Morgunblaðið - 29.03.2014, Síða 2
Í NJARÐVÍK
Skúli B. Sigurðsson
skulibsig@mbl.is
Njarðvíkingar tryggðu farseðilinn í
undanúrslit í gærkvöldi með því að
sigra Hauka í þriðja sinn í jafnmörgum
leikjum í úrslitakeppni Dominos-
deildarinnar. 81:77 var lokastaða leiks-
ins og það var svo sem kunnuleg loka-
staða en öllum leikjum seríunnar lauk
með fjögurra stiga sigri þeirra Njarð-
víkinga.
Leikurinn í heild sinni að þessu sinni
var í raun „afrita/líma“ af hinum leikj-
unum. Haukar byrjuðu betur og voru
yfir megnið af leiknum og á lokakafl-
anum voru það Njarðvíkingar sem
tóku af skarið og sigruðu. Það sem
helst brá út af vananum í þessum leik
var að Haukarnir voru nær sigrinum
að þessu sinni. Augljóst var að þeir
voru að berjast fyrir lífi sínu í þessari
úrslitakeppni. Hentu sér á eftir öllum
boltum og vörn þeirra var gríðarlega
þétt fyrir. Þeir náðu loksins að skrúfa
fyrir þann leka sem var að öllu jöfnu
niðri á blokkinni með því að halda
Tracy Smith jr. í aðeins níu stigum.
Þessi barátta þeirra tók á. Það blés
ekki byrlega fyrir þeim Njarðvíkingum
og þegar um þrjár mínútur voru til
loka þriðja leikhluta fékk Tracy Smith
sína fjórðu villu og flestir hafa þá hald-
ið að þetta væri búið. En sú klassík að
lið þjappi sér saman við slíkan brotsjó
verður aldrei of oft sögð. Terrence
Watson nýtti sér þetta hins vegar til
fulls og skoraði grimmt. Terrence er
gríðarlega öflugur leikmaður og dug-
legur en fullmiklu var hlaðið á hans axl-
ir undir lok leiks þegar hann átti að
klára dæmið. Hann var ekki langt frá
því en þreyta var augljóslega byrjuð að
segja til sín hjá kappanum. Vendi-
punktur leiksins var líkast til þegar um
fimm mínútur voru til loka en þá fá
Haukar dæmda á sig ásetningsbrot.
Þar náðu Njarðvíkingar loksins að
jafna leikinn og sú sálfræði sem fylgir
því sást það sem eftir lifði leiks. Sjálfs-
traust þeirra jókst með hverri mínútu
og þeir héldu út til loka leiks og eru
komnir í undanúrslit þar sem þeir
mæta annaðhvort Grindavík eða Þórs-
urum úr Þorlákshöfn. Haukarnir geta
borið höfuðið hátt eftir þennan vetur
og meira segja hærra eftir þessa úr-
slitakeppni gegn Njarðvík. Fyrirfram
var ekki búist við miklu af þeim þenn-
an vetur og að segja að þeim hafi verið
sópað í sumarfríið er bara ekki sann-
gjarnt. Ef litið er á tölfræðina voru
þeir líkast til yfir í þessu einvígi megn-
ið af tímanum. En körfuknattleikur
snýst um þessar 40 mínútur og að
skora ekki stig síðustu tvær mínútur
leiksins er einfaldlega rándýrt. Af leik-
mönnum þá voru það Maceij Baginski
sem kveikti neistann fyrir þá Njarðvík-
inga og svo setti Logi Gunnarsson nið-
ur þungavigtarþrista á ögurstundu.
Hjá Haukum var Terrence Watson öfl-
ugastur þetta kvöldið; spilaði frábæra
vörn og var sókn Njarðvíkinga erfiður
ljár í þúfu en þreytan undir lok leiks
varð honum ofviða.
Afritað og límt að
hætti Njarðvíkinga
Sendu Hauka í sumarfrí með þriðja fjögurra stiga sigrinum
Í gæslu Haukar héldu vel aftur af Tra
vandræðum í 3. leikhluta, en í staðinn
2 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. MARS 2014
Lengjubikar karla
A-DEILD, riðill 2:
Þróttur R. – FH........................................ 0:1
Ingimundur Níels Óskarsson 5.
Leiknir R. – Fjölnir ................................. 3:2
Hilmar Árni Halldórsson 47., Ólafur
Hrannar Kristjánsson 52., Hilmar Árni
Halldórsson 76. – Júlíus Orri Óskarsson 9.,
Christopher P. Tonis 43.
Staðan:
FH 5 5 0 0 20:3 15
Þór 5 3 2 0 10:3 11
Fjölnir 6 2 1 3 11:10 7
Fylkir 5 2 1 2 11:12 7
Leiknir R. 5 2 1 2 9:14 7
Þróttur R. 6 1 1 4 7:9 4
KA 5 1 1 3 6:8 4
HK 5 1 1 3 8:23 4
Lengjubikar kvenna
A-DEILD:
ÍBV – Þór/KA .......................................... 2:1
Staðan:
Breiðablik 3 3 0 0 9:2 9
ÍBV 4 2 0 2 7:14 6
Valur 3 1 2 0 11:5 5
Þór/KA 4 1 1 2 5:8 4
Stjarnan 3 1 0 2 7:5 3
Selfoss 3 0 1 2 4:9 1
Evrópukeppni U17 karla
Milliriðill í Portúgal:
Lettland – Ísland...................................... 0:0
Portúgal – Úkraína .................................. 3:0
Portúgal 6, Úkraína 3, Ísland 1, Lettland
1.
Þýskaland
Schalke – Hertha Berlín .......................... 2:0
Holland
B-deild:
Fortuna Sittard – Jong PSV .................. 2:1
Hjörtur Hermannsson lék ekki með
Jong PSV vegna meiðsla.
Belgía
Club Brugge – Lokeren .......................... 5:1
Eiður Smári Guðjohnsen var í byrjunar-
liði Club Brugge og lék í 75 mínútur.
Portúgal
Belenenses – Pacos Ferreira ................. 1:1
Helgi Valur Daníelsson lék allan leikinn
með Belenenses en Eggert Gunnþór Jóns-
son sat á varamannabekknum.
Danmörk
OB – SönderjyskE ................................... 2:2
Ari Freyr Skúlason lék allan leikinn fyr-
ir OB.
Hallgrímur Jónasson lék allan leikinn
fyrir SönderjyskE.
Noregur
Molde – Vålerenga .................................. 2:0
Björn Bergmann Sigurðarson skoraði
seinna markið og lék fram á 82. mínútu.
Viðar Örn Kjartansson lék allan leikinn
fyrir Vålerenga.
Austurríki
B-deild:
First Vienna – Austria Lustenau........... 0:1
Helgi Kolviðsson þjálfar Austria.
KNATTSPYRNA
KÖRFUKNATTLEIKUR
Fyrsti úrslitaleikur kvenna:
Stykkishólmur: Snæfell – Haukar ........ L18
8-liða úrslit karla, fjórði leikur:
IG-höllin: Þór Þ. – Grindavík ............ S19.15
HANDKNATTLEIKUR
1. deild karla:
KA-heimilið: Hamrarnir – ÍH ............... L16
ÍSHOKKÍ
Heimsmeistaramót kvenna, 2. deild B:
Laugardalur: Króatía – Tyrkland ......... S13
Laugardalur: Slóvenía – Spánn ........ S16.30
Laugardalur: Ísland – Belgía................. S20
KNATTSPYRNA
Deildabikar karla, Lengjubikarinn:
Akraneshöll: ÍA – Breiðablik................. L12
Akraneshöll: BÍ/Bol. – keflávik............. L14
Kórinn: HK – Þór ................................... L14
Egilshöll: KR – Grindavík...................... S19
Deildabikar kvenna, Lengjubikarinn:
Selfossvöllur: Selfoss – Stjarnan .......... L16
FIMLEIKAR
Íslandsmótið í áhaldafimleikum fer fram í
Laugarbóli í Laugardal um helgina. Í dag
er keppt frá 13.30 til 16 og á morgun kl. 13
til 16.
KARATE
Bikarmót KAÍ fer fram í Fylkissetrinu í
Norðlingaholti í dag kl. 9 til 12. Keppt er í
kata kl. 9 og kumite kl. 10.30.
TENNIS
Úrslitaleikir Íslandsmótsins innanhúss í
karla- og kvennaflokki fara fram í Tenn-
ishöllinni í Kópavogi á morgun kl. 15.30.
UM HELGINA!
HANDBOLTI
Guðmundur Hilmarsson
gummih@mbl.is
Sigþór Árni Heimisson, 21 árs gamall
leikmaður í liði Akureyrar, er leik-
maður 19. umferðar í Olís-deildinni í
handknattleik að mati Morgunblaðs-
ins en hann átti fínan leik í góðum
sigri Akureyringa gegn FH-ingum í
Kaplakrika í fyrrakvöld.
Sigþór, sem lék í skyttustöðunni
vinstra megin, skoraði 7 mörk í leikn-
um og áttu varnarmenn FH-inga erf-
itt með að stöðva þennan lipra leik-
mann sem er ekki hár í loftinu. Sigþór
skoraði mörk sín með góðum gólf-
skotum eða eftir að hafa platað varn-
armennina upp úr skónum.
Kannski of seint í rassinn gripið
„Ég var mjög ánægður með mína
frammistöðu í leiknum og enn meira
með sigur okkar. Þetta var rosalega
dýrmætur sigur og þennan leik eins
og leikina á undan höfum við lagt upp
sem úrslitaleik og munum halda því
áfram.
Við fórum í leikinn á móti FH með
sama hugarfari og í leiknum gegn Val,
það er að hafa gaman af þessu og
berjast eins og ljón. Þetta virðist allt
vera að koma hjá okkur en það er
kannski of seint í rassinn gripið. Það
er engin spurning um það að það býr
heilmikið í okkar liði og þegar maður
horfir á þessa blessuðu stigatöflu í
dag er ansi súrt að hafa bara gert
jafntefli við Val heima og ná ekki stigi
í leiknum þar á undan sem var á móti
Fram,“ sagði Sigþór Árni við Morg-
unblaðið.
Sigþór fór ekki með félögum sínum
í rútuferðina heim til Akureyrar eftir
Ljósmynd/Þórir Ó. Tryggvason
Fjölhæfur Sigþór Árni Heimisson hefur spilað margar stöður og hefur gengið
vel sem skytta vinstra megin eftir að Vladimir Zejak var sendur heim.
„Þetta virðist allt vera
að koma hjá okkur“
Sigþór Árni Heimisson, 21 árs gamall leikmaður Akureyrar, er leikmaður 19.
umferðar í Olís-deildinni Lék FH-ingana grátt í sætum sigri Vinnur í leikskóla
Lið umferðarinnar
» Sigþór Heimisson er einn af
þremur nýliðum í liði 19. umferð-
ar. Auk hans hafa Hreinn Hauks-
son úr Akureyri og Sigurður Örn
Þorsteinsson úr Fram ekki verið
valdir áður í vetur.
» Róbert Aron Hostert úr ÍBV
hefur verið valinn oftast allra í
lið umferðarinnar í vetur, 7 sinn-
um. Þeir Jón Heiðar Gunnarsson
úr ÍR og Garðar Sigurjónsson úr
Fram hafa verið valdir 6 sinnum
hvor.
» Flestir leikmenn frá ÍBV hafa
verið valdir í lið umferðarinnar,
11 talsins. Níu úr Akureyri hafa
verið valdir og níu úr Val.
Njarðvík, 8-liða úrslit karla, þriðji leikur,
föstudag 28. mars 2014.
Gangur leiksins: 6:4, 9:11, 12:18, 18:31,
22:33, 28:33, 33:36, 37:44, 42:46,
45:51, 49:53, 59:62, 63:67, 70:67,
75:73, 81:77.
Njarðvík: Logi Gunnarsson 20/5 frá-
köst/5 stoðsendingar, Elvar Már Frið-
riksson 19/8 fráköst/5 stoðsend-
ingar/5 stolnir, Maciej Stanislav
Baginski 13, Ágúst Orrason 11, Tracy
Smith Jr. 9/13 fráköst, Ólafur Helgi
Jónsson 5/4 fráköst/4 varin skot,
Hjörtur Hrafn Einarsson 4.
Fráköst: 25 í vörn, 11 í sókn.
Haukar: Terrence Watson 33/11 frá-
köst/3 varin skot, Sigurður Þór Ein-
arsson 13, Emil Barja 13/5 fráköst/6
stoðsendingar, Haukur Óskarsson 6/4
fráköst, Helgi Björn Einarsson 6, Krist-
inn Marinósson 4/5 fráköst/5 stoð-
sendingar, Svavar Páll Pálsson 2/4 frá-
köst.
Fráköst: 25 í vörn, 8 í sókn.
Dómarar: Kristinn Óskarsson, Davíð
Kristján Hreiðarsson, Einar Þór Skarp-
héðinsson.
Njarðvík vann einvígið 3:0.
Njarðvík – Haukar 81:77