Vegna viðhaldsvinnu geti verið truflanir á þjónustu Tímarit.is frá 18:00 og fram eftir kvöldi.

Morgunblaðið - 17.07.2014, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 17.07.2014, Blaðsíða 4
HANDBOLTI Ívar Benediktsson iben@mbl.is „Þegar ég kom heim fyrir tveimur árum var það eingöngu vegna meiðslanna. Ég vildi fá tíma til þess að jafna mig á þeim. Markmiðið var alltaf að komast út í atvinnu- mennsku á nýjan leik þegar ég væri tilbúinn. Mér þótti rétti tíminn vera kominn,“ segir Sigurbergur Sveins- son handknattleiksmaður, sem ný- verið gekk til liðs við nýliða í þýsku 1. deildinni, HC Erlangen, eftir tveggja ára veru hjá bikarmeist- urum Hauka. Sigurbergur flutti út í síðustu viku og hóf æfingar um leið. „Liðið var byrjað að æfa þegar ég kom og því var ekkert annað sem beið mín en að fara á fulla ferð í æfingar,“ sagði Sigurbergur í gær. Hann býr ennþá á hóteli en á von á því að flytjast í íbúð í næstu viku. Sigurbergur er uppalinn Hauka- maður en fór út og lék með Rhein- land fyrir fjórum árum og skipti síð- an yfir til Hannover-Burgdorf eftir að fyrrnefnda liðið fór í þrot. Eftir það lék Sigurbergur eitt ár með Ba- sel í Sviss en erfið hnémeiðsli settu stórt strik í reikninginn keppnis- tímabilið 2011/2012 í Sviss. Sig- urbergur kom heim að því loknu og hefur síðan verið einn allra besti leikmaður Íslandsmótsins og lék m.a. stórt hlutverk hjá Haukum á síðustu leiktíð þar sem liðið varð bik- armeistari, deildarmeistari og deildabikarmeistari en varð að sætta sig við tap fyrir ÍBV í úrslitum Ís- landsmótsins eftir fimm hörkuleiki. Mikil uppbygging HC Erlangen er í Suður- Þýskalandi, skammt norður af Nürnberg. Mikil uppbygging hefur átt sér stað hjá félaginu á síðustu ár- um og er talsverður metnaður innan félagsins um þessar mundir að sögn Sigurbergs en handboltalið félagsins er nú í fyrsta skipti í efstu deild. „Það ver mikill metnaður innan félagsins og meðal annars kom nýr leikmaður til félagsins í gær sem leikið hefur hjá Barcelona tvö síð- ustu keppnistímabil, Martin Stra- novsky,“ segir Sigurbergur. Forveri Guðjóns Vals Þess má geta að Stranovsky fékk ekki nýjan samning hjá Barcelona vegna þess að rýmka þurfti til hjá fé- laginu við komu Guðjóns Vals Sig- urðssonar þar sem á Spáni gilda strangar reglur um hámarksfjölda leikmanna sem ekki hafa spænskt ríkisfang. „Mér sýnist vel staðið að öllu hérna og metnaður til þess að halda sæti í deildinni. Mér líst bara mjög vel á allt hér við fyrstu sýn,“ segir Sigurbergur. Alls verða 19 lið í þýsku 1. deild- inni á næsta keppnistímabili í stað 18 undanfarin ár. Vegna fjölgunar- innar falla fjögur lið úr deildinni næsta ár í stað þriggja. Þar af leið- andi verður samkeppnin enn meiri en áður við að forðast fall sem hefur oftar en ekki verið örlög nýliða í deildinni á síðustu árum. Tími á meiri áskorun Sigurbergur segir skiptin til Er- langen hafa átt sér nokkurn aðdrag- anda. Hann hafi verið í þreifingum við félög í Evrópu. „Þegar Erlangen kom upp á yfirborðið fór ég út og leit á aðstæður og leist vel á. Þannig að ég er mjög sáttur við þessa nið- urstöðu. Ég veit betur nú hvað ég er að fara út í. Auk þess fannst mér vera kominn tími til þess að takast á við aðra og meiri áskorun en að leika heima úr því að ég hafði jafnað mig á meiðslunum. Nú fæ ég tækifæri til þess að leika í sterkari deild og bæta mig sem handboltamaður,“ segir Sigurbergur Sveinsson. Markmiðið var að fara út  Sigurbergur þekkir betur nú en fyrir fjórum árum hvað bíður hans í atvinnu- mennsku  Metnaður ríkir hjá Erlangen sem verður í fyrsta sinn í efstu deild Morgunblaðið/Kristinn Atvinnumaður Sigurbergur Sveinsson handboltamaður úr Haukum er á leiðinni í atvinnumennsku í annað skipti. Sigurbergur telur sig nú vera betur í stakk búinn til þess að vera atvinnumaður erlendis, en áður. 4 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. JÚLÍ 2014 Breiðablik og ÍBV áttust við í Kópa- voginum í síðasta leik 9. umferðar Pepsi-deildar kvenna í knattspyrnu og lauk leiknum með 4:2 sigri Blika. Telma Þrastardóttir, framherji Breiðabliks, var ekki á markaskón- um í gærkvöldi en hún hefði átt að vera búin að skora tvö mörk á fyrstu fimm mínútum leiksins þegar hún slapp ein í gegn í tvígang. Fyrsta mark leiksins kom á 24. mínútu og var þar að verki hin bandaríska Shaneka Gordon með sínu sjöunda marki í sumar fyrir ÍBV. Blikar voru ekki lengi að jafna metin því fimm mínútum síðar skor- aði Jóna Kristín Hauksdóttir með hnitmiðuðu skoti fyrir utan teig. Natasha Anasi, annar af tveimur nýjum leikmönnum Eyjakvenna kom inn á í hálfleik og var ekki búin að vera inni á vellinum í fimm mín- útur þegar hún hafði komið ÍBV yfir í annað skiptið í leiknum eftir að hafa sloppið ein inn fyrir vörn Blika. Anasi komst ágætlega frá leiknum og mun verða mikill liðsstyrkur fyrir komandi baráttu Eyjakvenna í deildinni. Það byrjaði að hellirigna í Kópa- vogi þegar 30 mínútur voru eftir og allt virtist stefna í sigur ÍBV. Fanndís Friðriksdóttir var hins veg- ar á öðru máli og kom Blikakonum til bjargar. Hún skoraði jöfn- unarmarkið á 76. mínútu, nánast upp á eigin spýtur þegar hún labbaði framhjá varnarmönnum ÍBV og kláraði færið á nærhornið með föstu skoti. Fanndís var aftur á ferðinni fjórum mínútum síðar og aftur varð nærhornið fyrir valinu en hún fékk ansi mikinn tíma til að athafna sig og vörn ÍBV virtist steinsofandi. Skoraði frá hornfána Fjórða og síðasta mark leiksins skoraði hún svo úr aukaspyrnu sem var staðsett þar sem hornspyrnur eru teknar. Það hefði kannski verið flottara fyrir Fanndísi að geta sagst hafa skorað úr hornspyrnu en því miður er staðreyndin önnur. Sigur Blika var gríðarlega mikilvægur í og heldur þeim á lífi í toppbaráttunni. Hann kemur þeim í 2. sæti og í 19 stig, fimm stigum á eftir toppliði Stjörnunnar. Staða ÍBV er óbreytt eftir tapið. Liðið siglir lygnan sjó í 7. sæti með 12 stig. Morgunblaðið/Eggert Þrenna Fanndís Friðriksdóttur spilaði frábærlega fyrir Breiðablik í gær og skoraði þrennu. Hér er hún í baráttu við Söru Rós Einarsdóttir ÍBV. Fanndís hélt Blikum á lífi  Mikilvægur sigur Breiðabliks á ÍBV Ég er líklega ekki sá eini sem þjáist af einhvers konar HM- fráhvarfseinkennum eftir þessa knattspyrnuveislu undanfarnar vikur. Þær eru alltaf blendnar til- finningarnar þegar ég horfi á leiki á seinni stigum mótsins. Það svipar til rússíbanareiðar sem maður veit að er alveg að fara að klárast. En það kemur annað HM eftir þetta HM og við getum allavega glaðst yfir því að það er nú bara 1.421 dagur þar til HM 2018 í Rússlandi hefst. En örvæntum ekki. Það er nóg um að vera hér á landi. Ís- lenski fótboltinn heldur áfram að rúlla. Það er alltaf skemmtilega öðruvísi að mæta á völlinn, fá sér kaffi og jafnvel eina „slæsu“ í hálfleik ef vel liggur á manni og ræða við mann og annan. Svo virðist líka knattspyrnan sem lið- in bjóða upp á vera að batna líkt og gerist iðulega þegar líður á sumarið. Boltinn er sannarlega farinn að rúlla betur og glæsi- mörk orðin algengari. Kannski er HM samt ekki svo fjarri okkur. KR-ingar spiluðu gegn skoska stórliðinu Celtic í fyrradag og þar voru þrír liðs- manna Skotanna tiltölulega ný- komnir heim frá HM Í Brasilíu. Einn þeirra var Nígeríumaðurinn Efe Ambrose en hann var í byrj- unarliði í öllum leikjum liðsins sem komst í 16-liða úrslit keppn- innar og atti meðal annars kappi við besta leikmann heims, Arg- entínumanninn Lionel Messi. Í fyrradag var hann hins vegar í baráttunni við KR-inginn Kjartan Henry Finnbogason. Það eru margir sem fussa og sveia þegar þeir skipta frá HM yfir á íslenska boltann en kannski er hann ekki svo slæmur. Naumt tap KR þar sem sigur- mark Celtic kom sex mínútum fyrir leikslok er til marks um það. Svekktur blaðamaður í Kanada skrifaði í gær um lélegt gengi karlalandsliðsins þar í landi en liðið situr í 110. sæti styrk- leikalista FIFA. Þar sitja Íslend- ingar í 52. sæti þrátt fyrir að skráðir iðkendur séu 40 sinnum færri (21.508) en í Kanada (865.712). Já, staðan gæti verið mun verri. BAKVÖRÐUR Pétur Hreinsson peturhreins@mbl.is Jóhann Laxdal gekk í raðir Stjörnunnar í Garðabæ í Pepsi- deild karla í knattspyrnu í gær. Jóhann kemur frá norska félaginu Ull/Kisa sem er í næstneðsta sæti næstefstu deild- ar Noregs, en þangað fór hann frá Stjörnunni síðasta vetur. „Liðinu gengur ekki nógu vel en ég veit sjálfur að ég get gert miklu betur en ég hef sýnt hérna. Það er því bara fínt að koma heim aftur og byrja frá grunni,“ sagði Jóhann við Morgunblaðið í gær. „Ég ætla að sýna að þótt ég sé kannski ekki orðinn miklu betri leikmaður er ég orðinn þroskaðri og tilbúinn að takast á við hlutina.“ yrkill@mbl.is Kemur þroskaðri frá Noregi Jóhann Laxdal

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.