Morgunblaðið - 05.06.2014, Síða 17

Morgunblaðið - 05.06.2014, Síða 17
FRÉTTIR 17Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ 2014 BAKSVIÐ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Framleiðslan er greinilega í öðrum takti en á sama tíma undanfarin ár. Fituhlutfallið hefur einnig verið að aukast. Þetta lítur mjög vel út,“ seg- ir Baldur Helgi Benjamínsson, fram- kvæmdastjóri Landssambands kúabænda, um þróun mjólkur- framleiðslunnar. Innvigtun mjólkur í landinu var í liðinni viku 2.860 þúsund lítr- ar sem er tæplega 260 þúsund lítr- um meira en í sömu viku á síð- asta ári. Aukningin er 10%. Mjólkurneysla jókst meira á síð- asta ári en áætlanir mjólkuriðnaðar- ins gerðu ráð fyrir, sérstaklega á fituríkum afurðum. Það varð til þess að mikið gekk á birgðir og flutt var inn smjör fyrir jólin. Síðan hafa bændur óspart verið hvattir til að auka framleiðsluna og hafa hana fituríkari. Kvóti hefur verið aukinn stórlega og Mjólkursamsalan lýst því yfir að öll mjólk verði keypt á fullu afurðastöðvaverði í ár og út næsta ár. Tekur tíma að bregðast við Bændur sýndu strax áhuga á að nýta þetta tækifæri og hafa gripið til ýmissa ráða sem ýmist eru til skamms tíma eða lengri. „Það tekur þennan tíma að bregðast virkilega við og auka framleiðsluna,“ segir Baldur. Hann nefnir að bændur hafi getað aukið framleiðsluna strax með auk- inni kjarnfóðurgjöf og dregið að slátra mjólkurkúm. Lengri tíma taki að láta kvígurnar bera fyrr og ala upp nýjar mjólkurkýr í stað þeirra sem slátrað er eða til að fjölga í fjós- inu. „Við sáum verulega aukningu í sæðingum á síðustu mánuðum síð- asta árs og hún hefur haldið áfram eftir áramót. Kvígurnar munu koma inn í framleiðsluna í auknum mæli nú í sumar,“ segir Baldur. „Mér sýnist að þetta geti orðið býsna gott sumar,“ segir hann um útlitið. Hann segir að árað hafi vel um allt land og gróður hafi tekið vel við sér. Það sé mikilvægt fyrir fram- leiðsluna í sumar og næsta vetur. Þá hafi veður verið gott og margir búnir að hleypa kúnum út. Framleiða mikið í sumar Venjulega dregur úr mjólkur- framleiðslu á vorin. Síðustu tvö ár náði hún hámarki um 20. maí og féll hratt þegar leið á júnímánuð. Þróun- in virðist vera í öðrum takti nú. Hún er enn á mikilli uppleið og því gæti framleiðslan orðið mikil fram á sum- ar. „Árstíðasveiflan er enn nokkuð mikil en menn geta dregið úr henni með því að láta kýrnar bera fyrr. Við höfum það markmið að draga úr henni.“ Baldur vonar að framleiðslan nái 130 milljón lítrum á árinu en tekur fram að það ráðist mjög af ytri að- stæðum, eins og veðri í sumar og haust. Það er um 8 milljón lítrum meira en á síðasta ári og 5 milljón lítrum meira en útgefið greiðslu- mark. Borð fyrir báru Verulega gekk á birgðir mjólkur- afurða á síðasta ári. Þótt salan sé enn að aukast, eykst framleiðslan hrað- ar, eins og staðan er núna. Baldur telur að salan á árinu verði umfram greiðslumarkið, sem er 125 milljónir lítra, eða allt að 127 millj- ónir lítra. Gangi það eftir skapast svigrúm til að laga birgðastöðuna og meira borð verður fyrir báru fyrir jólin en var í fyrra. Mjólkin streymir úr kúnum  Mjólkurframleiðslan enn á hraðri uppleið  Virðist vera í öðrum takti en í fyrra  Ráðstafanir bænda virka  Sala á fituríkum mjólkurafurðum eykst einnig en heldur ekki í við framleiðsluna Morgunblaðið/Eggert Í fjósi Kýrnar hafa skilað sínu í vetur og framleiðslan er enn á uppleið. Útlit er fyrir metframleiðslu í sumar. Sú sölusprenging sem varð í mjólkurafurðum á síðasta ári heldur áfram. Salan á tólf mán- aða tímabili, miðað við lok apríl, var 124,5 milljónir lítra, um- reiknaðar í fitu, en 118,8 millj- ónir lítra á próteingrunni. Er þetta 7,6 eða 2,4% aukn- ing frá sama tímabili á árinu áð- ur, eftir því hvor viðmiðunin er notuð. Neytendur halda samkvæmt því áfram að velja fituríkari mjólkurafurðir í meira mæli en verið hefur undanfarin ár. Neytendur vilja fitu MJÓLKURSALA EYKST Baldur Helgi Benjamínsson Leitum eftir ca 400-600 fm skrifstofuhúsnæði fyrir ákveðinn kaupanda. Skilyrði er að húsnæðið sé vel sjáanlegt og samgöngur að og frá því séu góðar. Reykjavík Sími 588 9090 • Síðumúla 21 • 108 Reykjavík • www.eignamidlun.is Fagleg og vönduð vinnubrögð Reynir Björnsson löggiltur fasteignasali, sími 895 8321. Óskum eftir skrifstofuhúsnæði Morgunverðarfundur 6. júní Í tilefni rannsóknar á mati á umhverfisáhrifum vegagerðar býður VSÓ Ráðgjöf til morgunverðarfundar 6. júní næstkomandi. Á fundinum verður farið yfir helstu niðurstöður um þróun mats á umhverfisáhrifum undanfarin 20 ár þ.m.t. fjöldi umhverfisþátta, ólíkt vægismat og gæði matsins, ásamt tillögum að úrbótum. Þá verður rætt um samráð og aðkomu Landverndar að matinu og Skipulagsstofnun lítur yfir farinn veg. Frummælendur eru: Auður Magnúsdóttir, umhverfisstjórnunarfræðingur hjá VSÓ Ráðgjöf Guðmundur Ingi Guðbrandsson, framkvæmdastjóri Landverndar Ásdís Hlökk Theodórsdóttir, forstjóri Skipulagsstofnunar Fundurinn hefst kl. 08:30 og stendur til 10:00 í Hvammi á Grand Hótel Reykjavík, föstudaginn 6. júní. Boðið er upp á morgunverð frá kl. 08:00. Allir velkomnir. Skráning á vso@vso.is Mat á umhverfisáhrifum í 20 ár ÍS L E N S K A /S IA .I S /G R A 69 33 3 06 /1 4 Í fyrradag, þriðjudaginn 3. júní, afhjúpaði forseti Alþingis, Einar K. Guðfinnsson, málverk af Emil Jónssyni, fyrrverandi forseta sam- einaðs Alþingis, að viðstaddri fjöl- skyldu Emils, alþingismönnum, fyrrverandi forsetum Alþingis og fleiri gestum. Halldór Pétursson listmálari málaði myndina árið 1973 og var hún gjöf frá ætt- ingjum Emils. Emil Jónsson var forseti sam- einaðs Alþingis 1956-1959. Hann sat á Alþingi í tæp 37 ár og gegndi ráðherrastörfum í tæp 18 ár. Hann var einn fárra manna til að gegna oddvitastöðu löggjafar- og fram- kvæmdavalds er hann var um tveggja vikna skeið forseti samein- aðs Alþingis og forsætisráðherra Íslands samtímis. Nú á Alþingi eru portrettmyndir af öllum for- setum sameinaðs þings frá 1901. Fjölskylda Emils og ýmsir gestir voru viðstödd athöfnina. Afhjúpuðu málverk af Emil Jónssyni  Forsetar sameinaðs þings á Alþingi

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.