Barnablaðið - 12.04.2014, Blaðsíða 4
Vissir þú ...að ...
... það tekur venjulega manneskju 7 mínútur að
sofna?
...meðalhraði fallhlífastökkvara í stökki er
200 km/klst?
...heili mannsins er að 78% til úr vatni?
...að meðaltali mun venjuleg manneskja
sofa í 25 ár samanlagt?
...á venjulegri golfkúlu eru 336 dílar?
...meðalhæna verpir um 228 eggjum á ári?
...venjuleg manneskja hlær að meðaltali 10
sinnum á dag?
...hefðbundinn fótbolti er samsettur úr 32
leðurpjötlum, sem eru saumaðar saman með 642
saumsporum?
...hefðbundinn broddgöltur er með 30
þúsund brodda?
...meðalmaðurinn mun innbyrða 100 tonn
af matvælum og drekka sem samsvarar
45.424 lítrum af vatni (vökva) á lífsleiðinni?
... meðalmanneskja fer að jafnaði 6 sinnum á
klósett á dag?
BARNABLAÐIÐ4
2
3
12
2
Gott er að nota
blýant til að
leysa þessa
þraut ef þú þarft
að stroka út vit-
leysur. Stóri fern-
ingurinn er búinn
til úr fjórum
minni ferningum.
Í hverjum litlum
ferningi eiga
tölurnar frá 1-4
að koma fyrir.
Eins eiga tölurn-
ar 1-4 að koma
fyrir í hverri línu,
bæði lárétt og
lóðrétt.
Krakka–Sudoku
3
Lausn aftast
Gátur
1. Í hvaða boga þarf engar örvar?
2. Hvaða hestar hafa aldrei verið folöld?
3. Þú berð það, en ég nota það þegar ég vil. Hvað er það?
4. Hvað er það sem er einfalt að ofan en tvöfalt að neðan?
5. Sá sem á það er fátækur. Sá sem veit það, er heimskur. Sá sem gerir
það er latur. Hvað er það?
6. Hvað er það sem kemst á skemmstum tíma um allan heim, en er þó
alltaf heima?
Lausnir aftast
Hvað getur þú sagt okkur um [verkið] Litla
prinsinn?
Litli prinsinn fer frá stjörnunni sinni B 612 til að
kynnast nýjum hnöttum og fræðast um heiminn.
Hann heimsækir hinar ýmsu hnetti og hittir á þeim
allskonar skemmtilegar persónur. Á jörðinni hittir
hann flugmann, sem hefur brotlent í eyðimörk, en
það er einmitt hann sem segir okkur ferðasögu
prinsins.
Hvernig myndir þú lýsa prinsinum?
Það er hægt að lýsa honum með svo mörgum
orðum. Hann er hláturmildur og forvitinn en líka
tilfinningaríkur og viðkvæmur.
Hvernig staður er B 612?
Það er mjög lítill hnöttur. Þar eru þrjú eldfjöll og ein
undurfalleg rós.
Prinsinn hittir marga kynlega kvisti á ferð sinni.
Getur þú sagt okkur aðeins af þeim? Lærir hann
eitthvað af þeim?
Já, hann hittir marga á ferðalaginu sínu milli hnatta.
Meðal annars kóng, monthana, drykkjumann,
kaupsýslumann og landfræðing. Það sem
prinsinum finnst skrítnast er að allir þessir menn
hugsa bara um sjálfa sig.
En getur flugmaðurinn lært eitthvað af
prinsinum?
Já hann lærir heilmikið af honum og þeir verða
góðir vinir. Hann lærir að það eru einfaldleikinn og
fegurðin, sem raunverulega skipta máli.
Er sýningin ógnvænleg?
Það er höggormur í
sýningunni og hann er
svolítið ógnvænlegur. En
engar áhyggjur, hann er
að sjálfsögðu bara leikinn.
Við notum eldgamalt reipi
til að búa hann til og svo
treystum við á ímyndunarafl
leikhúsgesta. Kannski á
einhverjum eftir að bregða
við sprengingarnar!
Fyrir hverja er sýningin?
Fyrir 6 ára og uppí 99 ára
gömul börn.
Hver er boðskapur verksins
– má læra eitthvað af því?
Það má læra að það er
mikilvægt að varðveita
barnið í sér, hvað það sé gott
að eiga góða vini og lifa í sátt
og skilningi við sjálfa(n) sig og aðra.
Hvernig er að leika prinsinn?
Það er mjög skemmtilegt. Hann er svo
forvitinn og lærdómsfús. Maður lærir
honum.
Þekktir þú til hans áður en þú fórst a
Já, ég hafði lesið bókina og hef alltaf h
heimspeki prinsins.
Brandarar
Skjaldbaka var á ferð í stórborg þegar gengi af sniglum
rændi hana. Lögreglan mætti á staðinn til að rannsaka
málið. Hún spurði fórnarlambið hvað hefði gerst.
„Ég veit það eiginlega ekki,“ svaraði skjaldbakan skjálfandi.
„Þetta gerðist allt svo hratt!!“
Mamman var spennt að vita hvernig Óla litla hefði gengið
fyrsta skóladaginn.
„Hvernig gekk í skólanum, Óli minn?“ spurði hún drenginn.
„Alls ekki nógu vel,“ sagði Óli heldur súr. „Ég þarf að mæta
aftur á morgun!!“
?
?
?
Lítill prin
með boðs
Margir kannast við litla prinsinn, frá plánetunni B 612,
fyrir löngu orðin heimsfræg. Bókin um hann, eftir Antoi
hefur selst í mörgum milljónum eintaka, allt frá því hún
árið 1943, og sagan verið þýdd á yfir 200 tungumál. Lit
á dögunum í Kúluna í Þjóðleikhúsinu en þar er núna hæ
fallegu sögu á sviði. Þórunn Arna Kristjánsdóttir fer me
og þekkir hann því orðið vel. Barnablaðið spurði hana n
litla ferðalangnum og vangaveltum hans um lífið og tilv