Morgunblaðið - 05.06.2014, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 05.06.2014, Qupperneq 1
F I M M T U D A G U R 5. J Ú N Í 2 0 1 4 Stofnað 1913  132. tölublað  102. árgangur  VIÐ SKJÓTUM ÖÐRUVÍSI EN RÚSSAR ÞÍÐA FISK TIL FREKARI VINNSLU ALÞJÓÐLEGA TÓNLISTARAKA- DEMÍAN Í HÖRPU VIÐSKIPTAMOGGINN UNGIR EINLEIKARAR 38SKÝTUR AF BYSSU 10 Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Sölusprenging Sala á mjólkurafurðum gengur vel og framleiðslan eykst.  Sölusprenging í mjólkurafurðum frá síðasta ári heldur áfram ef horft er á síðustu 12 mánaða tímabil und- ir lok apríl. Innvigtun mjólkur í landinu var í liðinni viku 2.860 þús- und lítrar sem er tæplega 260 þús- und lítrum meira en í sömu viku á síðasta ári. Aukningin nemur 10%. Bændur hafa brugðist við aukning- unni með því að auka framleiðsluna með aukinni kjarnfóðurgjöf og dregið að slátra mjólkurkúm. „Við sáum verulega aukningu í sæðingu á síðustu mánuðum síðasta árs og hún hefur haldið áfram eftir áramót. Kvígurnar munu koma inn í framleiðsluna í auknum mæli nú í sumar,“ segir Baldur Helgi Benja- mínsson, framkvæmdastjóri Lands- sambands kúabænda, um þróun framleiðslunnar. »17 Sölusprenging í mjólkurafurðum heldur áfram Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is „Ég er búinn að vera í útirækt í 34 ár og þetta er besta vor sem ég hef upp- lifað á mínum ferli. Við fáum sól og hita og rigningu eins og eftir pönt- unum, þannig að það er ekki hægt að hafa það betra,“ segir Guðjón Birg- isson, garðyrkjubóndi á garðyrkju- stöðinni Melum á Flúðum. Guðjón býst við mjög góðri og ríkulegri grænmetisuppskeru í ár og að hún verði komin snemma í verslanir ef fram fer sem horfir. Vorið hefur leik- ið við bændur víða um land og kjör- vaxtarskilyrði verið fyrir gróðurinn. Sláttur hófst á bænum Teigi í Eyja- fjarðarsveit í gærmorgun og allt útlit er fyrir að fleiri bændur í Eyjafjarð- arsveit hefji slátt á næstu dögum. Grasið liggur á köflum Á Suðurlandi bíða bændur eftir þurrki en búist er við að margir hefji slátt um helgina. „Við byrjum trú- lega á morgun eða hinn. Það er kom- ið vaðandi gras sem liggur orðið á köflum, það hefur sprottið svo hratt síðustu daga. Þetta gæti ekki verið betra, það eru kjöraðstæður fyrir sprettuna og nú þurfum við bara þurrk,“ sagði Ólafur Eggertsson, bóndi á Þorvaldseyri undir Eyjafjöll- um, þegar blaðamaður ræddi við hann í gær. Ólafur er mjög bjartsýnn á sum- arið eins og aðrir bændur. „Allt korn hefur spírað mjög vel og hveit- iræktin hefur aldrei verið eins falleg. Þetta er eftirminnilegt vor og gaman að fá eitt og eitt þannig.“ »6 Bændur bjartsýnir á sumarið  Vorið hefur verið einmuna gott  Kjörskilyrði fyrir sprettu  Sláttur hafinn í Eyjafjarðarsveit og hefst víða á næstunni  Grænmetisuppskera verður ríkuleg Ljósmynd/Benjamín Baldursson Loðið Sláttur á Teigi í Eyjafirði. Morgunblaðið/Ómar Króna Miðað við bókfært eiginfjárvirði er 20% hlutur metinn á 35 milljarða. Hörður Ægisson hordur@mbl.is Sá möguleiki hefur verið ræddur af hálfu fulltrúa slitabús Glitnis að selja tiltekinn hlut af 95% eignarhlut kröfuhafa í Íslandsbanka – hugsan- lega 20-25% – til hóps lífeyrissjóða fyrir íslenskar krónur. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins hafa slíkar hugmyndir verið viðraðar nýlega á fundum með for- svarsmönnum lífeyrissjóða. Aðeins er um að ræða tillögur á þessu stigi og hafa engar verðhugmyndir verið ræddar. Miðað við bókfært eiginfjár- virði Íslandsbanka er 20-25% hlutur metinn á um 35-45 milljarða króna. Að sögn heimildarmanna telja sumir fulltrúar Glitnis að slík sala geti liðkað fyrir áformum um að selja stór- an eignarhlut bankans til erlendra fjárfesta fyrir gjaldeyri. Bandaríski fjárfestingabankinn Moelis & Company hefur haft umsjón með söluferli bankans frá því sl. haust. Hjörleifur Pálsson, fyrrver- andi fjármálastjóri Össurar, hefur einnig komið að þeirri vinnu sem ráð- gjafi fyrir hönd Glitnis. »Viðskipti Skoðar sölu fyrir krónur  Hugmynd að selja 20% hlut í Íslandsbanka til lífeyrissjóða Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu vann í gærkvöld lokaleik sinn áður en undankeppni Evrópumótsins hefst í haust, þegar það lagði Eistland að velli, 1:0, á Laugardalsvellinum. Kolbeinn Sigþórsson skoraði sigurmarkið sem er hans fimmtánda mark fyrir Íslands hönd og hann er orðinn þriðji markahæsti lands- liðsmaður Íslands frá upphafi, aðeins 24 ára gamall. » Íþróttir Sigur í síðasta leiknum fyrir undankeppni EM Morgunblaðið/Golli  Landsmenn ætla margir hverjir að nýta sér hvítasunnu- helgina til ferðalaga. Heimsóknir á upplýsingasíðu um tjaldsvæði landsins tóku kipp þegar fréttist af góðri veðurspá um helgina. Ferðalangar eru hvattir til að fara varlega um helgina og minntir á bílbeltin. »4 Ferðasumarið hefst næstu helgi Ferðalög Margir leggja land undir fót. Hlutur íslenska ríkisins í hlutafé við- skiptabankanna er mun meiri en ann- arra Evrópuríkja sem hafa reitt fram hvað hæstu fjárhæðirnar til að bjarga innlenda bankakerfinu sínu í kjölfar fjármálakreppunnar. Þetta kemur fram í ársskýrslu Bankasýslu ríkisins sem er birt í dag. Þannig var hlutur ríkisins 16,4% sem hlutfall af skuldum hins opinbera í árslok 2013 en það er um tvöfalt hærra en í tilfelli gríska ríkisins. Að sama skapi er hlutur ríkisins í bók- færðu eigin fé bankanna tæplega 15% í hlutfalli við landsframleiðslu sem er það hæsta í samanburði við önnur Evrópulönd. Frá því að ríkið eignaðist núver- andi eignarhluti í Landsbankanum, Arion banka og Íslandsbanka árið 2009 hefur hlutur þess í eigin fé þeirra aukist um 120 milljarða. Á síðasta ári jókst hlutur ríkisins í eigin fé bank- anna úr 12,2% í 14,7% af landsfram- leiðslu og hefur aldrei í sögunni verið jafnhár. hordur@mbl.is »Viðskipti Hlutur ríkisins um 15% af landsframleiðslu  Aldrei átt meiri hlut í bankakerfinu

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.