Morgunblaðið - 05.06.2014, Qupperneq 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ 2014
Flugvirkjar hjá Icelandair sam-
þykktu í gærkvöldi að boða til verk-
falls 16. júní næstkomandi, náist
samningar ekki fyrir þann tíma.
Allir flugvirkjar Icelandair munu
þá leggja niður störf sem mun
koma til með að hafa áhrif á milli-
landaflug félagsins. Fundir vegna
kjaradeilunnar hafa verið hjá rík-
issáttasemjara að undanförnu en
engan árangur borið.
Flugvirkjar boða
verkfall 16. júní
Morgunblaðið/Kristinn
Icelandair Flugvirkjar boða verkfall.
Félag íslenskra náttúrufræðinga
ætlar að leita allra löglegra leiða til
að ná fram kröfum sínum og kvikar
ekki frá þeirri kröfu að gerður
verði stofnanasamningur og laun
félagsmanna á Landspítala leiðrétt.
Félagsdómur hefur ógilt verkfalls-
boðun náttúrufræðinga sem starfa
á Landspítalanum.
Páll Halldórsson, formaður fé-
lagsins, sagði í gær að m.a. væri til
skoðunar að boða aftur til verkfalls
en þá hugsanlega með öðrum
hætti.
Í fréttatilkynningu félagsins í
gær kemur fram að laun náttúru-
fræðinga á Landspítalanum hafa
rýrnað stöðugt frá því að stofnana-
samningur var gerður árið 2001 og
launaþróun þeirra verið mun lakari
en annarra opinberra starfsmanna.
Við þetta verði ekki unað.
„Landspítali verður að taka hlut-
verk sitt alvarlega í gerð og fram-
kvæmd stofnanasamninga og ganga
strax til samninga við Félag ís-
lenskra náttúrufræðinga. Samn-
inganefnd ríkisins þarf að fylgja
eftir framkvæmd þess kerfis sem
samið var um árið 1997 eða semja
um annað launamyndandi kerfi sem
tryggir jafnræði,“ segir í frétta-
tilkynningu FÍN.
Samið var um nýtt launakerfi við
ríkið 1997 og áhersla lögð á að
færa launaröðun í kjarasamningi
yfir í sérstaka stofnanasamninga.
FÍN heldur því fram að Landspít-
alinn hafi frá upphafi hunsað þetta
kerfi gagnvart náttúrufræðingum.
Auk þess hafi verið gengið fram
hjá félagsmönnum FÍN á Landspít-
alanum í jafnlaunaátaki fyrrverandi
ríkisstjórnar.
Þegar verkfall var boðað á dög-
unum var tiltekið að það hæfist 4.
júní „hafi endurskoðun á stofn-
anasamningi Landspítala og FÍN
ekki náðst fyrir þann tíma“. Í dómi
Félagsdóms er vísað til þessa orða-
lags og að í kjarasamningi aðila
segi að viðræður um stofnanasamn-
ing skuli fara fram undir friðar-
skyldu.
Kemst dómurinn að þeirri niður-
stöðu að þetta ákvæði bindi aðila
málsins þrátt fyrir að gildistími
kjarasamningsins sé liðinn. FÍN
hafi því verið óheimilt að boða til
verkfalls í því skyni að knýja á um
gerð stofnanasamnings.
omfr@mbl.is
Morgunblaðið/Þórður
Kjaradeila Náttúrufræðingar hafa óskað eftir samningafundi nk. föstudag.
Vilja stofnanasamning
» Félagsdómur úrskurðaði að
boðun verkfalls náttúrufræð-
inga á Landspítalanum væri
ólögmæt.
» FÍN krefst þess að spítalinn
geri stofnanasamninga við fé-
lagsmenn sem hafi setið eftir í
launaþróuninni í mörg ár.
» Þá gagnrýna þeir harðlega að
hafa ekki fengið 4,8%
launahækkun í samræmi við
jafnlaunaátakið þrátt fyrir að
vera kvennastétt á Landspít-
alanum.
Leita allra leiða til að ná fram kröfum
Til skoðunar að boða aftur til verkfalls en þá með öðrum hætti, segir formaður félagsins
Veiðiferð Bjarna Benediktssonar
fjármálaráðherra og Sigmundar
Davíðs Gunnlaugssonar forsætisráð-
herra í Norðurá í Borgarfirði í dag er
ekki boðsferð, heldur er um að ræða
opnunarathöfn, að sögn Sigurðar
Más Jónssonar, upplýsingafulltrúa
ríkisstjórnarinnar. Ráðherrarnir
muni hefja veiðitímabilið í ánni.
Svanhildur Hólm, aðstoðarkona
Bjarna Benediktssonar fjármálaráð-
herra, staðfesti að Bjarni muni ein-
ungis taka nokkur köst.
Siðleysi ráðherranna
Jóhanna Sigurðardóttir, fyrrver-
andi forsætisráðherra, gagnrýndi
ráðherrana tvo harðlega á Face-
book-síðu sinni í gær þar sem hún
sagði það siðleysi af hálfu Bjarna og
Sigmundar að þiggja boðið.
Sigurður segir gagnrýni Jóhönnu
á misskilningi byggða. Ekki sé verið
að brjóta siðareglur ráðherra, eins
og Jóhanna hefur gefið í skyn.
Stangaveiðifélag Reykjavíkur
leigir ekki lengur veiðiréttinn í
Norðurá heldur annast Einar Sig-
fússon sölu veiðileyfa fyrir veiðirétt-
areigendur. Ákveðið var að bjóða
ráðherrunum tveimur að vera við-
staddir opnunina, sem fram fer í dag,
og þáðu þeir báðir boðið. Svanhildur
Hólm segir að eftir stutt stopp muni
Bjarni fara suður og halda erindi á
morgunverðarfundi, Iceland’s
Bright Future, á Hilton Nordica
snemma í dag.
Í samtali við Morgunblaðið í gær
fagnaði Einar Sigfússon því að ráð-
herrarnir hefðu þegið boðið. „Eftir
hrunið og uppgang áranna 2006 til
2008 hefur laxveiði fengið nokkuð
neikvæðan stimpil á sig og veiðirétt-
areigendur eiga við ímyndarvanda
að stríða,“ sagði Einar.
Hann sagðist jafnframt vilja vinna
í því að breyta ímynd laxveiða í huga
fólks að nýju og ráðherrarnir skildu
vel hvað það væri gott fyrir þann
mikilvæga atvinnuveg sem laxveiðin
er.
Laxveiðiferð ráð-
herra ekki boðsferð
Bjarni mun einungis taka nokkur köst
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Laxveiði Norðurá í Borgarfirði.
VELDU VIÐHALDSFRÍTT
PVC gluggar og hurðir - íslensk framleiðsla fyrir íslenskt veðurfar
• Barnalæsing
• Mikil einangrun
• CE vottuð framleiðsla
• Sérsmíði eftir málum
• Glerjað að innan
• Áratuga ending
• Næturöndun
Sýningarsalur í Skipholti 35 • Seljabót 7, Grindavík • www.pgv.is • Sími 510 9700
rafkaup.is
Ármúla 24 • S: 585 2800
SÆNSK FRAMLEIÐSL A