Morgunblaðið - 05.06.2014, Síða 30

Morgunblaðið - 05.06.2014, Síða 30
30 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JÚNÍ 2014 ✝ Þökkum öllum sem sendu okkur hlýjar kveðjur við andlát móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, ÁSLAUGAR THORLACIUS. Örnólfur Thorlacius, Rannveig Tryggvadóttir, Kristín R. Thorlacius, Kristín Bjarnadóttir, Hallveig Thorlacius, Ragnar Arnalds, Kristján Thorlacius, Ásdís Kristinsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÁSGEIR ÓLAFSSON frá Grænumýri á Seltjarnarnesi, lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli að kvöldi þriðjudagsins 3. júní. Ólafur Ásgeirsson, Eirný Ásgeirsdóttir, Ingibjörg Ásgeirsdóttir, Magnús Ásgeirsson, Sigríður Jóna Jónsdóttir og fjölskyldur. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir og afi, JÓN HALLDÓRSSON bóndi, Kambshóli, sem varð bráðkvaddur á heimili sínu mánudaginn 26. maí, verður jarðsunginn frá Víðidalstungukirkju laugardaginn 7. júní kl. 14.00. Jóhanna Þórarinsdóttir, synir, tengdadætur og barnabörn. ✝ Dóttir okkar, systir, mágkona og móðursystir, SOLVEIG THORLACIUS, lést sunnudaginn 1. júní á líknardeild Landspítalans. Hún verður jarðsungin frá Hallgrímskirkju föstudaginn 13. júní kl. 13.00. Ásdís Kristinsdóttir, Kristján Thorlacius, Áslaug Thorlacius, Finnur Arnar, Sigrún Thorlacius, Pálmi Jónasson, Sigríður Thorlacius, Hera, Salvör, Ásdís, Kristján, Auður, Hallgerður, Helga, Kristín og Áslaug. ✝ Ástkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir og afi, GUNNAR BENEDIKT BENEDIKTSSON, Blöndubakka 7, Reykjavík, lést laugardaginn 31. maí á líknardeild Landspítalans í Kópavogi. Starfsfólk líknardeildar fær sérstakar þakkir fyrir einstaka umönnun og hlýju. Útförin mun fara fram frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 11. júní kl. 15.00. Jóhanna Pétursdóttir og fjölskylda, Guðlaug Erla Gunnarsdóttir, Birgir Óli Einarsson, Gunnar Oddgeir Birgisson, Þórunn Hvönn Birgisdóttir. Rangt nafn í undirskrift Við birtingu minningargreina um Ellert Björn Skúlason urðu þau leiðu mistök, fyrir röð óheppilegra tilviljana, að vitlaust nafn birtist undir grein Elínar Guðnadóttur, eiginkonu hins látna, en sú grein var fyrst í röðinni. Halla Björg Evans, sú er skrifuð var fyrir greininni, er barnabarn hins látna og skrif- aði aðra grein, ásamt fjölskyldu sinni. Morgunblaðið biður hlutaðeigendur velvirð- ingar. LEIÐRÉTT Ellert Björn Skúlason ✝ Sverrir Bene-diktsson fædd- ist 3. ágúst 1929. Hann lést á sjúkra- húsinu á Seyðisfirði 19. maí 2014. Foreldrar Sverr- is voru hjónin Björg Bjarnadóttir, f. 20. júlí 1892, d. 10. mars 1985, og Benedikt Ein- arsson, f. 31. maí 1894, d. 16. janúar 1972. Systkini Sverris voru Unnur, f. 12. apríl 1927, d. 4. desember 2010, og Ingólfur, f. 6. janúar 1932, d. 26. ágúst 2013. Sverrir kvæntist Sigríði Jóns- dóttur 1957 og skildu þau sama ár. Þau eignuðust einn son, Örn Benedikt, f. 12. júlí 1957, og er hann kvæntur Ingibjörgu Guð- nýju Marísdóttur, f. 30. apríl 1963. Börn þeirra eru Magnús Orri, f. 27. sept- ember 2001, og María Rós, f. 20. nóvember 2003. Fyrir á Örn Davíð, f. 22. febrúar 1982. Sverrir fæddist á Reyðarfirði og fór hann að vinna á Suð- urnesjum, fyrst á sjó og síðan hjá hernum á Keflavík- urflugvelli. Síðan fluttist hann á Reyðarfjörð og vann þar hjá Vegagerðinni og síðan hjá Kaup- félagi Héraðsbúa sem hafnar- verkamaður. Sverrir og faðir hans stunduðu frístundabúskap með kindur allt til um 1980. Útförin fór fram 27. maí 2014 í Reyðarfjarðarkirkju. Það ymur tregatónn við eyrum þegar gömlu vinirnir heima kveðja einn af öðrum og nú er það Sverrir minn Benediktsson sem kvaddi eft- ir alllanga dvöl á Seyðisfirði, þar sem óminnið hafði fyrir nokkrum árum sótt hann heim. Upp í hug- ann koma ein af annarri myndir af þessum góðvini okkar hjóna um áratugi, Reyðfirðingi af lífi og sál . Unglingur utan úr þorpi kemur heim í Seljateig að sækja kindur föður síns og hefur frá mörgu að segja, ræðinn og skemmtilegur og talar við drenginn á bænum sem fullorðinn mann um tíðarfar og skepnuhöld þegar hann fylgir hon- um í fjárhúsin og þeir deila sameig- inlegum áhuga. Unglingurinn var Sverrir Ben. Barnaball og ungur maður situr á sviðinu í samkomu- bragganum heima og leikur á harmonikku og sveitardrengurinn dáist að. Þetta var Sverrir Ben, yndi hans af tónlist ósvikið alla tíð. Smalamennska að hausti: Njörva- dalsáin skilur lönd Seljateigs og Kollaleiru og vaskur og sprettharð- ur maður gætir þess að Eyrarféð fari ekki inn fyrir ána. Heilsar glað- lega og spjallar, þegar við erum hvor sínum megin árinnar, hleypur svo fyrir næsta hóp. Þetta var Sverrir Ben. Ég ungur og óreynd- ur að fá gott fólk á fyrsta framboðs- listann minn heima, kem til Sverris og ber upp erindið, ekki of boru- brattur: Meira en sjálfsagt var svarið á stundinni. Þetta var Sverr- ir Ben. Engan mann sá ég fylgjast með kosningaúrslitum af eins lif- andi áhuga og Sverri Ben, þó tók út yfir allt þegar fótboltinn var annars vegar, engan sá ég eða heyrði standa jafninnilega með sínum mönnum, hvetjandi og leiðbeinandi sem mest hann mátti. Valur var fé- lagið hans og síðar arftakar þess og hjá Sverri ríkti hinn sanni íþrótta- andi. Og svo má ekki gleyma því þegar um götur heima ók maður á rauðri vespu, þeirri fyrstu þar í bæ, hver nema Sverrir Ben. Sverrir var röskleikamaður, eins og hann átti kyn til í báðum ættum. Hann var fóthvatur og snöggur til at- hafna, verkmaður ágætur. Hann vann m.a. á yngri árum hjá Vega- gerð ríkisins sem vélamaður og góðvinur okkar Vigfús Ólafsson sagði mér, að þegar eftirlitsmaður frá VR hefði farið um landið þá hefði vélin hjá Sverri þótt sú best með farna af öllum á landinu. Það sýndi natni hans og hirðu- semi. Hann hefði líka orðið ágætur bóndi, enda stóð hugur hans til þess, átti svo sem faðir hans af- urðagott fé. Sverrir fylgdist afar vel með og var víða heima, vel lát- inn af samferðafólki, fróður og við- ræðugóður. Magnaður í snjöllum tilsvörum. Honum er samfylgdin þökkuð, ekki síst fylgd við sameig- inlegan málstað, dýrmæt var hún á sinni tíð. Syni hans og öðru fólki Sverris sendum við Hanna samúð- arkveðjur. Blessuð sé minning hins mæta vinar okkar. Helgi Seljan. Á vegferð þinni ei verði ský, vænkast æ þinn hagur. Vinátta okkar verði hlý, sem vorsins feg- ursti dagur. Þessi fallegu orð færð- ir þú mér eitt sinn að gjöf á afmæl- inu mínu, í þeim liggur þín eina og besta ósk mér til handa, þér var eftir að við kynntumst mjög um- hugað um hag minn og Sigurjóns, við áttum að hafa það sem best og fá allt það besta, þú hugsaðir um okkur eins og við værum þín eigin börn. Kannski var lífið þér ekki alltaf hliðholt, en einhverju sinni vorum við að spjalla, þú uppskerð eins og þú sáir, góða mín, sagðir þú, það er satt, sagði ég, láttu mig vita það, ég hef ekki alltaf notað réttu fræin og fengið uppskeru eft- ir því, sagðir þú, ég efast ekki um að það sé rétt hjá þér núna þegar ég horfi yfir farinn veg, margt hefði eflaust getað verið öðruvísi, en hefðir þú þá verið Sverrir Ben, Góði dátinn, meistarinn, nein það held ég ekki, þá hefðir þú verið líka öðruvísi og það er eitthvað sem samferðamenn þínir hafa enga þörf fyrir. Ríkidæmi þitt var gróp- að í gleði og kátínu, snertanlegir hlutir skiptu þig litlu máli, svo litlu að stundum gerðir þú sjálfum þér hinn mesta óleik, ég gleymi aldrei hve glaður þú varst þegar þú flutt- ir búferlum í Sunnugerðið, þar tókst okkur að gera þér huggulegt heimili síðustu árin, þú naust ör- yggisins sem nýja heimilið bauð þér, núna allra síðustu árin hefur þú svo dvalið á Sjúkrahúsinu á Seyðisfirði, undir þú dvöl þinni vel þar og þér leið vel, tíminn hefur ýtt þér lengra og lengra inn í einangr- aðan heim Alzheimers, það hefur reynst mér erfitt að fylgjast með þér á þeirri ferð, núna er henni lok- ið. Þú varst líka faðir og afi, já hann Öddi þinn er gull af manni og kon- an hans Inga yndisleg, þau eiga Magnús og Maríu sem þau fóru yf- ir fjöllin sjö að sækja, já það þótti þér, elsku karlinn minn, alveg ótrúlegt, að upplifa með þér gleðina yfir barnabörnunum og að þú værir að verða afi er eitthvað sem ég get ekki fært í orð, þú grést lengi, svo mikil var gleðin, tilfinn- ingar þínar voru ólýsanlegar. Ekki má heldur gleyma Davíð sem Öddi átti áður en hann kynntist Ingu, þar áttu duglegan afastrák sem hefur staðið sig vel í lífinu, og þú varst afskaplega montinn þegar þú sagðir mér að hann væri að læra að verða flugmaður, þig langaði svo að fá tækifæri til að fljúga með honum en það tækifæri gafst ekki, núna þegar þú ert farinn í sum- arlandið treysti ég því að þú styðjir þau öll í því sem þau taka sér fyrir hendur, og notir mátt þinn í eitt- hvað gott þeim til handa. Elsku Sverrir minn, nú er komið að leið- arlokum að sinni, ég fer með þér síðustu sporin upp í flutningabílinn sem þú ferðast með í síðasta sinn, það á vel við að flutningabíll sé síð- asti ferðamátinn því oftar en ekki tókst þú þér far með þeim hér á milli fjarða og hafðir gaman af, vona að síðasta ferðin verði jafn góð og hinar, og enga hrekki á leið- inni. Að lokum vil ég þakka starfs- fólki Sjúkrahússins á Seyðisfirði fyrir góða umönnun. Ödda, Ingu, Magnúsi, Maríu, Davíð og fjöl- skyldunni allri votta ég mína dýpstu samúð, minning um góðan mann lifir með okkur öllum. Guðrún Sælín Sigurjónsdóttir. Sverrir Benediktsson Steinunn Magnúsdóttir Steph- ensen, eða Steina frænka eins og við bræður kölluðum hana, tók sín Steinunn M. Stephensen ✝ Steinunn M.Stephensen fæddist á Auðnum á Vatnsleysuströnd 2. október 1934. Hún andaðist á Hrafn- istu í Hafnarfirði 2. apríl 2014. Útför Steinunnar var gerð frá Lang- holtskirkju 16. apríl 2014. fyrstu spor á Vatns- leysuströndinni þar sem faðir hennar var bóndi á Auðnum. Hún flutti síðan í Flóann með foreldr- um sínum, að Jórvík, og bjó þar þangað til fjölskyldan flutti til Reykjavíkur á stríðsárunum. Þar lauk Steina sínu skyldunámi og hóf síðan störf í Reykjavíkurapóteki sem átti eftir að verða hennar framtíðarvinnustaður þar til hún veiktist vorið 1989. Í apótekinu kynntist hún mörgu góðu fólki sem leiddi til ævilangrar vináttu. Steina var glöð í skapi og ætíð mjög sátt og ánægð á sínum vinnustað og menntaði hún sig á sviði lyfjatækni. Ferðalög, innanlands sem utan, áttu hug hennar og hjarta. Steina ferðast mikið hér á landi, fór í margar gönguferðir um hálendið og kynntist helstu frumkvöðlum í fjallamennsku hér á landi bæði í Ferðafélagi Íslands og síðar Úti- vist. Hún hafði stigið á helstu tinda Íslands og gengið um mörg feg- urstu svæði landsins. Þórsmerkur- ferðir urðu margar enda var Þórs- mörk einn uppáhaldsstaður hennar og tók hún oft okkur bræð- ur með og vakti þannig áhuga okk- ar á gönguferðum og útivist. Steina var mikill náttúruunnandi og hafði mikinn áhuga á blómarækt. Þetta áhugamál sitt gat hún stundað af meiri natni er móðurbróðir hennar ánafnaði henni sumarbústað sinn í Lækjarbotnum. Þar dvaldi hún tíð- um ásamt Siggu systur sinni á meðan heilsan leyfði og voru allir gestir hjartanlega velkomnir. Ég minnist þess hve hjálpsöm Steina var við ættingja sína og naut ég þess þannig að hún hafði gaman af að passa dætur mínar. Það er nokkuð sem við eigum góðar minn- ingar um. Síðustu átta ár ævi sinn- ar bjó Steina á Hrafnistu í Hafn- arfirði en þangað fluttist hún árið sem systir hennar Sigríður lést en þær höfðu haldið heimili saman fram að því. Á Hrafnistu fékk hún góða umönnun og var sátt við sitt og naut sín sérstaklega í handa- vinnunni sem þar var boðið upp á. Kveð góða og hjálpsama frænku. Magnús Haraldsson. Elskulega Hrefna er fallin frá. Þessi góðhjartaða, klára og fallega kona sem vildi öll- um vel og okkur þótti svo vænt um. Hrefnu og Jóni Þór, eftirlifandi manni hennar, kynntist ég fyrst er leiðir okkar lágu saman í tengslum við fyrirtækið mitt fyrir um 13 ár- um síðan. Eftir að formlegu sam- starfi lauk héldu vináttuböndin Hrefna Beckmann ✝ Hrefna Beck-mann fæddist 20. júlí 1940. Hún lést 19. nóvember 2013. Bálför hennar fór fram 16. desem- ber 2013 en duftker hennar verður jarð- sett í duftreitnum í Fossvogi í dag, 5. maí 2014. áfram að styrkjast og þau Hrefna urðu sífellt nánari fjöl- skylduvinir, ekki síst eftir að við eignuð- umst börnin okkar þrjú. Oft upplifði maður að börnin hefðu eignast nýja ömmu og afa, slík var ástin og um- hyggjan fyrir þeirra velgengni og vellíð- an. Sérhver afmælis- og jólagjöf var vandlega valin með notagildi lærdóms og skemmtunar í huga og hugur Hrefnu skein í gegn. Í hvert sinn sem við hittumst, hvort sem var á heimili okkar á Íslandi eða Englandi, í Kuðungnum þeirra á Stokkseyri eða á heimili þeirra í Reykjavík, voru móttök- urnar alltaf þær sömu: opinn faðmur, skemmtilegar og lær- dómsríkar reynslusögur og tak- markalaus áhugi á því sem við höfðum að segja. Þá var vega- nestið ávallt ráð, dáð og lausnir við öllu því sem olli okkur hugarangri eða við vorum að fást við á hverj- um tíma. Hrefna var heimsborg- ari, nösk á að lesa lífið eins og það er og fljót að lesa í aðstæður. Þau hjónin hafa verið dyggustu stuðningsmenn okkar hjóna alveg frá fyrstu kynnum og höfum við óhikað leitað til þeirra með ýmis óleyst vandamál sem þau greindu með okkur þar til lausnin var fund- in. Hafsjór af þekkingu og fjöl- breyttri reynslu hefur alltaf verið okkur aðgengileg auðlind sem og væntumþykja og kærleikur. Jón Þór sagði mér eitt sinn að þegar Hrefna var í barnaskóla og var beðin um að telja upp sjö und- ur veraldar hefðu svör hennar verið önnur en hinna barnanna. Hrefna taldi ekki upp frægar byggingar heldur sagði að undur veraldar hlytu að vera fleiri en sjö og byrjaði svo að telja þau upp: Að sjá, heyra, snerta o.s.frv. Það er því við hæfi að kveðja Hrefnu með nokkrum ljóðlínum um hennar kosti, lífssýn og undur. Að vita, vilja, veröld skilja. Að hlæja, heyra, heimt’ ei meira. Að skapa, skreyta skynja, veita. Að bragða, bæta, bakka’ upp, mæta Að elska, efla andúð hefla. Að vinna, vanda, við orð standa. Við örlög veðja, vitja, kveðja. Davíð Guðjónsson, Sara Hlín Hálfdanardóttir og börn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.