Morgunblaðið - 02.04.2014, Side 1
MIÐVIKUDAGUR 2. APRÍL 2014
ÍÞRÓTTIR
Jóhann Berg Reiknar með að fara til Englands, Ítalíu eða Spánar í sumar. Kom aldrei til greina að vera
lengur eftir fimm ára dvöl hjá AZ Alkmaar. Fær ekki að spila mikið síðustu vikur tímabilsins. 4
Íþróttir
mbl.is
Rúnar Kárason,
landsliðsmaður í
handknattleik
og leikmaður
þýska liðsins
Hannover-
Burgdorf,
gekkst í gær
undir aðgerð á
hægra hné þar
sem lagað var
krossband sem
slitnaði á æfingu fyrir viku. Að-
gerðin fór fram hér á landi.
Bæklunarlæknarnir Brynjólfur
Jónsson og Örnólfur Valdimars-
son gerðu aðgerðina en þeir sáu
einnig um að gera við kross-
bandið í vinstra hné Rúnars þeg-
ar það slitnaði sumarið 2012.
Harla óvenjulegt er að aðgerð-
ir vegna krossbandaslits séu
gerðar svo stuttu eftir að bandið
slitnar.
Brynjólfur og Örnólfur hafa ár-
um saman verið læknar íslenska
landsliðsins í handknattleik.
Rúnar sagði við Morgunblaðið
að aðgerðin fyrir tveimur árum
hefði gengið vel og hnéð litið vel
út. Þar af leiðandi hefði hann
viljað gangast undir aðgerð hjá
þeim félögum á nýjan leik.
Reikna má með að Rúnar verði
frá keppni næstu sjö mánuði, hið
minnsta. iben@mbl.is
Gekkst undir
aðgerð réttri
viku eftir slit
Rúnar
Kárason
Nær fullvíst má telja að Halldór Jóhann Sigfús-
son, þjálfari Íslandsmeistara Fram í handknatt-
leik kvenna, hætti með liðið eftir núverandi leiktíð
og verði annar þjálfari karlaliðs ÍBV frá og með
næsta keppnistímabili. Þetta hefur Morgunblaðið
samkvæmt heimildum. Viðræður hafa staðið yfir
síðustu daga á milli forsvarsmanna ÍBV annars
vegar og Halldórs Jóhanns hinsvegar. „Það er
gagnkvæmur áhugi hjá báðum aðilum til þess að
þetta gangi upp með samkomulagi,“ sagði heim-
ildarmaður Morgunblaðsins í gærkvöldi.
Ef af verður mun Halldór Jóhann starfa við hlið
Gunnars Magnússonar sem annar af aðalþjálf-
urum karlaliðs ÍBV og leysa af Arnar Pétursson
sem nú þjálfar Eyjaliðið með Gunnari og mun
gera út keppnistímabilið. Arnar hefur í hyggju að
taka sæti í stjórn handknattleiksdeildar ÍBV.
Halldór Jóhann er nú að ljúka sínu öðru keppn-
istímabili með kvennalið Fram en undir hans
stjórn varð Fram Íslandsmeistari í fyrir ári. Hann
var fyrir skömmu orðaður við þjálfarastarfið hjá
karlaliði FH en ljóst má vera að ekkert verður af
þeim vistaskiptum fari Halldór Jóhann til Vest-
mannaeyja, eins og margt bendir til.
Framundan er hins vegar leit að þjálfara fyrir
kvennalið Fram, hvernig sem allt fer. Halldór Jó-
hann mun ljúka keppnistímabilinu með Safamýr-
arliðinu sem mætir Gróttu í fyrstu umferð úr-
slitakeppni Olís-deildar kvenna sem hefst í næstu
viku. iben@mbl.is
Halldór Jóhann til Eyja?
Hættir með kvennalið Fram í vor Ætlað að starfa við hlið Gunnars hjá ÍBV
FÓTBOLTI
Sindri Sverrisson
sindris@mbl.is
„Ég tók fyrstu heilu æfinguna mína í
æfingaferð í Tyrklandi í síðustu viku.
Þar náði ég að taka eina æfingu í 90
mínútur, þannig að ég er bara að
koma til baka. Það er alveg yndisleg
tilfinning,“ sagði Guðný Björk Óðins-
dóttir, landsliðskona í knattspyrnu,
við Morgunblaðið.
Guðný er aðeins 25 ára gömul en
er nú í fjórða sinn að jafna sig eftir að
hafa slitið krossband í hné. Síðast
slitnaði krossband á æfingu lands-
liðsins á Evrópumótinu í Svíþjóð síð-
asta sumar. Þrátt fyrir ráðleggingar
um að láta gott heita, koma takkas-
kónum fyrir uppi í hillu, hefur slíkt
aldrei hvarflað að Guðnýju og hún
stefnir nú á að taka fullan þátt með
Kristianstad seinni hluta tímabilsins
í sænsku úrvalsdeildinni, þegar líða
tekur á sumarið.
„Ég er að koma tilbaka en ég geri
það mjög rólega. Það var gott að vera
á grasi og í hitanum í Tyrklandi en ég
fer varlega. Ég er búin að taka þátt í
boltaæfingum þrisvar í viku, síðustu
3-4 vikurnar, og var svo nánast 100%
með í Tyrklandi fyrir utan þegar ver-
ið var að spila,“ sagði Guðný.
Ætlaði að hvíla út þetta ár
„Markmið mitt var að hvíla mig
bara út þetta ár en endurhæfingin
hefur gengið svo rosalega vel. Ég er
alveg verkjalaus og búin að vera að
taka ýmiss konar próf sem sýna að
ég er sterkari í vinstra hnénu, sem
ég sleit. Þetta lítur allt mjög vel út en
mig vantar kannski aðeins meiri
styrk í hnéð sem ég vil ná áður en ég
byrja í of miklum fótbolta. Ég klára
skólann í lok maí og stefni á að ein-
beita mér alfarið að fótboltanum eftir
það. Ég mun spila fótbolta í ár, hvort
sem ég byrja núna í apríl, maí eða
júní,“ sagði Guðný.
Fyrsti leikur Kristianstad er gegn
Tyresö eftir 11 daga. Liðið leikur 12
leiki í deildinni áður en við tekur
mánaðarlangt hlé í byrjun júlí.
„Eftir hléið stefni ég á að geta spil-
að 90 mínútur,“ sagði Guðný. „Ég tek
það rólega fyrstu vikurnar og mán-
uðina, og kem kannski inn af bekkn-
um í 10-15 mínútur í leik,“ bætti hún
við. Guðný segir það aldrei hafa kom-
ið til greina að hætta, þrátt fyrir að
sjúkraþjálfari hennar hafi alls ekki
talið ráðlegt að hún spilaði fótbolta á
þessu ári.
Hjólastóll í afmælisgjöf?
„Ég fékk mjög misvísandi skila-
boð. Læknirinn sagði að það yrði
ekkert mál fyrir mig að byrja að spila
aftur sex mánuðum eftir aðgerð.
Sjúkraþjálfarinn sagði að ef ég ætl-
aði að spila fótbolta aftur strax á
næsta ári þá myndi hann gefa mér
hjólastól í afmælisgjöf! Ég vissi því
ekki alveg hvað ég ætti að gera en
ákvað bara að taka þessu mjög ró-
lega, og að taka endurhæfinguna það
vel að ég myndi verða alveg verkja-
laus. Ég finn ekkert til í hnénu og
þetta gekk allt betur en ég bjóst við,“
sagði Guðný.
„Það kom aldrei til greina að
hætta. Ég var alltaf með það í huga
að koma aftur tilbaka. Ég stefndi
ekkert á að gera það of fljótt, enda
var ég ekki í kapphlaupi við að ná
neinu af síðasta tímabili. Núna eru
sjö mánuðir síðan ég sleit kross-
bandið og nýtt tímabil að hefjast.“
Spila fyrir sálina, ekki peninga
Samningur Guðnýjar við Kristi-
anstad rann út eftir síðasta tímabil
en hún hefur þó æft með liðinu eins
og hún getur, undir stjórn Elísabetar
Gunnarsdóttur. Guðný hefur verið
hjá liðinu síðan Elísabet fékk hana
frá Val, í nóvember 2008.
„Ég bý hérna, er í skóla og á kær-
asta hérna, þannig að ég er ekkert að
fara héðan. Ég er skráð í Kristians-
tad þó að ég sé ekki á samningi, enda
vill ekkert félag gera samning við leik-
mann sem hefur slitið krossband fjór-
um sinnum. Það er bara bónus að fá
samning, enda er ég ekkert að spila
fótbolta fyrir peningana heldur sál-
ina,“ sagði Guðný sem er bjartsýn fyr-
ir hönd Kristianstad eftir erfitt tíma-
bil á síðasta ári. Síðan þá hefur liðið
m.a. misst Margréti Láru Viðars-
dóttur en fengið systur hennar, Elísu,
í staðinn.
„Við spiluðum við Malmö, eða Ro-
sengård eins og það heitir núna, í gær
[innsk.: sem fór 1:1] og þetta lítur
mjög vel út núna. Við erum búnar að
spila okkur mjög vel saman og tíma-
bilið er ljóst. Stemningin hefur aldrei
verið betri. Þjálfararnir eru búnir að
gera mjög vel og leggja mikla áherslu
á að fá allt sem þeir geta út úr hverj-
um leikmanni,“ sagði Guðný.
„Kom aldrei
til greina að
hætta“
Guðný Björk er byrjuð að æfa á ný
eftir fjórðu krossbandsslitin
Sjúkraþjálfarinn vildi að hún hætti
Ljósmynd/Algarvephotopress
Óheppin Guðný Björk Óðinsdóttir lék sinn 35. landsleik þegar Ísland mætti
Þýskalandi á EM í Svíþjóð síðasta sumar en slasaðist síðan á æfingu.
2. apríl 1967
Íslenska karlalandsliðið í körfu-
knattleik sigrar Dani, 61:51, í
vináttulandsleik í
Laugardalshöll.
Þetta er fyrsti
heimaleikur Ís-
lands gegn Norð-
urlandaþjóð en
fjórði sigurinn á
Dönum í röð. Nýlið-
inn Þórir Magnússon skorar 14
stig fyrir íslenska liðið og Krist-
inn Stefánsson 10.
2. apríl 1995
Guðni Bergsson spilar fyrstur ís-
lenskra knattspyrnumanna úr-
slitaleik á Wembley-leikvang-
inum í London. Guðni, sem er
nýkominn til liðs við Bolton,
kemur inná sem varamaður í úr-
slitaleik deildabikarsins gegn
Liverpool og leggur upp mark
með sinni fyrstu snertingu í
leiknum. Liverpool vinnur þó
leikinn, 2:1.
2. apríl 1997
Íslenska karlalandsliðið í hand-
knattleik sigrar Kínverja, 27:24,
í vináttulandsleik sem fram fer á
Ísafirði. Patrekur Jóhannesson
skorar 7 mörk fyrir Ísland og
Júlíus Jónasson 6.
Á ÞESSUM DEGI