Morgunblaðið - 08.04.2014, Page 4

Morgunblaðið - 08.04.2014, Page 4
4 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL 2014 Stjarnan og Víkingur úr Reykjavík tryggðu sér um helgina sæti í átta liða úrslitum deildabikars karla í fótbolta, Lengjubikarsins. Víkingur vann þá Hauka 2:1 og Stjarnan vann Val, 2:1, með tveimur mörk- um Veigars Páls Gunnarssonar og liðin tryggðu sér með þessu tvö efstu sætin í þriðja riðli keppn- innar. KR og Breiðablik eru komin áfram úr fyrsta riðlinum og bæði FH og Þór úr öðrum riðli. Tvö síðustu sætin í átta liða úr- slitunum fá tvö af þeim þremur lið- um sem enda í þriðja sæti riðlanna. Í 1. riðli er eftir hreinn úrslita- leikur Grindavíkur og ÍA um þriðja sætið, en ef hann endar með jafn- tefli nær Keflavík þriðja sæti á 11 stigum. Í 2. riðli eru Fylkismenn öruggir með þriðja sætið. Þeir eru hins- vegar aðeins með 8 stig ennþá en eiga eftir að mæta Þrótti. Þann leik þurfa Fylkismenn að vinna með fjórum mörkum til að vera með betri árangur en Keflavík gæti verið með í þriðja sæti í 1. riðli. Í 3. riðli er ÍBV með 10 stig og Valur 9 stig í þriðja og fjórða sæti fyrir lokaumferðina. ÍBV á eftir að mæta Haukum og Valur mætir Selfossi. Lokaumferð riðlakeppninnar verður leikin frá fimmtudegi til laugardags og þá skýrist hvaða tvö lið fá síðustu sætin. Átta liða úrslitin eru síðan leikin á miðvikudaginn í næstu viku, 16. apríl, undanúrslitin á öðrum degi páska, 21. apríl, og úrslitaleikurinn fer fram á sumardaginn fyrsta, 24. apríl. vs@mbl.is Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Tvenna Veigar Páll Gunnarsson gerði bæði mörkin gegn Val. Sex lið komin áfram í deildabikarnum FRÉTTASKÝRING Ívar Benediktsson iben@mbl.is Íslenska landsliðið í handknattleik karla verður í öðrum styrkleikaflokki þegar dregið verður í riðla fyrir und- ankeppni Evrópumeistaramótsins sem haldið verður í Póllandi 17.-31. janúar 2016. Undankeppnin hefst í lok október á þessu ári og lýkur í júní á næsta ári. Dregið verður í sjö fjög- urra liða riðla í Varsjá á föstudaginn. Tvær efstu þjóðirnar að lokinni riðla- keppninni tryggja sér farseðilinn í lokakeppni EM auk þeirrar þjóðar sem nær bestum árangri af þeim sem hafna í þriðja sæti, samtals landslið 15 þjóða og sú sextánda verður vit- anlega gestgjafinn, Pólverjar. Þeir halda lokakeppni stórmóts í fyrsta sinn en mikill uppgangur hefur verið í handknattleik eins og í mörgum öðr- um íþróttagreinum í landinu á síðustu árum. Frakkar, Spánverjar og Króatar Í fyrsta styrkleikaflokki eru Danir, heimsmeistarar Spánverja, Króatar, Serbar, Ungverjar, Slóvenar og Evr- ópumeistarar Frakka. Ljóst er að ís- lenska landsliðið verður í riðli með einhverjum þeirra þjóða auk eins liðs úr þriðja og fjórða styrkleikaflokki. Í þriðja flokki eru: Austurríki, Tékk- land, Svartfjallaland, Slóvakía, Lithá- en, Portúgal, Holland. Í fjórða flokki eru: Bosnía og Hersegóvína, Ísrael, Lettland, Sviss, Úkraína, Tyrkland, Finnland. Ásamt Íslandi í öðrum styrk- leikaflokki eru: Þýskaland, Make- dónía, Rússland, Svíþjóð, Hvíta- Rússland og Noregur. Þessum þjóð- um getur íslenska landsliðið ekki dregist gegn. Þegar litið er yfir flokka eitt, þrjú og fjögur má segja að íslenska lands- liðið geti verið bæði óheppið og hepp- ið þegar dregið verður. Af þjóðum í fyrsta flokki eru e.t.v. Serbar, Ungverjar og Slóvenar einna veikastir. Fyrirfram má telja landslið Austurríkis, undir stjórn Patreks Jó- hannessonar, Tékka og Svartfellinga vera með bestu liðin en Slóvaka, Litháa, Portúgala og Hollendinga vera veika, ekki síst þrjár síðast- nefndu þjóðirnar. Bosnía og Hersegóvína, Sviss og Úkraína eru að öllum líkindum með bestu liðin í neðsta styrkleikaflokkn- um. Íslenska landsliðið mætir Bosníu og Hersegóvínu í undankeppni heimsmeistaramótsins í júní í tveim- ur leikjum, heima og að heiman. Svo getur farið að þjóðirnar leiði saman hesta sína á nýjan leik í undankeppni EM. Athyglisvert er að Finnar verða nú með í undankeppni EM en þeir hafa ekki náð þeim áfanga um langt árabil. Finnar gerðu sér lítið fyrir og skelltu Rúmenum, samtals með einu marki, 62:61, í tveimur leikjum í forkeppni að undankeppni sem lauk um nýliðna helgi. Lifa á síðustu stórmótum Í undankeppni EM sem fram fór í Danmörku í janúar, var íslenska landsliðið í riðli með Hvít-Rússum, Slóvenum og Rúmenum. Íslenska landsliðið hafnaði í efsta sæti, stigi á undan Hvíta-Rússlandi. Slóvenar höfnuðu í þriðja sæti og komust ekki í lokakeppni EM. Þar af leiðandi er at- hyglisvert að þeir skuli vera í efsta styrkleikaflokki við dráttinn að þessu sinni. Ástæðan er sú að horft er aftur til nokkurra síðustu Evrópu- og heimsmeistaramóta þegar raðað er í styrkleikaflokka og reiknuð saman stig sem hvert landslið fær fyrir ár- angur í undankeppni og á lokamótum og þau síðan lögð saman. Þótt Slóven- ar hafi ekki náð sér á strik í und- ankeppni síðasta stórmóts hafa þeir á síðustu árum yfirleitt náð góðum ár- angri og verið í fremstu röð og því safnað saman mörgum stigum sem þeir njóta nú þótt gefið hafi á bátinn í undankeppni síðasta stórmóts. Þurfa að vera meðal átta efstu Evrópumeistaramótið í Póllandi árið 2016 verður afar mikilvægt mót fyrir þau landslið sem þá þegar verða ekki búin að tryggja sér þátttökurétt á Ólympíuleikunum sem fram fara í Brasilíu síðar á því ári. Mikilvægið felst í því að þær þjóðir sem ná best- um árangri á EM 2016 tryggja sér keppnisrétt í forkeppni fyrir Ólymp- íuleikana sem væntanlega mun fara fram í apríl 2016. Það skiptir því ekki aðeins máli að komast í lokakeppni EM í Póllandi 2016 heldur þarf að ná góðum árangri þar, sennilega að vera á meðal átta efstu, til þess að komast í forkeppni Ólympíuleikanna svo möguleiki gefist til þess að verða með á Ólympíuleikunum um sumarið. Skiptir miklu fyrir ÓL 2016  Ísland í öðrum styrkleikaflokki þegar dregið verður í riðla fyrir EM karla 2016  Mikilvægt að ná langt í Póllandi til að eiga möguleika á að komast á ÓL í Ríó Morgunblaðið/Ómar Pólland Það skýrist á föstudaginn við hvaða mótherja Snorri Steinn Guð- jónsson og samherjar glíma um sæti í Evrópukeppninni 2016. Styrkleikaflokkar EM » Flokkur 1: Danmörk, Spánn, Króatía, Frakkland, Serbía, Ungverjaland, Slóvenía. » Flokkur 2: Ísland, Þýskaland, Makedónía, Rússland, Svíþjóð, Hvíta-Rússland, Noregur. » Flokkur 3: Austurríki, Tékk- land, Svartfjallaland, Slóvakía, Litháen, Portúgal, Holland. » Flokkur 4: Bosnía, Ísrael, Lettland, Sviss, Úkraína, Tyrk- land, Finnland. Í byggingu Íþrótta- og ólymp- íusambands Íslands í Laugar- dalnum hafa flestöll sérsambönd íþróttahreyfingarinnar skrifstofur sínar. Starfsmenn þeirra hittast á göngunum og í mötuneytinu og eru eflaust flestir vel kunnugir hver öðrum. Fara jafnvel saman í golf, hádegisskokk eða bumbu- bolta. En stundum mætti halda að þeir hefðu aðsetur hver í sínum landshlutanum og þekktust ekk- ert. Allavega þegar kemur að því að raða niður stærstu viðburð- unum í hverri grein fyrir sig. Þá virðist hver vera í sínu horni og ekki vita hvað granninn hefur fyrir stafni. Vikurnar í árinu eru 52 tals- ins, og helgarnar jafnmargar. Sér- samböndin eru hinsvegar ekki nema í kringum þrjátíu og sum með sín stærstu mót á löngum tíma. Keppnistímabil þar sem álagið og athyglin dreifast vel. Hluti þeirra er hinsvegar með sitt stóra mót, Íslandsmót, um eina helgi á ári. Og einhverra hluta vegna hafa sérsamböndin þá tilhneig- ingu að velja mörg í einu sömu helgarnar. Eftir tiltölulega rólega tíð undanfarið voru um liðna helgi Íslandsmót í badminton, Íslands- mót fatlaðra, Íslandsglíman og Skíðalandsmót Íslands að berjast um athygli fjölmiðlanna. Sem líka þurftu að fylgjast með úrslita- leikjum í körfubolta, landsleikjum í fótbolta og handbolta ásamt fleiru sem var í gangi í íþrótta- heiminum. Það gefur augaleið að erfitt var að sinna öllum og umfjöllun um hvern viðburð fyrir sig mark- aðist af tímaskorti og plássleysi. Svo skilja forsvarsmenn sam- bandanna ekkert í því að ekki skuli ítarlegar fjallað um þeirra grein. Mótahald einstakra greina hlýtur að mega samræma betur. BAKVÖRÐUR Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Alfreð Finnbogason skoraði um helgina sitt 50. mark á tæplega tveimur keppnistímabilum með Heerenveen í hollensku úrvalsdeild- inni. Hann gerði þá þriðja markið í 3:0-sigri á PSV Eindhoven og hefur þá skorað 26 mörk í 28 leikjum liðs- ins á þessu keppnistímabili en gerði 24 mörk í 33 leikjum í fyrra. Alfreð er þar með sá fyrsti í fjög- ur ár til að skora 50 mörk á tveim- ur árum í Hollandi. Síðastur til þess á undan honum var enginn annar en Luis Suárez, núverandi framherji Liverpool, sem skoraði 35 mörk fyrir Ajax tímabilið 2009-10 og 22 mörk veturinn á undan, eða 57 mörk samtals á tveimur tímabil- um. Skákaði keppinautnum Alfreð náði með þessu marki gegn PSV að verða á undan helsta keppinaut sínum um markakóng- stitilinn í Hollandi, ítalska fram- herjanum Graziano Pelle hjá Feyenoord, til að ná 50 mörkunum. Pelle gerði 27 mörk í fyrra og er kominn með 22 mörk í vetur, eða 49 samtals. Wilfried Bony, sem nú leikur með Swansea í ensku úrvalsdeild- inni, komst nálægt þessu en hann gerði 48 mörk á tveimur tímabilum, frá 2011 til 2013. Aron stefnir á bronsið Aron Jóhannsson, sem skoraði fyrir AZ gegn Roda á sunnudaginn, er þriðji markahæstur í Hollandi með 17 mörk, þremur mörkum á undan næsta manni, og stendur því vel að vígi í baráttunni um brons- skóinn. Kolbeinn Sigþórsson skoraði fyr- ir Ajax gegn Vitesse og er kominn með 10 mörk. Þrír Íslendingar eru því í hópi fjórtán markahæstu manna deildarinnar í vetur, og þeir eru allir markahæstir hjá sínu liði á tímabilinu. Kolbeinn hefur þar með náð að skora gegn öllum keppinaut- um Ajax um hollenska meistaratit- ilinn í vetur, Feyenoord (tvisvar), Twente, Vitesse og PSV. Alfreð fetar í fótspor Suárez  Fyrstur á eftir Luis Suárez að skora 50 mörk á tveimur árum í Hollandi Morgunblaðið/Golli Fimmtíu Alfreð Finnbogason er markahæstur í Hollandi í vetur. AFP 57 Luis Suárez skoraði grimmt fyrir Ajax árin 2008 til 2010.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.