Morgunblaðið - 05.06.2014, Síða 2

Morgunblaðið - 05.06.2014, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ 2014 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Flestir hálendisvegir eru lokaðir allri umferð. Enn er snjór til traf- ala. Vegagerðarmenn eru þessa dagana að kann ástand vega, meðal annars Kjalvegar. Ekki er útlit fyr- ir að hann verði opnaður fyrr en upp úr miðjum mánuði. Vegurinn um Kaldadal hefur ver- ið opnaður. Enn er verið að laga veginn og hann er því aðeins talinn fær fjórhjóladrifnum bílum. Kjalvegur hefur oft verið opn- aður fyrrihluta júnímánaðar, einnig vegurinn inn í Eldgjá og Laka og inn í Landmannalaugar um miðjan júní. Bjarni Jón Finnsson, yfirverk- stjóri hjá Vegagerðinni í Vík í Mýr- dal, segir að snjór sé enn á veg- unum innantil. Segir Bjarni að snjólína virðist liggja frá Galta á Lakavegi, um Herðubreiðarháls og inn í Landmannalaugar en lítill snjór beggja vegna. Að öðru leyti virðist vegirnir hafa komið vel und- an vetri. Ástandið verður metið í næstu viku og athugað hvort hægt verður að opna þessa vegi fyrir umferð. Vegagerðin hefur látið moka snjó á suðurhluta Kjalvegar og í samvinnu við Fannborg hf. sem rekur ferða- þjónustu í Kerlingarfjöllum. Guð- mundur Guðbrandsson, vegaverk- stjóri á Selfossi, var á Kili í gær að kanna aðstæður. Hann telur ekki líkur á að hægt verði að byrja að hefla fyrr en um miðjan mánuðinn. Það fari þó eftir tíðarfari. Hugs- anlega verði hægt að opna fyrir fjórhjóladrifna bíla inn í Kerling- arfjöll í byrjun næstu viku. „Það er hagsmunamál okkar að vegurinn sé opnaður sem fyrst eftir mánaðamótin maí og júní. Þess vegna viljum við leggja okkar af mörkum og erum í góðu samstarfi við Vegagerðina,“ segir Páll Gísla- son, einn af eigendum Fannborgar. Byrjað að hefla á Kili um miðjan mánuð  Flestir hálendisvegir enn lokaðir  Opið um Kaldadal Ljósmynd/Páll Gíslason Hálendi Starfsmenn Fannborgar mokuðu nýlega í gegnum skafla á leiðinni inn í Kerlingarfjöll. Vegagerðarmenn sáu til reiðhjólafólks á Kili í gær. Farþegar í flugi Icelandair frá Brussel til Keflavíkur máttu bíða í 32 klukkustundir frá áætlaðri brott- för á þriðjudag áður en vélin hélt af stað klukkan rúmlega 21 í gær. Að sögn Gunnlaugs Hlyns Birgissonar, eins farþega í fluginu, voru þeir komnir um borð þegar þeir voru kallaðir frá borði að nýju. Skömmu síðar var þeim tjáð að um vélarbilun væri að ræða og að upphaflega hefði seinkunin átt að vera 4-6 klst. Hann sagði farþega ósátta. „Við spurðum hvort ekki væri betra að senda aðra vél en fengum þær upp- lýsingar að fyrirtækið teldi svo ekki vera,“ segir Gunnlaugur. Hann hafði það eftir flugstjóra vélarinnar að ástæða svo mikillar seinkunar hefði verið sú að bíða þurfti eftir sendingu með varahluti. Farþegar fengu gistingu á flugvall- arhóteli auk máltíða meðan á biðinni stóð. Að sögn Gunnlaugs voru 30-40 farþegar eftir af um 100 sem upp- haflega áttu að fara með vélinni. Ekki náðist í talsmann Icelandair við vinnslu fréttarinnar. vidar@mbl.is Farþegar með flugi Icelandair frá Brussel biðu í 32 klukkustundir eftir brottför Mörgum var brugðið í miðbæ Reykjavíkur síðdegis í gær þegar fjöldi slökkviliðsbíla og lögreglubíla kom þeysandi að Stjórn- arráðshúsinu við Lækjargötu, þar sem forsætisráðuneytið er til húsa. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra og starfsfólk hans sáust ganga hröðum skref- um út úr húsinu. Hringdu margir vegfar- endur í Morgunblaðið til að leita fregna. Engin alvara var þó á ferð. Ekki var um bruna að ræða, heldur var verið að æfa viðbrögð við eldsvoða. Hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu fengust þær upplýsingar að æfð hefði ver- ið sérstök rýmingaráætlun Stjórnar- ráðshússins. Hefði því verið nauðsynlegt að gera aðstæður allar sem raunveruleg- astar. Æfingin heppnaðist vel og að henni lok- inni héldu ráðherrann og samstarfsfólk hans á ný til skrifstofa sinna. Morgunblaðið/Þórður Brunaæfing Forsætisráðherra og samstarfsfólk hans biðu róleg fyrir utan Stjórnarráðshúsið meðan slökkviliðsmenn athöfnuðu sig. Brunaæfing í Stjórnar- ráðshúsinu Guðmundur Magnúson gudmundur@mbl.is Viðræður um meirihlutasamstarf Sjálfstæðisflokksins og Bjartrar framtíðar í Kópavogi ganga vel. Stefnt er að því að fá niðurstöðu um helgina. Theodóra S. Þorsteinsdótt- ir, oddviti Bjartrar framtíðar, segir að Ármann Kr. Ólafsson verði áfram bæjarstjóri nái flokkarnir saman, enda hafi hann fengið ótvíræða traustsyfirlýsingu kjósenda í kosn- ingunum. Björt framtíð ræðir einnig við Sjálfstæðisflokkinn í Hafnarfirði um meirahlutasamstarf. Hófust form- legar viðræður í gær. „Það er góður málefnalegur samhljómur á milli okkar,“ sagði Rósa Guðbjartsdóttir, oddviti sjálfstæðismanna. Hún sagði að óformlegar þreifingar hefðu verið á milli allra flokka að undanförnu og í þeim hefði komið í ljós að mestur samhljómur væri á milli Sjálfstæð- isflokksins og Bjartrar framtíðar. „Í kosningunum kölluðu bæjarbú- ar eftir breytingum og því er eðlilegt að láta reyna á samstarf þessara tveggja flokka,“ sagði Rósa. Guðlaug Kristjánsdóttir, oddviti Bjartrar framtíðar, hafði viðrað þá hugmynd að allir flokkar í bæjar- stjórn Hafnarfjarðar tækju höndum saman um stjórn bæjarins. Sameig- inlegur fundur flokkanna hefur hins vegar ekki verið haldinn. Rósa Guð- bjartsdóttir segir að sjálfstæðis- menn og Björt framtíð leggi áherslu á víðtækt samstarf allra kjörinna fulltrúa í bæjarstjórn, þótt um hefð- bundna skiptingu í meirihluta og minnihluta verði að ræða. Í Borgarbyggð hafa fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Framsóknar- flokks náð samkomulagi um myndun meirihluta og ráðið Kolfinnu Jó- hannesdóttur, núverandi skóla- meistara Menntaskóla Borgar- fjarðar, í starf sveitarstjóra. Meirihlutaviðræður Samfylkingar, Bjartrar framtíðar, Vinstri grænna og Pírata í Reykjavík halda áfram í dag. „Samhljómur milli okkar“  Sjálfstæðisflokkurinn og Björt framtíð ræða samstarf í Kópavogi og Hafnarfirði  Búist við niðurstöðu í viðræðunum á báðum stöðunum á allra næstu dögum Meirihlutar að fæðast » Nýr meirihluti Sjálfstæðis- flokks og Bjartrar framtíðar í Kópavogi gæti séð dagsins ljós um helgina. » Talsverðar líkur eru á meiri- hlutasamstarfi Sjálfstæðis- flokks og Bjartrar framtíðar í Hafnarfirði. Það gekk á með þrumum og eld- ingum víða á suð- vesturhorni landsins í gær samhliða miklum skúrum. „Svona veður er nógu sjaldgæft á Ís- landi til þess að við tökum eftir því,“ sagði Elín Björk Jónasdóttir veðurfræðingur í samtali við Morgunblaðið. Elín setti færslu um þrumuveðrið inn á Facebook-síðu Veðurstof- unnar í gærkvöldi og spunnust af því nokkrar umræður. Elín segir að veðurskilyrðin sem ollu þrumuveðrinu, kuldi í háloft- unum og hlýindi við jörðu, séu ekki í kortunum næstu daga. Framhald verði því ekki á þessu veðri. Ekki verður fram- hald á þrumuveðri Elín Björk Jónasdóttir Aðalfundur í Valsmönnum hf. verður haldinn fimmtudaginn 19. júní nk. kl. 18:00 að Hlíðarenda Dagskrá aðalfundar eru venjuleg aðalfundarstörf skv. samþykktum félagsins og lögum um hlutafélög nr. 2/1995. 1. Skýrsla stjórnar vegna liðins starfsárs. 2. Ársreikningur félagsins ásamt endurskoðunarskýrslu lagður fram til staðfestingar. 3. Ákvörðun um hvernig fara eigi með tap eða hagnað ársins. 4. Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna. 5. Kjör stjórnar. 6. Kjör endurskoðanda. 7. Önnur mál. Áður en fundurinn hefst verður kynning á upp- byggingaráformumHlíðarendareits og hefst hún kl. 17:00. Boðið verður upp á léttar veitingar eftir kynninguna. AÐALFUNDUR VALSMANNA hf

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.