Morgunblaðið - 02.04.2014, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 02.04.2014, Blaðsíða 4
4 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. APRÍL 2014 0 kr. útborgun Langtímaleiga Langtímaleiga AVIS er þægilegur, sveigjanlegur og umfram allt skynsamlegur kostur þegar kemur að rekstri bifreiða. Í langtímaleigu fæst nýr eða nýlegur bíll, engin útborgun, tryggingar innifaldar, engin endursöluáhætta og ekkert vesen við dekkjaskipti, olíuskipti eða smáviðhald. Losnaðu við vesenið með langtímaleigu Kynntu þér málið í síma 591-4000 Á R N A S Y N IR Svo kann að fara að Guðmundur Þórður Guðmundsson og lærisvein- ar hans í þýska handknattleiksliðinu Rhein-Neckar Löwen leiki fjóra stórleiki á einni viku eftir miðjan apríl. Í gær drógust þeir gegn Spán- armeisturum Barcelona í 8-liða úr- slitum Meistaradeildar Evrópu. Fyrri leikurinn fer sennilega fram 19. eða 20. apríl. Hinn 12. apríl leikur Löwen við Flensburg í undan- úrslitum þýsku bikarkeppninnar og vinni Löwen leikinn leikur það til úr- slita daginn eftir. Miðvikudaginn 16. apríl tekur Löwen á móti þýsku meisturunum Kiel á heimavelli en úrslit þess leiks geta ráðið úrslitum um hvort liðið hampar þýska meist- aratitlinum í vor. Síðari leikur Löwen og Kiel í Meistaradeildinni fer fram 26. eða 27. apríl. Þar með bætist við fimmti hörkuleikurinn hjá liðinu á skömm- um tíma. Með Löwen leika m.a. landsliðsmennirnir Alexander Pet- ersson og Stefán Rafn Sigurmanns- son og ljóst að þeir munu fá litla hvíld í kringum páskana. Þýskalandsmeistarar Kiel, sem Alfreð Gíslason þjálfar og Aron Pálmarsson og Guðjón Valur Sig- urðsson leika með, mæta Metalurg frá Makedóníu í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar og á Kiel síð- ari leikinn á heimavelli. Ólafur Gústafsson og samherjar í Flensburg drógust gegn Vardar Skopje, einnig frá Makdóníu. Flens- burg leikur fyrri leikinn á heima- velli. Ásgeir Örn Hallgrímsson og Ró- bert Gunnarsson og félagar í Paris SG leika við ungversku meistarana Veszprém í 8-liða úrslitum Meist- aradeildarinnar og eiga heimaleik- inn í fyrri umferðinni. iben@mbl.is Morgunblaðið/Golli Þjálfari Guðmundur Þ. Guðmunds- son hefur í mörg horn að líta. RN-Löwen gæti leikið fjóra úrslitaleiki á viku FÓTBOLTI Sindri Sverrisson sindris@mbl.is „Það kom aldrei til greina að vera áfram. Ég er búinn að vera hérna í fimm ár og langaði að prófa eitt- hvað nýtt – spila í öðru landi. Ég er á fínum aldri til þess,“ sagði Jóhann Berg Guðmundsson, landsliðsmaður í knattspyrnu, við Morgunblaðið. Lengi hefur legið fyrir að Jóhann færi frá hollenska úrvalsdeildar- félaginu AZ í sumar en félagið stað- festi það endanlega á mánudaginn. Jóhann er í hollenskum miðlum sterklega orðaður við ensku úrvals- deildina og því til stuðnings nefnt að hann hafi í fyrra samið við ensku umboðsskrifstofuna Stellar Group. „Þeir eru náttúrlega mjög stórir í Englandi og þá halda menn kannski að ég sé sjálfkrafa að fara til Eng- lands. En þeir eru stærri umboðs- skrifstofa en það, með alvöru karla á borð við Gareth Bale hjá sér, og með sambönd víða,“ sagði Jóhann. Hann segir margt koma til greina en fastlega má reikna með að hann spili í efstu deild Englands, Ítalíu eða Spánar á næstu leiktíð. „Mikill áhugi“ „Ég hef að sjálfsögðu fulla trú á að ég geti spilað þar [í ensku úr- valsdeildinni] og öllum þessum stóru deildum, en það verður auð- vitað bara að koma í ljós,“ sagði Jó- hann. „Ég útiloka ekki neitt en ég enda líklega á Ítalíu, Spáni eða Englandi. Það er hins vegar ekkert klárt, þó að það sé mikill áhugi, og maður vill ekkert kvitta undir neins staðar al- veg strax. Ég ætla bara að taka það rólega enda eru sum félög ekkert byrjuð að skoða hvað gerist fyrir næsta ár, en það eru nokkur lið mjög spennt,“ sagði Jóhann. Hann segir árangurinn með íslenska landsliðinu í fyrra ekki spilla fyrir framtíðaratvinnuhorfum: „Ég spilaði náttúrlega mikilvægt hlutverk undir lokin í undankeppn- inni og það að sjálfsögðu hjálpar mjög mikið. Hver einasti lands- leikur, sérstaklega á svona stóru sviði eins og við vorum að spila á, hjálpar til.“ Kaflaskipt tímabil Fyrir áramót var Jóhann fasta- maður í byrjunarliði AZ. Eftir að félagaskiptaglugginn lokaðist í jan- úar, og ljóst varð að hann færi frítt frá félaginu í sumar, hefur knatt- spyrnustjórinn Dick Advocaat hins vegar aldrei haft Jóhann í byrj- unarliði í deildaleik. Tímabilið hefur því verið kaflaskipt, rétt eins og vera Jóhanns í heild hjá félaginu sem hann kom til frá Breiðabliki ár- ið 2009. „Auðvitað hefur þetta verið upp og niður. Það hafa komið góðir tímar en einnig minna góðir. En ég tel mig hafa orðið að betri fótbolta- manni hér og vonandi mun það bara sjást í næstu deild sem ég spila í,“ sagði Jóhann sem fagnaði fyrsta stóra titlinum sínum í fyrra, þegar AZ varð bikarmeistari. Vonlítill um að mæta Benfica „Það stendur auðvitað upp úr að hafa náð að spila þennan úrslitaleik í bikarnum og vinna hann. Það var alveg frábært. Svo standa einnig upp úr stórleikir við Valencia í Evr- ópudeildinni,“ sagði Jóhann, sem býst ekki við að spila mikið í stór- leikjunum við Benfica í 8-liða úrslit- um Evrópudeildarinnar. Fyrri leik- urinn er annað kvöld. „Ég er ekkert að fara að spila þar. Ég er bara á bekknum núna, enda að fara í sumar. Þeir nota frekar leikmenn sem þeir gætu selt í sumar eða byggt upp sem framtíð- armenn. Það er alveg skiljanlegt að þetta sé þannig. Ég geri bara mitt besta þessa síðustu tvo mánuði fyrir liðið og svo verður gaman að prófa eitthvað nýtt.“ „Nokkur lið mjög spennt“  Jóhann Berg er á leið til Englands, Ítalíu eða Spánar  Hættir hjá AZ og kom aldrei til greina að vera áfram  Spilar lítið eftir að ljóst varð að hann færi AFP AZ Þrátt fyrir talsverða bekkjarsetu síðustu vikurnar er Jóhann Berg Guðmundsson búinn að spila 43 leiki með AZ á tímabilinu og skora í þeim 8 mörk. Þar af eru fimm mörk í Evrópudeildinni en hér er hann í leik gegn Liberec. Tveir ungir knattspyrnumenn eiga mikið hrós skilið fyrir að hafa stigið fram í nýliðnum mars- mánuði og skýrt frá sálrænum vandamálum sínum. Þar er ég að sjálfsögðu að tala um þá Ingólf Sigurðsson og Guðlaug Victor Pálsson. Ingólfur skýrði frá sínum málum í opinskáu viðtali við Orra Pál Ormarsson í sunnudagsblaði Morgunblaðsins og Guðlaugur Victor greindi frá því sem hann hefur gengið í gegnum í viðtali við Hjört Hjartarson í þættinum Ísland í dag á Stöð 2 í fyrrakvöld. Ljóst er að margir liðsfélagar þeirra hafa ekki haft minnstu hugmynd um veikindin, enda lýsti Guðlaugur Victor því vel hvernig hann hefði blekkt bæði sjálfan sig og aðra til þess að engan grunaði hvaða leyndarmál hann hefði að geyma. Ingólfur sagði frá svipuðum feluleik í sínu tilfelli þar sem hann taldi það rýra möguleika sína í liðinu að skýra frá veikindunum. Lýsingar þeirra beggja eru sláandi. Það þarf mikið hugrekki til að koma fram á þennan hátt, ekki síst þar sem þeir eru báðir á fullri ferð sem leikmenn í hörðum heimi fótboltans. En um leið er ljóst að báðir piltarnir hafa létt á hjarta sínu og stigið stór skref í átt að bata og betra lífi. Báðir eru þeir hæfileikaríkir fótboltamenn og eiga nú mun betri möguleika en áður á að fá að njóta sín á vell- inum. Og það sem ekki skiptir minna máli er að þeir Ingólfur og Guðlaugur Victor hafa opnað dyrnar fyrir fleirum sem kunna að vera í svipuðum sporum og þeir. Það er alveg ljóst að þeir eru ekki fyrstu íþróttamennirnir sem glíma við andleg veikindi, og ekki þeir síðustu. Umræða um þessi mál hefur hinsvegar verið lítil sem engin og henni ber að fagna. BAKVÖRÐUR Víðir Sigurðsson vs@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.