Morgunblaðið - 05.06.2014, Page 13
FRÉTTIR 13Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ 2014
Viktoría krónprinsessa Svíþjóðar
og eiginmaður hennar Daníel prins
heimsækja Ísland í boði Ólafs Ragn-
ars Grímssonar, forseta Íslands,
dagana 18. og 19. júní.
Með þeim í för verða embættis-
menn sænsku hirðarinnar og utan-
ríkisþjónustunnar.
Viktoría og Daníel koma til Ís-
lands að morgni miðvikudagsins 18.
júní og munu þann dag m.a. kynna
sér tónlist og menningarlíf í Hörpu,
skoða Hellisheiðarvirkjun og heim-
sækja fyrirtækið Össur. Á fimmtu-
daginn fara þau til Húsavíkur og
skoða Mývatn, Goðafoss og fleiri
staði og fara í hvalaskoðun. Þá taka
gestirnir þátt í málþingi í Háskól-
anum á Akureyri um samvinnu á
norðurslóðum.
Á undanförnum árum hafa ríkis-
arfar Noregs og Danmerkur heim-
sótt Ísland í boði forseta og með
heimsókn Viktoríu krónprinsessu
nú hafa allir ríkisarfar Norður-
landa sótt Ísland heim.
Krónprins-
essa Svía í
heimsókn
Skoðar m.a. virkj-
un, Mývatn og hvali
Ljósmynd/Kate Gabor
Konungleg Hjónin Daníel og Vikt-
oría með dóttur sína, Estellu.
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Tólfan, stuðningsmannafélag ís-
lenska karlalandsliðsins í knatt-
spyrnu, heiðraði minningu knatt-
spyrnugoðsagnarinnar og skemmti-
kraftsins Hermanns Gunnarssonar
með því að myndskreyta vegg á
skemmtistaðnum Ölveri í Glæsibæ í
gær.
Ár er síðan Hermann féll frá og
þótti þetta því tilvalinn tími til þess að
heiðra Hermann, eða Hemma Gunn,
með þessum hætti.
Samkvæmt upplýsingum frá
stuðningsmannafélaginu eru áform
um að halda þessum sið áfram og
heiðra minningu afburðaknatt-
spyrnumanna með þessum hætti.
Myndir úr smiðju Henson
Borði með mynd af Hermanni sem
Tólfan útbjó hefur verið hengdur upp
á landsleikjum frá andláti hans og
stendur Hemmi stuðningsmanna-
félaginu nærri. Athöfn var í Ölveri áð-
ur en minningarveggurinn var opn-
aður og lyftu viðstaddir glösum auk
þess að heiðra hann með dynjandi
lófaklappi. Myndirnar á veggjunum
koma úr smiðju Halldórs Einarsson-
ar sem oft er kenndur við Henson en
hann var mikill vinur Hermanns.
Víðar var minningu Hermanns
haldið á lofti. Í Valsheimilinu kom til
að mynda saman hópur fólks til að
rifja upp stundir með kappanum
ógleymanlega.
Heiðursveggur Hemma
Morgunblaðið/Eggert
Hemmi Gunn Tólfan heiðraði minningu Hermanns Gunnarssonar í gær.
Tólfan gerði minningarvegg á Ölveri um Hemma Gunn
Við framkvæmdir á viðbyggingu á
bænum Hamri í Hegranesi fundust
bæði torf- og kolaleifar sem bera
vitni um forna byggð undir öskulagi
frá Heklu sem féll árið 1104.
Frá þessu segir á vefsíðunni
glaumbær.is. Þar segir að á staðnum
hafi verið gerðar fornleifarann-
sóknir og á síðustu dögum þeirra
hafi komið í ljós lítið röskuð gólflög
og fornt eldstæði. Þegar grafið var
út frá gólflögunum sáust rótuð torf-
lög sitt hvorum megin og örlitlar
leifar af undirstöðum veggja.
Smám saman fór skáli að taka á
sig mynd, sem talinn er hafa verið
fjórir metrar á breidd um miðbikið
og á að giska 8-9 metra langur. Í
miðju gólfi var um eins metra langt
eldstæði og merki um bekki eða set
með langhliðum. Í torfi skálans
mátti greina gjósku sem talið er að
sé úr gosi frá Vatnajökli frá því um
1000. Sýni úr gjóskunni verða send
til frekari greiningar en flest bendir
til að skálinn sé frá 11. öld.
Fundu 11.
aldar skála í
Hegranesi