Morgunblaðið - 01.04.2014, Síða 8
Í
dag, þriðjudaginn 1. apríl, eru
nákvæmlega 30 ár síðan
stofnfundur félagsskapar
sem við í daglegu tali köllum
Snigla var haldinn. Fyrsti fund-
urinn var reyndar haldinn daginn
áður, en honum var framhaldið
daginn eftir og þar fékk barnið líka
nafnið, Bifhjólasamtök lýðveld-
isins, Sniglar. Fundarstaðurinn var
félagsheimilið Þróttheimar og í til-
efni að þessu stórafmæli halda
Sniglar þar Sniglaveislu í kvöld á
gamla fundarstaðnum. En hver
skyldi nú hafa verið tilgangurinn
með stofnun þessa félagsskapar?
Í upphafi var tilgangurinn einfald-
lega sá að sameina mótorhjólafólk
og fá það til að taka niður hjálm-
ana þegar það hittist. Fljótlega
vatt það þó upp á sig og óhætt er
að segja að Sniglar hafi komið að
mörgu verkinu á 30 ára ferli sín-
um.
Þróttmikið félagsstarf
Fyrstu árin var starfið fé-
lagsmiðað að mestu og mikið púð-
ur fór í að skipuleggja skemmti-
legar ferðir vítt og breitt um
landið. Var farið á götuhjólum í
Landmannalaugar og um Vestfirði
svo eitthvað sé nefnt. Landsmót
var skipulagt árið 1987 og á það
mót mættu um 120 gestir, margir
þeirra á hjólum. Óslitin hefð hefur
verið fyrir landsmóti fyrstu helgina
í júlí síðan þá. Sniglar sinntu lengi
vel gæslu víða og kom það fyrst til
vegna neyðarástands sem kom
upp við ferjuna Smyril á Þjóðhátíð
1986. Mikill mannfjöldi reyndi að
ryðjast um borð en Sniglar sem
þarna voru komnir til að taka þátt
tóku sig til og pössuðu að hleypa
inn á bryggjuna í skömmtum svo
að enginn træðist undir. Sú rögg-
semi spurðist út og fljótlega höfðu
Sniglar nóg að gera við gæslu.
Fyrst og fremst
hagsmunasamtök
Hagsmunagæsla hefur þó
löngum verið það sem að starf Bif-
hjólasamtaka lýðveldisins snýst
um. Sniglar hafa löngum beitt sér
fyrir slysavörnum á einn eða ann-
an hátt. Fyrst kom það til með ár-
legum vorfundum Snigla og lög-
reglunnar með Ómar Smára
Ármannsson í forsvari. Árið 1992
gáfu svo Sniglar út fyrsta forvarn-
arefni sitt en það voru fimm sjón-
varpsinnskot sem einnig voru
sýnd í bíóhúsum. Vakti
efnið athygli og þá
einnig út fyrir land-
steinana. Sama ár
urðu líka miklar
hækkanir á bif-
hjólatryggingum
og Sniglar gagn-
rýndu bifhjóla-
kennslu sem var
lítil sem engin.
Þegar samtökin
urðu 10 ára var haldin
vegleg afmælissýning í
Laugardalshöll þar sem um 200
mótorhjól voru til sýnis. Árið 1995
gengu Sniglar í Evrópusamtök bif-
hjólafólks (FEMA) og eru þar enn.
Umferðarátak hefur verið nánast
árlegur viðburður hjá sam-
tökunum og 1997 voru
gerð fleiri sjónvarps-
innskot. Sniglar létu
gera slysarann-
sókn árið 2001
sem náði yfir öll
slys á 10 ára tíma-
bili, frá 1991-
2000. Nokkrum
árum seinna fengu
Sniglar fulltrúa í Um-
ferðarráði sem þeir
hafa haldið síðan. Síðustu
ár hafa Sniglar látið enn meira til
sín taka í hagsmunastarfi bif-
hjólafólks og haft áhrif á breytingu
á umferðarlögum, átt í góðu sam-
starfi við Vegagerðina um betri
vegi fyrir bifhjólafólk og haft full-
trúa í starfshópi innanríkisráðu-
neytis um umferðaröryggi, De-
cade of Action.
Trúarjátning bifhjólamanns-
ins:
Ég trúi á bifhjólið, tákn frels-
isins.
Ég trúi á heilagt tvíeyki, bifhjólið
og manninn.
Ég trúi á lífið og bensínið,
bremsurnar og dauðann
og inngjöf að eilífu.
njall@mbl.is
Bifhjólasamtök lýðveldisins, Sniglarnir, eiga stórafmæli í dag
Mótorhjólasamtök í 30 ár
Ljósmynd/Njáll Gunnlaugsson
Ljósmynd/Guðlaug S. Sigurðurdóttir
Úr einni af ferðum Snigla á fyrstu árum samtakanna, tekin við Fossnesti
á Selfossi. Samhugur meðal vélhjólafólks varð mikill strax í upphafi.
Ljósmynd/Gunnar Gunnarsson
Eitt af því sem Sniglar hafa barist fyrir eru undirakstursvarnir á vegrið til
að auka öryggi bifhjólafólks, en þær geta skilið milli lífs og dauða.
Frá hinum árlega hátíðardegi
mótorhjólafólks á Íslandi sem er
1. maí en þá fara Sniglar og fleiri
í hópkeyrslu sem endað hefur
síðustu misseri á Kirkjusandi.
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. APRÍL 2014
8 BÍLAR