Morgunblaðið - 29.03.2014, Síða 4

Morgunblaðið - 29.03.2014, Síða 4
4 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. MARS 2014 VIÐHORF Á LAUGARDEGI Það var skemmtilegt, og meiri forréttindi en ég gerði mér grein fyrir, að fá að setjast niður með Robbie Fowler um síðustu helgi og spjalla stuttlega við hann. Fowler var hress, á öðrum bjór og tók því ekkert illa þó ég viðurkenndi United-ást mína. Af fréttum að dæma virðast bjórarnir hafa orðið fullmargir hjá Fowler, sem nennti ekki að sinna öllum þeim fjölmörgu stuðningsmönnum sínum og Liv- erpool sem vildu nálgast hann daginn eftir. Margir fengu þó mynd af sér með kappanum eða ómetanlega áritun. Þegar ég hugsa um Fowler koma nefplástrarnir hans strax upp í hugann. Þeir eru alveg merkilegt fyrirbæri. Plástrar sem áttu að auðvelda öndun. Nokkrir knattspyrnumenn virtust hafa á þessu tröllatrú en svo hættu allt í einu allir að nota þá, enda álíka mikið gagn í þeim fyrir atvinnu- fótboltamenn og í töfradrykkn- um í Space Jam. Fleiri svona nýjungar hafa vakið forvitni manns og áhuga, en svo reynst algjört kjaftæði. Dæmi um það var þegar Robin van Persie og fleiri fóru að venja komur sínar til Serbíu þar sem legkökuvökvi úr hryssum var notaður til að ná skjótari bata af meiðslum. Vinsældir slíkra með- ferða virðast síður en svo miklar í dag – kannski vegna þess að einhver benti á að sérfræðing- urinn í Serbíu væri ekki í neinum fötum. Ég skil samt fullkomlega að meiðslapésar eins og Van Persie vilji prófa eitthvað nýtt. Ég var búinn að rífa upp sömu togn- unina í öðru lærinu sirka 70 sinn- um áður en mér var bent á að láta sprauta einhverri saltvatns- lausn í lærið, sem hefur haldið síðan. BAKVÖRÐUR Sindri Sverrisson sindris@mbl.is HANDBOLTI Guðmundur Hilmarsson gummih@mbl.is Enn og aftur verðum við vitni að því að handknattleiksforystan í heim- inum skorar sjálfsmark. Úrskurður evrópska handknattleikssambands- ins, EHF, í máli sem það hafði til rannsóknar vegna framgöngu Tal- ants Dujshebaevs, þjálfara pólska handknattleiksliðsins Kiecle, í garð Guðmundar Þórðar Guðmunds- sonar, þjálfara þýska liðsins Rhein- Neckar Löwen, er gott dæmi um þá spillingu sem ríkir og hefur ríkt um árabil innan alþjóðahandknattleiks- hreyfingarinnar. Að Dujshebaev sleppi við að fá langt bann og þurfi einungis að reiða fram smáaura í sekt er hneyksli og gerir ekkert annað en að sverta ímynd þessarar skemmtilegu íþróttar sem lengi vel hefur verið nefnd þjóðaríþrótt okkar Íslendinga. Maður spyr sig: Hvað var eftirlits- maður EHF á leiknum að gera? Hann hefur greinilega ekki verið að vinna sína vinnu eða hefur lokað aug- um fyrir því sem hann varð vitni að. Í annað sinn á skömmum tíma gerir EHF hressilega í brækurnar en á dögunum var Milina Knezevic, ein af bestu handknattleikskonum heims, úrskurðuð í aðeins tveggja leikja bann fyrir að skalla mótherja sinn í andlitið í leik í Meistaradeild- inni. Skilaboðin sem EHF sendir með þessum vægu dómum eru væg- ast sagt vond en bæði Dujshebaev og Knezevic hefðu að mínu mati átt að fá langt keppnisbann enda bæði sek um að að beita grófu ofbeldi sem á hvorki heima innan vallar né utan hans. Mætast aftur á mánudaginn Aganefnd EHF skýlir sér á bak við það að ekki séu nægar sannanir fyrir því að Dujshebaev hafi slegið Guðmund Þórð eftir leik Kielce og Löwen í Meistaradeildinni, og það á afar viðkvæman stað, en sú peninga- upphæð sem Dujshebaev er gert að greiða í sekt er fyrir framkomu hans á fréttamannafundi eftir leikinn. Bara sú framkoma þjálfarans hefði réttlætt nokkurra leikja bann enda fór hann gjörsamlega yfir strikið með leikrænum tilburðum sínum og reyndi ítrekað að sverta mannorð Guðmundar Þórðar. Það verður fróðlegt að fylgjast með síðari viðureign Löwen og Kielce sem fram fer í Mannheim í Þýskalandi á mánudagskvöldið. Þar þurfa „ljónin“ hans Guðmundar að vinna upp fjögurra marka tap frá fyrri leiknum og ég er ekki í vafa um að Guðmundur, þessi frábæri þjálf- ari, nái að „gíra“ sína menn vel upp og þeir hjálpi honum að slá Dujs- hebaev og lærisveina hans úr keppni. Alltént held ég með Löwen í þessu einvígi en vona þó að Þórir Ólafsson standi sig fyrir pólska liðið í leiknum. Ánægjuleg endurkoma Alexanders Vendum okkar kvæði í kross. Ís- lenska landsliðið í handknattleik var valið í fyrradag fyrir tvo vináttuleiki gegn Austurríki en leikirnir eru liðir í undirbúningi fyrir leikina á móti Bosníumönnum í júní um farseðilinn á HM í Katar á næsta ári. Eins og Alexander Petersson greindi frá í samtali við undirritaðan á dögunum er hann tilbúinn að spila með lands- liðinu á nýjan leik og það er mikið ánægjuefni að „vélmennið“ eins og Alexander er oft kallaður er kominn til baka en hans hefur verið sárt saknað á tveimur síðustu stórmót- um. Með Alexander innanborðs er ís- lenska landsliðið töluvert öflugra jafnt í vörn sem sókn og handbolta- áhugafólk, sem ætlar að berja liðið augum í leikjunum við Austurríki um næstu helgi, fyrst að Ásvöllum og síðan í Ólafsvík, fær vonandi að sjá Alexander og strákana okkar alla skila góðum leikjum. Val landsliðsþjálfarans Arons Kristjánssonar á landsliðshópnum kemur fáum á óvart. Þetta er sá leik- mannahópur sem hann hefur unnið að mestu með frá því hann tók við keflinu af Guðmundi Þórði Guð- mundssyni. Ég hefði þó viljað sjá línumanninn Atla Ævar Ingólfsson fá tækifæri. Hann hefur staðið sig af- ar vel með liði Nordsjælland í dönsku úrvalsdeildinni og hefur ver- ið þar í stóru hlutverki. EHF sendir vond skilaboð Morgunblaðið/Ómar Endurkoma Alexander Petersson spilar á ný með landsliðinu þegar það mætir Austurríki næstkomandi föstudagskvöld og á laugardag. FÓTBOLTI Benedikt Bóas benedikt@mbl.is FH-ingar urðu fyrir miklu áfalli þegar vinstri bakvörður liðsins, Sam Tillen, fótbrotnaði illa í leik með sín- um mönnum gegn HK í Lengjubik- arnum. „Ég man að ég ætlaði svo- leiðis að dúndra boltanum frá en ég hlýt að hafa þrumað í leikmann HK sem orsakaði brotið,“ segir Tillen nokkuð brattur miðað við aðstæður. Aukaspyrna var dæmd á Tillen fyrir brot en sjálfur lá hann í grasinu, fót- brotinn. „Þegar ég lá í grasinu hugsaði ég með mér að þetta væri eitthvað al- varlegt, ég fann það alveg. En þetta var óþarfa tækling hjá mér því við vorum að vinna leikinn stórt.“ FH vann leikinn 10:1 en staðan var 7:1 þegar Tillen fór í hina af- drífaríku tæklingu og fótbrotnaði. Þrátt fyrir glæstan sigur vörpuðu meiðslin skugga yfir sigurgleðina. Það er vont að sjá liðsfélaga sinn þjást og Tillen gæti orðið lengi frá knattspyrnuiðkun. Finnst hann skulda FH leik í sumar Tillen hefur áður meiðst alvarlega en hann varð fyrir því þegar hann var í unglingaliði Chelsea. Hann gekk í raðir Lundúnaliðsins þegar hann var aðeins 11 ára gamall og hefur oft skrifað um reynslu sína á fótbolta.net, hvernig það sé að vera unglingur í stórliði. Hann er alinn upp í Newbury þar sem þeir hann og Joe bróðir hans byrjuðu að sparka sín á milli. Joe hefur einnig spilað hér á landi með Fram, Val og Selfossi þar sem hann er núna. Sam Tillen var í Chelsea þangað til hann var tvítugur, fór til Brentford í tvö ár áður en hann söðl- aði um og samdi við Fram eftir að hafa ráðfærst sig við Ólaf Inga Skúlason sem þá var leikmaður Brentford. Eftir fimm ár í Safamýr- inni fór hann til FH. „Ég meiddist svolítið þegar ég var 16-19 ára og einu sinni var ég frá í eitt og hálft ár. En síðan þá hef ég verið laus við meiðsli sem betur fer. Ég stefni ótrauður á að spila með FH í sumar. Það er mitt markmið og ég ætla mér að gera hvað sem ég get til að ná því markmiði. Mér finnst ég skulda öllum hjá FH það.“ Nennir ekki sjónvarpsglápi Tillen vinnur í Gamla Lækjar- skóla í Hafnarfirði og kann vel við bæði starfið og þá sem vinna með honum. „Ég er stuðningsfulltrúi og er einnig með nokkra enskukúrsa fyrir níunda bekk.“ Þegar viðtalið við Tillen var tekið í vikunni hafði hann verið heima hjá sér í Hafnarfirði í tvo daga og leidd- ist þófið. „Að sitja heima og horfa á sjónvarpið er ekki alveg fyrir mig,“ segir hann og brosir. „Ég stefni að því að fara í ræktina um helgina og æfa vel undir stjórn Silju Úlfars- dóttur og Jónasar Grana sjúkra- þjálfara. Ég ætla að reyna að stíga í fótinn og reyna aðeins á hann, styrkja beinið og vöðvana í kring. Ég hitti lækni eftir átta vikur og ætla að vera í sem bestu líkamlegu ástandi við skoðunina.“ Tillen fékk mikið af skilaboðum víða að þegar fréttir um fótbrot hans bárust um netmiðla í síðustu viku. Twitter samfélagið óskaði honum góðs bata. „Auðmjúkur segi ég takk til þeirra sem sendu mér skilaboð. Sömuleiðis vil ég þakka fyrir mig til HK, bæði leikmanna og þeirra sem koma að hjá félaginu. Auðvitað FH- ingum öllum líka því stuðningur þeirra var gríðarlegur, nánast yf- irþyrmandi en allar kveðjurnar og stuðningurinn skipti mig máli. Góð- vild allra mun vera mér hvati til að snúa aftur sterkari en áður.“ Hinn brotlegi brotnaði  Sam Tillen leikmaður FH stefnir á að ná leik með liðinu í sumar  Fótbrotn- aði gegn HK fyrir viku  Þakklátur fyrir stuðninginn sem honum barst Morgunblaðið/Ómar Lykilmaður Sam Tillen var í stóru hlutverki á sínu fyrsta tímabili með FH en hann lagði upp tíu marka liðsins, næst flest allra leikmanna í deildinni. Samuel Tillen » Hann er 28 ára gamall Eng- lendingur sem ólst upp hjá Chelsea og var þar til 2005 en fékk ekki tækifæri með aðallið- inu. Hann spilaði síðan með Brentford í C-deildinni í tvö ár. » Tillen gekk til liðs við Fram í ársbyrjun 2008 og lék með lið- inu í fimm ár, alls 98 leiki í efstu deild. » Hann fór til FH í fyrra og lék 20 leiki með liðinu í efstu deild 2013 en fótbrotnaði í leik gegn HK 21. mars.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.