Morgunblaðið - 05.06.2014, Side 24

Morgunblaðið - 05.06.2014, Side 24
24 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ 2014 Frábær lausn fyrir hallandi og óreglulega glugga PLÍ-SÓL GARDÍNUR Álnabær Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta. Síðumúla 32, Reykjavík. Sími: 588 5900 ▪ Tjarnargötu 17, Keflavík. Sími: 421 2061 Glerárgötu 32, Akureyri. Sími: 462 5900 ▪ alnabaer.is ▪ Opnunartími: mán.-fös. 11-18 Sendum frítt hvert á land sem er gegn staðgreiðslu Hringdu og bókaðu tíma í máltöku Meira úrval • Meiri gæði Íslensk framleiðsla eftir máli Félag eldri borgara Hafn- arfirði Föstudaginn 30. maí var spilað á 12 borðum.Spiluð voru 27 spil. Efstu pör í N/S (% skor): Albert Þorsteinss. - Björn Árnason 60,8 Bjarni Þórarinsson - Hrólfur Guðmss. 56,8 Sverrir Jónsson - Óli Gíslason 55,7 Stefán Ólafsson - Skarphéðinn Lýðss. 52,9 Bjarnar Ingimarss. - Bragi Björnsson 52,0 A-V Tómas Sigurjónsson - Björn Svavarss. 61,1 Ólöf Hansen - Alma Jónsdóttir 57,2% Kristrún Stefánsd. - Sverrir Gunnarss. 56,6 Þorl. Þórarinss. - Bergljót Gunnarsd. 54,9 Sigríður Benediktsd. - Sigurður Þórhallss. 53,8 Það var spilað á 15 borðum þriðjudaginn 27. maí. Spiluð voru 26 spil. Efstu pör í N/S: Auðunn Guðmss. – Guðm. Sigursteinss. 63,5 Oliver Kristóferss. – Óskar Ólafsson 56,7 Örn Ingólfsson – Örn Isebarn 56,6 Örn Einarsson – Guðlaugur Ellertss. 55,1 Friðrik Jónsson – Björn Svavarsson 54,6 BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson| brids@mbl.is Útgerðarmenn eins og Einar Guð- finnsson, Einar Sig- urðsson ríki, Tryggvi Ófeigsson og Óskar Hall- dórsson, svo nokkrir séu nefndir, eru þekkt nöfn í útgerð- arsögu landsins. Þetta voru menn sem kölluðu ekki allt ömmu sína. Þeirra barátta fór fram í bönk- unum frá morgni til kvölds og var ekki alltaf dans á rósum. En þeir höfðu ekki einkarétt á óveiddum fiski í sjónum eins og kollegar þeirra í Landssambandi íslenskra útvegsmanna í dag. Þeir voru ekki gulltryggðir eins og margir kvóta- greifar dagsins. Vel má segja að þessir karlar í LÍÚ eigi allt gott skilið. En lögverndaður réttur þeirra til að selja óveiddan fisk í sjónum þegar þeim hentar er eins- dæmi í Íslandssögunni. Þetta er al- gjörlega óskiljanlegt og óásætt- anlegt hvernig sem á er litið. Þýðir einfaldlega að þessir menn ráða því að mörgu leyti hvar byggð skal haldast á Íslandi. Þetta er augljóst öllum sem vilja sjá, nema svoköll- uðum ráðamönnum þjóðarinnar. Þeir hvorki sjá né skilja. En að ríf- ast um keisarans skegg, það kunna þeir. Kílóið af óveiddum fiski á 2.500 kr. Án nokkurs kinnroða hefur út- gerðaraðall landsins selt óveiddan fisk í sjónum fyrir jafnvel milljarða og farið með þá peninga burt á bakinu í sekkjum, ef svo mætti segja. Beint fyrir framan nefið á saklausum sérfræðingum í fisk- vinnslu í frystihúsunum og ein- hverjum duglegustu sjósóknurum í heimi hér, sem við það hafa misst frumburðarrétt sinn. Margir Vest- firðingar hafa ekki látið sitt eftir liggja í þeim gráa leik. Og nýjasta dæmið eru hjón í Hafnarfirði sem eru alls góðs makleg. Þau hafa staðið vaktina. En að þau eigi að fá að setjast í helgan stein með marga milljarða króna í veskinu fyrir óveiddan fisk í hafinu um- hverfis Ísland er óskiljanlegt þeim sem ekki hafa gáfur umfram með- allag. Í dag er þorskígildi á óveiddum fiski virt á 2.500 kr. kíló- ið. Það þýðir að útgerðarmaður með bréf frá stjórnvöldum upp á 1000 tonna einkarétt getur selt þau á tvö þúsund og fimm hundruð milljónir – 2.500.000.000 króna. Er eitthvert vit í þessu? Útgerðarmenn með pálmann í höndunum Fjöldi útgerðarmanna, sem komst yfir togara á sínum tíma, þurfti ekki að hætta sínu eigin fé. Þeir fengu lánað nær til fulls fyrir kaupunum úr opinberum sjóðum og veðin voru aðeins í skipunum sjálfum. Útgerðarmenn höfðu því engu að tapa. Nokkrum árum síðar voru þessir sömu menn, sem ekki hættu eigin fjármagni nema að litlu leyti til kaupa á skipum, taldir sjálfsagðir handhafar, ef ekki eig- endur kvótans þegar hann kom til sögunnar. Þá voru rökin þau að þeir hefðu með eigin fjármagni og fórnarlund dregið fiskinn úr sjó og fært hann á land áratugum saman. Steingrímur Hermannsson var sjávarútvegsráðherra í ríkisstjórn Gunnars Thoroddsen 1980–1983. Hann fékk Vestfirðinginn Baldur Jónsson frá Aðalvík sér til að- stoðar. Þeir settu saman tillögur um nýtt kerfi í fiskveiðistjórnun. Grundvöllur þess var að það leiddi ekki til byggðaröskunar. Því miður báru menn ekki gæfu til að fara eftir þessum tillögum þeirra Stein- gríms og Baldurs. Ráðherrann sem tók við af Steingrími valdi aðrar leiðir sem við súpum nú seyðið af. Framkvæmd þeirra má líkja við einelti gegn mörgum byggðarlögum. Frumbyggjarétt- urinn miskunnarlaust tekinn af fólkinu. Rússneska byltingin og LÍÚ Rússneska byltingin hefði aldrei orðið ef aðallinn hefði gefið tommu eftir og alþýða manna fengið nokkrum brauðhleifum meira til að drepast ekki úr hungri. Hvað þá heldur að hleypa fólkinu að kjöt- kötlunum hjá sér. Það mátti nátt- úrlega alls ekki. Græðgin réð sem fyrr og síðar. Þeir sem hafa fengið frumburðarrétt þjóðanna upp í hendurnar gefa yfirleitt aldrei tommu eftir fyrr en of seint. Þeir þekkja yfirleitt ekki sinn vitj- unartíma. Stefán Jónsson fréttamaður seg- ir frá ýmsum karakterum á Djúpa- vogi í uppvexti sínum í bókinni Að breyta fjalli. Einn þeirra var Karl Steingrímsson, alþýðuspekingur mikill. Hann hefði þess vegna get- að verið alinn upp undir vestfirsk- um fjöllum sem austfirskum. Hann sagði, að sögn Stefáns, að allt fólk- ið í landinu ætti fiskimiðin og hlut- deild í aflanum – allir þeir sem vinna við að ná honum og koma honum í verð. Karl sagði einnig að þegar menn eignuðust of mikið af peningum, þá yrði ágirndin svo mikil, að þeir réðu ekki lengur við hana. Þess vegna yrði að koma í veg fyrir að einstöku menn yrðu of ríkir. „Viljið þið gefa mömmu í soðið?“ Það er talsvert vatn til sjávar runnið síðan Óskar Jóhannsson, kaupmaður í Sunnubúðinni í Reykjavík, var að alast upp í Bol- ungarvík á kreppuárunum. Þá var það soðningin sem hélt lífi í fólk- inu. Vá fyrir dyrum ef ekki gaf á sjó, kannski vikum saman. Móðir Óskars sendi hann oft niður á bryggju. „Viljið þið gefa mömmu í soðið?“ sagði hann við sjómennina. Ekkert var sjálfsagðara. Sam- hjálpin í verki. Þessir karlar þekktu það á eigin skinni þegar ekkert var til að setja í pottinn. Nú er það stóra spurningin hvort kvótagreifarnir á Íslandi vilja gefa mömmu í soðið. Vilji þeir það ekki, þekkja þeir ekki sinn vitjunartíma frekar en rússneski aðallinn. Það mun hafa slæmar af- leiðingar fyrir þá. „Viljið þið gefa mömmu í soðið?“ Eftir Hallgrím Sveinsson og Bjarna Georg Einarsson »Nú er það stóra spurningin hvort kvótagreifarnir á Ís- landi vilja gefa mömmu í soðið. Vilji þeir það ekki, þekkja þeir ekki sinn vitjunartíma. Hallgrímur Sveinsson Hallgrímur er fyrrverandi stjórnar- formaður Kaupfélags Dýrfirðinga og Bjarni er fyrrum útgerðarstjóri og núverandi ellilífeyrisþegi á Þingeyri. Bjarni Georg Einarsson Ágæti biskup. Fjölmiðlar færa okkur fregnir af því þessa dagana að út sé komin rafútgáfa af Jó- hannesarguðspjalli, þar sem rithöfund- urinn Óttar Norðfjörð hefur tekið sér það skáldaleyfi að um- skrifa guðspjallið eftir eigin höfði. Af því til- efni finn ég mig knú- inn til þess að rita þér opinberlega, þar sem þessi útgáfa og skrumskæl- ing guðspjallsins hefur vakið hjá mér margar spurningar, sem ég þykist fullviss að fleiri deili með mér. Við höfum alla tíð nálgast Biblí- una sem „hina helgu bók“. Hún er opinberun heilags Guðs til syndugs mannkyns og m.a. vitnisburður um hjálpræðisverk hans, er hann í Jesú Kristi sætti heiminn við sig. Heilagleiki Guðs er vitnisburður um einstakt eðli hans og á sama hátt er hin heilaga bók í mínum huga einstök, ósnert- anleg opinberun. Á sama hátt og faðirinn er heilagur er sonurinn það einnig, því gat hann sagt: „Ég og fað- irinn erum eitt.“ Nú hefur höfundur hinnar nýútkomnu bókar gefið út bók með óbreyttu nafni eins guðspjallanna og að hans eigin sögn að meginhluta óbreyttu en um leið „snúið text- anum á haus“. Þar hefur höfundur leyft sér að hafa endaskipti á persónum guð- spjallsins og m.a. sett aðra persónu frásögunnar í Krists stað og látið hana deyja á krossinum. Hvar eru þolmörk trúarinnar? Hvar eru mörk guðlasts og tjáningarfrelsis? Í huga mínum er ljóst, að það verður eng- inn annar settur í stað Jesú Krists sem frelsari manna. Hann einn er Guð, stiginn niður til okkar og megnar einn að vinna það hjálpræð- isverk sem ritningin segir frá. Að setja mannlega veru í hans stað er að upphefja manninn til þess að vera Guði líkur, sem reyndar hefur verið tilhneiging okkar mannanna alla tíð. Það er þessi afskræming texta heilagrar ritningar sem ég get ekki unað og því hlýt ég að bregðast við. Það er meginhvati þessa bréfs. Síðan bregður svo við að þrír prestar kirkjunnar, þar af einn starfsmaður á Biskupsstofu, leggja blessun sína yfir athæfið í eftirmála við bókina. Telja það mjög áhuga- vert og varpa nýju ljósi á frásagnir guðspjallsins. Enn verð ég að játa, að þetta vakti vægast sagt undrun mína. Ég velti því fyrir mér hvað væri orðið af heilagleika ritning- arinnar og vígsluheiti þeirra um trúfesti gagnvart þessu orði. Væri það með velþóknun kirkjunnar, eða a.m.k. með afskiptaleysi hennar, að Biblían væri bútuð niður í afskræm- ingar og gefin út? Ég velti því líka fyrir mér hvort biskupinn minn tæki undir með þessum þjónum sín- um og lýsti, jafnvel með þögninni, yfir áhuga og velþóknun sinni á verknaðinum? Þessi útgáfa særir mig og van- virðir trú mína og því leyfi ég mér að spyrja þig, frú biskup, op- inberlega og vænti svara á sama vettvangi:  Hefur Biblíufélagið gefið heim- ild til notkunar á heiti og þýðingu á texta guðspjallsins eða telur þú að hér geti verið um ritstuld að ræða?  Finnst þér ásættanlegt að rit Biblíunnar séu umskrifuð og afbök- uð með þeim hætti, sem Óttar Norðfjörð hefur gert? Hvert sem svar þitt er vil ég gjarnan heyra rök þín fyrir svarinu.  Finnst þér ástæða til þess að mótmæla, fordæma eða krefjast lögbanns á þessa notkun ritning- arinnar og þá hvers vegna?  Finnst þér ásættanlegt að prestar þjóðkirkjunnar taki þátt í þessum verknaði og lýsi á óvefengj- anlegan hátt yfir áhuga sínum og velvilja til hans? Nánari rök fyrir svarinu óskast.  Finnst þér ástæða til þess að bregðast við þessu máli á einhvern annan hátt en fram kemur í svörum þínum við framangreindum spurn- ingum? Hvar eru þolmörk trúarinnar? Eftir Jóhannes Ingibjartsson » Bréfið er fyrirspurn til biskups, frú Agnesar Sigurðardótt- ur, í tilefni útkominnar rafbókar Óttars Norð- fjörð um endurritað Jó- hannesarguðspjall. Jóhannes Ingibjartsson Höfundur er byggingafræðingur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.