Morgunblaðið - 05.06.2014, Síða 4

Morgunblaðið - 05.06.2014, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ 2014 Andri Steinn Hilmarsson ash@mbl.is Fyrsta helgin í júní er að ganga í garð, veðurspáin er góð og ætla því margir landsmenn að nýta sér hvíta- sunnuhelgina til ferðalaga. „Yfirleitt er það fyrsta helgin í júlí sem er fyrsta stóra ferðahelgin en allar helgar sumarsins eru þó stórar ferðahelgar,“ segir Guðbrandur Sig- urðsson, aðalvarðstjóri umferðar- deildar lögreglunnar, aðspurður hvort lögreglan verði með aukinn viðbúnað um helgina. Hefðbundið umferðareftirlit verð- ur á föstudag og sunnudag þegar íbú- ar höfuðborgarsvæðisins leggja leið sína úr og í bæinn en lögreglan mun fylgjast sérstaklega með ferðavögn- um. Guðmundur Lúther Hallgrímsson, sölustjóri hjá Búngaló, leigumiðlun fyrir sumarhús, segir margar af þeim eignum sem þeir hafi á skrá hjá sér í útleigu næstu helgi en þær eru um 400 talsins. „Það er aukning á bókunum frá Ís- lendingum þessa helgi umfram aðrar helgar og þá sérstaklega á þeim eign- um sem eru innan 200 kílómetra rad- íuss frá höfuðborgarsvæðinu,“ segir Guðmundur. Útilegusumarið er að hefjast Landsmenn virðast einnig ætla að tjalda um helgina, segir Geir Gígja sem rekur upplýsingavef um tjald- svæði landsins, tjalda.is. Hann segir að útilegusumarið hefjist af alvöru um næstu helgi. „Heimsóknir á síð- una tóku kipp þegar fréttist af góðri veðurspá um helgina, mest er verið að skoða tjaldsvæði á Suður- og Vest- urlandi,“ segir Geir. „Þrátt fyrir að komandi helgi sé fyrsta stóra ferðahelgi sumarsins hjá okkur Íslendingum má segja að allar helgar sumarsins séu stórar þegar kemur að erlendum ferðamönnum,“ segir Helga Árnadóttir, fram- kvæmdastjóri Samtaka ferðaþjón- ustunnar. „Samhliða þeirri fjölgun sem hefur orðið á erlendum ferða- mönnum sem sækja Ísland heim all- an ársins hring höfum við séð meiri fjölbreytni þegar kemur að veit- ingastöðum, þeirri afþreyingu sem í boði er ásamt gistimöguleikum. Allt fer þetta vel saman og njótum við Ís- lendingar góðs af,“ segir Helga. Óli Þór Árnason, veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, er bjartsýnn á veðrið og segir að veðrið verði svip- að um allt land. „Það verður engin úrkoma fyrr en á mánudag, þannig að veðrið verður gott frá föstudegi til sunnudags. Við erum komin heldur lengra inn í sumarið en yfirleitt á þessum árstíma.“ Samgöngustofa hvetur fólk til að fara varlega um helgina. „Fólk á að flýta sér hægt og fara að öllu með gát. Það er betra að komast aðeins seinna en að komast ekki,“ segir Þór- hildur Elín Elínardóttir, upplýsinga- fulltrúi Samgöngustofu.  Landsmenn hyggja á ferðalög í góðu veðri um helgina  Aðalvarðstjóri umferðardeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu segir lögreglu ætla að fylgjast sérstaklega með ferðavögnum Spáir góðu um hvítasunnuhelgina Morgunblaðið/Ómar Samgöngustofa Fólk er hvatt til að fara varlega um helgina. „Flýta sér hægt og fara að öllu með gát,“ segir upplýsingafulltrúi Samgöngustofu. Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Jazzinn mun óma á Jómfrúartorginu við veitingahúsið Jómfrúna við Lækjargötu alla laugardaga í sumar. Er þetta 19. árið í röð sem tónleika- röð Jómfrúarinnar hefur göngu sína. Fjölbreytt dagskrá Sumarjazzins 2014 var birt í gær. Munu bæði fjöl- margir íslenskir jazzleikarar sem og erlendir tónlistarmenn spila á tón- leikunum á Jómfrúnni í sumar. Jakob Jakobsson eldri, eigandi Jómfrúarinnar, segir Sumarjazzinn verða með svipuðu sniði og und- anfarin ár. Sigurður Flosason saxó- fónleikari er listrænn stjórnandi tón- leikanna í sumar eins og undanfarin ár. Tónleikarnir standa frá kl. 15 til 17 alla laugardaga til 30. ágúst og spilað verður utandyra. Plássið á torginu er hins vegar minna en verið hefur þar sem fram- kvæmdir standa yfir við niðurrif gamla Skuggabarsins vegna hót- elbyggingar við Hótel Borg. Jakob segir að um helmingur torgsins muni nýtast fyrir tónleikana og gesti. Er ráð fyrir því gert að pláss verði fyrir um 100 manns í sæti á torginu. Hlé verður gert á framkvæmdum á með- an tónleikarnir standa yfir. „Allt sem gefur frá sér hávaða verður lagt nið- ur á meðan tónleikarnir standa yfir. Ég vona að þetta verði ekki til að trufla mikið starfsemina hérna,“ seg- ir Jakob. Fley tríó Egils B. Hreinssonar ríður á vaðið á fyrstu tónleikunum næsta laugardag en það skipa auk Egils Gunnar Hrafnsson á kontra- bassa og Kjartan Guðnason á trommur. Þá munu tveir gestir koma fram með tríóinu, Jóel Pálsson saxó- fónleikari og Högni Egilsson úr Hjaltalín, sem mun syngja með tríói föður síns. Laugardaginn 14. júní ætlar söng- konan og píanóleikarinn Eve Evants að halda uppi stuðinu á Jómfrúar- torginu ein og óstudd og 21. júní kemur Skuggatríó Sigurðar Flosa- sonar fram ásamt söngkonunni Ragnheiði Gröndal og spilar blús- mettaðaðan jazz og jazzmengaðan blús að hætti tríósins en það skipa auk Sigurðar Þórir Baldursson á Hammonnd-orgel og Einar Schev- ing; trommur. Stórsveit þýskra ungmenna Úrvals big band ungmenna frá Norður-Rínarhéruðum Þýskalands, Nord Rhine Westphalia Big Band, spilar fyrir Jómfrúargesti seinasta laugardaginn í júní og 5. júlí mun svo Latín-jazz kvartett Tómasar R. Ein- arssonar stíga á svið og leika sjóð- andi suðræna sveiflu. Meðal fjölmargra annarra jazz- leikara sem koma fram á Jómfrúnni síðar í sumar eru sveit Ara Braga Kárasonar trompetleikara, skipuð íslenskum og frönskum tónlist- armönnum, Brasilíukvartett Sigrún- ar Kristbjargar, fiðlu- og básúnu- leikara, sveiflukvartett Reynis Sigurðssonar víbrafónleikara, sveit Sigurðar Flosason og söngkonunnar Kristjönu Stefáns, og kvartett Jóns Páls Bjarnasonar gítarleikara er á dagskrá í ágúst. Sumarjazzinn tekur flugið  Fley tríóið ríður á vaðið með Högna Egilssyni og Jóel Pálssyni á fyrstu laugardagstónleikum Jómfrúarinnar Morgunblaðið/Ómar Feðgarnir Jakob Jakobsson og Jakob E. Jakobsson, veitingamenn á Jómfrúnni, segja allt til reiðu fyrir Sumarjazzinn. Brotið verður út af venjunni 12. júní og boðið upp á sumardjass á fimmtudegi frá kl. 16 til 18 en þá munu tónlistarmenn af skemmtiferðaskipinu Crystal Symphony sem væntanlegt er til Reykjavíkur „bregða sér í land og skemmta sjófarendum og landkröbbum,“ eins og segir í dagskrárkynningu Jómfrúar- innar. Bregða sér í land og spila DJASSSKIP KEMUR 12. JÚNÍ Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Engin svör hafa borist úr innanrík- isráðuneytinu um niðurstöðu athug- unar ráðuneytisins á ástæðum þess að tölvupóstum á milli sérstaks sak- sóknara og fréttamanns Kastljóss var eytt. Er það þrátt fyrir ítrekaðar fyrirspurnir blaðamanns Morgun- blaðsins um málsmeðferðina. Málið var tekið fyrir í innanríkisráðuneyt- inu í fyrrahaust þar sem sérstakur saksóknari var spurður um verklag við varðveislu tölvugagna. Nefndin varð að vísa málinu frá Forsaga málsins er sú að lögmað- ur krafðist þess að fá afrit af tölvu- póstsamskiptum Ólafs Þ. Hauksson- ar, sérstaks saksóknara, við fréttamann í kjölfar viðtals við Ólaf og umfjöllunar Kastljóss um meinta markaðsmisnotkun í Glitni. Ólafur sinnti ekki kröfum lögmanns og var málið kært til Úrskurðarnefndar um upplýsingamál. Í kjölfar birtingar fréttar Kast- ljóss í desember árið 2011 um meint afbrot í Glitni sáu lögmenn þeirra sem nafngreindir voru í fréttunum ástæðu til þess að senda frá sér yf- irlýsingu þar sem sérstakur sak- sóknari var gagnrýndur fyrir að leggja fjölmiðlamönnum lið í sak- bendingum. Við meðferð málsins hjá nefndinni kom í ljós að gögnunum hafði verið eytt og öryggisafrit væru ekki til. Því varð ekki hjá því komist að vísa málinu frá nefndinni. Kostnaður og aðstöðuleysi Bar Ólafur því við í samtali við Morgunblaðið sem birtist 22. ágúst 2013 að allur gangur væri á því hvernig haldið væri utan um tölvu- pósta með fyrirspurnum fjölmiðla. „Tölvupóstarnir eru færðir í skjala- vistunarkerfi þegar það á við um viss mál en ekki þótti ástæða til þess í þessu tilfelli. Í fyrstu var beiðni kær- anda mjög víðtæk en eftir að hún var afmörkuð þá töldum við okkur eiga öryggisafrit af þessum póstum en svo reyndist ekki vera,“ segir Ólafur en í úrskurðinum kemur fram að ör- yggisafrit eru ekki geymd lengur en í þrjá mánuði hjá embættinu. „Það kostar að geyma rafræn gögn og taka þarf afstöðu til þess hvort það beri að geyma alla pósta,“ sagði Ólaf- ur. Að sögn Jóhannesar Tómassonar, fjölmiðlafulltrúa innanríkisráðu- neytisins, sat sérstakur saksóknari fyrir svörum hjá ráðuneytinu varð- andi verklag um gagnavarðveislu síðastliðið haust. Ástæðum eyð- ingar ósvarað  Engin svör úr innanríkisráðuneytinu ERNA Skipholti 3 - Sími: 552 0775 www.erna. is Smári Íslenskur silfurborðbúnaður er sígild gjöf Skipholti 3 - Sími: 552 0775 - www.erna.isERNA GULL- OG SILFURSMIÐJA

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.