Morgunblaðið - 05.06.2014, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 05.06.2014, Qupperneq 10
10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ 2014 Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is É g prófaði fyrst að skjóta þegar ég var sextán ára. Þá fór pabbi með mig á sko- tæfingu því hann var sjálfur að skjóta og stundar það enn. Mér líkaði þetta vel og ég hafði þolinmæði í að halda áfram. Fljót- lega náði ég að verða álíka góður og karlar sem höfðu verið að skjóta í tíu ár, sem var gaman fyrir ungan strák, en ég var langyngstur í hópn- um,“ segir Ásgeir Sigurgeirsson sem mætir sex sinnum í viku á æf- ingasvæði Skotfélags Reykjavíkur og skýtur af skammbyssu í fjóra til fimm tíma í hvert skipti. Þegar hann kemur á æfingu byrjar hann á því að hita upp líkamann, teygir og gerir æfingar. Síðan taka við þurr- æfingar, en þá skýtur hann með byssunni án þess að vera með skot í henni. Að því loknu fer hann að skotmarkinu og byrjar að skjóta með skotum. Stöðugur og yfirvegaður Skotfimi gengur út á að skjóta í miðju á hring á mismiklu færi. Ás- geir æfir tvær greinar, báðar ólympískar; að skjóta með loft- skammbyssu á tíu metra færi og skjóta af fríbyssu, sem er tuttugu og tveggja kalibera kúlubyssa, en af henni er skotið á fimmtíu metra færi. Skotmaður þarf eðli málsins samkvæmt að vera mjög stöðugur og yfirvegaður. „Það tók mig tölu- verðan tíma að ná því að láta allan líkamann vera slakan og nota ein- Íslendingar skjóta allt öðruvísi en Rússar Hann æfir sex daga vikunnar, fimm tíma í senn. Hann keppir á þremur stórmót- um á þessu ári og á heimsmeistaramóti. Ásgeir Sigurgeirsson æfir tvær ólymp- ískar greinar í skotfimi; að skjóta með loftskammbyssu á tíu metra færi og að skjóta af fríbyssu, sem er tuttugu og tveggja kalibera kúlubyssa, en af henni er skot- ið á fimmtíu metra færi. Hann hefur engan áhuga á byssum, aðeins á íþróttinni. Á æfingu Ásgeir æfir sex daga í viku og segist aldrei fá leið á að skjóta. Græjur Byssa, skífa og skot. Ásgeir skýtur um tíu skotum á hvert spjald. Brúðubíllinn er eitt af því sem stað- festir sumarkomuna. Inn í dagskrá leikhússins rúmast bæði skemmtun og fræðsla, sögur, gamlar og nýjar, leikrit, dans og söngur. Í dag verður júnífrumsýning á leikritinu „Ys og þys í Brúðubílnum“ í Hallargarð- inum kl. 14. Á morgun föstudag kl. 14 verður sýningin í Árbæjarsafni. Sýningar verða tvisvar á dag í júní og júlí en í júlí verður nýtt leikrit. Sýningarnar eru ókeypis og allir vel- komnir. Handrit og brúður eru eftir Helgu Steffensen, leikstjóri er Sigrún Edda Björnsdóttir, brúðustjórnendur Hörður Bent Víðisson ásamt Helgu. Bílstjóri, sviðsstjóri og tæknimaður er Sigurbjartur Sturla Atlason. Hljóðmynd gerir Vilhjálmur Guð- jónsson og margir af okkar frábæru leikurum ljá brúðunum raddir sínar. Nánar á brudubillinn.is. Vefsíðan www.brudubillinn.is Líf og fjör Gamlir og nýir vinir hittast í fjörugum leikritum Brúðubílsins. Brúðubíllinn er farinn á stjá Saga Unnsteins er fædd og uppalin í Fellabænum en stundar nú nám í myndlist í Singapúr. Hún ætlar að opna sýningu á verkum sínum á morgun kl. 17 í Sláturhúsinu, menn- ingarmiðstöðinni á Egilsstöðum. Sýn- ingin ber heitið Gluggi og verður opin til loka mánaðarins. Sýndar verða teikningar, prent- og málverk. „Kons- eptið snýst um ritmálið, ljóðlist og merkingu og mikilvægi orða í nútíma- list. Þegar fólk horfir á list er verið að horfa á list og texta um list, ég vinn með það í þessum verkum. Ýmsir út- úrsnúningar á sambandi listar og les- efnis,“ segir Saga um sýninguna. Endilega … … kíkið á Gluggann List Ritmál, ljóðlist, orð, merking. Krónan Gildir 05.- 09. jún verð nú áður mælie. verð Ungnauta Entrecote erlent ............................... 3.198 4.598 3.198 kr. kg Lambalæri kolagrillmarenerað .......................... 1.398 1.598 1.398 kr. kg Grísahnakki á spjóti New York........................... 1.189 1.698 1.189 kr. kg Lambafille m/fiturönd ..................................... 3.998 4.498 3.998 kr. kg Lambafille New York marinerað......................... 3.998 4.498 3.998 kr. kg Lambafille hvítlauk & rósmarín ......................... 3.998 4.498 3.998 kr. kg Kjarval Gildir 05.- 09. jún verð nú áður mælie. verð Melónur cantalópe .......................................... 329 439 329 kr. kg Gourmet lambalærissneiðar ............................. 2.465 2.739 2.465 kr. kg SS Mexico grísakótelettur................................. 1.998 2.385 1.998 kr. kg Hrefnusteik kryddlegin ..................................... 2.428 2.698 2.428 kr. kg BBQ Spare Ribs 500 g ..................................... 1.198 1.298 1.198 kr. pk. Fjarðarkaup Gildir 05.- 07. jún verð nú áður mælie. verð Lambaprime úr kjötborði.................................. 2.998 3.398 2.998 kr. kg Svínalundir úr kjötborði.................................... 1.598 2.398 1.598 kr. kg Svínahnakki úrb.úr kjötborði............................. 1.198 1.598 1.198 kr. kg Hamborgarar 2x115g m/brauði ....................... 490 540 490 kr. pk. KF lambalærissneiðar villikryddaðar.................. 1.645 2.190 1.645 kr. kg KF grísafille kryddað ........................................ 1.398 1.855 1.398 kr. kg Hagkaup Gildir 05.- 09. jún verð nú áður mælie. verð Maísbrauð ...................................................... 299 449 299 kr. stk. Mini kleinuhringir m/súkkulaði ......................... 299 389 299 kr. pk. SS grískar lambatvírifjur................................... 2.624 3.499 2.624 kr. kg Íslandsgrís reyktar kótelettur ............................ 1.609 2.299 1.609 kr. kg Hagkaup grilllambalæri.................................... 1.949 2.598 1.949 kr. kg Ísfugl kalkúnalæri úrbeinuð .............................. 1.679 2.399 1.679 kr. kg Oetker Ristor. Pizza Speciale ............................ 499 649 499 kr. stk. Nóatún Gildir 06.- 09. jún verð nú áður mælie. verð Lambalæri úr kjötborði..................................... 1.498 1.698 1.498 kr. kg Lambalæri kryddað úr kjötborði ........................ 1.498 1.698 1.498 kr. kg Lamba innra læri úr kjötborði ........................... 3.598 3.998 3.598 kr. kg Lamba innra læri kry. úr kjötborði...................... 3.598 3.998 3.598 kr. kg Grísahnakki úrb sn. úr kjötborði ........................ 1.298 1.698 1.298 kr. kg Grísahnakki kry. úr kjötborði ............................. 1.298 1.698 1.298 kr. kg Helgartilboðin Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna. þjóðlegt gómsætt og gott alla daga www.flatkaka.is Gríptu með úr næstu verslun k ÖkugerÐ hp

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.