Morgunblaðið - Sunnudagur - 02.03.2014, Qupperneq 15
„Í rauninni má segja að allt
þetta ferli hafi verið eins og
ævintýri þar sem leiðin hefur
stöðugt legið upp á við,“
segja Gunnar og Friðrik.
Morgunblaðið/Kristinn
ir Ragnheiðar lést á Englandi ættleiddu
biskupshjónin Þórð Daðason Ragnheiðarson
sem þá var á sjötta ári. „Hann varð auga-
steinn Brynjólfs,“ segir Friðrik, „elskulegt
barn, námfús og hvers manns hugljúfi en
dó á tólfta ári. Lífssaga Þórðar Daðasonar
sem Brynjólfur skrifaði sjálfur eftir dauða
hans er átakanleg lesning sem lýsir beint
inn í sært hjarta hins aldna biskups, sem
sá ekki sólina fyrir drengnum.“
Með óperunni má segja að Friðrik og
Gunnar hafi reist Ragnheiði og fjölskyldu
hennar minnisvarða. Það kemur hins vegar
á óvart að leiði biskupsfjölskyldunnar í
Skálholti er ómerkt og þar er enginn
minnisvarði. „Daði er jarðaður í kirkju-
garðinum í Steinsholti þar sem hann þjón-
aði í fimmtíu ár,“ segir Friðrik. „Ábúendur
settu stein á leiði hans og hirt hefur verið
um það alla tíð síðan. Brynjólfur var fyrsti
biskupinn sem bað um að vera grafinn ut-
an kirkju og bað einnig um að leiði sitt
yrði ekki merkt með steini. Í ómerktri
gröf norðanmegin við Skálholtskirkju, suð-
urundir Þorláksbúð eins og sagt er, hvíla
þau biskupshjónin, Brynjólfur og Margrét,
með Þórð barnabarn sitt á milli sín, Ragn-
heiður hvílir við hlið móður sinnar og
þarna eru einnig fimm börn biskups-
hjónanna sem dóu kornung. Mér finnst
tímabært að setja þarna upp minning-
armark, jafnvel með upplýsingum um ein-
hvern merkasta leiðtoga þjóðarinnar á fyrri
tíð og fjölskyldu hans. Það er verðugt
verkefni fyrir Skálholtsfélag hið nýja, og
alla unnendur Skálholtsstaðar – ef Kirkju-
ráð rústar ekki Skálholti áður.“
2.3. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15
Skeifunni 8 | sími 588 0640 | casa.is
– hágæða ítölsk hönnun
NATUZZI endurspeglar fullkominn
samhljóm og kjarna ítalskrar hönnunar.
NATUZZI umhverfi,
staður þar sem fólki líður vel.
100%made in Italy
www.natuzzi.com
Komið og upplifið NATUZZI gallerýið okkar
NATUZZI SÓFI L 235CM TUNGA 168 CM VERÐ: CT.10 LEÐUR KR. 690.000
NATUZZI ARGO MOTTA 170 X 240 VERÐ KR. 145.000
NATUZZI ARGO MOTTA 190 X 270 VERÐ KR. 175.000