Morgunblaðið - 08.04.2014, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 08.04.2014, Blaðsíða 2
Í SAFAMÝRI Þorkell Gunnar Sigurbjörnss. thorkell@mbl.is Liðsmenn kvennaliðs Gróttu í hand- knattleik sýndu það og sönnuðu í gærkvöld og þeir hræðast ekkert lið. Grótta gerði sér lítið fyrir og vann fjögurra marka útisigur á Íslands- meisturum Fram, 26:22, í fyrsta leik liðanna í 8-liða úrslitum úrslitakeppni Íslandsmótsins. Þó að Fram sé vissulega ríkjandi Íslandsmeistari þá er liðið ákaflega mikið breytt frá því Framkonur hófu bikarinn á loft í maí í fyrra. Það má þó ekki taka neitt af Gróttu. Kári Garðarsson, þjálfari Seltirninga, á hrós skilið fyrir árangur liðsins í vet- ur og takist Gróttu að slá Fram út annað kvöld kemur Kári klárlega til greina sem þjálfari ársins, ef ekki er þegar búið að kjósa besta fólk Ís- landsmótsins. Verður þörf á oddaleikjum? Í fyrra voru oddaleikir með öllu óþarfir í 8-liða úrslitum Íslandsmóts- ins og í ár virðist sennilega eini möguleikinn á oddaleik vera í einvígi Fram og Gróttu. Leikur liðanna var hnífjafn í gærkvöld allt þar til tæp- lega tíu mínútur voru eftir. Þá gáfu Framarar eftir en Grótta hafði ein- beitinguna í lagi, leikmenn voru vel stemmdir og unnu sterkan baráttu- sigur. Fram endaði í 4. sæti í Olísdeild- inni en Grótta í 5. sæti. Liðin unnu sinn deildarleikinn hvort í vetur í inn- byrðis viðureignum og aðeins munaði einu stigi á liðunum þegar keppni í deildinni lauk. Það er því að sjá á öllu að munurinn á þessum tveimur liðum er afar lítill hvað getu varðar. Grótta hefur þó klárlega sterkari stöðu að hafa yfir, 1:0, þegar flautað verður til leiks í öðrum leik liðanna annað kvöld, þegar leikið verður á heima- velli Gróttu á Seltjarnarnesi. Kári með báða fætur á jörðinni Spurður hvort eðlilegt væri að klára einvígið á heimavelli með því að slá Fram út þar gat Kári, þjálfari Gróttu, ekki samþykkt það. „Ég veit ekki hvort mér finnst það eðlilegt, en ég myndi bara svo mikið vilja klára einvígið á heimavelli. En þegar liðin í 4. og 5. sæti eigast við, þá er ekkert óeðlilegt að einvígið fari í þrjá leiki. Við reynum þó það sem við getum til þess að klára þetta strax í næsta leik,“ sagði Kári í viðtali við Morg- unblaðið að loknum leik í gærkvöld. Sigurbjörg Jóhannsdóttir er ein af fáum fastamönnum úr liði Fram sem varð Íslandsmeistari í fyrra sem enn leika með liðinu. Hún var markahæst Framara í gærkvöld með 9 mörk og hún er svo sannarlega ekki reiðubúin að fara í sumarfrí strax annað kvöld. „Það kemur ekki til greina að tapa næsta leik líka. Það verður leikur aft- ur hérna í Safamýri á laugardag,“ lof- aði Sigurbjörg eftir tapið í gærkvöld. Stórsigur Stjörnunnar á HK Þó að ekkert sé hægt að útiloka, þá verður að teljast harla ólíklegt að hin- ar viðureignirnar þrjár í 8-liða úrslit- unum fari í oddaleik. Getumunurinn á liðunum sem mætast í hinum rimm- unum þremur virðist vera of mikill. Deildarmeistarar Stjörnunnar völt- uðu til að mynda yfir HK í gær með níu marka mun, 30:21. Sigur Stjörn- unnar var aldrei í hættu og að lokn- um fyrri hálfleik var níu marka for- skot Garðbæinga strax komið, því þá stóðu leikar 17:8. Í fyrrakvöld vann Valur ellefu marka sigur á HK og ÍBV vann FH með átta marka mun. Sé horft í þess- ar tölur er fátt í kortunum sem bend- ir til annars en að Stjarnan, Valur og ÍBV eigi sæti í undanúrslitum næsta vís. Stóra spurningarmerkið er hins vegar hvort Fram kræki í oddaleik gegn Gróttu, eða hvort Seltirningar sjái til þess að Fram fái ekki verð- launapening fyrir frammistöðu sína á Íslandsmóti kvenna í handknattleik í fyrsta sinn síðan 2007. Framkonur fengu silfur fimm ár í röð áður en langþráð gullverðlaunin komu loksins í fyrra. Leikið er þétt þessa fyrstu daga úrslitakeppninnar og aðeins einn dag- ur í hvíld á milli leikdaga fyrsta og annars leiks. Í kvöld tekur FH á móti ÍBV og Haukar á móti Val og annað kvöld spila svo Grótta og Fram á Sel- tjarnarnesi og HK og Stjarnan í Digranesi. Komi til oddaleikja í við- ureignunum eru þeir ráðgerðir á laugardag nema oddaleik þurfi til hjá Val og Haukum, þá yrði sá leikur á föstudagskvöld.  Myndabandsviðtöl við Kára Garðarsson þjálfara Gróttu og Sig- urbjörgu Jóhannsdóttur leikmann Fram má finna á mbl.is. Engin hræðsla við meistarana Morgunblaðið/Kristinn Stans Lene Burmo, Gróttu, stöðvar Sigurbjörgu Jóhannsdóttur, Fram, í gær.  Útisigur Gróttu á Fram í fyrsta leik liðanna  Stjarnan valtaði yfir HK-inga 2 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL 2014 Ríkjandi Íslandsmeistarar í blaki kvenna mæta Aftureldingu í fyrstu viðureign liðanna um Íslandsmeistaratitil kvenna í blaki í íþróttahúsinu á Varmá í Mos- fellsbæ í kvöld. Viðureignin hefst klukkan 19.30. Afturelding, sem varð Íslandsmeistari í fyrsta sinn fyrir tveimur árum, varð á dögunum deildarmeistari. Af þeim sökum á liðið heimaleikjaréttinn en það lið- anna sem fyrr vinnur tvo leiki hampar Íslandsbikarnum. Afturelding vann Stjörnuna í undanúrslitum. Þróttarar höfnuðu í öðru sæti Mikasa-deildar og unnu í framhaldinu HK í undanúrslitum en þau lið mættust í úrslitum um Íslandsmeistaratitilinn í fyrra og í úrslitum bikarkeppninnar fyrir skömmu. Eftir leikinn á Varmá á morgun eigast lið Þróttar og Aftureldingar við á ný á föstudaginn á Norðfirði. Komi til oddaleiks fer hann fram í Mosfellsbæ á mánu- dagskvöldið. HK og Stjarnan hefja síðan keppni um Íslandsmeistaratitil karla annað kvöld í Fagralundi þar sem HK hefur Íslandsmeistaratitil að verja. Leikur númer tvö verður í Ásgarði í Garðabæ á laugardaginn. iben@mbl.is Úrslitin hefjast á Varmá Anna Hulda Ólafsdóttir úr Lyftingafélagi Reykjavíkur keppir á Evrópumótinu í ólympískum lyftingum í Tel Aviv í Ísrael í dag. Anna Hulda keppir í 63B kg flokki kvenna og hefst keppni kl. 8.30 að íslenskum tíma í hennar þyngd- arflokki eða kl. 11.30 að staðartíma. Alls eru 10 keppendur í flokki Önnu Huldu. Keppni í ólympískum lyftingum skiptist upp í snörun og jafnhend- ingu og fær hver keppandi þrjár tilraunir í hvorum hluta. Anna Hulda var valin lyftingakona ársins síðustu tvö ár. Hún á Íslandsmetið í snörun, jafnhendingu og í samanlögðu í 58 kg flokki og Íslandsmetin í snörun og samanlögðu í 63 kg flokki. Eftir því sem fram kemur á heimasíðu Lyftingasambands Íslands er hún fyrsti Íslendingurinn til að keppa á Evrópumótinu í lyftingum síðan árið 1988 í Wales. Þá voru Guðmundur Helgason, KR, og Haraldur Ólafsson, LFA, með- al keppenda. thorkell@mbl.is Anna fyrst á EM í 26 ár Anna Hulda Ólafsdóttir England Tottenham – Sunderland ....................... 5:1  Gylfi Þór Sigurðsson kom inná sem vara- maður hjá Tottenham á 82. mínútu og skor- aði í uppbótartíma. Staðan: Liverpool 33 23 5 5 90:40 74 Chelsea 33 22 6 5 65:24 72 Man.City 31 22 4 5 84:29 70 Arsenal 33 19 7 7 56:40 64 Everton 32 18 9 5 52:31 63 Tottenham 33 18 5 10 45:45 59 Man.Utd 33 17 6 10 56:38 57 Southampton 33 13 9 11 50:44 48 Newcastle 33 14 4 15 38:51 46 Stoke 33 10 10 13 37:48 40 West Ham 33 10 7 16 37:44 37 Hull 33 10 6 17 34:40 36 Aston Villa 32 9 7 16 35:48 34 Cr.Palace 32 10 4 18 23:39 34 Swansea 33 8 9 16 45:49 33 WBA 32 6 14 12 37:48 32 Norwich 33 8 8 17 26:52 32 Fulham 33 8 3 22 33:74 27 Cardiff 33 6 8 19 29:64 26 Sunderland 31 6 7 18 29:53 25 Ítalía Juventus – Livorno .................................. 2:0 Genoa – AC Milan .................................... 1:2 Staða efstu liða: Juventus 32 27 3 2 69:22 84 Roma 32 23 7 2 65:18 76 Napoli 32 19 7 6 59:33 64 Fiorentina 32 16 7 9 51:34 55 Spánn Levante – Athletic Bilbao........................ 1:2 Svíþjóð IFK Gautaborg – Malmö......................... 0:3  Hjálmar Jónsson var á varamannabekk Gautaborgar allan leikinn. Danmörk Vestsjælland – Nordsjælland ................. 0:0  Rúnar Alex Rúnarsson var á vara- mannabekk Nordsjælland. Staða efstu liða: AaB 25 13 7 5 47:30 46 Midtjylland 25 13 6 6 45:24 45 København 25 10 9 6 41:30 39 Brøndby 25 10 9 6 33:27 39 Esbjerg 25 9 6 10 38:31 33 Nordsjælland 25 9 6 10 27:33 33 Holland B-deild: Jong PSV – Den Bosch............................ 1:4  Hjörtur Hermannsson var ekki með PSV vegna meiðsla. Noregur B-deild: HamKam – Hödd ..................................... 0:1  Heiðar Geir Júlíusson kom inná sem varamaður á 54. mínútu hjá HamKam. EM U19 kvenna Milliriðill í Króatíu Rússland – Ísland..................................... 4:2 Margarita Tsjernomirdina 19., 27., 54., Anastasija Berezina 39. – Elín Metta Jen- sen 80., Telma Hjaltalín Þrastardóttir 90. Rautt spjald: Elín Metta Jensen 90. Króatía – Skotland ................................... 0:2  Skotland er með 6 stig, Rússland 4, Kró- atía 1 en Ísland ekkert. KNATTSPYRNA Olís-deild kvenna 8-liða úrslit, fyrsti leikur: Fram – Grótta....................................... 22:26  Staðan er 1:0 fyrir Gróttu. Stjarnan – HK ...................................... 30:21  Staðan er 1:0 fyrir Stjörnuna. HANDBOLTI Dominos-deild karla Undanúrslit, annar leikur: Njarðvík – Grindavík.......................... 73:95  Staðan er 1:1 og þriðji leikur í Grindavík á föstudagskvöldið. NBA-deildin Miami – New York ............................. 102:91 LA Clippers – LA Lakers.................. 120:97 Sacramento – Dallas ............................ 91:93 Indiana – Atlanta................................ 88:107 Houston – Denver.....................(frl.) 130:125 San Antonio – Memphis..................... 112:92 Golden State – Utah......................... 130:102 Phoenix – Oklahoma City ................ 122:115 Portland – New Orleans .................... 100:94 KÖRFUBOLTI HANDKNATTLEIKUR 8-liða úrslit kvenna, annar leikur: Kaplakriki: FH – ÍBV (0:1) ...................... 18 Schenkerhöll: Haukar – Valur (0:1).... 19.30 BLAK: Fyrsti úrslitaleikur kvenna: Varmá: Afturelding – Þróttur N......... 19.30 Í KVÖLD! Framhús, 8-liða úrslit kvenna, fyrsti leikur, mánudag 7. apríl 2014. Gangur leiksins: 0:1, 3:1, 5:5, 8:10, 11:11, 12:11, 14:15, 16:20, 19:20, 21:25, 22:26. Mörk Fram: Sigurbjörg Jóhanns- dóttir 9/3, Marthe Sördal 5, Ragn- heiður Júlíusdóttir 3/1, Hekla Rún Ámundadóttir 2, Hildur Marín Andr- ésdóttir 1, Kristín Helgadóttir 1, María Karlsdóttir 1. Varin skot: Sunneva Einarsdóttir 11. Utan vallar: 6 mín. Mörk Gróttu: Unnur Ómarsdóttir 11/7, Sóley Arnarsdóttir 5, Lene Burmo 4, Eva Björk Davíðsdóttir 2, Laufey Ásta Guðmundsdóttir 2, Anett Köbli 1, Guðný Hjaltadóttir 1. Varin skot: Íris Björk Símonardóttir 14. Utan vallar: 6 mín. Dómarar: Gísli Hlynur Jóhannsson og Hafsteinn Ingibergsson. Áhorfendur: 173.  Staðan er 1:0 fyrir Gróttu. Fram – Grótta 22:26 Mýrin, 8-liða úrslit kvenna, fyrsti leikur, mánudag 7. apríl 2014. Gangur leiksins: 1:0. 7:2, 10:3, 16:6, 17:8, 20:9, 22:15, 29:18, 30:21. Mörk Stjörnunnar: Sólveig Lára Kjærnested 6, Jóna Margrét Ragn- arsdóttir 5, Þórhildur Gunnarsdóttir 4, Guðrún Ósk Kristjánsdóttir 4, Esther Viktoría Ragnarsdóttir 3, Hildur Harð- ardóttir 2, Helena Örvarsdóttir 2, Sandra Sif Sigurjónsdóttir 2, Nataly Sæunn Valencia 2. Varin skot: Florentina Stanciu 18, Heiða Ingólfsdóttir 1. Mörk HK: Þórhildur Braga Þorvarð- ardóttir 4, Valgerður Ýr Þorsteinsdóttir 3, María Lovísa Breiðdal 3, Emma Havin Sardardóttir 3, Fanney Þóra Þórsdóttir 2, Sigríður Hauksdóttir 2, Sóley Ívars- dóttir 2, Gerður Arinbjarnardóttir 2. Varin skot: Ólöf Kolbrún Ragnarsdóttir 8, Margrét Ýr Björnsdóttir 2. Dómarar: Ingvar Guðjónsson og Þor- leifur Árni Ólafsson. Áhorfendur: 250.  Staðan er 1:0 fyrir Stjörnuna. Stjarnan – HK 30:21

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.