Morgunblaðið - 05.06.2014, Qupperneq 12
ÚR BÆJARLÍFINU
Skapti Hallgrímsson
Akureyri
Viðræður fulltrúa L-lista, Fram-
sóknarflokks og Samfylkingar um
meirihlutasamstarf í bæjarstjórn
ganga vel að sögn. Oddvitar fram-
boðanna ákváðu strax á kosninga-
nótt að ræðast við, eins og þá kom
fram á mbl.is.
Enginn asi er á mönnum, eins
og viðmælandi blaðsins orðaði það
í gær, og líklegt að hóparnir þrír
noti hvítasunnuhelgina til að
ganga frá lausum endum. Yfir-
gnæfandi líkur eru á að Eiríkur
Björn Björgvinsson verði áfram
bæjarstjóri.
Sýning á fágætum Íslands-
kortum, Land fyrir stafni!, verður
opnuð á Minjasafninu á Akureyri í
dag. Þar verða sýnd landakort frá
1547-1808, 76 talsins frá Ítalíu,
Hollandi, Englandi, Frakklandi,
Tékklandi, Austurríska keisara-
veldinu og Þýskalandi. „Hvert
öðru sérkennilegra og sérstakara,
þannig er að finna kort á sýning-
unni sem aðeins er til í einu öðru
eintaki í heiminum,“ segir í frétt.
Kortin eru gjöf þýsku hjónanna
dr. Karl-Werner Schulte og Giselu
Schulte-Daxboek til íbúa Akureyr-
ar. Þau hafa safnað kortum af Ís-
landi eða þar sem landið er hluti
Evrópukorts um áratuga skeið.
Schulte-hjónin tóku ástfóstri við
Ísland og Akureyri fyrir nokkrum
árum og ákváðu að gefa kortin til
bæjarins.
Sýningin er í stóra sal safns-
ins. Þar var síðast opnuð ný sýn-
ing árið 1999 og því sannarlega
tímamót.
Sumarsýning Listasafnsins
verður opnuð á laugardaginn og
ber yfirskriftina Íslensk samtíð-
arportrett – mannlýsingar á 21.
öld. Á sýningunni eru á þriðja
hundrað verk eftir 70 listamenn.
Á meðal listamanna sem eiga
verk á sýningunni eru Erró, Ragn-
ar Kjartansson, Kristín Gunn-
laugsdóttir, Hallgrímur Helgason,
Steinunn Þórarinsdóttir, Hug-
leikur Dagsson, Aðalheiður S. Ey-
steinsdóttir og Baltasar Samper.
Guðrún Pálína Guðmundsdóttir,
bæjarlistamaður Akureyrar í
fyrra, á einnig verk á sýningunni
og opnar einmitt aðra sýninga á
sama tíma; Ferðalag, í Sal Mynd-
listarfélagsins í Listagilinu.
Þess má geta að boðið verður
upp á leiðsögn í Ketilhúsinu í há-
deginu í dag um sýningu Gísla B.
Björnssonar, Fimm áratugir í
grafískri hönnun, og áhugasamir
verða í góðum höndum. Guðrún
Pálína Guðmundsdóttir, fræðslu-
stjóri, gengur með gestum um
safnið.
Leiðsögn verður um portrett-
sýninguna á sama stað eftir viku
og síðan vikulega í sumar til skipt-
is á hvorum alla fimmtudaga kl.
12.
Akureyri Vikublað er hætt
samstarfi við vefmiðilinn akv.is en
það hefur einkum falist í að efni
úr blaðinu hefur birst þar.
„Um síðustu helgi fóru fram
sveitarstjórnarkosningar. Að þeim
loknum liggur fyrir að Sóley Björk
Stefánsdóttir sem titlar sig eig-
anda akv.is hefur náð kjöri sem
bæjarfulltrúi VG á Akureyri. Rit-
stjórn Akureyrar Vikublaðs telur
ekki rétt að eiga í samstarfi um
birtingar á afurðum blaðsins í vef-
miðli sem er í eigu pólitísks bæj-
arfulltrúa. Sú ákvörðun er tekin
vegna grundvallarkröfu um að
skrif blaðsins njóti trúverðugleika,
enda Akureyri Vikublað frjáls og
óháður fjölmiðill,“ segir Björn
Þorláksson ritstjóri í yfirlýsingu
og þakkar Sóleyju jafnframt gott
samstarf.
Hljómsveitirnar Ylja og
Snorri Helgason halda tónleika á
Græna hattinum í kvöld ásamt
Vestur-Íslendingnum Lindy Vopn-
fjörð.
Ljótu hálfvitarnir verða svo
með spilakvöld á Græna hattinum
á föstudagkvöldið. Prógrammið
var prufukeyrt á Café Rósenberg
um síðustu helgi og ku hafa slegið
í gegn. Sveitin hefur gefið út fjór-
ar plötur með 13 lögum; hver
plata stendur fyrir einn lit og
hvert spil fyrir eitt lag. Á spila-
kvöldi geta gestir dregið úr spila-
stokki og þá leikur sveitin viðkom-
andi lag!
Glæný list og eldgömul landakort
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Blómlegt Ylfa Björt Jónsdóttir snyrtir bæinn í sumar og setur niður blóm. Í gær var hún við kirkjutröppurnar.
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ 2014
Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170
TAX FREE
af öllum s
nyrtivöru
m í júní
Komið o
g
skoðið úr
valið
Seljum einnig:
Peysur, buxur,
pils, leggings
o.m.fl.
STUTT
Alþjóðamálastofnun Háskóla Ís-
lands og Evrópustofa í samstarfi
við Landvernd og Náttúruverndar-
samtök Íslands standa í dag fyrir
opnu málþingi um Ísland, Evrópu-
sambandið og loftslagsbreytingar.
Fjallað verður um stefnu Evrópu-
sambandsins í loftslagsmálum og
hvernig hún hefur áhrif á Íslandi í
gegnum EES-samninginn.
Fundurinn verður í dag frá kl. 13
til 16 í stofu 101 í Odda.
Málþing um lofts-
lagsbreytingar
Hið árlega Heilsuhlaup Krabba-
meinsfélags Íslands fer fram í
kvöld, fimmtudagskvöld. Ræst
verður klukkan 19:00 við hús
Krabbameinsfélagsins í Skógarhlíð
8 í Reykjavík. Forskráning er hafin
á www.hlaup.is og þar verður hægt
að skrá sig til hádegis í dag og hjá
Krabbameinsfélaginu til kl. 18.
Helga Camilla, stöðvarstjóri hjá
World Class, sér um að hita hlaup-
arana upp kl. 18:40. Þátttökugjald
er 1.500 krónur fyrir 15 ára og
eldri og 500 krónur fyrir 14 ára og
yngri. Hægt er að velja um 3 km
skokk eða göngu frá Skógarhlíð að
Öskjuhlíð og til baka eða 10 km
hlaup suður fyrir Reykjavíkur-
flugvöll og til baka. Tími verður
mældur hjá öllum og úrslit birt eftir
aldursflokkum.
Heilsuhlaup Krabba-
meinsfélagsins
Fyrsta sumarnámskeið Útilífsskóla
skáta hefst þriðjudaginn 10. júní en
þrettán skátafélög á höfuðborgar-
svæðinu halda útilífsnámskeið fyrir
börn á aldrinum 8-12 ára.
Um er að ræða tveggja vikna
námskeið og í lok hvers námskeiðs
er farið í einnar nætur útilegu í ná-
grenni Reykjavíkur.
Fram kemur í tilkynningu að öll
skátafélög leggi áherslu á spenn-
andi og skemmtilega dagskrá eins
og útieldun, klifur, rötun og skyndi-
hjálp.
Námskeiðin eru í boði til 18. júlí
en þá fara leiðbeinendur útilífsskól-
ans að undirbúa Landsmót skáta
sem verður á Akureyri í lok júlí. Í
ágúst er þráðurinn tekinn upp að
nýju og 11. ágúst hefst viku nám-
skeið. Nánari upplýsingar eru á
vefnum utilifsskoli.is.
Morgunblaðið/Eggert
Skátar Skátafélögin á höfuðborgarsvæð-
inu bjóða upp á útinámskeið.
Útilífsnámskeið
skáta að hefjast