Morgunblaðið - 01.04.2014, Qupperneq 7
Bílabúð Benna hefur í samstarfi
við General Motors (GM), fram-
leiðanda Opel og Chevrolet, kom-
ist að samkomulagi um að Bíla-
búð Benna taki við umboði fyrir
Opel á Íslandi.
„Jú, það er rétt, Bílabúð Benna
mun taka við Opel á Íslandi, enda
Opel í eigu General Motors, sem
einnig framleiðir Chevrolet. Bíla-
búð Benna tekur yfir alla þjón-
ustu við Opel-viðskiptavini á
næstunni,“ sagði Skúli K. Skúla-
son, framkvæmdastjóri sölusviðs
BL ehf., sem vill nota tækifærið
og þakka öllum Opel-við-
skiptavinum BL fyrir ánægjuleg
viðskipti á liðnum árum.
„Það eru spennandi tímar
framundan fyrir Bílabúð Benna.
Við höfum náð flottum árangri
með Chevrolet á undanförnum
árum og nú bætum við Opel í
okkar vöruframboð. Við munum
leggja áherslu á að veita Opel-
eigendum fyrsta flokks þjónustu
hér eftir sem hingað til auk þess
að bjóða gott úrval bíla á sam-
keppnishæfu verði,“ segir Bene-
dikt Eyjólfsson, eigandi Bíla-
búðar Benna ehf.
Rætur Opel ná meira en öld
aftur í tímann þegar Adam Opel
lagði grunninn að fyrirtækinu. Í
meira en 110 ár hefur Opel hann-
að bíla, undir einkunnarorðunum
„Wir leben Autos“ eða „Við lifum
fyrir bíla“. Opel er vinsæll um all-
an heim og á einnig farsæla sögu
hér á landi. Það má því segja að
Opel, sem lifir fyrir bíla, eigi vel
heima hjá Bílabúð Benna, sem
hefur verið drifið áfram af ein-
skærum bílaáhuga í tæplega 40
ára sögu fyrirtækisins, eins og
segir í tilkynningu frá fyrirtæk-
inu.
jonagnar@mbl.is
Erna Gísladóttir forstjóri BL og Benedikt Eyjólfsson eigandi Bílabúðar
Benna handsala samning um framtíðarskipan Opel á Íslandi.
Bílabúð Benna tekur við
Opel-umboðinu af BL
Opel á Íslandi flytur sig um set
Smáauglýsingar
Bílar
TIL SÖLU MMC PAJERO INTENSE
dísel, sjálfskiptur, árg. 12/2007, ekinn
AÐEINS 82 þús. km. 7 manna með
dráttarbeisli, húddhlíf og upphækkun. Ný-
upptekin bremsukerfi, diskar, klossar og
dælur. Ný heilsársdekk 33 tommu. Ásett
verð kr. 4.490 þús. Staðgreiðslutilboð kr.
4.150 þús. Upplýsingar í síma 695 5125.
Nýr 2014 Ford Transit 17 manna BUS.
Háþekja. Þaklúga. Loftkæling. Til sýnis á
staðnum. ATH! þessir bílar liggja ekki á
lausu og erfitt að fá þá fyrir sumarið.
Verð miðað við hópferðaleyfi og án vsk:
Kr. 5.990.000,-
www.sparibill.is
Fiskislóð 16 - sími 577 3344.
Opið kl. 12-18 virka daga.
Gamall forstjórabíll, árg. 2003, ekinn 143
þús. km, 4700cc, bensín, ljóst leður, 7 manna,
sóllúga, TEMS-fjöðrun, krókur og kælibox.
Vel með farinn bíll og mjög þægilegur í akstri.
Ásett verð 5,3 mkr eða tilboð. S. 821 0117.
Góður Volvo, árg. 2003 ekinn 105 þús. km
205 hö., sjálfskiptur, leður og krókur. Vetrar-
og sumardekk á felgum, ný tímareim o.fl. Fjór-
hjóladrifinn og flottur bíll. Ásett verð 1,9 m.kr.
S. 897 6759, Ásgeir.
þá er komið til móts við kröfur al-
mennings sem ekki hefur viljað
einn sæta afleiðingum krepp-
uráðstafana og hefur krafist nið-
urskurðar á bruðli og sporslum
valdamanna.
Líklega eru tveir dýrustu bílarnir
í eigu dómsmálaráðuneytisins en
þar er um að ræða eðalvagna af
gerðinni Jaguar. Fylgir fregnum að
floti ráðuneytisins hafi um síðustu
áramót verið 830 bílar og þeim
hafi öllum fylgt bílstjóri.
Deilt hefur verið á bílabruðlið
hjá ítalska ríkinu. Fátt var um svör
er dómsmálaráðuneytið var spurt
hvers vegna það hefði keypt 400
hestafla Jagúar ofursportbíl til að
flytja embættismann milli fund-
arstaða í Róm á götum sem eru
jafnan ekki til hraðaksturs vegna
þrengsla og umferðartafa. Þessi
bíll er nú til sölu og rúmlega 20
aðrir úr flota ráðuneytisins,
þ. á m. bílar af gerðunum Lancia,
Audi og Volvo.
agas@mbl.is
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. APRÍL 2014
BÍLAR 7
S
tórir eða litlir, viðráð-
anlegir eða of dýrir;
borgarjeppar eða -jepp-
lingar voru á hverju strái
á bílasýningunni í Genf. Og það
sem meira er, framleiðendur lúx-
usbíla virðast ætla að sveigja inn
á braut jeppasmíði enda um
ábatasaman markað að ræða.
Ein af stjörnum sýningarinnar
var hinn nýi jeppi Macan sem
Porsche frumsýndi þar. Sýning-
argestir sveimuðu í kringum
þennan spengilega og glæsilega
bíl. „Ég get staðfest að við höfum
fengið miklu fleiri pantanir en við
bjuggumst við, spurnin eftir hon-
um er afar kröftug,“ sagði sölu-
og markaðsstjóri Porsche, Bern-
hard Maier, við fréttastofuna AFP.
Hann sagði að áður en sýningin
var úti hefði kaupendalistinn verið
það langur, að þeir sem væru aft-
ast á honum þyrftu að bíða
minnst sex mánuði eftir eintaki
sínu.
Löngum smíðaði Porsche nær
einvörðungu sportbíla en er nú
eiginlega í fararbroddi lúx-
usbílaframleiðenda á leið inn í
aukna jeppasmíði. Sló hann takt-
inn með lúxusjeppanum Cayenne
í aldarbyrjun en hann einn og sér
selst nú meira en öll önnur módel
Porsche saman.
Og nú teflir þýski bílsmiðurinn
fram systurjeppa Cayenne í formi
Macan sem birtist í söluskálum í
Evrópulöndum með vorinu og
kostar þar frá um 60.000 evrum
eintakið, eða um 10 milljónir
króna.
Jeppageirinn hefur vaxið hraðar
en nokkur annar stærðarflokkur
fólksbíla. Smærri lúxusjeppar og
-jepplingar hafa höfðað til yngri
kaupenda sem enn hafa ekki
bundist tryggðum við neitt eitt
bílamerki. Það er hópur sem bíla-
framleiðendur hafa svermað fyrir.
„Dæmið með Porsche sýnir að
fyrir hendi er eftirspurn eftir nýrri
bílagerð í flokki lúxusbíla,“ sagði
Stefan Bratzel, sérfræðingur um
þýska bílsmíði, við AFP. Hann seg-
ir „kjarnsýru“ sportbílasmiðsins
endurspeglast í Macan innan sem
utan og búnaði hans og íhlutum.
Fjöldi framleiðenda lúxusbíla
stefnir sömu leið og Porsche, svo
sem Bentley, Maserati og Lam-
borghini. Hinn breski Bentley lof-
ar ofurjeppa fyrir auðkýfinga inn-
an tveggja ára. Er það liður í
tilraunum fyrirtækisins til að tvö-
falda bílaframleiðslu sína á næstu
fjórum árum, í 15.000 eintök á
ári.
Sérfræðingar í Genf töldu að
þessi jeppi myndi sennilega kosta
kringum 180.000 evrur; verð sem
markhópur Bentley í Rússlandi,
Kína og Mið-Austurlöndum myndi
ekki kveinka sér yfir.
Lamborghini frumsýndi fyrir
tveimur árum hugmyndajeppann
Urus en bíður enn eftir grænu
ljósi á að hefja smíði hans frá
æðstu stjórn Volkswagen-
samsteypunnar. Ítalski sportbíla-
smiðurinn heyrir henni til, rétt
eins og bæði Bentley og Porsche.
„Möguleikar hans yrðu mestir í
Bandaríkjunum, Mið-Aust-
urlöndum, Kína og í nokkrum Evr-
ópuríkjanna,“ sagði forstjóri Lam-
borghini, Stephan Winkelmann.
Og Maserati, sem heyrir Fiat-
samsteypunni til, hefur gefið til
kynna að lúxusborgarjeppling-
urinn Levante gæti komið á göt-
una á næsta ári.
Loks segist Rolls-Royce hinn
breski, sem er í eigu BMW, einnig
vera að kanna fýsileika þess að
láta til sín taka í smíði smárra
jeppa. Þar togast á viðskiptalegir
hagsmunir og ímynd, en fyr-
irtækið óttast að sál táknmerk-
isins myndi hverfa með því.
„Jeppageirinn er mjög áhuga-
verður. En stóra spurningin er
hvort við getum hannað og þróað
bíl sem væri raunsannur Rolls-
Royce,“ segir sölustjórinn Jolyon
Nash hjá breska lúxusbílsmiðnum
við AFP.
Land Rover, sem skóp á sínum
tíma fyrstur fjórdrifinn lúxusj-
eppa, segist ekki óttast nýja
keppendur á sínum hefðbundna
markaði. Loks ætlar Jaguar að
skerast í leikinn á jeppamarkaði.
Boðaði breski bílsmiðurinn, sem
eins og Land Rover er þó í eigu
indverska fyrirtækisins Tata Mot-
ors, áformað strandhögg sitt með
hugmyndabílnum C-X17 í fyrra-
haust. Því er ljóst af fram-
ansögðu, að kaupendur lítilla
jeppa munu hafa vaxandi úrval á
allra næstu árum.
agas@mbl.is
AFP
Lúxusframleiðendur hyggja flestir á framleiðslu smærri jeppa og þar
hafa Porsche verið í fararbroddi.
Lúxusbílasmiðir snúa
sér að jeppasmíði
Passaðu vel upp á rafgeyminn í vetur.
12v 7A
Nýtt
12v 5,5A12v 0,8A