Morgunblaðið - 05.06.2014, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 05.06.2014, Blaðsíða 6
Benjamín Baldursson Eyjafjarðarsveit Sláttur hófst á bænum Teigi í Eyjafjarðarsveit í gærmorgun og er spretta góð að sögn Ingva Stefánssonar bónda. Tíð hefur verið mjög hag- stæð í vor og var maímánuður sérstaklega hlýr og einnig hef- ur verið rekja af og til. Ingvi er ekki að heyja fyrir sig heldu leigir hann nágranna sínum, Herði Snorrasyni í Hvammi, túnin. Allt útlit er fyrir að fleiri bændur í Eyjafjarðarsveit hefji slátt á næstu dögum. Mjög hag- stæð tíð 6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ 2014 munur á túnunum núna, við sjáum grasið spretta. Ég gæti trúað því að bændur færu að byrja að slá bestu blettina innan viku,“ segir Þorsteinn. Kal í túnum var aðeins meira á Suðurlandi en búist var við og seg- ir Sveinn Sigurmundsson, fram- kvæmdastjóri Búnaðarsambands Suðurlands, að klaki hafi lengi leg- ið yfir skákum í Flóanum og það verði alltaf einhver ódrýgindi af því, hinsvegar líti afar vel út með sprettu. Kristján Bjarndal Jóns- son, jarðræktarráðunautur hjá Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins, býst við að bændur byrji ekki að slá af krafti fyrr en um miðjan júní eins og í meðalári út af næturkulda í maí sem gæti hafa dregið úr áburðarvirkni. Þá virðist bændur hafa verið duglegir í endur- og ný- ræktun auk kornræktar því fræ- salar láti afar vel af sölunni í vor. Ríkuleg grænmetisuppskera Það er ekki bara grassprettan sem lítur vel út heldur eru garð- yrkjubændur í skýjunum með vor- ið eftir rysjótta tíð í fyrra. „Ég er búinn að vera í útirækt í 34 ár og þetta er besta vor sem ég hef upplifað á mínum ferli. Við fáum sól og hita og rigningu eins og eftir pöntunum, þannig að það er ekki hægt að hafa það betra,“ segir Guðjón Birgisson, garð- yrkjubóndi á garðyrkjustöðinni Melum á Flúðum. Guðjón býst við mjög góðri og ríkulegri grænmet- isuppskeru í ár og að hún verði komin snemma í verslanir ef fram fer sem horfir. Gunnlaugur Karlsson, fram- kvæmdastjóri Sölufélags garð- yrkjumanna, segir stöðuna vera þá albestu í mörg ár og ekki langt í að fyrstu íslensku kartöflurnar komi í verslanir. „Það eru nokkrar vikur í nýjar kartöflur, þær verða kannski komnar í lok júní. Þá verða ýmsar aðrar tegundur, eins og kínakál, mjög snemma. Staðan er mjög flott að megninu til út um allt land.“ „Við sjáum grasið spretta“  Einstök sprettutíð í vor gleður bændur um land allt  Sláttur að hefjast víða næstu daga  „Þetta er besta vor sem ég hef upplifað á mínum ferli,“ segir garðyrkjubóndi  Stutt í nýjar kartöflur Morgunblaðið / Sigmundur Sigurgeirsson Gróðursæla Hjörtur Benediktsson, garðyrkjubóndi á Króki í Ölfusi gengur um garðinn sinn. Rigningin á Suðurlandi í gær gerir gróðrinum gott. Ljósmynd/Benjamín Baldursson Fyrsti sláttur Myndin var tekin þegar sláttur hófst á bænum Teigi í Eyjafjarðarsveit í gærmorgun. Spretta er góð. SVIÐSLJÓS Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is Bændur á Suðurlandi segja vorið hafa verið einstakt og muna marg- ir hverjir ekki eftir betri sprettu- tíð. Sláttur er ekki hafinn svo kall- ast geti, enda hefur vantað þurrkinn, en bændurnir á Hvassa- felli undir Eyjafjöllum slógu þó blett í fyrradag og sagði frá því í Morgunblaðinu í gær. Allt lítur þó út fyrir að Ólafur Eggertsson, bóndi á Þorvaldseyri undir Eyja- fjöllum, hefji slátt í dag eða á morgun. „Við erum ekki farin að slá enda þarf að stytta upp fyrst og helst blása smá af en við byrj- um trúlega á morgun eða hinn. Það er komið vaðandi gras sem liggur orðið á köflum, það hefur sprottið svo hratt síðustu daga. Þetta gæti ekki verið betra og nú þurfum við bara þurrk,“ sagði Ólafur þegar blaðamaður ræddi við hann í gær. Aðeins kal í túnum Ólafur segir mjög gott hljóð í bændum á öllu Suðurlandi og þeir séu bjartsýnir á sumarið. „Það hafa verið kjöraðstæður og ennþá ekkert skemmt fyrir, það komu ekki þurrkar í vor eins og gerir oft og enginn kuldakafli allan maí. Frá páskum hefur þetta verið einmuna gott vor. Maður veit svo sem aldrei hvernig sumarið fer en þetta lítur vel út.“ Ólafur er með mikla kornrækt og segir hann allt korn hafa spírað mjög vel. „Það verður góður vöxt- ur í því áfram ef það fer svona vel af stað og gefur von um góða upp- skeru. Við erum líka með hveiti- rækt, vetrarhveiti, og það hefur aldrei verið eins fallegt.“ Þorsteinn Loftsson, bóndi í Haukholtum í Hrunamannahreppi, tekur í sama streng og Ólafur. „Þetta lítur náttúrlega bara ótrú- lega vel út, þetta er með albestu árum. Það er gríðarlegur daga- Fyrstu fimm mánuðir ársins 2014 hafa verið óvenjuhlýir og hafa aðeins þrisvar verið hlýrri í Reykjavík frá upphafi samfelldra mælinga árið 1871. Þetta kemur fram í samantekt Veðurstofu Íslands um tíðarfarið í maímánuði. Ársbyrjunin var betri í Reykjavík árin 1964, 1929 og 2003. „Það er óvenjulegt hvað hitinn hef- ur verið jafn það sem af er árinu. Það hafa eiginlega ekki verið nein sérstök kuldaköst og ekki heldur nein sér- stök hlýindi, bara verið jafnhlýtt,“ segir Trausti Jónsson veðurfræðing- ur. Allir mánuðir ársins hafa verið fyrir ofan meðallag án þess að neinn þeirra hafi verið mjög ofarlega einn og sér, hvorki skarað fram úr í hita né kulda. Trausti segir að þótt það hafi verið hlýtt og hiti yfir meðallagi í maí þá hafi tuttugu stiga hiti ekki enn mælst á landinu. Það sé nokkuð óvenjulegt því frá upphafi mælinga hafi meira en helmingur af maímánuðum mælst með 20 stiga hita. Spurður hvort þessi góða byrjun á árinu segir eitthvað til um framhald- ið segir Trausti það ekki vera. „Þessi þrjú ár sem 2014 keppir við í Reykjavík voru misjöfn. Sumarið 1964 var heldur kalt. Sumarið 1929 var í góðu lagi víðast hvar á landinu en haust- ið var mjög leiðin- legt. Árið 2003 var allt í toppi og endaði sem það hlýjasta. Þannig að það er ekkert mynstur í þessu. Það er samt þannig að þegar það hefur verið hlýtt eru meiri líkur á að það verði hlýtt áfram, þó það sé ekki gefið,“ segir Trausti. Sex sinnum verið hlýrri en nú Á Akureyri hafa fyrstu fimm mán- uðir ársins aðeins sex sinnum verið hlýrri en nú. Það var 1964, 1929, 1974, 2003, 1972 og 2012. Þótt úr- koma hafi verið vel undir meðallagi í apríl og maí á Akureyri var hún svo mikil fyrstu þrjá mánuðina að úr- koma hefur aðeins þrisvar verið meiri fyrstu fimm mánuði ársins á Akureyri, það var 1989, 1990 og 1953, segir á vef Veðurstofunnar. ingveldur@mbl.is Fyrstu 5 mánuð- irnir byrja vel  Aðeins þrisvar verið hlýrri í Reykja- vík  Verið jafnhlýtt  Enn ekki 20°C Trausti Jónsson Tunguhálsi 7 110 Reykjavík 554 1989 www.gardlist.is Garðúðun NÚ ER TÍMINN TIL ÞESS AÐ ÚÐA GEGN TRJÁMAÐKI. Trjámaðkur á það til að leynast í blöðum trjáa á þessum árstíma. Trjámaðkurinn étur blöðin og gerir það að verkum að þau verði ljót og geta jafnvel eyðilagst.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.