Morgunblaðið - 01.04.2014, Síða 2

Morgunblaðið - 01.04.2014, Síða 2
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. APRÍL 2014 2 BÍLAR Þ ar sem Sniglarnir verða 30 ára í dag þótti ekki úr vegi að ökuþór vikunnar fengi að vera Snigill og þess vegna heyrðum við aðeins í Þormari Þorkelssyni, Snigli númer 13 en hann býr í Danmörku. Þor- mar var nokkuð áberandi á upp- hafsárum Snigla og ber meðal annars ábyrgð á fyrri hluta nafns- ins, Bifhjólasamtök lýðveldisins. Hann er langt í frá hættur að hjóla og afrekaði meðal annars í fyrra að komast á lista þeirra fáu bif- hjólamanna og kvenna sem klárað hafa Rasssærið svokallaða, en það er að keyra á mótorhjóli þús- und mílna leið á innan við 24 klukkustundum. Við byrjuðum á að spyrja Þormar hvað varð til þess að hann fór fyrst að keyra mótorhjól? „Ég held að þetta sé eitthvað í genunum. Riddarar mið- alda og hermenn Húnakonungs hafa eflaust verið bifhjólabullur síns tíma og þannig hefur mót- orhjólamaðurinn þróast í gegnum árþúsundir til dagsins í dag sem grein af Homo sapiens. Það er engin rökrétt skýring, það bara er, og annaðhvort skilur maður þetta eða ekki. Þegar ég sest á mót- orhjól þá fer um mig vellíð- unarstraumur og mér finnst ég vera kominn heim. Annars var það Skúli vinur minn Gautason sem kom mér á bragðið á sínum tíma.“ Dularfull auglýsing í blaði Við Skúli vorum alltaf eitthvað að skverast þetta á hjólunum, aleinir út um allar trissur, nótt sem nýtan dag, eins og allir hinir. Einn daginn sáum við auglýsingu í blaðinu. Þetta var svona hálfdul- arfull auglýsing þar sem öllum þeim sem áhuga hefðu var boðið að mæta í blokkaríbúð í Breiðholt- inu til þess að ræða um stofnun mótorhjólaklúbbs. Það var Lúðvík nokkur Vilhelmsson sem var svo framsýnn, að hann reyndi að smala saman öllum mót- orhjólatöffurum heimsbyggð- arinnar. Það komu um það bil 20 manns sem drukku kaffi og settu á laggirnar undirbúningsnefnd. Það endaði svo, eða byrjaði öllu heldur, á stofnfundinum í Þrótt- heimum þar sem samþykkt var eftir nokkurt málþóf að barnið skyldi heita „Bifhjólasamtök lýð- veldisins, Sniglar“. Þetta þótti öll- um afskaplega vel við hæfi, mátu- lega virðulegt og þvert á stereótýpuímyndina um tattó- veraða útúrsukkaða hraðafíkla. Það skipti engum togum, það spratt upp einhver samkennd úr malbikinu. Allir harðsvíruðu gaur- arnir sem áður hummuðu eitthvað inni á bak við lokað glerið í hjálm- inum, eða flýttu sér að gíra niður, gefa í og hverfa, stoppuðu allt í einu, tóku ofan hattinn og fóru að spjalla. Járnrassinn gamall draumur En hvað ætli fái fimmtugan mótorhjólamann til að aka 24 tíma í hnakknum til þess eins að komast á blað hjá samtökum sem kenna sig við Járnrass? „Það hefur sem betur fer alltaf verið til fullt af biluðum bif- hjólabullum, og margir hafa keyrt langar vegalengdir í einu striki sér til skemmtunar. Halldór vinur minn Sigtryggsson og Biggi Guðna áttu það til dæmis til að skreppa frá Reykjavík til Ólafs- fjarðar og fá sér ís hér í den, til þess eins að brenna í bæinn aftur áður ein leifarnar af súkku- laðidýfunni náðu að bráðna í ruslafötunni. Ég heyrði af þessu fyrirbæri, Járnrassareið, fyrir mörgum árum og í gamla daga lék- um við okkur að hugmyndinni um að keyra hringinn, þjóðveg númer eitt, non stopp. Við skipulögðum aldrei þessa Hringrassareið en þegar ég rakst á „Iron Butt Asso- ciation“, samtök sem helga sig langakstri, skjalfestum og stað- festum af vitnum, stóðst ég ekki mátið.“ Hið heilaga tvíeyki Þrír Íslendingar hafa klárað þessa sömu reið og Þormar, en stysti leggurinn kallast „Saddle- Sore“ og er 1.000 mílur eða 1.600 km og á að aka hann á undir 24 tímum. „Við rottuðum okkur sam- an fimm strákar og ákváðum að slá tvær flugur í einu höggi. Skreppa til Faaker See í Austurríki á „European Bike Week“ sem haldin er þar árlega og keyra Iron- Butt á leiðinni niðureftir. Þetta er víst þriðji fjölmennasti mót- orhjólaviðburður í heimi, ca. 80.000 hjól koma þessa viku til Faaker See og allt, bókstaflega allt er undirlagt af mótorhjólum. Hér er heldur engin rökrétt skýring. Ég gat, vildi og þurfti að fara út fyrir þægindarammann. Þegar ég keyri á nöðrunni minni, hristist og fýk til í vindhviðunum frá vörubílunum, þá er ég í núinu. Gúrúarnir kalla það hugleiðslu, sálfræðingarnir sálarró og guðsbörnin innri frið. Ég kalla það heilagt tvíeyki. Bif- hjólið og manninn.“ njall@mbl.is Ökuþórinn | Þormar Þorkelsson Fer út fyrir þægindarammann Örþreyttur en sáttur eftir dagsverkið að keyra 1.600 km í einum rykk. Þormar á leið yfir á í ferð nokkurra Snigla í Landmannalaugar árið 1985. Hjólið sem hann ekur á hann enn þann dag í dag. Ljósmynd/Helga Luna Þormar hefur lengi verið viðloðandi hjólamennsku og ber meðal annars ábyrgð á fyrri hluta nafnsins: Bifhjólasamtök lýðveldisins. Þormar gerir sig kláran ásamt einum af fjórum ferðafélögum sínum í Járn- rassareiðinni, Boye Hein. Fyrir aftan Þormar er Harley Davidson Softail- hjólið sem hann brúkaði til verksins.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.