Morgunblaðið - 05.06.2014, Qupperneq 18
18 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ 2014
Fyrrverandi yfirhershöfðinginn Abdel Fattah al-Sisi fór með sigur af
hólmi í forsetakosningunum í Egyptalandi í síðustu viku og hlaut 96,9% at-
kvæða, að sögn yfirkjörstjórnar landsins. Kosningaþátttaka var 47,45%.
Það var Sisi sem steypti fyrrverandi forseta, Mohamed Morsi, af stóli fyrir
tæpu ári en samtök Morsis, Bræðralag múslíma, sniðgengu kosningarnar.
Sisi hvatti Egypta til að vinna að friði og jöfnuði eftir að úrslitin voru kunn-
gjörð á þriðjudag. Í tilkynningu frá Hvíta húsinu sagði að stjórnvöld í
Washington hlökkuðu til að eiga samstarf við Sisi en þau kölluðu jafnframt
eftir því að forsetinn ynni að því að tryggja mannréttindi í landinu.
AFP
Hlaut 96,9% atkvæða
Abdel Fattah al-Sisi kjörinn forseti
Lars Løkke
Rasmussen, fyrr-
verandi forsætis-
ráðherra Dan-
merkur, mun
áfram sinna for-
mennsku í hægri-
flokknum Ven-
stre, þrátt fyrir
hávær köll um að
hann segði af sér.
Þetta var sam-
róma niðurstaða miðstjórnar flokks-
ins eftir sjö tíma maraþonfund sem
haldin var á þriðjudag.
„Það þjónar hagsmunum okkar
best að við viðhöldum núverandi for-
ystu, með mig sem formann og
Kristian Jensen sem varaformann.
Við vitum báðir að við stöndum
frammi fyrir mikilli áskorun. Við vit-
um líka báðir að það hefðu komið til
aðrar áskoranir ef við hefðum valið
aðrar lausnir,“ sagði Løkke að fund-
inum loknum. Hann sagði að báðar
niðurstöður hefðu vakið hörð við-
brögð en að hann og Jensen gætu í
sameiningu komið á friði og trausti
meðal flokksmanna Venstre.
Greiddu fyrir reykingarnar
Ljóst er að Løkke bíður mikið
verk að endurheimta stuðning bak-
landsins en fregnir af því að formað-
urinn hefði keypt fatnað og utan-
landsferðir á kostnað flokksins hafa
valdið mikilli óánægju. Flokkurinn
reiddi einnig fé af hendi til að Løkke
gæti reykt á reyklausu herbergi
Bella Sky-hótelsins og hefur Jens
Rohde, Evrópuþingmaður flokksins,
m.a. sagt að sagan endurtaki sig í sí-
fellu hvað varðar uppátæki Løkke
og að Venstre geti ekki staðið í kosn-
ingabaráttu uggandi yfir því hvað
morgundagurinn ber í skauti sér.
Rohde hét sæti sínu í Evrópu-
þingskosningunum sem fram fóru í
maí en flokksfélagi hans Morten
Løkkegaard tapaði sínu sæti til
danska þjóðarflokksins.
Áfram
formaður
Venstre
Lars Løkke
Rasmussen
Lars Løkke
vinnur varnarsigur
Nærri 800 börn voru grafin í fjölda-
gröf á Írlandi, nærri heimili fyrir
ógiftar mæður, sem rekið var af kaþ-
ólskum nunnum. Það var sagnfræð-
ingurinn Catherine Corless sem
gerði uppgötvunina þegar hún rann-
sakaði skjöl um dauðsföll á St.
Mary’s-heimilinu í Tuam í Galway
en íbúar fundu beinin í rotþró árið
1975, þegar steypt hella sem lá yfir
þrónni brotnaði.
Skjölin benda til þess að 796 börn,
þau elstu átta ára gömul, hafi verið
lögð í gröfina á þeim 35 árum sem
heimilið var starfrækt, frá 1925 til
1961. Á þeim tíma neitaði kaþólska
kirkjan að skíra börn sem fæddust
utan hjónabands og jarðsetja þau í
vígðri mold.
Neyddar til að gefa börnin
Heimilið var rifið fyrir mörgum
árum og jörðin hefur staðið óbyggð.
Þar til nýlega töldu íbúar að gröfin
hefði verið tekin í hungursneyðinni
miklu á fjórða áratug nítjándu aldar,
þegar hundruð þúsunda létust.
St. Mary’s var eitt af mörgum
heimilum fyrir ógiftar þungaðar
mæður en þær voru oftar en ekki út-
skúfaðar úr þjóðfélaginu og neyddar
til að gefa börnin frá sér. Skjölin
sem Corless hafði til rannsóknar
benda til þess að flest barnanna hafi
dáið úr næringarskorti eða smit-
sjúkdómum á borð við mislinga og
berkla.
Vonir standa til að minnisvarði um
börnin verði reistur á jörðinni en
kallað hefur verið eftir því að yf-
irvöld taki málið til rannsóknar.
800 börn grafin
í rotþró á Írlandi
Fæddust á heimili fyrir ógiftar
þungaðar mæður Fundust 1975
AFP
Átakanlegt St. Mary’s-heimilið var
rekið af kaþólskum nunnum.
Z-BRAUTIR OG GLUGGATJÖLD
FAXAFENI 14 - 108 REYKJAVÍK - S. 525 8200 - Z.IS -
ÚRVA
L - GÆ
ÐI - Þ
JÓNU
STA
HÖFUM HAFIÐ SÖLU Á ESPRIT HEIMILISVÖRUM
Vatnsdælur
Skeifan 3E-F · Sími 581-2333 · rafver@rafver.is · www.rafver.is
K Ä R C H E R S Ö L U M E N N
V E R T U Á Ö R U G G U M S T A Ð
BP 4 / BP 6
Ryðfríar og öflugar
borholu- og
brunndæla
SCP 12000
Dæla - fyrir ferskvatn
Stillanlegur vatnshæðarnemi
BP 4 ecologic
Dæla með þrýstikút
og þrýstijafnara
BP 5
Garðdæla fyrir
aukinn þrýsting
SDP 9500
Dæla - fyrir óhreint vatn
BP 2
Ryðfrí og öflug
borholu- og
brunndæla
Neysluvatnsdælur, brunndælur, borholudælur
Fjölbreytt úrval af dælum fyrir heimilið, sumarhúsið,
húsbílinn, bátinn eða í garðinn.