Morgunblaðið - 05.06.2014, Side 9
Ísfisktogari Þannig mun hinn nýi togari HG líta út full-
smíðaður. Hann kemur til landsins eftir 18 mánuði.
Hraðfrystihúsið - Gunnvör í Hnífsdal (HG) hefur
ákveðið að ráðast í nýsmíði á ísfisktogara sem smíð-
aður verður í Kína eftir íslenskri hönnun. Skipið
mun kosta um 1,5 milljarða króna fullbúið og er gert
ráð fyrir því að það verði afhent eftir 18 mánuði.
Einar Valur Kristjánsson, framkvæmdastjóri HG,
segir að um talsverð tímamót sé að ræða þar sem
þetta sé stærsta einstaka fjárfesting sem gerð hafi
verið í sjávarútvegi á Vestfjörðum um langa hríð.
Fyrirtækið gerir nú út ísfiskstogarana Pál Páls-
son og Stefni, frystitogarann Júlíus Geirmundsson
auk nokkurra smærri báta. Þörf hefur verið á end-
urnýjun á hluta skipa HG sem komin eru til ára
sinna og hefur undirbúningur þess staðið í nokkurn
tíma.
Hönnun hins nýja togara annaðist verkfræðistofan
Skipasýn í samstarfi við starfsmenn HG.
Nýr ísfisktogari í smíðum
Fjárfesting HG í Hnífsdal nemur 1,5 milljörðum króna
Stærsta fjárfesting í sjávarútvegi á Vestfjörðum í mörg ár
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ 2014
Kjörstjórn í
Hafnarfirði hef-
ur fallist á
beiðni Pírata um
endurtalningu
atkvæða í bæj-
arstjórnarkosn-
ingunum þar á
laugardaginn.
Öll atkvæði, nær
tólf þúsund,
verða endur-
talin. Hefst talningin í kvöld.
Jóna Ósk Guðjónsdóttir, for-
maður kjörstjórnar, sagði í sam-
tali við Morgunblaðið í gærkvöld
að beiðni þessa efnis hefði borist
síðdegis. Hefði kjörstjórn fundað í
framhaldinu og fallist á erindið
sem rökstutt var með tilvísun til
þess að aðeins munaði örfáum at-
kvæðum á þriðja manni Samfylk-
ingarinnar í bæjarstjórn og odd-
vita Pírata.
Kjörstjórn hafði áður hafnað
beiðni Pírata um endurtalningu
vegna formgalla í erindi þeirra.
Samkvæmt lokatölum frá Hafn-
arfirði munaði sex atkvæðum á
Brynjari Guðnasyni, oddvita Pí-
rata, og Öddu Maríu Jóhanns-
dóttur, þriðja manni Samfylking-
arinnar. Adda náði inn en Brynjar
ekki. Samtals fengu Píratar 6,7%
fylgi í Hafnarfirði.
Talið aftur í
Hafnarfirði
Brynjar
Guðnason
Fallist á beiðni Pírata
VAKANDI!VERTU
blattafram.is VERNDARI BARNA Í 10 ÁR
55% þeirra sem beita stúlkur
kynferðislegu ofbeldi eru karlar
tengdir fjölskyldu þeirra.
Laugavegi 63 • S: 551 4422
Skoðið laxdal.is/kjólar
www.laxdal.is
FRANKLYMAN
GLÆSIKJÓLAR FRÁ
20-30%
afsláttur
fimmtud
ag
-laugarda
g
Laugavegi 47, sími 552 9122 Laugavegi 47, sími 551 7575
M
b
l
föstudag og langan laugardag
30% afsláttur
af sumarblússum, leðurjökkum,
hálfermaskyrtum og pólóbolum