
án þess að ljósgjafinn trufli. Laser Blade
hefur hlotið margar alþjóðlegar viður-
kenningar fyrir hönnun og gæði.
Ármúla 24 • S: 585 2800
Dalvegi 10-14 • 201 Kópavogi • 595 0570 • Parki.is
Plankaparket
í miklu úrvali
Burstað, lakkað, olíuborið, hand-
heflað, reykt, fasað, hvíttað...
hvernig vilt þú hafa þitt parket?
Bjóðum aðeins það besta fyrir þig!