Morgunblaðið - 02.04.2014, Blaðsíða 3
ÍÞRÓTTIR 3
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. APRÍL 2014
Handknatt-leiksmað-
urinn Tandri Már
Konráðsson mun
ekki leika áfram
með TM Tönder í
dönsku 1. deild-
inni á næstu leik-
tíð en hann kom
til félagsins frá
HK fyrir tímabilið. Tandri Már
sagði við Morgunblaðið í gær að
hann stefndi ótrauður á að leika
áfram ytra og væri að skoða ýmsa
möguleika í þeim efnum um þessar
mundir.
Carlo Ancelotti þjálfari Real Ma-drid segist ekki ætla að tefla
Walesverjanum Gareth Bale í stöðu
vinstri bakvarðar nú þegar Bras-
ilíumaðurinn Marcelo er meiddur
og verður ekki með liðinu næstu
vikurnar. Bale hóf sinn feril sem
bakvörður en Ancelotti vill ekki
missa hann úr sóknarspili liðsins og
hyggst nota Coentrao í bakvarð-
arstöðunni. Real Madrid verður í
eldlínunni í kvöld en þá tekur liðið á
móti Dortmund í Meistaradeildinni.
Tveir íslenskirlandsliðs-
menn eru í úr-
valsliði Meist-
aradeildarinnar
fyrir frammi-
stöðu sína í 16-
liða úrslitum
Meistaradeild-
arinnar sem klár-
uðust í gær með sigri Löwen á móti
Kielce. Guðjón Valur Sigurðsson
úr Kiel er vinstri hornamaður í úr-
valsliðinu en hann skoraði 5 mörk í
stórsigri Kiel gegn úkraínska liðinu
Zaporozhye, 40:18. Róbert Gunn-
arsson úr Paris SG er línumaður í
úrvalsliðinu en hann skoraði 7 mörk
í sigri Parísarliðsins á móti Gorenje
Velenje, 34:25.
Bandaríski kylfingurinn TigerWoods hefur staðfest að hann
verði ekki með á Masters mótinu í
golfi sem fram fer á Augusta Nat-
ional vellinum og hefst í næstu viku.
Woods hefur glímt við meiðsli í baki
og fór í aðgerð vegna klemmdrar
taugar í bakinu. Þetta verður í
fyrsta skipti í 20 ár sem þessi sig-
ursæli kylfingur verður ekki á með-
al keppenda á Masters en hann hef-
ur fjórum sinnum borið sigur úr
býtum á mótinu, síðast árið 2005.
José Mour-inho, knatt-
spyrnustjóri
Chelsea, líkir liði
Paris SG við lið
Chelsea fyrir tíu
árum þegar hann
var eins og nú
við stjórnvölinn
hjá Lundúnalið-
inu. Paris SG og Chelsea eigast við
í fyrri leiknum í 8-liða úrslitum
Meistaradeildarinnar í París í
kvöld.
Zlatan Ibrahimovic, aðalstjarnaní liði Paris SG hefur útilokað að
hann spili í ensku úrvalsdeildinni en
Svíinn frábæri hefur orðið meistari í
fimm löndum með Ajax, Juventus,
Inter Mílanó, Barcelona, AC Milan
og Paris SG. „Ég er mjög ánægður
með mína stöðu og hef það gott í
París. Félagið hefur gert frábæra
hluti og ég á mesta möguleika á að
vinna Meistaradeildina með liðinu,“
sagði Zlatan við enska blaðið Gu-
ardian.
Ivano Balic leikur ekki með þýskaliðinu Wetzlar næstu sex til sjö
vikur eftir að hafa meiðst í kappleik
um síðustu helgi. Balic hefur verið
óheppinn á leiktíðinni og svo virðist
sem að mörg ár í boltanum seú far-
in að setja mark sitt á kappann.
Fólk sport@mbl.is
annan klúbb,“ segir Nonni sem lék
nær allan sinn feril fyrir liðið í
heimabæ sínum í Stykkishólmi, en
villtist þó reyndar í þrjú ár annað.
Hann lék fyrir ÍA, Stjörnuna og KR
– í eitt ár á hverjum stað en hefur
þó skýringar á því: „Ég fór í bæinn í
skóla á sínum tíma sem útskýrir
þessi stuttu brotthvörf mín úr
Stykkishólmi. En það að ég sé hætt-
ur núna útskýrist líka að sumu leyti
af því að ég er kominn með smá
leiða á körfunni og þá er tímabært
að segja þetta gott.“
Fólkið sem stendur upp úr
Nonni vann fjölmarga titla á ferl-
inum en spurður að því hvað stæði
upp úr talaði hann þó fremur um
samferðamenn sína. „Það sem
stendur upp úr eru fyrst og fremst
allir þessir frábæru einstaklingar
sem ég hef kynnst á ferlinum. Þjálf-
ararnir Bárður [Eyþórsson], Ingi
[Þór Steinþórsson] og Geof [Kotila],
allir leikmennirnir, stjórnarmenn og
aðrir sem koma að þessu. En titl-
arnir voru vissulega skemmtileg við-
bót við þetta allt saman. Það var
auðvitað ofboðslega gaman að vinna
Íslands- og bikarmeistaratitla með
sínum bestu félögum,“ segir Jón
sem telur sterkasta liðið sem hann
lék með hafa verið Snæfellsliðið árið
2010. „Alveg hiklaust. Þetta gekk
eins og í sögu þá leiktíð. Við reynd-
ar enduðum í 6. sæti í deildinni, eftir
að hafa misst menn í meiðsli hér og
þar á tímabilinu. En svo small allt
saman á réttum tíma,“ segir Nonni
sem skilur Mæju móður sína, kon-
una sem hann er oftar en ekki
kenndur við, eftir í Stykkishólmi nú
þegar hann flyst til Reykjavíkur.
Þó körfuboltaferli Jóns Ólafs sé
lokið var þó ekki hægt að sleppa
honum án þess að rýna í viðureign-
irnar sem framundan eru í undan-
úrslitum Íslandsmótsins, en þar
mætast KR og Stjarnan annars veg-
ar og Grindavík og Njarðvík hins
vegar, þar sem vinna þarf þrjá leiki
til að komast í úrslit.
Spáir Njarðvík og KR í úrslit
„Ég held að einvígi Grindavíkur
og Njarðvíkur verði mjög jafnt. Það
er frekar erfitt að segja til um það
hvernig það fer. Grindavík missti
náttúrlega mikið þegar Þorleifur
Árni [Ólafsson] meiddist. Það er
örugglega erfitt fyrir Grindvíkinga.
En þeir nú samt með hörkulið og
mikla breidd. En ég held að annað
hvort liðið vinni þessa rimmu 3:2. Ef
ég verð að velja annað liðið þá segi
ég bara Njarðvík. En meira til að
segja eitthvað,“ segir Jón Ólafur um
einvígi Njarðvíkur og Grindavíkur.
Hann var sjálfur í liði Snæfells
sem var sópað út af deildarmeist-
urum KR í 8-liða úrslitunum, 3:0, en
hefur trú á því að Stjarnan muni
vinna allavega einn leik gegn sterk-
um KR-ingum í undanúrslitunum.
„KR-ingar eru náttúrlega bara mjög
þéttir. Stjarnan hefur samt verið á
mjög góðu róli og pakkaði Keflvík-
ingum auðvitað saman. Stjörnu-
menn eru greinilega að spila sinn
besta leik á hárréttum tíma. Mig
grunar nú samt að KR vinni þessa
seríu 3:1 eða jafnvel 3:2,“ sagði
Hólmarinn Jón Ólafur Jónsson,
sannfærður um jöfn undan-
úrslitaeinvígi.
t ekki hugsað mér
pila annars staðar“
on eða Nonni Mæju lítur stoltur yfir körfuboltaferilinn Allt fólkið sem hann
p úr Flytur frá Stykkishólmi til Reykjavíkur og einbeitir sér að námi í sálfræði
Morgunblaðið/hag
Sigurstund Jón Ólafur Jónsson brosir breitt eftir að Snæfell tryggði sér Ís-
landsmeistaratitilinn með því að leggja Keflvíkinga vorið 2010.
MEISTARADEILDIN
Guðmundur Hilmarsson
gummih@mbl.is
1:1 jafntefli varð niðurstaðan í fyrstu
tveimur leikjunum í átta liða úrslitum
Meistaradeildarinnar í gær þar sem
Manchester United og Evrópumeist-
arar Bayern München áttust við á Old
Trafford og Barcelona og Atlético
Madrid á Camp Nou.
Þýska hraðlestin frá München var
með boltann 67% á móti United en
Englandsmeistararnir léku af mikilli
skynsemi og gáfu fá færi á sér. Áður
en fyrirliðinn Nemanja Vidic kom
United yfir með laglegu skallamarki
hefði Danny Welbeck átt að fá tvö
mörk skráð á sig. Í fyrra skiptið var
ranglega tekið mark af honum þegar
dómari leiksins dæmdi brot og í síðara
skiptið slapp hann einn í gegn þar sem
hann reyndi að vippa yfir hinn stóra
og stæðilega Manuel Neuer, sem sá
við honum. Forysta United stóð ekki
yfir í langan tíma en Bastian Schwein-
steiger skoraði frábært mark eftir vel
útfærða sókn en skömmu fyrir leiks-
lok var hann rekinn af velli og verður
þar með í banni í seinni hálfleik sem
og Javi Martinez. Það ætti að verða
vatn á myllu United, sem barðist eins
og ljón og veitti Evrópumeisturunum
verðuga keppni. United-menn eru á
lífi eftir allt sem á undan er gengið.
„Þetta var góður leikur. United lék
varnarleik og beið bara eftir því að
komast í skyndisóknir. 1:1 eru góð úr-
slit. Við tökum þeim og munum reyna
að klára verkið í næstu viku. Þetta er
ekki auðvelt þegar mótherjinn liggur
með lið svona aftarlega og lokar svæð-
unum en það var gott að ná 1:1 jafn-
tefli eftir að hafa lent undir,“ sagði
Arjen Robben.
Eigum frábæra möguleika
„Ég met það svo að við eigum frá-
bæra möguleika á að komast áfram.
Lið mitt lék mjög vel og við erum
ánægðir með frammistöðuna en súrir
að hafa ekki haldið markinu hreinu.
Það var frábært andrúmsloft á vell-
inum og stuðningurinn sem við feng-
um var gríðarlegur. Við vitum að
þurfum að skora í seinni leiknum og
við erum alveg færir um að gera það,“
sagði David Moyes, stjóri United.
Barcelona og Atlético Madrid
skildu jöfn í fjórða sinn á leiktíðinni.
Diego Ribas, sem kom inná þegar
Diego Costa fór meiddur af velli, kom
gestunum yfir en Neymar jafnaði
metin fyrir Katalóníuliðið sem sótti
stíft síðustu mínútur leiksins.
„Við reiknuðum með leik eins og
þessum. Við höfðum boltann miklu
meira í leiknum og fengum færin en
Atlético gerði vel. Lið þeirra barðist
vel og tókst að skora. Þetta voru ekki
góð úrslit á heimavelli en við ætlum
okkur að vinna seinni leikinn,“ sagði
Xavi, miðjumaður Barcelona.
United-menn eru enn á lífi
Báttuglatt lið United gerði jafntefli við Evrópumeistarana á Old Trafford
Schweinsteiger sá rautt Jafnt hjá Barcelona og Atlético í fjórða leiknum í röð
AFP
Fögnuður Leikmenn United fagna marki Nemanja Vidic á Old Trafford í gær.