Morgunblaðið - 05.06.2014, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 05.06.2014, Qupperneq 23
UMRÆÐAN 23 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ 2014 Á Íslandi geta sjúk- lingar sem hafa verið greindir með heilabil- un af Alzheimer-gerð undirritað löggern- inga samkvæmt ný- legum dómi Hæsta- réttar (HR). Löggerningar eru hvers konar vilja- yfirlýsingar manna sem er ætlað að stofna rétt, breyta rétti eða fella niður rétt. Það eru t.d. kaup- og leigusamningar, af- söl, erfðaskrár, gjafir, kaupmálar og ábyrgðir á lánum. Mikilvægt er að fólk viti af þessu því þetta skapar tækifæri til misneytingar. Hver óprúttinn sem er getur með brögðum fengið alz- heimersjúkling til þess að und- irrita löggerning. Eftir á reynist ógjörningur að fá það leiðrétt fyr- ir dómi. Vottun um andlegt hæfi alz- heimersjúklings er, samkvæmt dómi HR, ekki alltaf skilyrði fyrir því að löggerningur með und- irritun hans teljist gildur. Fyrir þessu færði HR þó ekki rök. Sam- kvæmt dóminum getur alzheim- ersjúklingur með einni undirritun á eitt skjal bæði afturkallað fyrri erfðaskrár og gert nýja erfðaskrá án þess að vottað sé um andlegt hæfi hans. Einhverjum gæti fund- ist þetta brjóta í bága við 42. gr. erfðalaga en HR er á öðru máli. Dómur HR gefur að mínu áliti fordæmi fyrir því að ekki sé þörf staðfestingar á því hvort heilabil- uð manneskja skilji löggerninga sem hún undirritar eða viti afleið- ingar þeirra. Vitað er að hin óvægna heilabil- un, sem kennd er við geð- og taugalækninn Alois Alzheimer, fer sí- versnandi og er ólæknandi. Í ljósi þess er athyglisvert að þó að niðurstöður taugasálfræðiprófa sýndu „byrjandi Alz- heimersjúkdóm“ hjá sjúklingi í desember 2009 og þó að læknis- fræðileg greining um „byrjandi heilahrörn- unarsjúkdóm“ lægi fyrir í janúar 2010, þá mat HR sjúklinginn hæfan til undirritunar löggerninga í október 2011. Lesanda til glöggvunar mundi alzheim- ersjúklingurinn, í lok árs 2009, t.d. ekkert úr texta eftir að liðið höfðu 30 mínútur frá því að hann var lesinn. HR taldi hann samt hæfan til undirritunar löggerninga nær tveimur árum síðar. Þrátt fyrir það að versnun á minni og hugrænni getu alzheimersjúklingsins var talin vera „mjög mikil“ á árinu 2009 og samskonar áframhaldandi vitræn versnun fannst í janúar 2011, þá kvað HR sjúklinginn hæfan til undirritunar löggerninga. Hin mikla vitræna versnun sem að- standandi upplýsti um í bæði skiptin birtist m.a. í hæfni sjúk- lingsins til „að taka ákvarðanir um hversdagslega hluti“, „skilja hvað sé um að vera og hugsa hluti frá upphafi til enda“ og í getu hans til „að sjá um fjármálin, t.d. ellilíf- eyri, bankaviðskipti“. Með hækkuðum lífaldri fólks vex tíðni heilabilunar í heiminum og samfara því hefur tíðni mis- neytingar á öldruðum aukist. Margskonar vitrænir veikleikar heilabilaðra, s.s. trúgirni og und- anlátssemi, útsetja þá fyrir ráða- bruggi, blekkingum og sviksemi. i) Alzheimer-samtök vara við þessu og benda á að heilabilaðir séu plataðir til undirritunar lög- gerninga og féflettir. ii) Víða er verið að skerpa á lögum og reglu- gerðum vegna þessa. iii) Erfiðustu málin eru þegar grunur um mis- neytingu vaknar innan fjölskyldna og þau mál krefjast sérstakrar vandvirkni í vinnubrögðum. iv) Bæði þekkingu og hæfni til að taka á slíkum málum skortir hér- lendis. Í ljósi umrædds dóms HR er brýnt að endurskoða lög og verk- lag í þessum málum hér á landi, í því skyni að koma í veg fyrir að alzheimersjúklingar séu hafðir að féþúfu. Heimildir: i) Pinsker, D.M., McFarland, K., og Pac- hana, N. A. (2010). Exploitation of Older Adults: Social Vulnerability and Perso- nal Competence Factors. Journal of Applied Gerontology, 29 (6), bls. 740-761. http://jag.sagepub.com/content/29/6/ 740.abstract. ii) Sjá t.d. frá Texas, http://www.alz.org/ about_us_about_us_.asp. iii) Sjá t.d. frá Skotlandi, http:// www.alzscot.org/assets/0000/9155/ Annual_Accounts_2012-13.pdf. iv) Shulman, K.I., og félagar (2007). As- sessment of Testamentary Capacity and Vulnerability to Undue Influence. Treat- ment in Psychiatry, 163, 722-727. http:// ajp.psychiatryonline.org/data/journals/ ajp/3812/07aj0722.pdf. Alzheimer heilabilun – og um undirritun löggerninga Eftir Gunnar Hrafn Birgisson » Vottun um andlegt hæfi alzheimersjúk- lings er, samkvæmt dómi HR, ekki alltaf skilyrði fyrir því að lög- gerningur með undir- ritun hans teljist gildur. Gunnar Hrafn Birgisson Höfundur er sálfræðingur. bræðslunni var kölluð peningalykt. En þú átt ekki þín börn hér, ég á það. Nærumhverfi Grafarvogs- barnsins er tæpast skólahverfi þess, það er miklu minna en nær- umhverfið í landsbyggðarþorpinu. Þetta gerist á sama tíma og höf- uðborgarsvæðið fer stækkandi. Í tíma, og á annatíma, er leiðin úr Grafarvoginum niður í Aðalstræti líklega ekki ósvipuð leiðinni frá Keflavík í Kópavoginn. Hvað er langt þangað til Keflavík verður út- hverfi Reykjavíkur? Nú þegar sækja margir Suðurnesjamenn vinnu í bæ- inn. Ég hef komið út á land. Ég var á tjaldstæði snemma morguns og sá þorpið vakna. Jeppa af stærstu gerð var ekið frá einbýlishúsi með hlíðinni og svo aftur til baka götu neðar. Kona var að skila barni sínu á leik- skólann sem var svona 30 m neðan við hús hennar. Svo ók bíllinn sömu leið til baka, u.þ.b. kílómetra í allt. Það er sundlaug þarna og við fórum í pottinn um kvöldið. Fallþungi kvennanna þarna var töluvert mikill. Reykvíkingar eru ekki jafn feitir og landsbyggðarfólkið, það er lýð- heilsufræðileg staðreynd. En samt komast margir þeirra heldur ekki spönn frá rassi nema með mörg tonn af járni undir sér. Mældur útivist- artími margra Íslendinga er vafa- laust eitthvað innan við fimm mín- útur, úr bílnum og inn í yfirbyggðan stórmarkað eða vinnustað. Það væri rannsóknarefni. Landsbyggðavargurinn vill fljúga fyrirhafnarlaust út á þetta annnes þar sem Reykjavíkurflugvöllur er staðsettur. Þeir beita fyrir sig sjúkl- ingum. Jú, jú, það verða slys. Trygg- ingafræðingur kann að meta lík- urnar á flugslysi þarna við Alþingi, Landspítalann og háskólana. Þeir vilja komast fyrirhafnarlaust á þá staði sem Grafarvogsbarnið veit ekkert um fyrr en það hefur náð brennivínsaldrinum. Hjörleifur, í umræðu um skipu- lagsmál ræðum við hvernig við lifum og hrærumst 24 tíma á dag. Við ræð- um náttúrulega tilvist okkar. Það er líf okkar. Náttúrulega umhverfið er manngert, a.m.k. menningarlega. Samgönguhættir eru menning. Páll Skúlason heimspekingur hefur vissulega fundið Guð sinn við Öskju, fjarri borginni, en ef hann hefði litið um öxl þá hefði hann séð jeppann sinn. Ef þú ætlar að styðja Framsókn- arflokkinn til valda í Reykjavík, þá skal ég gefa þér miklu sniðugri hug- mynd. Þú skalt stinga því að þínu fólki að lofa bæjarbúum ársbirgðum af kóki, bara ef Framsóknarflokk- urinn kemst til valda. Frumherji getur borgað brúsann. En flugvöllur í hjarta borgar sem, þegar hún verð- ur stór, ætlar sér að vera til unaðs íbúum sínum jafnt sem gestum og vill vera skemmtileg, aðlaðandi og falleg, það er bara vitleysa sem á ekki framtíðina fyrir sér. Svo má deila um aðrar framkvæmdir, svo sem Hofsvallagötu og Borgartún. Viljinn var örugglega sá að gera eitt- hvað vistvænt og skemmtilegt, og við styðjum það, enda þótt við- urkennt sé að eitthvað eru menn samt mistækir. Guttormssonar » Í umræðu um skipu- lagsmál ræðum við hvernig við lifum og hrærumst 24 tíma á dag. Við ræðum náttúrulega tilvist okkar. Höfundur er kennari og Reykvíkingur. mbl.is alltaf - allstaðar Svalaskjól -sælureitur innan seilingar Smiðsbúð 10 • 210 Garðabær • Sími: 554 4300 • Fax: 564 1187 Við höfum framleitt viðhaldsfría glugga og hurðir í 30 ár Nánari upplýsingar á www.solskalar.is Frábært skjól gegn vindi og regni Yfir 40 litir í boði! Hentar mjög vel íslenskri veðráttu K R I N G L U N N I & S M Á R A L I N D ✆ 565 6050 ✆ 565 6070 ÚTSKRIFTARGJÖFIN HENNAR FÆST HJÁ OKKUR

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.